NT - 16.11.1984, Blaðsíða 2
Fóstudagur 16. nóvember 1984
Nú er deilt um hver á að bæta
22 milljóna tjón á Klakki
Orsök þess aö Vestmanna-
eyjatogarinn Klakkur valt á
hliðina í slipp í Bremerhaven í
Þýskalandi í síðustu viku er enn
í rannsókn og ekki búist við
miðurstöðu næstu daga, að sögn
Gísla Ólafssonar, forstjóra
Tryggingamiðstöðvarinnar í
gær, en þá var nýlokið fundi
með fulltrúum tryggingafélags-
ins, útgerðarfélagsins Samtogs í
Vestmannaeyjum og forsvars-
manna slippsins í Þýskalandi.
Hver ábyrgð ber á slysinu og
þar með á hverjum lendir að
bæta tjónið er því óútkljáð
ennþá. En tjónið hefur Verið
áætlað á bilinu 20-22 millj.
króna.
Viðgerðarkostnaður vegna
óhappsins hefur verið áætiaður
20-22 milljónir og tæpast minna
en 2 mánuðir sem viðgerð mun
taka.
Klakkur hefur nú aftur verið
tekinn upp í slippnum í Bremer-
haven. Undanfarna daga hefur
verið unnið að því að hreinsa úr
skipinu sjó og drullu og reyna
að forða frekari skemmdum á
því. Rafmótorar hafa m.a. allir
verið teknir og komið á verk-
stæði til athugunar. Upphaflega
var Klakkur tekinn upp vegna
venjulegrar klössunar og smá-
vægilegrar viðgerðar sem ekki
átti að taka nema um 2 vikur.
Um 18-20 manna áhöfn
Klakks verður fyrir verulegu
tekjutapi vegna þessa langa
stopps. Áhöfnin að 2-3 yfir-
mönnum undanskyldum er nú
á leið heim með togaranum
Breka sem seldi 226 tonna afla
í Bremerhaven nú í vikunni.
Þess má geta að sala Breka var
góð eða um 24.19 kr. fyrir
kílóið að meðaltali. Af aflanum
voru um 100 tonn af ufsa en hitt
karfi.
Vatn á völlinn
Hagvirki lægst
■ Hagvirki hf. í Hafnarfirði
átti lægstu tilboð í vatns- og
frárennslislögn í nýju flugstöð-
ina á Keflavíkurflugvelli.
Kostnaðaráætlun Almennu
Verkfræðistofunnar hljóðaði
upp á 39.217.791 krónu, en
tilboð Hagvirkis var 29. 459.100
krónur.
Alls bárust ellefu tilboð.
ili
„Ég er gull
og gersemi
■ Nú standa yfir sýningar á
leikritinu „Einkalíf" hjá Leik-
félagi Akureyrar, en það er
fyrst verkefni leikárs félagsins.
„Einkalíf" er eitt vinsælasta
verk leikritahöfundarins,
leikarans, lagasmiðsins og rit-
höfundarins Noel Coward sem
Elísabet Englandsdrottning sló
til riddara fyrir leikhússtörf árið
1970.
„Einkalíf" fjallar um fráskilin
hjón sem hittast af tilviljun í
brúðkaupsferð með nýjum
mökum á frönsku sumarhóteli.
Það kviknar í gömlum glæðum
og eftirleikurinn verður ævin-
týralegur.
Margir heimsþekktir leikarar
hafa glímt við aðalhlutverkin í
þessu leikriti, en hjá Leikfélagi
Akureyrar eru það Sunna Borg
og Gestur E. Jónasson sem
leika aðalhlutverkin. Leikstjóri
er Jill Brooke Árnason, leik-
mynd gerir Una Collins. Signý
Pálsdóttir og Jill Brooke Árna-
son þýddu verkið en um lýsingu
sér Álfreð Alfreðsson.
/Efingar eru hafnar á næsta
verki sem frumsýnt verður 28.
desember, en það er „Ég er gull
oggersemi", nýr sjónleikur eftir
Svein Einarsson sem byggður er
á skáldsögu Davíðs Stefánsson-
ar „Sólon íslandus".
