NT - 16.11.1984, Qupperneq 10
fíYT Föstudagur 16. nóvember 1984 10
LlIÍ Minning
Gísli Gestsson
Nú týnir óðum tölunni kyn-
slóð foreldra minna - vinir og
kunningjar sem hafa verið fast-
ur hluti af tilverunni frá því
fyrsta. Einn þeirra var Gísli
Gestsson safnvörður, sem var
borinn til grafar 12. október.
Gísli var kvæntur Guðrúnu
föðursystur minni, og við þekkt-
umst svona eins og frændur og
tengdamenn ólíkra kynslóða
gera. En svo var ég svo dæma-
laust heppinn að kynnast þeim
Guðrúnu og Gísla alveg upp á
nýtt, á þann hátt sem maður
helst kynnist fólki - í starfi og
um sameiginleg áhugamál. Það
gerðist þannig, að þegar Gísli
vann sinn síðasta stóra uppgröft
austur í Álftaveri sumrin 1972-
75 var kona mín meðal aðstoð-
armanna hans um tíma, Guðrún
var ráðskona hópsins, en ég
ásamt fleirum að stjákla í ösku-
lögum með það fyrir augum að
reyna að aldurssetja rústina í
Kúabót. Svo hélt þessi nýi en þó
gamli kunningsskapur áframt
uns yfir lauk - Gísli dó úr
hjartabilun 4. október, eftir að
hafa átt í viðskiptum við lækna
og sjúkrahús síðan í vor.
Gísli var elstur 7 barna Mar-
grétar Gísladóttur og Gests Ein-
arssonar á Hæli í Hreppum.
Gestur á Hæli var kunnur gáfu-
maður, hagmæltur vel og sjálf-
stæður í lund, en dó ungur frá
barnahópnum úr spönsku veik-
inni. Einn vísubotn kann ég
eftir hann sem á skilið eilíft líf:
Þeir Gestur og Brynjólfur frá
Minna-Núpi voru á ferð saman
norður yfir Sprengisand. Brynj-
ólfur hafði fengið kross fyrir
fræðimennsku sína; hann var
lítill hestamaður og lallaði ein-
hesta á eftir hópnum. En Gestur
var nýtrúlofaður Margréti, og
var Brynjólfur eitthvað að gant-
ast um ástamál hans og kastaði
fram fyrra parti:
Meyjarkoss er mesla hnoss,
munar-blossi fríður.
Sem Gestur svaraði um hæl:
Krossatossi á eftir oss
einn á hrossi ríður.
Eftir fráfall Gests á Hæli hélt
Margrét áfram búskapnum af
frábærum myndarskap. Þar var
svo mikil tónlist, að Hælisbræð-
ur sungu fjórradda við heyskap-
inn, enda allir músíkalskir, og
sumir urðu landsfrægir
söngmenn. En af móður sinni
lærði Gísli að spila á orgel, og
seinna lærði hann meira í
píanóleik.
Gísli lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
vorið 1926 og sigldi til Kaup-
mannahafnar þá um haustið til
að læra efnaverkfræði. Á skip-
inu kynntust þau Guðrún, sem
var á leið til Hafnar til að halda
áfram námi þar, og gengu í
hjónaband 1931. Gísli las efna-'
verkfræðina í 5 ár en lauk ekki
prófi - „kerfið“ í Kaupmanna-
höfn hefur reynzt mörgum erfitt
svo sem dæmin sanna, en tónlist
átti síaukinn hlut í áhuga hans.
Eftir heimkomuna settu þau
Guðrún á stofn heimili hér í
bænum, en Gísli gerðist banka-
starfsmaður í 20 ár. Þau eignuð-
ust fjögur börn: Önnu sjúkra-
þjálfara, Margréti kennara og
forvörð fornleifa, Sigrúnu lyfja-
fræðing og Gest jarðfræðing.
