NT - 06.07.1984, Blaðsíða 16
Fóstudagur 6. júlí 1984 16
„Island var óskalandið“
■ Ævar Kvaran leikari og
rithöfundur verður með þátt í
útvarpinu á sunnudag sem ber
nafnið „ísland var óskaland-
ið“. Ævar hafði þetta að segja
um þáttinn:
„Kveikjan að þættinum er
bréf sem Englendingur að
nafni Michael Eyre sendi aðal-
ræðismanni Breta í Reykjavjk,
Ásgeiri Sigurðssyni. Sonur Ás-
geirs, Haraldur Á. Sigurðsson
leikari og rithöfundur gaf mér
leyfi til að flytja úr þessu bréfi
það ég vildi,“ sagði Ævar
Kvaran umsjónarmaður þátt-
arins.
„Þetta er mikið og merkilegt
bréf, dagsett 4. maí 1921 í
Lundúnum og í þessu bréfi
kemur meðal annars fram að
Michael Eyre átti ættir sínar
að rekja til íslenskrar konu,
sem bar nafnið Þórunn. Henni
var rænt héðan í Tyrkjaráninu
á sínum tíma.
„Þá er einnig talað um dul-
speki í þættinum og tengist
það þessu bréfi mjög. í ind-
verskum heimildum bar ísland
á góma og í þessum ævafornu
heimildum eru lýsingar frá
íslandi, sem eru frá því áður
en land byggðist," sagði Ævar.
Lesari með Ævari í þættin-
um er Rúrik Haraldsson leik-
■ Ævar R. Kvaran
ari, en hann les allar beinar
tilvitnanir í bréfið umrædda.
Um annan upplestur sér Ævar
sjálfur.
■ Þorgeir Ástvaldsson við opnun Rásar 2.
Rás 2 á sunnudag kl. 13.30:
Sunnudagsútvarp í fyrsta sinn
Rætt við Þorgeir Ástvaldsson um breytingar á Rás 2
■ Eins og kom fram hér í blaðinu fyrir
skömmu síðan eru breytingar fyrirhugaðar á
dagskrá Rásar 2 í þá átt að dagskráin verði
lengd. Nú er búið að skipuleggja þessar
breytingar og ákveða hvernig þeim verði
hagað. Það er Þorgeir Ástvaldsson rásar-
stjóri sem upplýsir okkur um þessi mál.
„Sú ákvörðun hefur verið
tekin að byrja útsendingar á
sunnudögum, og það verður
byrjað á sunnudaginn kemur,
8. júlí. Það er þá í fyrsta skipti
ef frá er talið næturútvarp sem
Rás 2 sendir út utan hefðbund-
ins vinnutíma fólks. Það mæ
kannski segja að þar með sé
skref númer 2 tekið í þessu
tilraunaútvarpi sem má stund-
um kalla að Rás 2 sé. Þessi
sunnudagsútsending hefst kl.
13.30 og lýkur kl. 18.00. Að
okkar áliti, sem ákváðum
þennan tíma, þá er þetta ágætis
mótvægi við dagskrá á Rás 1 á
sama tíma, og því sé þetta
aukin þjónusta við hlustendur
Ríkisútvarpsins yfirleitt.
Þetta útvarp á sunnudegi
verður að sjálfsögðu með léttu
yfirbragði og einfalt í sniðum.
Stjórnendur verða þeir Páll
Þorsteinsson og Asgeir Tómas-
son og þar með hverfa þeir að
mestu úr morgunútvarpi. Það
má segja að þetta verði opið
útvarp, þar sem leitast verður
við að hafa gott samband við
hlustendur, hvar sem er á
hlustunarsvæði rásarinnar
Þó verður kannski einkum
höfðað til þeirra mannlífsbreyt-
inga sem verðaásumri hverju,
þ.e.a.s. fólk er meira á ferðinni
og fólk er væntanlega léttara í
skapi. Dagskráin verður í sam-
ræmi við það, það er meiningin
að taka á móti gestum sem
annaðhvort tala eða taka lagið.
Meiningin er að í endanum á
þessari dagskrá verði 20 vin-
sælustu lögin á Rás 2 kynnt
hverju sinni.“
Er þá notuð sama könnun
og topp 10 listinn er gerður
eftir?
„Já. Það hefur farið mjög
vaxandi þáttaka í því, og ég
get nefnt sem dæmi að það
voru yfir 1000 manns sem
hringdu síðast, og hreint ótrú-
legur áhugi á þessu. Þetta er
náttúrlega það sem hlustend-
ur velja, svo að það má segja
að þetta sé vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2.