Með þeirri sýningu rætist
langþráður draumur L.A. um
að koma sögu Davíðs um lista-
manninn, flakkarann og heim-
spekinginn Sölva Helgason sem
flæktist um landið á síðustu öld
á fjalir leikhússins. Þetta verður
fjölmenn sýning með söngvum
og tónlist. Leikstjóri verður
Sveinn Einarsson, leikmynda-
hönnuður Örn Ingi Gíslason,
búningahönnuður Freygerður
Magnúsdóttir, höfundur tónlist-
ar Atli Heimir Sveinsson og um
lýsingu sér David Walters. Það
verður Theódór Júlíusson sem
leikur Sölva Helgason.
Þriðja verkefni leikársins
'verður söngleikurinn um Edith
Piaf sem farið hefur sigurför um
heiminn síðan hann var frum-
sýndur í London 1978. í titil-
hlutverki verður Edda Þórarins-
dóttir gestaleikari frá Þjóð-
leikhúsinu. Frumsýning söng-
leiksins er áætluð í lok febrúar.
Endanleg ákvörðun um fleiri
verk hefur ekki verið tekin,
en nokkrar líkur eru á að leikár-
inu Ijúki með barnaleikriti sem
ekki hefur verið ákveðið hvert
verður.
■ Svo virðist sem tvívinna þurfi ýmis verk í Kópavogi. Hér er það brúin fræga sem lætur undan, en
sennilega var það ekki tæknideild Kópavogskaupstaðar sem hér var að verki.
Verksvit í
Kópavogi!
Var einhver að tala um Hafnfirðinga?
■ Bæjarbúar í Kópavogi vilja
vita hvers vegna fjármunum
þeirra sé eitt í tvíverknaði og
margverknaði við opinberar
framkvæmdir.
Þetta er efni fyrirspurnar sem
bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi hafa borið
fram og óska eftir skriflegum
svörum við.
I fyrirspurn bæjarfulltrúanna
kemur fram að mýmörg dæmi
séu af margverknuðum tækni-
deildar bæjarins, og spyrja þeir
hverséu mörk á tvíverknuðum.
Bæjarfulltrúarnir nefndu
nokkur dæmi; veggur var hlað-
inn við Nýbýlaveg, hlaða þurfti
annan til að stýðja hinn og loks
að skipta um jarðveg í kring en
Hæstiréttur:
Vísar frá lögbanns-
kröfu Eimskips á
verkfallsvörslu BSRB
■ Hæstiréttur hefur vísað
frá kæru Eimskipafélags ís-
lands á synjun fógetaréttar
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
um að lögbann yrði sett á
aðgerðir verkfallsvarða
BSRB við Urriðafoss en
hann á við Grundartanga
meðan á verkfalli BSRB
stóð. Þá vísaði Hæstiréttur
einnig frá þeirri kröfu Eim-
skipafélagsins að setudómar-
anum Eggert Óskarssyni
borgardómara yrði veitt á-
minning.
Úrskurður fógetaréttarins
var kærður til Hæstaréttar
23. október. Þar krafðist
Eimskipafélagið að lögbann
yrði lagt á aðgerðir verkfalls-
varða við Urriðafoss en til
vara að hinn kærði úrskurður
yrði úr gildi felldur og lagt
fyrir fógeta að taka lögbanns-
kröfuna til efnislegrar með-
ferðar. Hvernig sem málið
fari að öðru leyti var þess
krafist að setufógetanum
yrði veitt áminning „fyrir aö
hafa synjað lögbannskröfu
kæranda á þeim grundvelli
að lögbann sé ekki tiltækt
réttarúrræði í vinnudeilu svo
sem fram kemur í forsendum
úrskurðar hans".
í dómi Hæstaréttar segir
að úrskurðir fógetaréttar um
það hvort fógetagerð skuli
fara fram eða ekki sæti eigi
kæru til Hæstaréttar sam-
kvæmt lögum. Verði því ekki
hjá því komist að vísa aðal-
kröfu og varakröfu kæranda
frá dómi.
í dómnum segir að héraðs-
dómari verði eigi látinn sæta
viðurlögum, samkvæmt
sömu lögum, fyrir rökstuðn-
ing sinn fyrir dómsúrlausn.
Um hann verði eigi fjallað í
Hæstarétti nema í sambandi
við löglegt málskot dómsúr-
lausnar.
Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins:
Stefnumótun og
miðstjórnarkjör
nú er búið að grafa þann jarðveg
burt. Malbik sé varla orðið kalt
þegar hafist er handa við að
brjóta það upp.
