NT - 21.06.1984, Page 14

NT - 21.06.1984, Page 14
 Fimmtudagur 21. júní 1984 14 Utt< ——' ' ............................................................................ ..................................................... cc Fimmtudagur 21. júní 1984 15 ’N -----------1 Konurnar tóku skólakerfið með skyndiáhlaupi og urðu: Hin hámenntaða láglaunastétt nútímaþjóðfélags ■ Konur eru áfram láglaunastétt í þjóðfélag- inu, þrátt fyrir stóraukna menntun. Jafnréttis- barátta kynjanna og hin hefðbundna verkaskipt- ing kynjanna eru að vísu andstæður sem við fyrstu sýn kunna að virðast illsættanlegar en hafa engu að síður orðið samverkandi orsakir fyrir aukinni sókn kvenna í háskólanám. Fjölgun kvenna í háskóla hefur hins vegar ekki að verulegu leyti raskað hlutföilunum innan hefðbundinna karlagreina í Háskóla Islands, þótt vissulega megi sjá þess nokkur merki að konur séu þar í sókn. Það er ekki nóg með að konur velji sér yfirleitt námsgreinar sem leiða til lægri launa hjá hinu opinbera, margar kvennagreinar leiða því nær einungis til starfa í opinberri þjónustu, meðan margir karlmenn fara í háskóla til að búa sig undir störf í einkageiranum þar sem launin eru miklum mun hærri. ■ í NT-úttekt hinn 30. maí sl. kom í ljós að konur eru nú komnar í öruggan meirihluta sem nemendur við æðri mennta- stofnanir þessa lands. Stór meirihluti nýstúdenta á ári hverju eru konur og fleiri konur ljúka nú orðið prófum frá há- skólum hérlendis en karlar. Línuritin hér í opnunni bera þó greinilega með sér að þar með er ekki öll sagan sögð. Konur fara nefnilega ekki í háskóla til að læra það sama og karlmenn. Námsgreinar á háskólastigi skiptast mjög á- kveðið í „karlagreinar" og „kvennagreinar". Þannig eru það næstum ein- vörðungu konur sem fara í hjúkrunarfræði og þær eru í miklum meirihluta þegar um er að ræða námsgreinar eins og sjúkraþjálfun og ýmsar greinar sem að jafnaði leiða til kennslu- starfa. Á hinn bóginn voru 97% þeirra sem luku prófi í verkfræði skólaárið 1982-83, karlmenn. Það er enn tiltölulega sjaldgæft að konur gerist tannlæknar og karlmenn eru enn í „traustum“ meirihluta í læknisfræði, við- skiptafræði og lögfræði svo dæmi séu tekin. - Kvennagreinar upp í háskóla Að stórum hluta virðist skýr- inga á hinni gífurlegu fjölgun kvenna í háskólum vera að leita í þeirri staðreynd að ýmsar dæmigerðar kvennagreinar hafa flust upp á háskólastig. Þannig var hægt að verða hjúkrunar- kona eða kennslukona í gamla daga án þess að stúdentspróf þyrfti til. Það vekur einnig athygli að konur eru í meirihluta við ýmsar nýjar námsgreinar sem kenndar eru við félagsfræðideildina í Háskóla íslands. Áður þurfti yfirleitt að sækja menntun í þessum greinum út fyrir pollinn og það voru að sjálfsögðu í flest- um tilvikum karlmenn sem það gerðu. Síðan félagsfræðideildin við HÍ var stofnuð og konur tóku að sækja í þess háttar námsgreinar í auknum mæli, er ekki örgrannt um að (karl)menn í viðkomandi störfum séu teknir að óttast að launataxtar þeirra muni smám saman síga niður á við. - Konur velja lágiaunagreinar Það mun raunar vera á flestra vitorði að dæmigerðar kvenna- greinar á háskólastigi leiða til mun lægri launa að námi loknu en þær greinar sem karlmenn sækja meira í. Þetta kemur mjög glögglega í ljós þegar súluritið hér á opnunni er skoð- að og borið saman við launa- taxta Bandalags háskólamanna (línuritið fyrirofan). í súluritinu er námsgreinum raðað eftir hlutfallslegum fjölda kvenna sem luku prófi í viðkomandi námsgrein á skólaárinu 1982-83 þannig að þær námsgreinar, sem hlutfallslega flestar konur stunda, lenda lengst til vinstri. Eftir því sem lengra kemur til hægri í súluritinu fjölgar karl- mönnum og laun stíga að sama skapi. Hér er þó raunar alls ekki öll sagan sögð, því kvennagrein- arnar leiða undantekningarlítið til starfa hjá hinu opinbera (hver þekkir hjúkrunarkonu í einka bisniss?), en margar dæmigerð ar karlagreinar búa menn undir störf hjá einkafyrirtækjum og það er kunnara en frá þurfi að segja að menntamenn eru yfir- leitt mun betur launaðir hjá 118 ■ Súluritið sýnir hlutfallslega skiptingu kynjanna á námsgreinar i háskólum og er þá miðað við þá sem luku prófum á háskólaárinu 1982-83. Bláu súlumar sýna hiutfall karlmanna og ef súluritið er borið saman við línuritið fyrir ofan kemur i Ijós að hlutfall karlmanna í námsgreininni vex í réttu hlutfalli við launakjör