NT - 21.06.1984, Blaðsíða 24
■ Efnaverksmiftjan C.H.Boeringer í Hamborg, sem lokað
hefur verið vegna þess að hún gat ekki framfylgt skipunum
horgarvlirvalda um að fjarlægja úrgang sem inniheldur eitrið
dÍOXÍn. POLFOTO-Símamynd
Chile:
Konurnar
rændu
prestinum
Santiago-Reuter
■ Safnaðarkonur í Car-
taganahéraði í Chile hafa
rænt presti sínum til að
koma í veg fyrir að hann
verði fluttur til annars
safnaðar.
Presturinn, séra Jaime
Manriques hvarf á laugar-
dag og safnaöarkonurnar
sögðu fréttamönnum á
frekar óvenjulegum
blaðamannafundi í vik-
unni að þær myndu ekki
gefast upp hvaða af-
leiðingar sem það hefði í
för með sér.
Lögregla leitar enn séra'
Manriques, sem á að taka
við prestakalli í austur-
hluta landsins
Efnaverksmiðju lokað
vegna díoxinmengunar
tlamborg-Keuter
■ Fyrirtækið C.M.Boeringer
hcfur ákveðið að loka efnaverk-
smiðju sinni í Hamborg vegna
þess að það getur ekki framfylgt
nýsettri reglugerð borgaryfir-
valda um að fjarlægja úrgang
sem inniheldur dioxin, en það
er banvænt eitur. Þetta er í
fyrsta sinn sem yfirvöld í Vestur-
Þýskalandi neyða fyrirtæki til
að hætta starfsemi vegna um-
hverfisverndar.
Umhverfismálaráðherra
Hamborgar skipaði fyrirtækinu
að hætta að safna saman úrgangi
sem myndaðist við framleiðslu
á skordýraeitrinu Lindan eftir
að rannsóknir sýndu að úr-
gangurinn innihélt mikið af di-
oxini. Verksmiðjan varstöðvuð
á þriðjudag og formælandi fyrir-
tækisins sagði í gær að hún yrði
ekki sett í gang aftur. Hann
sagði að þessi ákvörðun hefði
sett fordæmi sem myndi valda
cfnaverksmiðjum í Þýskalandi
miklum vandræðum. 2(MI manns
missa atvinnu sína hjá verk-
smiðjunni.
íbúar í Hamborg hófu her-
ferð gegn verksmiðjunni eftir
sjónvarpsþátt sem sýndur var
fyrir skömmu en þar var látið að
því liggja að rekja mætti fjölgun
vanskapaðra barna í Hamborg
til dioxinúrgangs frá verksmiðj-
um.
Mál þetta hefur vakið mikla
athygli í Evrópu og hafa nokkrir
þingmenn á Evrópuþinginu lát-
ið að því liggja að þeir muni
beita sér fyrir banni á fram-
leiðslu og notkun efna sem inni-
halda dioxin.
Fimmtudagur 21. júní 1984 24
Útlönd
Tyrki ferst
í sprengingu
Vín-Reuter
■ Tyrkneskur sendiráðsstarfs-
maður í Vín fórst í gær þegai
sprengja sprakk í bíl hans fyrir
utan tyrkneska sendiráðið.
Armenski byltingarherinn hefur
lýst því yfir að hann beri ábyrgð
á sprengingunni.
Sendiráðsmaðurinn, sem hét
Erdogan Ozen var um það bil
að hætta störfum í Vín og
flytjast heim aftur. Hann
geymdi bíl sinn í vaktaðri bíla-
geymslu en nóttina fyrir spreng-
inguna stóð bíllinn fyrir utan
hús Ozen.
Armenski byltingarherinn
hefur myrt u.þ.b. 40 manns
víðs vegar um heiminn, yfirleitt
tyrkneska sendimenn, til að
hefna fyrir meint þjóðarmorð á
Armeniumönnum í Tyrklandi í
upphafi þessarar aldar.
Lögregluþjónn særðist alvar-
lega í sprengingunni og fjórir
aðrir vegfarendur voru fluttir á
sjúkrahús.
