NT - 06.07.1984, Blaðsíða 2
Rás2
sendir
w
a
sunnu-
dögum
■ Rás 2 mun útvarpa á
sunnudögum í sumar.
Fyrsta útsendingin verður
nú á sunnudaginn og verð-
ur útvarpað frá kl. hálf tvö
til kl. sex síðdegis.
Þorgeir Ástvaldsson,
útvarpsstjóri á Rás 2 sagði
í stuttu spjalli við NT í gær
að hér væri um að ræða
annað skrefið í aukningu
sendingartíma hjá rásinni.
Þriðja skrefið kæmi von-
andi með haustinu og yrði
þá sennilega sent út lengur
fram eftir kvöldi.
Ríkið tölvuvæðist fyrir 50 milljónir:
Þrjár gerðir
fyrir valinu
- þar á meðal Atlantis-tölvan íslenska
■ Hvorki fleiri né i'ærri en
þrjár tölvutegundir urðu fyrir
valinu, þegar tölvukaup fyrir
ríkisstofnanir voru ákveðin fyrir
nokkrum dögum. Fyrir valinu
urðu Apple II, IBM PC og
íslenska tölvan Atlantis. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
NT hefur aflað sér mun þessi
fjárfesting kosta um 50 milljónir
króna á tveimur árum.
Atlantis tölvan, sem fram-
leidd er af samnefndu fyrirtæki
í Reykjavík, líkist mjög PC
tölvunni og mun að sögn fram-
leiðanda geta notað nánast allan
hugbúnað fyrir þá tölvu. Leiða
menn nú getum að því að það
vaki fyrir opinberum aðilum að
auka hlutdeild Atlantis tölv-
anna í framtíðinni á kostnað
IBM, að því tilskildu að þær
reynist vel.
NT sneri sér til Leifs Steins
Elíssonar hjá Atlantis og spurði
hann hvort íslensk tölvufram-
leiðsla væri með þessu búin að
ná öruggri fótfestu á markaðn-
um.
Leifur Steinn sagði að þetta
þýddi allavega góða fótfestu,
það væri augljóst að stjórnvöld
hefðu áttað sig á þýðingu inn-
lendu framleiðslunnar. „Það
væri einnig skemmtileg viður-
kenning fyrir fyrirtækið," sagði
Leifur Steinn, „að stjórnvöld
hafa a.m.k. ákveðið að reyna
okkur. Við gerum okkur hins
vegar fulla grein fyrir því að það
verður ætlast til mikils af okkur
og við erum staðráðin í að
standa undir þeim kröfum sem
gerðar verða til okkar.“
Skýrslan um vagnstjóra SVR:
Davíð neitar að afhenda
- Magnús hótar dómsaðf ör
Harðar deilur í borgarstjórn. Ingibjörg Sólrún ber sakir á borgarstjóra
■ Meirihluti borgarstjórnar
felldi í gær tillögu Alþýðu-
bandalags þess efnis að Magnús
Skarphéðinsson, fyrrverandi
vagnstjóra SVR, yrði fengið í
hendur afrit af skýrslu, sem
borgarstjóri tók saman um á-
stæður brottrekstrar hans.
Skýrslan var kynnt á borgar-
ráðsfundi sem trúnaðarmál síð-
astliðinn þriðjudag. Sömuleiðis
var felld tillaga Sigurðar E.
Guðmundssonar, Alþýðu-
flokki, þess efnis að forstjóra
SVR yrði falið að gera Magnúsi
nánari skriflega grein fyrir á-
stæðum uppsagnarinnaren fram
kom í uppsagnarbréfi. Harðar
deilur urðu um málið í borgar-
stjórn í gær.
„Lögfræðingur minn skrifaði
borgarstjóra bréf í gær og fór
fram á að mér yrði fengin skýrsl-
an í hendur innan 6 daga, að
Borgarstjórn:
Hundahaldið
samþykkt
■ Nýja reglugerðin um hunda-
hald í Reykjavík var sam-
þykkt í borgarstjórn Reykjavík-
ur í gær með ýmsum breytingum
frá fyrri umræðu. Hún öðlast
gildi þegar hún hefur hlotið
staðfestingu ráðherra og verið
birt í Stjórnartíðindum. Þá fá
hundaeigendur í Reykjavík
þriggja mánaða frest til að skrá
hunda sína, greiða af þeim
leyfisgjöld og tilskildar trygg-
ingar.
Þeir sem hafa haldið hund í
leyfisleysi í Reykjavík geta því
óhræddir viðurkennt brot sitt
því engum verður refsað fyrir
að hafa haldið hund álöglega
eftir að nýja reglugerðin hefur
tekið gildi, svo fremi þeir fara
eftir hinum nýju reglum. 11
borgarfulltrúar greiddu atkvæði
með nýju reglugerðinni, 5 voru
á móti og 5 sátu hjá.
öðrum kosti yrði hún sótt með
dómsaðgerðum", sagði Magnús
Skarphéðinsson, vagnstjóri,
þegar NT ræddi við hann eftir
umræðurnar í gær. „Það þarf
enginn að fara í neinar grafgötur
með það að það er mér í hag að
öllum trúnaði varðandi þetta
mál verði aflétt. Það getur ekki
talist eðlilegt að þykkar skýrslur
um einkahagi manna séu að
velkjast sem trúnaðarmál í
borgarkerfinu, en efni þeirra
haldið leyndu fyrir þeim sem í
hlut á. Þetta lítur út eins og
borgarstjórn ætli að vernda mig
sjálfan fyrir sjálfum mér,“ sagði
Magnús.