að námi loknu. Línuritið sýnir áætluð launakjör í viðkomandi starfsgreinum samkvæmt kjarasamningum Bandalags háskólamanna. Við gerð línuritsins var stuðst við töflu um dreiflngu ríkisstarfsmanna innan launamálaráðs BHM og fundin meðalgildi innan starfsgreinanna. Launamunur milli opinberrar þjónustu og einkageirans er ekki tekinn með hér, en benda má á að hinar dæmigerðu kvennagreinar leiða í flestum tilvikum til starfa hja hinu opinbera meðan karlagreinarnar leiða oft til betur launaðra starfa í einkageiranum. einkafyrirtækjum heldur en op- inberum aðilum, þótt enginn virðist raunar vita með vissu hversu mikill sá munur sé. - Konurnar sækja á, eða...? Þegar litið er á þróun síðustu tuttugu ára eða svo virðist þó ljóst að konur séu heldur að sækja á jafnvel þegar um er að ræða dæmigerðar karlagreinar. Þannig fjölgar þeim konum stöðugt sem leggja fyrir sig læknisfræði og það þykir a.m.k. ekki lengur nein meiri háttar goðgá þótt konur láti skrá sig til náms í jafn hefðbundinni karla- grein og verkfræði. Séu línuritin yfir þessa þróun skoðuð, vaknar þó sú spurning hvort þróunin sé ef til vill að snúast við aftur. Að minnsta kosti verður ekki betur séð en konum hafi fækkað nokkuð í flestum hefðbundnum karla- greinum síðan 1980. Rétt er þó að geta þess að tiltölulega litlar sveiflur geta virst býsna stórar á línuriti vegna þess hversu lágar tölurnar eru, þ.e. hve tiltölulega fáir Ijúka námi í einstökum greinum ár hvert. Þrátt fyrir það, sem rakið er hér að framan, virðist full á- stæða til að ætla að sú barátta, sem konur hafa háð fyrir jafn- rétti undanfarna áratugi, hafi skilað umtalsverðum árangri a.m.k. á þessu sviði, þótt á hinn bóginn sé jafnljóst að enn er langt í það að fullt jafnræði ríki milli kynjanna um menntun og laun. - Lækka heilar stéttir í launum? Þrátt fyrir áratuga baráttu kvenna fyrir launajafnrétti virð- ist það enn vera býsna viðtekin regla að laun kvenna séu lægri og oft á tíðum mun lægri en karla. Má jafnvel leiða líkum að því að hlutfallsleg fjölgun kvenna í starfsstétt leiði til launalækkunar þegar horft er til lengri tíma. Þannig munu ekki margir treysta sér til að mæla á BA-Félagsfræðideild l- 50 40 30 20 10 _i___ 1965 70 75 80 83 BA-Heimspekideild móti því að almenn kennara- laun séu nú hlutfallsega mun lægri en þau voru meðan karl- menn voru í meirihluta í stétt- inni. Ef marka má námsgreinaval kvenna, verður ekki betur séð en þær geri sér launamisréttið að góðu. Grunur leikur einnig á því, þótt hér verði ekki sýnt fram á það með hörðum tölum, að ekki ríki fullkomið launa- jafnrétti meðal karla og kvenna sem eiga samskonar nám að baki. Þannig má a.m.k. leiða getum að því að algengara sé að konur sætti sig við launataxta hins opinbera og hljóti að jafn- aði lægri og ver launuð störf í einkageiranum, auk þess sem þær eru sjaldnar yfirborgaðar. - Andstæðurnar í sömu átt toga Konur eru þannig áfram lág- launastétt í þessu þjóðfélagi, þrátt fyrir stóraukna menntun og þrátt fyrir það að til þeirra séu gerðar auknar menntunar- kröfur. Hér hefur að vísu ekki verið gerður samanburður á launakröfum háskólamennt- aðra kvenna og launum viðtek- inna karlmannastétta þar sem mun styttri skólaganga er að baki, en engu að síður mun mega fullyrða að t.d. velflestir iðnaðarmenn búi við mun betri launakjör en konur sem koma út á vinnumarkaðinn að loknu háskólanámi í einhverri kvennagreininni. Að öllu þessu athuguðu virð- ast vera tvær meginskýringar á hinni stórauknu háskóla- menntun kvenna. Annars vegar hefur kvennabarátta síðustu áratuga borið nokkurn árangur, hins vegar eru nú gerðar meiri kröfur til menntunar kvenna í ýmsum hefðbundnum kvenna- greinum. Það kann að virðast nokkuð ankannalegt að þvílíkar and- stæður sem jafnréttisbarátta kvenna og hefðbundin verka- skipting kynjanna togi þannig í sömu átt, en það hlýtur engu að síður að verða niðurstaða þess- arar úttektar. Texti og styringarmyndir: ""Danietesön O'aðamaður BS-Raungreinar Lögfræði 50 40 30 20 10 1965 70 75 80 __ 83 40 20 • 10 1965 70 75 80 83 Læknisfræði Viðskiptafræði Verkfræði 1965 40 30 20 • 10 1965 70 75 80 83 þessi linurit sýna þróun kynskiptingar í nokkrum námsgreinum í háskólum á tímabilinu 1965 til 1983. Er þá miðað við fjölda karla og kvenna sem tóku lokapróf í þessum greinum. Hnúðóttu línurnar tákna karlmenn.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.