■ Sprengjan sem varð tyrkneska sendiráðsmanninum í Vín að bana í gær var mjög öilug. Hlutar úr
bílnum þeyttust yfir götuna og rúður í nálægum bílum splundruðust. Myndin sýnir fiak bflsins sem
sendiráðsmaðurinn ók, eftir sprenginguna. poLFOTO-símamynd
Fólksfjölgunin
ógnar framtíð
mannkynsins
Wa.shinj>ton-Keuter.
■ Mannfjölgun í veröldinni
er enn alltof mikil og ógnar
framförum og bættum lífs-
kjörum í mörgum löndum,
þrátt fyrir að hægt hafi á
mannfjölguninni á síðasta ára-
tug. Þetta kemur fram í grein
sem Robert McNamara fyrr-
verandi bankastjóri Alþjóða-
bankans skrifaði og birtist í
tímariti í gær. Grein hans er
byggð á rannsóknum sem gerð-
ar voru á vegum Alþjóðabank-
ans.
Fram kemur að verði ekki
gripið til róttækra ráðstafana
til að draga úr fólksfjölguninni
muni íbúum jarðar fjölga úr
4.7 milljörðum, eins og þeir
eru nú, í 11 milljarða í lok
næstu aldar. Vissir heimshlutar
og ríki yrðu svo fjölmenn að
útilokað væri að halda þar
uppi stjórnmálalegum stöðug-
leika, efnahagsstjórn eða við-
unandi lífskjörum.
McNamara spáir því að sum-
ar þjóðir muni setja neyðarlög
um fólksfjölgun og að fólk
verði gert ófrjótt í stórum stíl
án þess að það verði spurt
álits. Fóstureyðingum mun
fjölga og foreldrar munu koma
meybörnum fyrir kattarnef,
þar sem talið verður æskilegra
að ala upp sveinbörn, sem séð
geta fyrir foreldrunum í ell-
inni.
Varað er við of mikilli bjart-
sýni þótt fólksfjölgunin hafi
hægt á sér á áttunda áratugnum
og er talin full ástæða til að
halda áfram að koma í veg
fyrir of miklar barneignir fólks
í fátækum löndum.
Nú byggja um 500 milljónir
manna Afríku. Arið 2100
munu búa þar 3 milljarðar ef
barneignum fækkar ekki. Þá
munu Indverjar vera orðnir
1.8milljarður,eða4(X)milljón-
um fleiri en Kínverjar. í van-
þróuðum ríkjum munu búa 10
milljarðar á móti 1.8 milljarði
í þróuðum ríkjum.
Risaborgir eins og Mexikó-
borg, Sao Paulo, Shanghai,
Bombay og Jakarta munu hafa
tvöfaldað íbúatölu sína árið
2000 og borgum í þróuðum
ríkjum með yfir 10 milljónir
íbúa mun fjölga úr 3 í 21 árið
2100.
McNamara álítur að fólks-
fjöldinn sé þegar orðinn orsök
þess að tilhneiging til einræðis
færist mjög í aukana víða um
heim. Búast megi við að þegar
'ím
lÁ.
Fami IMtntaS
* ' ,$A
f1?:'" ' 'H
_ ■«*„: ..v
?ce
íette
=**»»•
ycmr'
!6
%
■ í Afríku er fólksfjölgunin hvað mest og hafa margar
ríkisstjórnir áhyggjur af þróuninni. Afríkuinönnum fjölgar um
3% á ári og mun íbúatala álfunnar tvöfaldast á 25 árum ef heldur
sem horfir. Víða er unnið gegn fólksfjölguninni. A myndinni eru
ungar stúlkur fyrir framan stórt skilti þar sem lögð er áhersla á
að takmörkun barneigna stuðli að bættu lífi.
fram í sækir muni stjórnvöld
ganga enn meira á mannrétt-
indi hvað varðar flutninga inn-
an landa og átthagafjötrum
verði komið á í mun ríkara
mæli en nú er.
