NT - 06.07.1984, Blaðsíða 14

NT - 06.07.1984, Blaðsíða 14
Sjónvarp kl. 21.45 í kvöld: Söngleikir í Lundúnum ■ í kvöld kl. 23.00 verður þáttur í útvarpinu um söngleiki í Lundúnum. Það er Árni Blandon sem er umsjónarmað- ur þáttarins, en hann dvaldi um tveggja ára skeið í London. Þar kynntist hann söngleikjun- um sem sýndir eru í leikhúsun- um í West End, sem er eins konar Broadway Lundúna. Árni hafði þetta að segja um þætti sína: „Þessir þættir eru 10 talsins og verða á dag- skránni hálfsmánaðarlega kl. 23.00 á föstudögum í sumar. Þegar vetrardagskráin gengur í garð verða þættirnir síðan eitthvað færðir til.“ „I fyrsta þættinum í kvöld fjalla ég aðallega um Andrew Lloyd Webber, en hann er aðalnafnið í söngleikjum í dag. Meðal söngleikja sem hann hefur samið eru, „Jósef og margliti dragkirtillinn," en sá söngleikur er byggður á sögu úr Biblíunni og ég kynnti þenn- an söngleik í útvarpinu fyrir nokkrum árum. „Jesus Christ Superstar", „Evita“ og „Cats“, eru einnig eftir Webber. Hans nýjasta verk er „Starlight Express", og „Tell Me on a Sunday", sem ég kynni í þriðja þættinum um söngleiki. „í fimmta þættinum mun ég kynna „Guys and Dolls,“ sem ennþá gengur í London, en hann hefur verið fluttur látlaust tvö ár. Þá mun ég í sjötta þættinum fjalla um „Blood- brothers“ eftir Willie Russel, en hann gerði kvikmyndina „Educating Rita“ sem sýnd er hér í einu kvikmyndahús- anna,“ sagði Árni Blandon umsjónarmaður Söngleikj- aþáttarins sem er á dagskrá útvarpsins kl. 23.00 í kvöld. Föstudagur 6. júlí 1984 1 4 Keppinautar -fótbolti og rómantík ■ Bíómynd kvöldsins er bandarísk frá árinu 1977. Hún ber nafnið Keppinautar (Semi- Tough). Leikstjóri er Michael Ritchie, en með aðalhlutverk fara „steggirnir" Burt Reyn- olds og Kris Kristoffersson og „hnátan“ Jill Clayburgh. Billy Clyde Plucket og Shake Tiller eru atvinnumenn í „rugby“ amerískum fótbolta. í slagtogi með þeim erBarbara Jane Bookman, dóttir eiganda knattspyrnuliðs þeirra félaga. Hún er tvískilin, en þeir Billy Clyde og Shake keppa um ástir hennar. Allt útlit er fyrir að þau Barbara og Shake muni giftast, en Billy Clyde stenst ekki freistinguna að keppa við vin sinn um hylli hennar, enda þótt að hann elski stúlkuna alls ekki. Sem sé gamli ameríski keppnisandinn á fullri ferð, ásamt fótbolta og rómantík. Þá mun hippahreyfingin einnig verða í sviðsljósinu því Shake gengur henni á hönd, í von um að það verði til þess að líf hans taki aðra stefnu og frami hans á leikvelli aukist. Sem sé, þessi mynd ætti að vera hin þokkalegasta afþrey- ing, því léttleikinn er allsráð- andi, eins og í fleiri myndum „konungs bringuháranna" Burt Reynolds. „Mikið fjör í Skonrokki“ - segir Anna Hinriksdóttir annar umsjónarmanna þáttarins ■ Dægurlagaþátturinn „Skonrokk" er á dagskrá sjón- varpsins í kvöld kl. 20.50. Kynnir í þættinum í kvöld er Anna Hinriksdóttir, en hún er umsjónarmaður þáttarins ásamt nöfnu sinni, Önnu Krist- ínu Hjartardóttur. „Það verður mikið fjör í þættinum í kvöld og mjög gaman“ sagði Anna Hinriks- dóttir, þegar blm. NT sló á þráðinn til hennar til þess að forvitnast um efni þáttarins í kvöld. „Það verður Break Macli- ine, Nik Kershaw, Elton John, Juluka, Bon Jovie, Wham og Alvin Stardust, sem koma fram í þættinum í kvöld“, sagði Anna Hinriksdóttir. ■ Nik Kershaw verður meðal þeirra sem koma fram í Skonrokki í kvöld. Þátturinn hefst kl. 20.50. Síðasta sam- verustund ■ Morgunmcnnirnir Jón Ólafsson og Páll Þorsteinsson sjást hér í útsendingu á rás 2. Breytingar standa fyrir dyrum á þættinum. morgunmanna dyrum. í tilefni dagsins bregð- um við á leik og glatt verður á hjalla eins og vanalega. Ýmsar óvæntar uppákomur munu eiga sér stað en ég vil ekki ljóstra upp um neitt að svo komnu máli. Hinn geysivinsæli vinsældalisti rásarinnar verð- ur á sínum stað eins og vana- lega,“ sagði Jón „rásari“ Ólafs- son. ■ Morgunþáttur þeirra Páls Þorsteinssonar, Ásgeirs Tóm- assonar og Jóns Ólafssonar er á dagskrá rásar 2 í dag kl. 10.00 eins og áður. NT sló á þráðinn til Jóns Ólafssonar. „Þetta verður síðasta sam- verustund okkar Páls, Ásgeirs _____________________________________________________________ og mín, því breytingar á morg- ■ Þrír aðalleikendurnir í bíómynd kvöldsins. Kris Kristoffers- unþættinum standa fyrir son, Burt Reynolds og Jill Cleyburgh Sjónvarp í kvóld kl. 20.50: Útvarp kl. 23.00 föstudag: Rás 2 kl. 10 í dag: Föstudagur 6. júlí 7.00 Veöurtregnir. Fréttir. Bæn. I bítiö. