NT - 06.07.1984, Qupperneq 26
Föstudagur 6. júlí 1984 26
Fyrsta lands-
keppni islands í
kraftlyftingum
■ Fyrsta landskeppni
íslands í kraftlyftingum
verður haldin á Glasgow-
dugvelli í Skotlandi á
laugardag. Keppt verður
við Skota, og mun 10
manna lið frá hvoru landi
keppa.
Sigur í keppninni ræðst
af fjölda gullverðlauna,
en keppt er í þyngdar-
flokkum. íslendingar
völdu Skota sem and-
stæðinga í fyrstu lands-
keppninni, þar sem þang-
að er ódýrt að ferðast, og
aðstæður eru allar eins
og best verður á kostið.
Flogið vcrður til
Glasgow, gist á hóteli við
flugvöllinn. Keppnisstað-
urinn er fimm mínútna
gangur frá hótelinu, í
Paisley.
Landskeppnir í kraft-
lyftingum liafa verið vin-
sælar erlendis lengi. Það
sem helst hefur háð ís-
lensku kraftlyftinga-
mönnunum varðandi það
að taka þátt í slíkum
keppnum er rnikill ferða-
kostnaður.
Landslið Islands í
keppninni er þannig
skipað:
67.5 kg Kári Elísson ÍBA
75 kg Halldor Eyþórsson KR
82.5 kg Freyr Aðalsteinsson ÍBA
90 kg Gunnar Steingrímsson ÍBV
100 kg Hörður Magnússon KR
110 kg Óskar Sigurpálsson
125 kg Jón Páll Sigmarsson KR
125 kg Hjalti Árnason KR
125 kg Torfi Ólafsson KR
, -
Vandræðaástand framundan í dómaramálum í körfubolta:
Þrír eftir
■ Mikið vandræðaástand er
nú framundan í dómaramálum
í körfuknattleiksíþróttinni.
Megnið af þeim dómurum sem
dæmdu í úrvalsdeildinni á síð-
astliðnu keppnistímabili munu
hætta að dæma og sennilega
verða aðeins þrír þeirra áfram
starfandi næsta vetur.
Kristbjörn Albertsson, sem
er alþjóðlegur dómari, er flutt-
ur til Luxemborgar þar sem
hann tók við starfi hjá Flug-
leiðum, Gunnar Valgeirsson og
Gunnar Bragi Guðmundsson
munu að öllum líkindum
■ Gunnar Valgeirsson körfuknattleiksdómari að störfum. Hann
mun að líkindum stunda nám á erlendri grundu næsta vetur, og
verður sjónarsviptir að þessum sérstaka dómara í körfuboltanum.
Margir fleiri munu ekki dæma, og útlit er fyrir hreint vandræða-
ástand í dómaramálum körfuboltans á næsta keppnistímabili.
NT-mynd Róbert
Breytingar á körfuboltareglunum:
Þrjátíu sekúndur
ekki uppá nýtt
stunda nám erlendis næsta vet-
ur og Davíð Sveinsson er flutt-
ur til Stykkishólms. Þá mun
Kristinn Albertsson, sá ungi og
efnilegi dómari, ætla að láta sér
nægja að leika íþróttina á vetri
komanda, en hann er einnig
efnilegur leikmaður.
Ef enginn þessara manna
dæmir áfram eru þrír menn
Knattspyrnuskóli Vals:
Markamaskínur
í heimsókn
■ Á næsta námskciöi knattspyrnu-
skóla Vals, sem hefst 9. júlí næst-
komandi, munu tvær mestu marka-
maskínur Vals á sídari árum, þeir
Hermann Gunnarsson og Ingi Bjöm
Albertsson koma í heimsókn, og
kenna galdra sína við aö skora mörk.
Þá mun hinn leikni Þórir Jónsson
kenna margar kúnstir með knöttinn.
Aðalleiðbeinendur í knattspyrnu-
skóla Vals eru sem áður lun Ross
þjálfari meistaraflokks Vals, og Jó-
hann Þorvaröarson kennari og leik-
maður Vals. Innrítun í námskeiðin
er í félagsheimili Vals, sími 11134.
eftir af þeim sem dæmdu hvað
mest í fyrra. Það eru þeir
Sigurður Valur Flalldórsson,
Jón Otti Ólafsson og Hörður
Tuliníus. Ekki verður með
nokkru móti séð að þeir félagar
komist yfir að dæma alla leiki
sjálfir, þannig að spurning er
hvort að flytja verði inn dóm-
ara.