Mannfjölgunin í vanþróuðu
löndunum mun hafa mikil áhrif
á mannlíf í hinum iðnvædda
heimi. Ef mögulegt verður að
viðhalda pólitískum stöðug-
leika mun mikið og ódýrt
vinnuafl vanþróuðu þjóðanna
vega upp á móti tæknivæðingu
iðnaðarþjóðanna og keppa við
vélvædda framleiðslu. Af-
leiðingin gæti orðið sú að mikill
hluti framleiðslunnar muni fær-
ast frá iðnaðarríkjunum til
vanþróaðra landa og muni
valcla miklu atvinnuleysi þegar
fram í sækir.
Þetta munu þróuðu þjóðirn-
ar ekki líða og vafasamt er að
frjáls heimsverslun og tilflutn-
ingur á fjármagni verði eins
mikið í framtíðinni og verið
hefur frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar og stuðlað hef-
ur að miklum hagvexti vfða
um heim.
Bankastjórinn fyrrverandi
skorar á þróaðar þjóðir að
halda fólksfjölgun hjá sér í
skefjum og sýna með því gott
fordæmi og veita vanþróuðum
þjóðum alla þá aðstoð sem
unnt er til að konia í veg fyrir
offjölgun og hann varar við að
reistir verði viðskiptamúrar
sem komi í veg fyrir að van-
þróaðar þjóðir geti selt fram-
leiðslu sína til iðnríkjanna.
Reagan sigrar
í kosningunum
- ef þær yrðu haldnar nú
Washington-Reuter
■ Kosningastjóri Ronalds
Reagan lýsti því yfir í gær að
Reagan myndi vinna stórsigur í
forsetakosningum ef þær yrðu
haldnar nú.
Kosningastjórinn, Ed
Rollins, sagði fréttamönnum að
skoðanakannanir innan Repu-
blikanaflokksins sýndu að Rea-
gan myndi sigra Walter Mon-
dale, væntanlegan frambjóð-
anda demokrata, með 15%
meirihluta atkvæða.
Rollins sagði þó að baráttan
gæti orðið tvísýn ef Mondale
tækist að sameina Demokrata-
flokkinn, sem er nú sundraður
eftir forkosningarnar.
„Munadarlausu“ fóstrin í Melbourne:
Frjóvguð með sæði
óþekkts sæðisgjafa
Washington-Reuter
N Frystu eggin tvö sem urðu
„munaðarlaus" þegar auðug
hjón frá Los Angeles fórust í
flugslysi í fyrra, áður en hægt
var að græða þau í konuna,
voru frjóvguð með sæði frá
óþekktum sæðisgjafa, að sögn
lögmanns dánarbús hjónanna.
Eggin eru geymd í Victoría
læknamiðstöðinni í Melbourne.
Lana Horowitch, lögfræðingur
dánarbús mannsins, Mario
Rios og sonar hans af fyrra
hjónabandi, sagðist hafa talað
við Dr. Carl Wood í læknamið-
stöðinni og hann hefði staðfest
að Roos væri ekki líffræðilegur
faðir fróstranna. Horowitch
sagði að þetta þýddi að sonur
Rios. Michael, væri einkaerfingi
hans. Wood hefur ekki viljað
staðfesta fullyrðingu Horowitch
opinberlega.
Mario Rios og kona hans
Elsa skildu tvö frjóvguð egg
eftir í læknamiðstöðinni og ætl-
uðu síðar að láta græða þau í
konuna. Hjónin fórust í flug-
slysi áður en af því varð en
þegar þetta kom í ljós vöknuðu
upp spurningar um hugsanlegan
erfðarétt fóstranna.
Ríkisstjóri Virginíaríkis hef-
ur skipað nefnd til að álykta um
hvort hægt sé að koma eggjun-
um fyrir í legi annarar konu.
Horowitch hefur beðið Hæsta-
rétt Los Angeles að úrskurða
um langalegan erfðarétt fóstr-
anna, sem er nýmæli í réttar-
sögunni.