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Marðar Arna- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Guðrún Kristjáns- dóttir talar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Krókódílastríðlð", saga eftir Horacio Quiroga Svanhildur Sig- urjónsdóttir les þýðingu Guðbergs Bergssonar; síðari hluti. 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Það er svo margt að minnast á“ Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.20 Tónleikar 11.30 Barnaskólinn á isafirði fram til 1907 Jón Þ. Þór flytur siðari hluta erindis síns. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Myndir daganna", minning- ar séra Sveins Víkings Sigríður Schiöth les (6). 14.30 Miðdegistónleikar Edith Peinemann og tékkneska filharm- óníusveitin leika „Tzigane", kon- sertrapsódíu eftir Maurice Ravel; Peter Maag stjórnar. 14.45 Nýtt undir nálinni Elin Krist- insdóttir og Alfa Kristjánsdóttir kynna nýútkomnar hljómplötur. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar 17.00Fréttiráensku 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Guðni Kolbeins- son segir börnunum sögu. (Áður útv. i júní 1983). 20.00 Lög unga fólksins Þorsteinn J. Vilhjálmsson kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Ferskeytlan er Frónbúans. (Áður útv. 15. febrúar 1969). Sigurður Jónsson frá Haukagili sér um vísnaþátt. b. í Sléttuhreppi Júlíus Einarsson les úr erindasafni séra Siguröar Ein- arssonar i Holti. 21.10 Píanókonsert nr. 2 i g-moll op. 22 eftir Camille Saint-Saéns Aldo Ciccolini og Parísarhljóm- sveitin leika; Serge Baudo stjórnar. 21.35 Framhaldsleikrit: „Andlits- laus morðingi" effir Stein River- ton Endurtekinn III. þáttur: „Neyðaróp úr skóginum" 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagská morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 „Risinn hvfti“ eftir Peter Boardman Ari Trausti Guðmunds- son les þýðingu sina (16). Lesarar með honum: Asgeir Sigurgestsson og Hreinn Magnússon. 23.00 Söngleikir í Lundúnum 1. þáttur Andrew Lloyd Webber Umsjón: Árni Blandon. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Föstudagur 6. júlí 10.00-12.00 Morgunþáttur kl. 10.00. Islensk dægurlög frá ýmsum tim- um kl. 10.25-11.00 - viðtöl við fólk úr skemmtanalifinu og víðar að. Kl. 11.00-12.00 - vinsældarlisti Rásar 2 kynntur i fyrsta skipti eftir valið sem á sér staö á fimmtu- dögum kl. 12.00- 14.00. Stjórnendur: Páll Þorsteinsson, Asgeir Tómasson og Jón Olafs- son. 14.00-16.00 Pósthólfið Lesin bréf frá hlustendum og spiluð óskalög þeirra ásamt annarri léttri tónlist. Stjórnandi: Einar Gunnar Einars- son. 16.00-17.00 Jazzþáttur Þjóöleg lög og jazzsöngvar. Stjórnandi: Vern- harður Linnet. 17.00-18.00 í föstudagsskapi Þægi- legur músíkþáttur i lok vikunnar. Stjórnandi: Helgi Már Barðason. 23.15 03.00 Næturvakt á Rás 2 Föstudagur 6. júlí 19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu dögum 9. Þýskur brúðu- myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 20.50 Skonrokk Umsjónarmenn Anna Hinriksdóttir og Anna Kristín Hjartardóttir. 21.15 Páfi deyr Breskur fréttaskýr- ingaþáttur um þá kenningu rithöf- undarins Davids Yallops að Jó- hannes Páll I páfi hafi verið myrtur. 21.45 Keppinautar (Semi-Tough) Bandarisk bíómynd frá 1977. Leik- stjóri Michael Ritchie. Aðalhlut- verk: Burt Reynolds, Kris Kristoff- erson og Jill Clayburgh. Vinirnir Bill og Shake eru atvinnumenn í iþróttum og keppa um ástir sömu stúlkunnar. Shake leggur einnig allt kapp á aö auðga anda sinn og sjálfsvitund og aðhyllist hippa- hreyfinguna. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.45 Fréttir i dagskrárlok.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.