NT - 16.11.1984, Side 9
T
II
Föstudagur 16. nóvember 1984
9
Vettvangur
háhri
Svar við furðuskrifum feS
■ NT hefur verið beðið að
birta eftirfarandi bókun sem
samþykkt var á fundi hrepps-
nefndar Vatnsleysustrandar-
hrepps mánudaginn 12. nóv.
■ I Víkurfréttum þann 1.
nóv. s.l. birtist grein undir
fyrirsögninni „Furðuflutningar
á Vatnsleysuströnd." Dag-
blaðið NT gerir grein þessa
síðan að heilsíðufrétt þann 8.
nóvember, en leiðréttir hana
þó lítillega þótt mikið vanti á
að rétt sé með farið.
Höfundur greinarinnar í
Víkurfréttum hefur kosið að
birta greinina nafnlausa og seg-
ir það sína sögu.
í greininni eru bæði rang-
færslur og dylgjur sem kunnug-
ir sjá í gegnum, en aðrir ekki
og er því nauðsynlegt að koma
nokkrum leiðréttingum á
framfæri.
Greinarhöfundur þykist
vera að gera hlutlausa úttekt á
þeirri þjónustu sem íbúum
Vatnsleysustrandar er veitt
með þessari einu ferð á dag og
reiknar síðan út kostnaðinn
við þessa þjónustu miðað við
þann tíma sem ferðin tekur
daglega. Eftirtalin atriði koma
þó ekki fram einhverra hluta
vegna:
1. Ferðir þessar hafa verið
greiddar að hluta til úr sveitar-
sjóði frá 1975, þar sem þeim er
ætlað að þjóna þeim rúinlega
eitt hundrað íbúum sern á
Ströndinni búa og ekki njóta
neinnar þjónustu af hálfu Sér-
leyfisbifreiða Keflavíkur, ef
undan er skilið, að bifreið sú,
sem úr Reykjavík fer kl. 19.00,
fer um Ströndina þ.e.a.s. ef
einhver farþegi innan að er á
leið þangað, annars ekki. Ætti
öllum að vera ljóst, að á slíkt
er harla lítið að treysta fyrir þá
sem af Ströndinni þurfa að
komast.
2. Á Ströndinni býr margt
fólk á efri árum sem ekki hefur
ökuréttindi. Þessa hádegisferð
getur það notað til að komast
suður í Voga, m.a. til að leita
til læknis, eða í verslunarerind-
um og að sjálfsögðu til að
komast í veg fyrir rútuna o.fl.
mætti nefna.
3. Nemendur grunnskólans
og Fjölbrautaskólans, sent á
Ströndinni búa geta notfært
sér þessar ferðir og sparar það
sveitarfélaginu því nokkurn
kostnað við skólaakstur.
Fleiri atriði mætti eflaust
tilgreina varðandi notagildi
þessara ferða, en látum þetta
duga.
Næst er rétt að athuga nánar
aðferðir greinarhöfundar við
kostnaðarútreikninga, sem
hann hefur í tveimur tölusett-
um liðum. Þar skiptast á stað-
leysur og rangfærslur að veru-
legu leyti og skulu hér tilgreind
nokkur dæmi:
1. Höfundur gengur út frá
22 km akstri á dag í stað 40 km.
Stjórn Pósts og síma hefur
tvívegis látið mæla akstursleið-
ina og mældist hún 40 km.
Póstur og sími greiðir fyrir
þennan akstur skv. þeirn taxta
sem í gildi er fyrir landspósta
um land allt. Þessi mismunur á
kílómetrafjölda greinarhöf-
undar og þess sem greitt er
samkvæmt, lækkar kílómetra-
gjaldið úr kr. 68.19 í kr. 34.96.
2. Greinarhöfundur telur
aðeins eina klst. fara í hverja
ferð. Þessi áætlun er í samræmi
við greinina í heild. Til þess er
ætlast, að landspóstur skili
öllum ábyrgðarpósti og
pökkum heirn á hvern bæ,
þcgar um slíkan póst er að
ræða og vitanlega tekur slíkt
drjúgan tíma. Auk þess kemur
all oft fyrir, að fara þarf auka-
ferð úr Vogum í Brunnastaða-
hverfi. þegar margir farþegar
eru á heimleið. Fyrir þær ferðir
er ekki greitt aukalega. Á
veturna lengist þessi tími einn-
ig, þegar slæm eru veður og
færð erfið. Má því reikna með
að oft taki ferðin tvöfaldan
þann tíma sem greinarhöf-
undur gengur út frá í sínum
útreikningum.
3. Það skilyrði var sett af
hálfu hreppsnefndar árið 1975.
að notuð yrði stór bifreið við
þessa fólksflutninga, Allan
tírnann hafa verið notaðir ný-
legir góðir bílar. vel útbúnir til
aksturs við erfið skilyrði. í dag
er notuð nýleg bifreið. sem
tekur sjö farþega. Kostar slík
bifreið á áttunda hundrað þús-
und krónur. Þann stofnkostn-
að hlýtur að verða að taka inn
í dærnið ása'nit afskriftum. í
stað þess reiknar greinarhöf-
undur eingöngu bensínkostn-
að til frádráttar og fær þannig
út hið háa tímakaup konunnar.
