NT - 03.09.1984, Blaðsíða 29
Mánudagur 3. september 1984 29
Góðursigurhjá
Selfyssingum
■ Leika átti síðustu leikina í
A-riðli 3. deildar nú um helgina
en ekki tókst að Ijúka þeim
öllum þar sem fresta varð leik
IK og Grindavíkur sem vera
átti í Grindavík. Enginn dómari
mætti til leiks og ekki vildu
ÍK-menn að heimamaður
dæmdi leikinn. Þeir fóru því
heim án þess að spila. Mun
KSÍ væntanlega láta leika leik-
inn seinna.
Á Selfossi áttust við heima-
menn og Snæfell og var leikur-
inn síðasti leikur Snæfells í 3.
deild að sinni, þar sem það er
fallið í 4. deild. Leikurinn fór
fram í ágætis veðri á ágætum
grasvellinum á Selfossi og voru
allir í ágætis skapi. Selfyssingar
voru mun betri í leiknum og
sigruðu með 5 mörkum gegn
einu. Þeir Ingólfur Jónsson og
Páll Guðmundsson gerðu mörk
í fyrri hálfleik og í þeim síðari
skoraði Birgir Haraldsson fyrst
en síðan skoraði Þórarinn Ing-
ólfsson fallegt mark með
þrumuskalla í slána og inn svo
markvörður Snæfells bara stóð
og gapti. Lárus Jónsson bætti
síðan við 5. marki Selfoss er
hann komst einn í gegn og lyfti
snyrtilega yfir markvörðinn.
Rétt fyrir leikslok skoruðu svo
Hólmarar við mikinn fögnuð
Bjössa Jóns og þar við sat.
Selfyssingar hefðu getað bætt
við fleiri mörkum og til dæmis
átti Páll Guðmundsson „miss
of the year“ er hann skaut yfir
á marklínu. Hreint ótrúlegt
hjá jafn snjöllum leikmanni.
Víkingar frá Ólafsvík sigr-
uðu HV í Ólafsvík með tveimur
mörkum gegn einu. Víkingar
höfðu yfirburði í fyrri hálfleik
og gerðu þá tvö mörk. Þeir
Magnús Gylfason og Bárður
Tryggvason gerðu mörkin. í
síðari hálfleik slökuðu Víking-
ar á og HV kom meira inn í
leikinn án þess að ógna úr-
slitunum verulega. Sanngjörn
úrslit.
Frá Sigfúsi Gudmundssyni íþróttafrétta-
manni NT í Vcstmannacyjum
■ Vestmannaeyingar unnu
Tindastól með fjórum mörkum
gegn tveimur er liðin mættust í
2. deildarkeppninni í knatt-
spyrnu á Hásteinsvelli í Vest-
mannaeyjum á laugardag.
Strax á 2. mín. leiksins
skoruðu Eyjamenn. Sigurjón
Kristinsson var þar að verki.
Eftir góðan samleik þeirra
Kára og Ágústs fékk Sigurjón
boltann og skoraði af stuttu
færi, 1-0 fyrir ÍBV.
Á 13. mín. tók Elías Frið-
riksson aukaspyrnu á miðjum
vellinum og gaf inní vítateig
Sauðkrækinga. Þar var Viðar
Elíasson réttur maður á réttum
stað og skallaði í netið, 2-0 fyrir
ÍBV, glæsilegt mark hjá Viðari.
Á 32. mín. barst hár bolti
inní vítateig Eyjamanna. Þor-
steinn Gunnarsson markvörður
ÍBV og Eiríkur Sverrisson
Sauðkrækingur skullu saman
þegar þeir reyndu að komast í
boltann. Boltinn kom niður,
fór í Eirík og síðan í markið.
Töldu margir að Eiríkur hafði
brotið á Þorsteini, en dómarinn
sá ekkert athugavert. Staðan
þvíorðin 2-1.
Á 39. mín skoraði Kári Þor-
leifsson þriðja mark ÍBV.
Hann fékk boltann á miðjunni
og lék sjálfur alla leið inní
vítateig Tindastóls og sendi
boltann í netið, 3-1.
Mínútu síðar skapaðist hætta
við Eyjamarkið eftir að Þor-
steinn markvörður missti bolt-
ann frá sér í tvígang. Eyjamenn
sluppu þó með skrekkinn og
björguðu í horn. í leikhléinu
var Þorsteinn markvörður tek-
inn út af og í hans stað kom
Hörður Pálsson, sonur Páls
Pálmasonar gömlu kempunnar
sem stóð í Eyjamarkinu um
áratuga skeið, en hefur nú
nýlega lagt skóna á hilluna.
Það má með sanni segja að
eplið fellur ekki langt frá eik-
inni, stundum.
Á 60. mín. leiksins skoraði
Hlynur Stefánsson fjórða mark
Eyjamanna eftir að hann og
Kári höfðu leikið sig í gegn.
Það var síðan á 64. mín að
Tómas Pálsson kom inná fyrir
Sigurjón Kristinsson og stuttu
síðar voru þeir Tómas og Kári
komnir tveir innfyrir vörn
Tindastóls, en ekkert varð úr.
Á 84. mín.fékk Tómas gott færi
til að skora en skot hans fór
yfir.
Elfar Gústafsson varamaður
í liði Tindastóls skoraði síðan
lokamarkið á síðustu mínútu
leiksins eftir sendingu frá Sig-
urjóni Magnússyni. Lokatöl-
urnar 4-2 fyrir ÍBV.
Með þessum sigri öðlast
Eyjamenn nú nokkra mögu-
leiíca á að endurheimta sæti sitt
í 1. deild. Þeir eru nú með 25
stig, einu stigi á eftir ísfirðing-
um og tveimur stigum á eftir
Víði. Með smáheppni ætti 1.
deildarsætið að geta orðið
Eyjamanna, en allt getur gerst
í fótbolta eins og menn vita.
Lansing
Búnaðardeild Sambandsins
Ármúla 3. Sími 38900
Utsýni ökumanns
er frábært
Lansing Leiðandi um heim allan í framleiðslu lyftara
Gerið pantanir sem fyrst.
Afgreiðslufrestur: 6-12 vikur.
DIESEL-LYFTARAR:
Lansing %.0 2.0 tonn Kr. 490.352,-
Lansing %.5 2.5 tonn Kr. 514.427,-
Lansing %.0 3.0 tonn Kr. 629.002,-
Lansing %.5 3.5 tonn Kr. 692.415,-
Lansing %.0 4.0 tonn Kr. 945.012,-
RAFMAGNSLYFTARAR:
m/hleðslutæki, rafgeymir.
FOER 15.% .6 1.6 tonn Kr. 770.500,-
FOER 15.V2.0 2.0 tonn Kr. 850.325,-
FOER 15.V2.5 2.5 tonn Kr. 995.400,-
FOER 15.%.0 3.0 tonn Kr. 1.185.372,-
Öll verö áætluð og háð breytingum.