Mjög illa er komið fyrir körfu-
knattleiksíþróttinni ef skortur
verður á dómurum, nóg var
kvartað meðan nóg var af þeim.
Það kemur alltaf fram í
síðara verkinu sem gert er í því
fyrra stendur einhversstaðar og
það sannast heldur betur í
þessu máli. Fræðslumálum
dómara og uppbyggingu í þeim
málum hefur ekki verið sinnt á
undanförnum árum, forráða-
menn íþróttarinnar eiga því
vafalaust eftir að naga sig í
handarbökin í vetur fyrir að
hafa ekki sinnt þessum málum
betur á liðnum árum. Einungis
örfáir menn eru til, sem geta
tekið við af þeim sem hætta.
■ Eins og fram kom í NT
fyrir skömmu þá voru umtals-
verðar breytingar á körfubolta-
reglunum samþykktar á árs-
þingi Alþjóða körfuknattleiks-
sambandsins. sem haldið var
Lætin í úrslitaleiknum í Basel:
Juventus
sektað
■ ítalska knattspyrnuliðið
Juventus var dæmt í sekt að
upphæð 630 þúsund ísl.kr. fyr-
ir ólæti sem urðu á úrslitaleik
Juventus og Porto í Evrópu-
keppni bikarhafa, í Basel í'
Sviss fyrir skömmu.
Áhangendur liðsins
skemmdu sirðineu. brutust
inná völlinn, hentu reyksprengj-
um og öðrum hlutum inná
völlinn meðan á leiknum stóð.
Það var aganefnd UEFA sem
kvað dóminn upp.
Tottenham Hotspur var
einnig dæmt til að greiða 75
þúsund ísl.kr. í sekt, vegna
þess að flösku var hent inná
völlinn í leik Tottenham og
Anderlecht í síðari úrslitaleik
félaganna í UEFA bikar-
keppninni í London á dögun-
um. Flaskan lenti skammt
frá dómara leiksins.
fyrír skömmu.
Veigamesta breytingin er sú,
að þrjú stig verða nú veitt fyrir
körfu sem skoruð er af 6,25
metra færi, eða lengra.
Varðandi breytingar á tíma-
töku verða þær breytingar að
lið verður að reyna skot innan
30 sekúndna frá því það hefur
sókn. Þótt innkast eða villa séu
dæmd, liefst ekki nýtt 30 sek-
úndna tímabil eins og áður
heldur verður sóknarklukkan
sett í gang þar sem frá var
horfið.
Þrjátíu sekúndna sóknar-
klukkan verður að30>sekúndna
skotklukku. Þetta gefur liði
sem leikur góða vörn aukna
möguleika. Lið sem nær að slá
boltann út af þegar 25 sekúnd-
ur eru liðnar af sókninni hjá
andstæðingunum, kemur þeim
í þá aðstöðu að þeir verða að
reyna körfuskot innan 5 sek-
úndna eftir að boltinn er tekinn
í leik með innkasti. Þessi regla
ætti að ýta undir að körfuknatt-
leikslið landsins leiki betri
varnarleik. Þetta fyrirkomulag
er í bandarísku NBA atvinnu-
mannadeildinni, en þar er
skotklukkan 24 sekúndur á
móti 30 sekúndum í alþjóðlegu
reglunum. Um aðrar breyting-
ar á tímatöku í íþróttinni verð-
ur ekki að ræða.
Þá munu líklega verða
nokkrar breytingar á fyrir-
komulagi með vítaskotum
þannig að fari liðsvillur í hvor-
um hálfleik yfir 7 þá komi
skotrétturinn til sögunnar
(bónus). Áður gaf níunda villa
skotrétt. Velji lið tvö vítaskot
þegar skotrétturinn er í gildi,
þá verður viðkomandi leik-
maður að hitta úr fyrra vítask-
otinu, til þess að fá það síðara.
Sé brotið á leikmanni í skoti
utan þriggja stiga línunnar,
skulu dæmd þrjú skot til að
gera tvö stig. Sé hins vegar
brotið á honum innan þriggja
stiga línunnar skulu veitt tvö
vítaskot og skiptir þá ekki máli
hvort skorað er úr því fyrra
eða ekki.
Þessar breytingar á vítaskot-
unum hafa ekki fengist stað-
festar, en mjög líklegt er að
þær hafi verið samþykktar á
þingi FIBA.