Verkstjórar í
skemmtireisu
■ Nú er háannatími hjá
Vegagerð ríkisins. Hún er með
vélar, tæki og vinnuflokka um
allt land. Ymsum þótti því
skjóta skökku við þegar vega-
vinnuverkstjórar tóku sig sam-
an og fóru með fjölskyldur
sínar í skemmtiferð út í heim
fyrir nokkrum dögum. Þátt-
taka í ferðinni er mjög góð og
herma heimildir Dropa að
meira en helmingur vegaverk-
stjóra hafi farið.
Vegavinnumaður sagði við
Dropa að framkvæmdir hjá
Vegagerðinni hefðu aldrei
gengið betur en einmitt nú
þegar verkstjórarnir eru ekki
til að flækja málin...
Sigurður og
hinir strákarnir
■ Þaðhefuráðurorðiðtilefni
nokkurra bollalegginga hversu
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, virðist á Ameríku-
árum sínum hafa orðið vel
ágengt í viðskiptalegu jafnt
sem télagslegu tilliti. Eitt dæmi
í umræðunum í gær lýstu
Ingibjörg Sólrún, Kvennafram-
boði, og Kristján Benediktsson
úr Framsókn yfir vilja sínum til
þeás að skýrslan yrði afhent
Magnúsi. Sagði Ingibjörg Sól-
rún að leyndin hefði komið af
stað allskyns gróusögum sem
beindust gegn mannorði Magn-
úsar. Þegar á hana var gengið
benti hún meðal annars á að
hafa heyrt sjálfan borgarstjóra
viðhafa söguburð um Magnús
um það leyti sem hann sótti um
starf framkvæmdastjóra SVR.
Þá minntist hún á dylgjur um
Magnús í lesendabréfi í DV.
Ingibjörg kvað borgarráð koma
um þetta hafa íslenskir stúd-
entar í New York orðið varir
við. Ofarlega á Manhattaneyju
stendur svonefnt International
House, sem Rockefellerfjöl-
skyldan átti stærstan þátt í að
koma á fót, og rekið er enn
sem leiguhúsnæði og miðstöð
fyrirerlenda námsmenn í borg-
inni. Margir íslenskir náms-
menn hafa leigt í þessu húsi á
undanförnum árum. En það
vakti athygli nokkurra leigj-
fram við þennan einstakling eins
og ósjálfráða einstakling, sem
ekki fengi að ákveða það sjálfur
hvort hann bæri hönd fyrir
höfuð sér.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði málflutning bera vott um
málefnafátækt minnihlutans.
Magnús Skarphéðinsson hefði
fengið fulla skýringu á ástæðum
uppsagnarinnar í uppsagnar-
bréfi og hefði ekkert með trún-
aðarskýrsluna að gera.
enda í vetur hverjir skipuðu
stjórn þessa húss. Þar sátu
meðal annars David Rockef-
eller, sonarsonur hins gamla
stofnanda Standard Oil, en
David var til skamms tíma
bankastjóri Chase Manhattan
Bank, og er enn höfuðpaurinn
í hinni frægu Trilateral Comm-
ission. Annar stjórnarmaður
reyndist vera Henry Kissinger,
sem óþarft er að kynna, en
hann var lengi skjólstæðingur
Nelsons Rockefeller, bróður
Davids, sem var varaforseti
Bandaríkjanna fyrir tíu árum-
_ síðan. Og þriðja nafnið á
listanum var nafn Sigurðar
Helgasonar. Hann mun hafa
verið formaður hússtjórnar um
skeið, eða þar til á síðasta ári.
Það verður því ekki annað sagt
en að Sigurður sé þarna í
góðum félagsskap.
Föstudagur 6. júlí 1984 2
■ Þetta er sannarlega sorgleg sjón. í fyrstu höfðu ómennin
skvett málningu á höfuð líkneskisins og síðan í fyrrinótt var
bætt um betur, (ef til vill af þeim sömu) og styttan brotin af
Stallinum. \l mjndirSverrir
Skemmdarverk í
kirkjugarðinum
■ Oaldalýður kom við í
gamla kirkjugarðinum við
Suðurgötu, felldi þar að
minnsta kosti fimm leg-
steina, og á einum stað
höfðu starfsmenn fundið
englalíkneski af legsteini,
sem hafði verið brotið og
eyðilagt. Legsteinarnir
eru heilir og er unnið að
því að reisa þá að nýju.
Að sögn Brynju Valsdótt-
ur, kirkjugarðsvarðar, eru
atburðir af þessu tagi
fremur fátíðir en koma þó
fyrir. Fyrirskemmstu fóru
einhverjir um í garðinum
með málningu og skvettu
á ýmis líkneski og leg-
steina í garðinum.
Annars var vinalegt að
koma í kirkjugarðinn í
gær. Nokkur hópur ung-
linga var þar við garðvinnu
og jurtir stóðu í blóma.
Spænskar á haugana!
■ Það er maðkur í mysunm
þ.e. kartöflunum hjá fleirum en
þeim í Grænmetinu. Hagkaup
þurfti að henda vikuskammti af
innfluttum spænskum á haug-
ana þegar kom í ljós að þær
voru skemmdar. Ekki nóg með
það, heldur hefur blaðið það
eftir forstjóra Grænmetisins að
þeir hafi keyrt 8 tonnum af
rófum á haugana fyrir stuttu
ásamt töluverðu magni af
finnsku kartöflunum alræmdu
og öðru rusli. Segja heimildar-
menn blaðsins á haugunum að
það hafi komið hvorki meira né
minna en 13 bílhlöss af ónýtum
kartöflum og 5-6 bílhlöss af
rófum. þannig að hér er ekki
um neitt smá magn að ræða.
Finnst mörgum undarlegt að
ekki skuli vera hægt að nýta
þessi matvæli á einhvern hátt,
t.d. til skepnufóðurs.
NT mynd: Ari‘