Þá má geta þess að bifreiöin er
bundiní þessum akstri og tak-
markar það vitanlega notkun-
armöguleika hennar sem heim-
ilisbifreiðar.
4. Greinarhöfundur tekur til
viðmiðunar þann kostnað sem
af því hlytist að láta leigu-
bifreið annast þessa þjónustu.
Enn einu sinni verður honum
á í messunni:
a) Ennþá reiknar hann með
22 km í stað 40 krn.
b) Engin leigubifreið er gerð
út innan hreppsmarkanna
og yrði því að fá bifreið
frá Hafnarfirði eða Kefla-
vík og bætist þá verulegur
kílómetrafjöldi við. Auk
þess yrði bifreiðin aö
vera fyrir sjö farþcga og
þar af leiðandi á hærri
larhrepps
taxta en greinarhöfundur
reiknar með.
c) Áætlunartími rútunnar úr
Keflavík í Voga er kl.
13.45, en rútunnar úr
Reykjavík 14.10. Trúlega
kæmi því biðtímagjald til
viðbótar. væri leigubifreið
notuð.
Þessi samanburöur er því
engan veginn raunhæfur.
5. Höfundur hneyklast á
því, að „barnungur" sonur
konunnar leysi hana af í
sumarleyfum. Sannleikurinn
er sá, að í þau níu ár sem hún
hefur siíint þessu starfi, hefur
hún aðeins þrívegis þurft á
afleysingarmanni að halda,
þ.e.a.s. þriðja hvert ár.
Lesendum ætti að vera orðiö
Ijóst, að harla lítiö stendur
orðið eftir að þeini tölum og
fullyrðingum sem fram voru
settar í umræddri grein Víkur-
frétta. Hreppsnefnd fær ekki
skilið hver tilgangurinn með
skrifum sern þessum er, úr því
menn ekki þora að leggja nafn
sitt við þau. Flestir ábyrgir
menn hefðu byrjað á því, að
senda skriílega fyrirspurn til
réttra aðila, sem í þessu tilfelli
eru hreppsnefnd Vatnsleysu-
strandarhrepps ásamt stjórn
Pósts og síma, í stað þess að
rjúka beint til fjölmiðla til að
skapa leiöindi. Hefði viökom-
andi gert það og engin svör
fengið, þá var í lagi aö snúa sér
að fjölmiðlunum.
Aö lokum má geta þess.
lesendum til fróðleiks, að
stjórnvöld landsins hafa brugö-
ist íbúum Vatnsleysustrandar
illilega í samgöngumálum.
Þegar ákveðiö var að Reykja-
nesbrautin skyldi lögö svo
langt frá bæjunum á Strönd-
inni, sem áður voru í þjóö-
braut, var íbúunum lieitið því
af ráðherrum, að gerð yrði út
sérstök fólksflutningabifreið til
aksturs um Ströndina í veg
fyrir Keflavíkurrútuna.
Þetta var gert í nokkur ár,
en síöan aflagt þar sent ríkið
neitaði að standa við sinn hluta
samningsins og þess gjalda
íbúarnir enn þann dag í dag
því miður.
Stutt at-
hugasemd
■ I upphafi þessarar greinar-
gerðar frá hreppsnefnd Vatns-
leysustrandarhrepps er gefið í
skyn að athugasemdir þær sem
þar eru gerðar eigi allt að því
jafnt við um grein í NT 8. nóv.
og grein þá sem birtist í Víkur-
fréttum þann 1. nóv.
Þegar greinargerðin er Iesin
verður hins vegar ekki séð að
þar sé sett út á nein efnisatriði í
grein NT. Þvert á móti er í
greinargerðinni að finna stað-
festingu á þeirri meginstað-
reynd að fyrir þennan akstur
eru nú greiddar 34.96 kr/km að
meðaltali yfir árið, þ,e. tvöfald-
ur taxti landpósta.
Verður því ekki betur séð en
öll meginatriði í grein NT um
málið frá 8. nóv. sl. standi
óhögguð eftir sem áður.
Jón Daníelsson
iatnlega launaðir.
Opinberir startan'enn misiatniega iaunau... .
30000 á mánuði tyrir
40 km akstur á dag!
b^e»lKm»iVa*nrte»w*a«d«teW w B j-srrrr;
Gjafahappdrætti ■
Sumargleðinnar ‘84 |
Nr. 3403 Kolster litsjónvarp frá Sjón-
varpsmiðstöðinni.
Nr. 1756 Hjónarúm frá Hreiðrinu. |
Nr. 3948 B.B.C. tölva frá Sterio, Hafn-
arstræti 5.
HERÐATRÉ
nlstyrktar
fötluðum bömum
SÖLUDAGUR 17 NÓVEMBER
Vinsamlega takió sölubörnum vel.
Lionsklúbburinn NJÖRÐUR
MER&ATftÉ
HERf@|
fötludum bömum