Reykjavíkurmaraþon:
50 erlendir
þátttakendur
■ Um 50 erlendir keppendur
hafa þegar látið skrá sig í
alþjóðlega Reykjavíkurmara-
þonhlaupið, sem háð verður
26. ágúst.
Hér er aðallega um að ræða
fólk frá Bretlandi, V-Þýska-
landi og Bandaríkjunum og
von er á enn fleiri erlendum
keppendum. Að sögn Knúts
Óskarssonar hjá ferðaskrif-
stofunni Úrvali má reikna með
á annað hundrað útlendingum
hingað, til að taka þátt í þessu
fyrsta alþjóðlega maraþon-
hlaupi sem fram fer hér á landi.
Landinn hafur ekki tekið
við sér ennþá, en ástæða er til
að hvetja alla trimmara til að
láta skrá sig sem fyrst í hlaupið.
Tekið er á móti skráningum á
skrifstofu frjálsíþróttasam-
bandsins í íþróttamiðstöðinni
í Laugardal.
Hér er um að ræða einstakt
tækifæri fyrir trimmara og aðra
íþróttamenn, til dæmis skíða-
menn, að taka þátt í sögufrægu
móti.
Ekki þurfa allir að hlaupa
heilt maraþon, sem er 42 kíló-
metrar, heldur verður einnig
boðið uppá skemmri vega-
lengdir, hálft maraþon og 1/4
maraþon. Allir þáttakendur í
hlaupinu fá viðurkenningar-
skjal fyrir að hafa verið með.
Lyftingamenn æfa
í Kópavogi
sperrum og góðum ásetningi
um bætta heilsurækt ríkari.
„Það er alls ekki ætlunin að
gera stöðina að neinni lyftinga-
stöð, hún heldur starfsemi sinni
óskertri og vel það fyrir allan
almenning, þungu lóðin eru sér
og almenn líkamsrækt er því
ótrufluð af því,“ sagði Óskar
Sigurpálsson. „Viðhöfumlengt
opnunartímann, nú er opið frá
klukkan 7 á morgnana til
klukkan 22 á kvöldin. Við erum
með 4-5 tíma í leikfimi á dag,
og er þar hægt að velja um
almenna leikfimi, aerobic leik-
fimi ogsvokallað „músíkstuð,"
sem er blanda af dansi og
leikfimi," sagði Óskar.
Lyftingamenn ætla sér að
æfa í Æfingastöðinni þar til
nýtt hús lyftingadeildar KR rís
■ Blaðamaður með of þungt
farg. Upp upp mín sál og allt
mitt.... NT-mynd Árni Bjarna
■ Lyftingadeild KR hefur
keypt einn sjöunda hluta í
Æfingastöðinni Engihjalla, og
flutt þangað tæki sín og tól.
Æfingastöðin skipti um eigend-
ur á dögunum, og eru nýju
eigendurnir margir hverjir
þekktir lyftingakappar. Eig-
endur eru auk lyftingadeildar
KR Birgir Þór Borgþórsson,
Ólafur Sigurgeirsson, Viðar
Sigurðsson, Þorsteinn Schev-
ing og Óskar Sigurpálsson.
Óskar Sigurpálsson sér um
daglegan rekstur stöðvarinnar,
og tók ljúfmannlega á móti
blaðamanni og ljósmyndara
NT í gær, leiddi þá í allan
sannleika um stöðina og bauð
uppá æfingahring. Blaðamaður
og ljósmyndari þáðu það, og
komu út ófáum svitadropum
fátækari og nokkrum harð-
■ Óskar Sigurpálsson við léttar æflngar í Æflngastöðinni. Óskar
er í lóðunum alla daga, sér um rekstur Æflnjastöðvarinnar, og æfír
kraftlyftingar af kappi. Óskar er í landsliði Islands í kraftlyftingum,
sem keppir við Skota í Glasgow á laugardag. NT-mynd Ámi Bjama
í Vesturbænum, en plata þess
hefur þegar verið steypt. Jaka-
bólið fræga í Laugardal hefur
verið rifið, og með því framtaki
lyftingamannanna að kaupa
hlut í Æfingastöðinni hafa þeir.
tryggt sér æfingaaðstöðu þar til
húsið rís.
■ Ljósmyndari að losa um
svita, og færa brjóskassann
ofar. NT-mynd Samútl Öm.