Það er ýmislegt í bígerð í
þessari dagskrá á sunnudögum
sem er í samræmi við sólina og
sumarylinn. Um einstök atriði
er kannski ekki hægt að segja
á þessari stundu, en þetta er
hugsað sem tilraun í aðra rönd-
ina eins og reyndar allt sem
fram fer hér á Rás 2. Við
væntum þess að hlutsendur
taki þessu vel.
Þetta hefur í för með sér
töluverðar breytingar. Ég
sagði að stjórnendur sunnu-
dagsútvarps hyrfu að mestu út
úr morgunútvarpinu, sem hef-
ur gengið með ágætum í allan
vetur, þetta hefur verið sá
hluti dagskrárinnar sem hefur
tekið á sig æ skemmtilegri
mynd. Þeir Ásgeir og Páll
verða með morgunútvarpið á
einum degi vikunnar, á þriðju-
dögum. Jón Ólafsson heldur
áfram, þó með nokkuð öðrum
hætti. Við bætast tveir menn,
Kristján Sigurjónsson, sem
hingað til hefur séð um þjóð-
lagaþætti á Rás 2, og Sigurður
Sverrisson (blaðamaður á
Morgunblaðinu). Á bak við
morgunútvarp fimm daga vik-
unnar eru fimm garpar. Jón,
Sigurður og Kristján verða
með morgunútvarp mánu-
daga, miðvikudaga, fimmtu-
daga og föstudaga, í hvaða röð
eða hvernig það verður er ekki
fullákveðið, en það má segja
að morgunútvarpið taki á sig
pínulítið annan blæ, sem auð-
vitað er vegna þess að þarna
koma nýir menn inn, og dag-
skrárstefnan í morgunútvarpi
verður eilítið öðruvísi.
Ástæðan fyrir því að þessar
breytingar verða núna er að
þessu var ætlað að standa undir
sér fjárhagslega, og menn hafa
viljað sjá árangur af mjög já-
kvæðum niðurstöðum skoð-
anakönnunar, og hann hefur
komið í ljós. Rásin stendur
mun styrkari fótum nú en áður
fjárhagslega, frá og með maí-
mánuði. Þess vegna töldum
við óhætt að stíga næsta skref. “
■ Draumur flóttamannanna er að snúa heim til úlfaldanna.
Sjónvarp sunnudag kl. 18.30:
■ Á dagskrá sjónvarpsins á
sunnudag kl. 18.30 erfræðslu-
mynd frá sjónvarpinu um hagi
flóttamanna frá Eþópíu í
flóttamannabúðum í Sómalíu.
Þegar stríðið milli Eþíópíu
og Sómalíu braust út 1977,
flúðu margir Eþópíumenn yfir
landamærin til Sómalíu.
Deheb, 14 ára gömul stúlka er
ein þeirra. Faðir hennar féll í
stríðinu og hún ásamt móður
sinni og systkinum flúðu yfir
landamærin til Sómalíu.
Það er draumur þessara
flóttamanna að geta snúið
aftur heim á leið. „Heim til
úlfaldanna" eins og Deheb
segir.
Það er sænski rithöfundur-
inn og kvikmyndagerðarmað-
urinn StigHolmqvistsem gerði
þessamynd. Hún, lýsirástandi
fólksins í flóttamannabúðun-
um, þó sérstaklega börnunum
og fjallar um framtíðarhorfur
í þessum heimshluta og vonir
fólksins um framtíðina.
Þýðandi myndarinnar er
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Útvarp á sunnudag kl. 14.15:
útvarp
Sunnudagur
8. júlí
8.00 Morgunandakt Séra Kristinn
Hóseasson prófastur, Heydölum, ■
flytur ritningarorö og baen.
8.10 Fréttir.
8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit
Henry Mancini leikur.
9.00 Fréttir
9.05 Morguntónleikar a. „Sjá,
morgunstjarnan blikar blíö“, kant-
ata nr. 1 eftir Johann Sebastian
Bach, Gunnhild Weber, Helmut
Krebs, Herman Schey og Mótettu-
kórinn í Berlín syngja með Fíl-
harmóníusveit Berlinar; Fritz
Lehmann stjórnar. b. „Flugelda-
svítan" eftir Georg Friedrich
Hándel. Sinfóniuhljómsveit Lund-
úna leikur; Charles McKerras
stjórnar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suðgr Þáttur Friðriks
Páls Jónssonar.