Bankastörf voru þá og endra-
nær þrautalending margra sem
ekki fengu vinnu við sitt hæfi -
í eina tíð unnu t.d. flestir félagar
heimspekingafélagins í banka,
er mér sagt - og fundu sig
yfirleitt ekki í starfinu. En sé
grannt skoðað sést oft að „allt í
heimi hér stefnir til hins besta“
eins og heimspekingurinn Alt-
unga sagði, og sumarið 1951 réð
tilviljun því, er Gísli var í
sumarleyfi ásamt fjölskyldu
sinni að Ásólfsstöðum í Þjórs-
árdal, hjá systur sinni og mági,
að Kristján Eldjárn var að grafa
í dalnum og fékk Gísla til að-
stoðar. Varð það upphafið að
aðal-ævistarfi Gísla, sem upp úr
því réðst safnvörður að Þjóð-
minjasafninu og starfaði þar æ
síðan, síðustu starfsárin sem
vara-forstöðumaður þess. Á
Þjóðminjasafninu nýttust vel
bæði kunnátta Gísla frá Kaup-
mannahöfn og margvíslegir
hæfileikar: Hann var hagur vel,
ágætur og kunnáttusamur Ijós-
myndari, lærður í efnafræði,
mælingum og teikningu, og kunn-
ugur af eigin reynslu atvinnu-
háttum íslendinga í 1000 ár, því
þeir breyttust víst ekki að marki
frá landnámstíð og fram á þessa
öld - en öll er þessi kunnátta
nytsamleg við uppgröft, túlkun
og varðveislu fornleifa. Gísli
stóð fyrir eða tók þátt í margvís-
legum fornleifarannsóknum, og
setti upp byggðasöfn, svo sem á
Selfossi, Reykjum í Hrútafirði
og ísafirði. Ferðamaður var
hann góður og í stjórn Forn-
leifafélagsins og félagi í Vís-
indafélagi íslendinga. Væntan-
lega birtist í Árbók Fornleifafé-
lagsins ritaskrá Gísla og ítarleg
ævi- og rannsóknasaga hans.
Gísli var allra manna skemm-
tilegastur, þegar hann vildi það
við hafa, og kunni margar kát-
legar sögur. En um fræðileg
áhugamál sín, eins og fornleifa-
fræði og sögu, var hann mjög
vandur og alvörugefinn. Og
allra manna sjálfstæðastur í
lund þeirra sem ég hefi þekkt:
hann myndaði skoðanir sínar
sjálfur, óháð tísku og áróðri, og
gat stutt þær gildum og vitur-
legum rökum ef eftir var sótt.
En svo eðliskurteis var Gísli, að
hann reyndi aldrei að þröngva
skoðunum upp á nokkurn
mann.
Tónlistin fylgdi Gísla til ævi-
loka: ungur ólst hann upp við
söng og heimilis-hljóðfæraleik,
í Höfn kynntist hann virku æðra
tónlistarlífi, og eftir heimkom-
una sótti hann reglulega tón-
leika til dauðadags; átti auk
þess prýðilegt plötusafn. Og nú
er Gísli Gestsson allur. Þótt
hann væri orðinn 78 ára virtist
hann miklu yngri, léttur á fæti,
kvikur í hreyfingum og snarpur
í anda fram undir það síðasta.
Gísli slapp því við langa og
leiða elli, en Guðrún og fjöl-
skylda þeirra eiga á bak kærum
vini að sjá. Eftir lifa dýrmætar
minningar.
Sigurður Stcinþórsson
Afmælis- og
minnmgargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær
þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir
birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar.
4)
BÍLASMIÐJAN W
KYKDILL
Stórhöfða 1 8 II
Bilamálun
Bílarettingar
Vönduð vinna
SÍMI35051
KVÖLDSÍMI
35256
DESOUTTER LOFTVERKFÆRI DITZLER BÍLALAKK.
BINKSSPRAUTUKÖNNUR
Bíleigendur athugið
Við höfum margra ára reynslu í viðgerðum á mikið löskuðum
bifreiðum, þess vegna notum við eingöngu Guy Chart réttingar og
mælitæki. Við bjóðum viðskiptavinum okkar staðgreiðsluafslátt á
allri tækjavinnu, greiðslukjör og föst verðtilboð á allri vinnu. A
málningarverkstæði okkar notum við Ditzler málningarefni sem er
amerískt efni og sú staðreynd að General Motors og margar aðrar
amerískar bílaverksmiður nota Ditzler efni tryggir fagmönnum
árangur. Þar ætlum við líka að koma viðskiptavinum á óvart.
Við sækjum bílinn og sendum eiganda að kostnaðariausu.
Eigum á lager Desoutter loftverkfæri, amerískar
Binks sprautukönnur og varahluti f þær og Ditzler málningarefni
STÓRHÖPÐ'
FUNAHOFOI shiðshofoi
n, „YRJARHOF01 hamarshordi
S OVERGSHÖFOI
? VAGNHOFOI ;
TANGARHÖFOI ?
