NT - 25.10.1984, Blaðsíða 2
f T1S7 Fimmtudagur 25. okt. 1984 2
L LÍÍ Fréttir
„Þeir reita hársitt ogskegg
- þeir sem það hafa“
- sagði Ragnhildur Helgadóttir á þingi
■ Eiður Gudnason mælti í
gær, á fundi efri deildar alþingis
fyrir þingsályktunartillögu um
skipan þingmannanefndar til að
rannsaka afskipti ráðherra og
embættismanna af rekstri ólög-
legra útvarpsstöðva.
Eiður vitnaði í orð Bjarna
Benedikstssonar, að njóta beri
frelsis innan ramma laganna.
Einnig vitnaði Eiður í orð
Þorsteins Pálssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins: „Menn
hafa fundið æðri lögmál".
„Þessi orð formanns Sjálf-
stæðisflokksins, stærsta stjórn-
málaflokks íslands, eru um-
hugsunarverð," sagði Eiður.
Hann dró í efa vilja ráðherra
til að stöðva útvarpsstöðvarnar,
og sagðist telja þann tíma sem
leið frá því að stöðvarnar tóku
til starfa þar til þeim var lokað,
of langan.
Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra, tók til
máls á eftir Eið. Hún sagði að
málflutningur Eiðs væri byggð-
ur á gróusögum, og lagði til að
peningar ríkisins væru sparaðir
og beðið eftir dómsúrskurði í
máli útvarpsstöðvanna.
En hún benti á að útvarps-
stöðvarnar hefðu borið fyrir sig
neyðarréttarákvæði, en neyðar-
réttur getur gilt um athæfi sem
venjulega er ólöglegt, en leyfist
vegna annarlegra aðstæðna.
Ragnhildur sagði að málflutn-
ingur Eiðs stafaði af pólitískum
erfiðleikum hans um þessar
mundir og sagði algengt að
þegar þannig stæði á „reittu menn
hár sitt og skegg - þeir sem það
hefðu".
Umræðu um málið var síðan
frestað vegna ríkisstjórnarfund-
ar sem boðaður var klukkan 3 í
gær. Ragnar Arnalds mótmælti
frestuninni, og hvatti forseta
efri deildar, Salome Þorkels-
dóttur, til að fá ríkisstjórnar-
fundi frestað svo ráðherrar gætu
tekið þátt í þingfundi.
Alþingi:
■ Gunnar G. Schram
hefur verið kosinn for-
maður allsherjarnefndar
efri deildar alþingis.
Varaformaður er Ólafur
Þórðarson og fundarritari
Guðrún Helgadóttir.
Þá var lagt fram í efri
deild frumvarp til laga um
breytingu á lögum um
Verðlagsráð Sjávarút-
vegsins. Flutningsmenn
frumvarpsins eru Kolbrún
Jónsdóttir og Stefán Ben-
ediktsson. Breytingin fel-
ur í sér að lágmarksverð á
sjávarafla ákvarðist af
frjálsum samningum fisk-
kaupenda og seljenda.
í neðri deild urðu snarp-
ar umræður um frumvarp
til laga um breytingar á
lögum um kjarasamninga
opinberra starfsmanna.
Breytingin felur í sér
að rísi ágreiningur um úr-
skurði kjaradeildunefndar
geti aðilar skotið málinu
til Hæstaréttar sem úr-
skurði tafarlaust.
Flutningsmenn eru Jón
Baldvin Hannibalsson og
Guðmundur Einarsson.
Haraldur Steinþórsson,
framkvæmdastjóri BSRB
og varaformaður samtak-
anna, sagði á blaðamanna-
fundi í gær að hann væri
ekki hlynntur því að
breyta lögum um samn-
ingsrétt í fljótheitum.
Einnig var lagt fyrir
neðri deild frumvarp til
laga um lögverndun á
starfsheiti kennara. Flutn-
ingsmenn voru Hjörleifur
Guttormsson, Jóhanna
Sigurðardóttir og Kristóf-
er Már Kristinsson.
Svartolían í land
■ Uppskipun úr sovéska svartolíuskipinu, sem beðið hefur í Reykjavíkurhöfn í nokkra daga, hófst undir kvöld í
gær. Verkfallsstjórn BSRB veitti undanþágu fyrir losun skipsins í gærmorgun.
Hafnfirðingar
sömdu í gær
- á sömu nótum og Kópavogsmenn
■ Nýr kjarasamningur á milli
Starfsmannafélags Hafnarfjarð-
ar og bæjarins var undirritaður
um kl. 18 í gær. Samningurinn
felur í sér 10% launahækkun
frá 1. september og síðan kemur
3.5% hækkun 1. desember og
önnur eins 1. maí á næsta ári.
persónuuppbót, kr. 4.500, verð-
ur greidd 1. nóvember.
Samningurinn er svipaður
þeim, sem gerður var í Kópa-
vogi á dögunum og losar hækk-
unin 19% á samningstímanum,
sem er til ársloka 1985. Þá mun
fylgja samningnum drengskap-
arloforð frá bæjaryfirvöldum
um kaupmáttartryggingu, sam-
kvæmt heimildum NT.
