NT - 25.10.1984, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 25. okt. 1984 15
I öðru lagi með tölvustýrðu
ogplatínulausu kveikjukerfi.
I þriðja lagi með því að
setja véiarnar upp til að gefa
meira snúningsátak við minni
snúningshraða, (sem einnig
lengir líftíma vélarinnar því
hún snýst sjaldnar á ekinn
kílómetra en áður).
Nýtt kveikjukerfi
Kveikjukerfið er virkilega
fuilkomið og áhrifaríkt.
Svokallaður bank-nemi undir
soggreininni verður var við
það sem íslendingar kalla
kveikjubank og orsakast af
því að bensínblandan í
brunahólfi vélarinnar brenn-
ur ekki út frá kertinu heldur
springur, brennur öll í einu
með hvelli sem stimplar og
ventlar þola mjög illa.
Til að losna við þessa for-
kveikingu er ráð að seinka
kveikjunni og það er einmitt
það sem tölvuheilinn sniðugi
gerir þegar hann verður var
við bank. Ef bankið hættir
flýtir kveikjan sér skref fyrir
skref aftur upp í eðlilegt horf
en ef það heldur áfram seink-
ar tölvan kveikjunni enn meir
og svo frv.
Það sem gerir þetta kerfi
Volvo frábrugðið öðrum er
að það tekur hvern strokk
fyrir sig þannig að hver og
einn fær alltaf neistann sinn á
réttum tíma. Gamli Renault
1400 mótorinn í litla Volvon-
um 340 fær líka þetta kerfi,
en mikilvægast er það á stóru
vélinni sem alltaf var áber-
andi gjörn á að banka og
glamra eins og Volvo eigend-
ur þekkja vel en fékkst ekki
til þess þegar ég reyndi nýja
bílinn fyrir utan eitt og eitt
bank á stangli sem tölvan
drap strax í fæðingu.
Það hefur sem sagt verið
ráðist markvisst oghnitmiðað
á hvimleiða annmarka í
Volvo gærdagsins og þeim
hreinlega útrýmt. En fleira
nýmeti er í pokahomi Sví-
anna, og það bitstæðasta og
markverðasta felur sig bak
við skammstöfunina ETC,
Electronic Traction Control
eða Rafeindastýrð Spyrnu-
stjórn. Volvo voru þeir fyrstu
til að sýna svona kerfi opin-
berlega og eru nú líka fyrstir
til að koma því á markað, en
það fæst í sumum ’85 módel-
anna.
Tölva er kjarni ETC og
hún tengist nemum í drifinu
og við hvort framhjól sem
gera viðvart ef drifhjólin
missa grip og spóla. Það
reiknar tölvan góða út með
því að bera saman hraða
afur- og framhjóla og ef öku-
maður er sá klaufi að gefa
ekki upp bensíngjöfina þegar
drifhjólin fara að spóla, sér
tölvan um að minnka kraft
vélarinnar með því að fella út
annan hvern neista á fyrsta
strokk, alla neista ef það er
ekki nóg, og þannig koll af
kolli þar til aðeins einn
strokkur er eftir til að puða
við að halda vélinni í gangi.
Allan tímann meðan þessu
fer fram getur ökumaður ver-
ið frosinn með bensíngjöfina
í gólfinu, bílinn spólar ekki.
Tilvalið fyrir þá sem hafa
ekki næma tilfinningu fyrir
því sem er að gerast þegar
þeir aka bíl og mikið öryggis-
atriði fyrir óvana og smeyka
í vetrarakstri. Við framúr-
akstur til dæmis er nóg að
stappa gjöfina í gólfið, bíllinn
heldur sínu striki án þess að
spóla og skrika til.
Þetta kerfi á mjög vel við
ABS bremsukerfið sem hefur
fengist nú upp á síðkastið í
þýzkum bílum og Hondum.
ABS stendur fyrir Anti
Blockier System á þýzku og
kemur í veg fyrir að hjól
læsist föst þegar traðkað er
með offorsi á bremsufetilinn
eða þegar hált er undir. Þegar
hált er undir hjólunum öðru
megin og betra grip hinum
megin gefur kerfið það há-
marksbremsuátak sem hægt
er á hvert hjól fyrir sig án þess
að það hætti að snúast og
missi þar með grip og bíllinn
skriki til.
Með því að tengja þessi
kerfi saman má nota sömu
nemana fyrir bæði og spara
þannig nokkurn kostnað,
sem er væntanlega töluvert
mikill fyrir væntanlega kaup-
endur.
Þannig útbúinn er nýi Vol-
voinn líka orðinn einn sá
öruggasti í heimi með því að
hjálpa til við að forðast á-
rekstur, og nú vantar ekkert
nema tölvukerfi sem stýrir
fyrir mann!
AA
■ í sumar setti þessi Volvo
360 GLT nokkur ný heimsmet
í þolakstri í sínum flokki á
kappakstursbraut í Ástralíu.
’85 módelin fá nýjar vélar
(m.a. díselvél) og aðrar endur-'
bætur.
HEKLU bílasalurinn
er opinn
Virka daga kl.9.00 - 18.00
Fimmtudaga kl.9.00 - 22.00
Laugardaga kl.13.00 - 17.00
Glæsilegt úrval notaðra bíla !
KAUPBÆTIR
Nýir Goodyear vetrarhjól-
baröar fylgja með notuðu
bílunum frá okkur
Eftir lokun skiptiborðs er
sími söludeildar: 11276
[pílHEKIAHF
I Laugavegi 170 -172 Símt 21240