NT - 06.07.1984, Page 5
Bjart útlit í Laxá í Leirársveit
Um 180 laxar voru komnir upp úr
Laxá í Leirársveit þegar blaðið fékk
fréttir þaðan í gær. Veiðin fór mjög vel
af stað, datt svo niður í nokkra daga en
er nú að glæðast eftir rigningarnar.
Vænn fiskur hefur fengist úr ánni, þann
stærsta fékk Garðar Svavarsson, 18
pund, fisk sem tók „Colli-bog“ flugu.
Nú er smærri fiskur farinn að ganga í
ánna og að sögn veiðimanna er mikið af
fiski í ánni og hann genginn upp eftir
allri á. Fimm stangir voru í ánni til að
byrja með, en nú eftir að útlendingar
hófu að veiða í henni eru stangirnar sjö.
Útlendingarnir veiða eingöngu á flugu.
Dræmt í Miðfjarðará
Dræm veiði hefur verið í Miðfjarðará
undanfarna tvo þrjá daga, en hún var
ágæt fyrstu dagana eftir að áin opnaði
18. júní. Til að byrja með var veitt á níu
stangir en þeim var fjölgað í 10 á
sunnudaginn var. Tæplega 180 laxar
voru komnir á land á þriðjudag, og er
það talsvert meira en á sama tíma í
fyrrasumar. Veiðitölur hjá því holli sem
nú er að veiðum liggja ekki fyrir, en þó
fréttist síðdegis í gær að eitthvað væri að
lifnayfir. Laxinn íMiðfjarðaráervænn.
Útlendingar byrjaðir í Haff jarðará
Haffjarðará opnaði 15. júní og voru
íslendingar þar að veiðum þar til nú
fyrir nokkrum dögum, en nú eru útlend-
ir laxveiðimenn teknir við . Veitt er á 16
stangir og hefur veiðin verið mjög góð,
betri en mörg undanfarin ár, að sögn
Óttars Ingvarssonar, veiðivarðar. Ekki
liggja fyrir nákvæmar veiðitölur, en
Óttar sagði að laxinn væri genginn upp
um alla á og að hann væri vænn. Þegar
hefðu fengist nokkrir 15 punda.
Gott í Elliðaánum
Meira en 230 fiskar voru komnir upp
úr Elliðaánum í hádegishlénu í fyrra-
dag. Veiðin undanfarið hefur verið
mjög góð og þykir ekki tíðindum sæta
þótt menn fái fimm til sjö fiska á stöng
á hálfum degi.
í gegnum teljarann voru komnir 292
fiskar og í gær fékkst einn 15 punda á
flugu úr ánum og eru þá komnir tveir 15
punda í sumar. Stærri fiskar hafa ekki
fengist.
Sérstætt fjársvikamál:
Sveik út fisk og
seldi í Reykjavík
■ Rannsóknarlögregla ríkisins
(RLR) vinnur nú að rannsókn allsér-
stæðs fjársvikamáls 43 ára Reykvík-
ings. Mun maðurinn hafa keypt fisk
á nokkrum stöðum á Suðurnesjum,
en aldrei greitt fyrir hann, heldur
haldið með fiskinn beinustu leið til
Reykjavíkur og selt hann þar. Tókst
manninum að svíkja út rösklega 10
þúsund kr. með þessum hætti.
Maðurinn mun hafa keypt um 100
kg af skötu og öðru góðmeti á
hverjum stað og bar því ætíð við að
hann myndi koma aftur seinna og
gera upp við fisksalanna. Lét hann
ennfremur að því liggja að hann
hefði hug á frekari kaupum. Er engar
efndir urðu á því fór fisksalanna að
gruna að maðkur væri í mysunni og í
lok júní kærðu fisksalar í Hafnarfirði
og Garði athæfi mannsins til RLR.
Auk þessara staða mun maðurinn
hafa svikið út fisk í Grindavík og
Vogum.
A fimmtudag í síðustu viku var
Reykvíkingurinn í Sandgerði og var
verið að vigta fyrir hann fisk, er
einhver á staðnum bar kennsl á
manninn. Var kaupunum riftað þeg-
ar í stað og hann handtekinn daginn
eftir.
Þá tengist þessu máli skjalafals-
brot, en eitthvað mun vera gruggut
varðandi kaup Reykvíkingsins á bíl
þeim sem hann notaði við iðju sína.
Pantanir óskast
staðfestar.
Munið okkar /.
greiðsluskilmála.
Nota ma mbmh
kortin til útborgunar á
samningi.
tssnw
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sími 10600
Húsgagnadeild
- Sími 28601
vtsa
11
Bílasýninqaœdict hejfur heltekict~&kkur
ÞAÐ VERÐA ÞRJÁR UM HELGINA,
HVER ANNARRIBETRI
Á AKRANESI:
LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 10-18
Í BÍLASÖLU HINRIKS VIÐ VALLHOLT. SÖLUMAÐUR FRÁ INGVARI HELGASYNI HF. VERÐUR Á STAÐNUM.
Á REYÐARFIRÐI:
LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 14-17
BÍLASÖLUNNI LYKLI, BÚÐAREYRI 25. SÖLUMAÐUR FRÁ INGVARI HELGASYNIHF. VERÐUR Á STAÐNUM.
í REYKJAVÍK:
LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 14-17
AÐ MELAVÖLLUM VIÐ RAUÐAGERÐI OG AUÐVITAÐ VERÐA OKKAR MENN Á STAÐNUM.
HJÁ 0KKUR ER: FJÖLBREYTNIN MEST 0G KJÖRIN BEST.
qr
_Ll
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.