Markús
Óm Antons-
son útvarps-
stjóri
■ Markús Örn Antonsson, rit-
stjóri með meiru, hefur verið
skipaður útvarpsstjóri frá 1.
janúar 1985. Hann tekur við af
Andrési Björnssyni sem gegnt
hefur útvarpsstjóraembætti frá
1968. Sex aðrir umsækjendur
voru uin stöðu útvarpsstjóra
eins og fram hefur komið í NT.'
Markús Örn er fæddur í
Reykjavík 1935. Hann lauk
stúdentsprófi 1965 og hefur síð-
an starfað við fréttamennsku,
blaðaútgáfu og stjórnmál.
Markús er forseti borgarstjórn-
ar og hefur verið borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins frá 1970.
Hann er fjórði maðurinn sem
gegnir embætti útvarpsstjóra
frá upphafi.
Launanefnd sveitarfélaga:
Hrokkin upp fyrir
■ „Ég vona að launanefnd
sveitarfélaganna sé hrokkin
upp fyrir. Allt sem ég hafði
áður sagt fyrir um, hefur
komið fram varðandi nefnd-
ina,“ sagði Helgi Andrésson,
formaður starfsmannafélags
Akraness í viðtali við NT í
gær.
Helgi sagði að nú þegar
samningaumleitanir nefnd-
arinnar hefðu verið komnar
í strand, hefðu sveitárfélög-
in farið af stað. Sagði hann
að það sýndi að það apparat
sem sveitarfélögin hefðu
komið sér upp gengi ekki.
Jafnframt sagði Helgi, að
hefði launanefnd ekki verið
til staðar, hefðu viðræður
sveitarfélaga og starfs-
mannafélaga hafist mun fyrr,
og verið jákvæðari.
Helgi er formaður bæjar-
starfsmannafélagsins á Akra-
nesi og situr í stjórn BSRB.
Sáttatillaga sáttasemjara
var samþykkt í allsherjarat-
kvæðagreiðslu á Akranesi.
Lausafjárstaða
bankanna batnar
■ Lausafjárstaða bankanna í septembermánuði síðast
batnaði um 360 milljónir króna liðnum, samkvæmt upplýsing-
Sjálfsafgreiðsla
Iðnaðarbankans
■ Eins og kemur fram ann-
arsstaðar í blaðinu er Iðnað-
arbankinn nú að láta setja
upp sjálfsafgreiðsluvélar í
afgreiðslustaði sína. Þá geta
viðskiptavinir bankans náð
sér í peninga hvenær sem er
með því að stinga korti í rifu
og ýta á hnapp.
Dropar hafa . héyrt að
óþekktur maður, mjósleg-
inn, hávaxinn, skolleitur
með skíðagrímu eigi í raun
heiðurinn af því að þessir
kassar eru settir upp. Þessi
maður brá sér, eins og frægt
varð, inn í Iðnaðarbankann
í Breiðholti eftir lokun og
afgreiddi sig þar sjálfur. Eftir
það hafi hugmyndin að vél-
unum kviknað, það væri
hvort eð er sjálfsafgreiðsla í
Iðnaðarbankanum.
Erþað
tóbaksleysið
sem veldur?
■ Kjaradeila blaðamanna
og útgefenda stendur sem
intomit
hæst og hefur enn ekki verið
skrifað undir samninga. Á
mánudaginn var talaði rit-
stjóri Dags á Akureyri við
Guðlaug Þorvaldsson, sátta-
semjara ríkisins, og kom þá
fram hjá Guðlaugi að það
væri verra með tóbaksleysið,
sem nú væri farið að gera
vart við sig á höfuðborgar-
svæðinu, heldur en þó dag-
blöðin stöðvuðust á nýjan
leik uppúr helgi. Brugðu
Dagsmenn hart við og sendu
sáttasemjara væna sendingu
af Cerut 30 vindlum frá
höfuðstað Norðurlands, þar
sem nóg ku hafa verið til af
tóbaki er síðast fréttist, í
þeirri von að fyrr gengi sam-
an í deilunni.
um sem NT fékk hjá Seðlabank-
anum. Kemur þessi bati í kjölfar
þess að lausafjárstaða bankanna
versnaði um 742 milljónir króna
í ágústmánuði.
„Þetta er vísbending um að
við séum á réttri leið í að ná
jöfnuði á milli innlána og út-
lána“, sagði Eiríkur Guðnason,
forstöðumaður Hagfræðideild-
ar Seðlabankans í samtali við
NT í gær. „En staðan er enn
afskaplega slæm“. I lok septem-
ber var lausafjárstaða bankanna
neikvæð um samtals 3,1 milljarð
króna.
Bati lausafjárstöðunnar kann
að vera tengdur óvenjulega
mikilli innlausn spariskírteina
ríkissjóðs í september, að upp-
hæð 716 milljónir króna. Þar af
var aðeins 157 milljónum skipt
í ný spariskírteini, sem eru með
fullri verðtryggingu og 8% vöxt-
um að auki. Bankar og spari-
sjóðir auglýstu mikið í ágúst og
september að þeir greiddu fyrir
innlausn spariskírteinanna, í
von um að fá hluta af innlausn-
arfénu inn á eigin innlánsreikn-
inga.
Bjarni Bragi Jónsson, aðstoð-
arbankastjóri Seðlabankans,
sagði að í október hefði inn-
lausn á spariskírteinum haldist
mun meira í hendur við skipti í
ný skírteini, eða 157 milljónir í
innleystum á móti 105 milljón-
um í nýjum.