11.00 Messa f Akureyrarkirkju
Prestur: Séra Birgir Snæbjörns-
son. Organleikari: Jakob Tryggva-
son Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Á sunnudegi Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson.
14.15 ísland var óskalandið
Umsjón: Ævar R. Kvaran. Lesari
með umsjónarmanni: Rúrik Har-
aldsson.
15.15 Lífseig lög Umsjón: Ásgeir
Sigurgestsson, Hallgrímur Magn-
ússon og Trausti Jónsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Háttatal Þátturum bókmenntir.
Umsjónarmenn: örnólfur Thors-
son og Árni Sigurjónsson.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Siðdegistónleikar a. Milli-
þáttatónlist úr „Rósamundu" eftir
Franz Schubert. Sinfóníuhljóm-
sveit Berlinarútvarpsins leikur;
Gustav Kuhn stjórnar. b. Joan
Sutherland syngur lög frá ýmsum
löndum með Nýju filharmóníu-
sveitinni; Richard Bonynge
stjórnar. c. Vladimir Horowitsj
leikur á pianó lög eftir Robert
Schumann, Alexander Skriabin og
sjálfan sig.
18.00 Það var og... Út um hvippinn
og hvappinn með Þráni Bertels-
syni.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Eftlr fréttlr Umsjón: Bernharð-
ur Guðmundsson.
19.50 „Afskorin orð“, Ijóð eftir
Lindu Vilhjálmsdóttur. Höfundur
les.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins
Stjórnandi: Helgi Már Barðason.
21.00 Islensk tónlist a. Píanókons-
ert eftir Jón Nordal. Gísli Magnús-
son og Sinfóniuhljómsveit Islands
leika; Páll P. Pálsson stjórnar. b.
„Little Music" fyrir klarinettu og
hljómsveit eftir John Speight; Einar
Jóhannesson og Sinfóniuhljóm-
sveit islands leika; Páll P. Pálsson
stjórnar. c. „Völvuspá" eftir Jón
Þórarinsson. Guðmundur Jónsson
og Söngsveitin Fílharmónia
syngja með Sinfóniuhljómsveit
íslands; Karsten Andersen
stjórnar.
21.40 Reykjavík bernsku minnar -
6. þáttur Guðjón Friðriksson ræðir
við Solveigu Hjörvar. (Þátturinn
endurtekinn I fyrramáliö kl. 11.30).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 „Risinn hvíti" eftir Peter Bo-
ardman Ari Trausti Guðmundsson
les þýðingu sina (18) Lesarar með
honum: Ásgeir Sigurgestsson og
Hreinn Magnússon.
23.00 Djasssaga - Seinni hluti Oldin
hálfnuð - II. - Jón Múli Árnason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
8. júlí
18.00 Sunnudagshugvekja
18.10 Geimhetjan Annar þáttur.
Danskur framhaldsmyndaflokkur
fyrir börn og unglinga i þrettán
þáttum eftir Carsten Overskov.
Aðalhlutverk: Lars Ranthe. Þýð-
andi Guöni Kolbeinsson. (Nordvis-
ion - Danska sjónvarpið)
18.30 Heim til úlfaldanna Heimilda-
mynd um lif og kjör barna frá
Eþíópíu sem búa i flóttamanna-
búðum i Sómaliu. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir. (Nordvision
- Sænska sjónvarpið)
19.10 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.50 Norræn hönnun 1880-1980
Þáttur frá danska sjónvarpinu um
muni sem sýndir voru á sýningunni
Scandinavia Today í Bandarikjun-
um sumarið 1983. (Nordvision -
Danska sjónvarpið).
21.20 Sögur frá Suður-Afriku 5.
Ættarskömm Myndaflokkur í sjö
þáttum sem gerðir eru eftir smá-
sögum Nadine Gordimer. Hvitur
bóndasonur og dóttir svarts vinnu-
manns á bænum eru leikfélagar
og fella hugi saman. Þýðandi Ósk-
ar Ingimarsson.
22.20 Natanela í Reykjavik - fyrri
hluti Upptaka frá söngvakvöldi í
Norræna húsinu á Listahátíð þann
12. júní siðastliðinn. Söngkonan
Natanela syngur þjóðlög frá ýms-
um löndum. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
23.10 Dagskrárlok