NT - 03.09.1984, Blaðsíða 7
fíl r i Mánudagur 3. september 1984 7
J lil L Heimaslóð
Njarðvík:
„Öll fyrirtæk-
in í gangi“
segir Albert K. Sanders bæjarstjóri
■ Albert Karl Sanders, bæjarstjóri í
Njarðvík, sagði NT nú fyrir skömmu að
atvinnuástand í Njarðvík væri gott. „Þetta
hefur verið nokkuð gott á þessu ári; það hafa
verið nokkrir erfíðleikar í sjávarútvegi, en öll
fyrirtækin eru í gangi.“
Að sögn Alberts er ekki einnig í Njarðvík gluggaverk-
mikill iðnaður í Njarðvík, og smiðjan Rammi, sem Albert
sá sem er tengist þjónustu við sagði að fyrirhugaði stækkun í
sjávarútveg. „Framleiðsluiðn- framtíðinni.
aður er aðallega í sambandi Á suðurnesjum er starfandi
við fisk- og kjötiðnað.“ Þá er iðnþróunarfélag, sem aðild
eiga að sveitarfélögin á suður-
nesjum, einstaklingar og fyrir-
tæki. Hlutverkið er að „finna
leiðir til að skapa fjölbreyttara
atvinnulíf og styrkja það sem
er á staðnum,“ sagði Albert.
Helstu framkvæmdir á veg-
um Njarðvíkurkaupstaðar á
þessu ári tengdust Landsmóti
Ungmennafélaganna. „Við
gerðum geysimikið umhverfis-
átak - en næst á döfinni er
mikið gatnaprógramm aðal-
lega í Innri-Njarðvík.“
Albert K. Sanders bæjarstjóri í Njarðvík,
Launahvetj-
andi kerfi
fyrir úti-
vinnandi
flokka
■ Á fundi bæjarráðs
Vestmannaeyja hinn 27.
þessa mánaðar var ákveð-
ið að hefja viðræður við
Verkalýðsfélag Vest-
mannaeyja um möguleika
á að taka upp launahvetj-
andi kerfi hjá útivinnu-
flokkum hjá bænum.
Nokkur áhugi hefur ver-
ið á þessu máli hjá bæjar-
ráðsmönnum í sumar og
hefur verið rætt við mörg
fyrirtæki sem unnið hafa
svona kerfi fyrir sveitarfé-
lög á landinu. Má nefna
að bæjarráðinu hefur bor-
ist bréf frá Rekstrarstof-
unni í Kópavogi, en það
fyrirtæki gerði „premium“
kerfi fyrir Reykja-
víkurborg, sem unni hefur
verið eftir undanfarið. Er
talið líklegast að annað
hvort verði kerfi líkt því
tekið upp í Eyjum, eða þá
að tekið verði upp svo-
nefnt bónus-kerfi.
Skundaðá
Þingvöll
■ Um hverja helgi eru að
meðaltali um 200 tjöld í þjóð-
garðinum á Þingvöllum. Á
tveggja mánaða tíma seldust
um 1600 leyfi vegna tjalda og
annarra sumardvalastaða í
Pjóðgarðinum. Að jafnaði fara
1400 bifreiðir um hlið þjóð-
garðsins á Pingvöllum á laugar-
dögum og sunnudögum. Allt
þetta og miklu fleira kemur
fram í yfirliti sem Þingvalla-
prestur, Heimir Steinsson þjóð-
garðsvörður, sendi fjölmiðlum
fyrir helgina. Heimir hefur
fundið út að á tveggja mánaða
tímabili fari um 22400 bifreiðar
um þjóðgarðinn, en þá eru að-
eins helgarnar taldar. í bréfi
þjóðgarðsvarðar kemur fram að
fimm hundruð veiðileyfi seldust
á tveimur mánuðum og að feng-
ur var misjafn. Ennfremur að
næturgestir í tjöldum og öðrum
sumardvalartækjum voru eink-
um fjölskyldufólk, sem alla
jafna sýndi góða umgengni og
litla óreglu.
Framkvæmdagleði
í Ólafsvíkinni
■ Miklar byggingaframkvæmdir hafa
staðið yfir á vegum Ólafsvíkur-
kaupstaðar í sumar. Auk hafnarfram-
kvæmda sem haldið hefur verið áfram
við, er nú unnið að byggingu 7 blokkar-
íbúða í Verkamannabústöðum. Áætlað
er að þessar íbúðir verði tilbúnar undir
tréverk síðari hluta desember mánaðar
næstkomandi. Þá er bygging Heilsu-
gæslustöðvar langt komin og er stefnt að
því að hún verði tilbúin um næstu
áramót. Þá er eftir að tækjavæða stöðina
og um þann þátt er mun meiri óvissa.
Guðmundur Tómasson bæjarstjóri í
Ólafsvík sagði í samtali við NT að beiðni
um fjárveitingu til tækjakaupa væri nú
til meðferðar hjá fjárveitingavaldinu.
Hann sagði að menn vonuðust til að það
erindi yrði afgreitt fljótlega, annars
stefndi í það að húsnæði Heilsugæslunn-
ar stæði ónotað um einhvern tíma. Auk
þeirra framkvæmda sem þegar hafa
verið raktar er nú verið að smíða
leiguíbúðir fyrir aldraða á vegum bæjar-
félagsins. Stefnt er að því að þær verði
tilbúnar undir tréverk í haust. Loks má
nefna að á næstu vikum verður lokið við
að leggja slitlag á íbúðagötur Ólafsvíkur.
Verktakinn sem það annast er væntan-
legur með tól og tæki innan tíðar og
áætlað er að það taki um 2 vikur að Ijúka
verkinu.
■ Það er víðar sem ávextir eru bornir á torg en í Reykjavík. Þessi mynd var
tekin á Akranesi nú fyrir skömmu á sólríkum sumardegi - einum þeirra.
NT raynd Ami Bjama
m útsma mmm úmismmi
yHnNR
ROWA
n « * awn
íUíiuÚÍM
© SAMBANDSINS
m ZEROWATT
ARMULA3 SIMAR 38 900-38 903
Skólavörurnar fáið þið í Bókabúðinni Emblu,
Fellagörðum. S. 76366
I
Berist filman til okkar fyrir kl. 11 verða myndirnar tilbúnar til afhendingar kl. 17.