Fyrirspurnin er undirrituð af
Richard Björgvinssyni, Braga
Michaelssyni, Ásthildi Péturs-
dóttur og Guðna Stefánssyni og
óska þau skriflegra svara bæjar-
stjóra.
■ Flokksráðsfundur Alþýöu-
handalagsins hefst í Reykjavík í
kvöld og stendur fram á sunnu-
dag. Flokksráðsfundur er æðsta
stofnun Alþýðubandalagsins á
milli flokksþinga, sem haldin
eru annað hvert ár, og rétt til
fundarsetu eiga 130-140 manns,
eða fulltrúar um 60 félaga.
Á fundinum verður m.a. gerð
grein fyrir stefnuumræðu, sem
farið hefur fram í flokknum og
kynntar verða niðurstöður
spurningalista, sem sendir voru
félagsmönnum Alþýðubanda-
lagsins urn stefnumótun.
Stefnumótunarumræðan í
flokknum er rétt að byrja og
verður henni líklega haldið
áfram til flokksþingsins 1987.
Þá munu alþýðubandalagsmenn
starfa í vinnuhópum og ræða
um efnahags- og kjaramál, og
samstarf vinstri manna.
Eina kosningin á flokksráðs-
fundinum verður til miðstjórnar
flokksins og fer hún fram á
sunnudag. Alls verða kosnir 70
miðstjórnarfulltrúar og verða
þeir tilnefndir á laugardag.
Flokksráðsfundurinn er hald-
inn í flokksmiðstöðinni að
Hverfisgötu 105 og er þetta í
fyrsta skipti, sem svo stór fund-
ur er haldinn þar á vegum
flokksins.
Háskóli islands:
85 braut-
skrádir
■ Háskóli íslands hefur
brautskráð áttatíu og fimm
stúdenta nú í upphafi haustmiss-
eris. Þar af luku tuttugu og níu
stúdentar kandidatsprófi í við-
skiptafræðum, nítján luku prófi
í verkfræði og raunvísindadeild
og ellefu tóku B.A. próf í
heimspekideild. Þá luku níu
stúdentar B.A prófi úr félags-
vísindadeild.
Slysatryggingar:
Erulífflugmanna
dýrari en sjóara
- °9 allir
aðrir
ódýrari en
s/ómenn?
■ Ef flugmaður ferst í starfi
greiðir tryggingafélag atvinnu-
rekenda aðstandendum rúmar
þrjár milljónir út í hönd en fyrir
sjómann getur sú upphæð tæp-
lega orðið hærri en ein og hálf
milljón. Þar af fær sjómanns-
fjölskyldan ekki nema 300 þús-
und út, og 420 þúsund á næstu
8 árum. Fyrir hvert barn sjó-
mannsins eru svo greiddar 2117
krónur mánaðarlega tii 17 ára
aldurs, þó ekki lengur en í átta
ár. Eigi sjómaður 4 börn, yngri
en 9 ára, getur fjölskylda hans
þannig fengið helming þeirrar
greiðslu sem fjölskylda flug-
mannsins fær út í hönd.
Þá eru flestir aðrir launþega-
hópar með lægri greiðslur en
sjómenn en þessi mál eru samn-
ingsbundin. Utan við þessar
greiðslur koma svo bætur al-
mannatrygginga og lífeyris-
sjóða. Eru þær síðarnefndu
mjög misjafnar og gildir oftast
að hátekjumenn hafa mun
meira en lágtekjumenn, flug-
menn einna mest.
Upphæð tryggingagreiðslna
atvinnurekenda hetur miðast
við hversu áhættusamt starf við-
komandi vinnur. Er því athygl-
isvert að aðstandendum flug-
freyja sem fá eins og flugmanna
aðeins eina greiðslu út í hönd er
metin helmingi lægri upphæð en
aðstandendum samstarfsmanna
flugfreyja í stjórnklefanum.
Eða rúmlega ein og hálf milljón.
Þá eru verkfræðingar á skrifstof-
um einnig hærra metnir í þessu
heldur en byggingaverkamenn
og svona mætti lengi telja. Af
stærri hópum eru sjómenn næst-
ir eftir flugmönnum.
Greiðslur vegna örorku eru
svo yfirleitt í einhverju hlutfalli
við greiðslur vegna dauðaslysa.