BILDSHOFOI
bifreh)»eftirutid
:i; X V:
LJÓS
Einar Gestsson
- bóndi á Hæli
Einar Gestsson bóndi á Hæli
í Gnúpverjahreppi lést á heimili
sínu aðfaranótt 14. október.
Hann var jarðsettur á Stóra-
Núpi 20. október, að viðstöddu
fjölmenni. Langri baráttu er
lokið, sem ekki gat endað nema
á einn veg.
Einar fæddist á Hæli 15.
október 1908, næst elstur af
börnum Gests Einarssonar
bónda á Hæli og Margrétar
Gísladóttur konu hans. Tíu ára
gamall missti Einar föður sinn
og atvikin höguðu því svo til, að
ungur að árum fór hann að
standa fyrir búi hjá móður sinni.
Að undanskildri skólavist í
Flensborgarskóla og árs dvöl í
Noregi við landbúnaðarstörf
hefur Einar búið á Hæli eða nær
sextíu ár. Ekki er ólíklegt að sú
ábyrgð sem Einar axlaði að
standa fyrir búi á ungum aldri á
erfiðum tímum hafi mótað
nokkuð skapgerð hans og
þroska og hann orðið fyrr full-
tíða maður með ríkari ábyrgð-
artilfinningu en algengt var.
Þegar ég var á ellefta ári fór
Einar á Hæli að venja komur
sínar að Mástungu. í fyrstu vissi
ég ekki hverju þetta sætti en
komst fljótlega á snoðir um, að
Halla systir mín átti þar hlut að
máli. Og þegar mér skildist að
Einar ætlaði að nema Höllu á
brott af heimilinu, leist mér
ekkert á blikuna, auk þess sem
mér féllu hreint ekki vel ýmsar
hispurslausar athugasemdir
hans og tilsvör. Þetta breyttist
síðar.
Enda þótt Einar á Hæli væri
fyrst og fremst bóndi átti hann
fjölmörg önnur hugðarefni og
áhugamál. Hann ræktaði jörð
sína og búfé af dugnaði og
kostgæfni og hafði góðan arð af
búi sínu, fylgdist vel með og
tileinkaði sér nýjungar og tækni
í búskap, þó aldrei nema að vel
athuguðu máli, en var jafnframt
fastheldinn á gamla og góða siði
og venjur. Honum þótti sómi að
teljast til íslenskrar bændastétt-
ar hafði mikinn metnað fyrir
hennar hönd og var skjótur til
svara ef honum þótti ómaklega
að bændum vegið. Ásamt bú-
skapnum gegndi Einar margs
konar félagsmálastörfum að
mestu á sviði búnaðarmála og
naut sín þá vel skörp dómgreind
hans, áhugi og hæfileiki að sjá
aðalatriði hvers máls. Einar á
Hæli myndaði sér ákveðnar
skoðanir á málefnum, átti hægt
með að koma þeim á framfæri í
Ijósu og glöggu máli og fylgdi
þeim eftir við hvern sem var og
hvar sem var. Hann fór aldrei í
kringum hlutina heldur kom
beint framan að mönnum og
málefnum. Hreinskilni og bein-
skeytt gagnrýni voru ríkir þættir
í skapgerð hans oft blandin
glettni og gamansemi.
Það er kannski ekki alltaf
auðveldasta leiðin að koma til
dyranna eins og maður er
klæddur og segja það sem manni
býr í brjósti og fyrir kom, að
mér þótti ekki auðvelt að verða
fyrir hispurslausri gagnrýni Ein-
ars, en þeim mun betra var að
fá frá honum viðurkenningarorð
þar sem treysta mátti, að hann
meinti það sem hann sagði.
Hann var ræktunarmaður, ekki
aðeins jarðar og búfjár, heldur
og þess mannlífs, sem í kringum
hann var og við það notaði hann
sínar eigin aðferðir.
Einar á Hæli var ritfær vel, las
mikið og var vandfýsinn á bækur
hafði mikið yndi af ljóðum,
enda vel hagmæltur sjálfur.
Hann var greindur og gjörhug-
ull alvörumaður, þótt glettni og
gamansemi væri honum einnig
ofarlega í hug. Á góðum stund-
um var hann manna skemmti-
legastur og hrókur alls fagnað-
ar. Hann hafði næmt auga fyrir
umhverfi sínu og mannlífi og
tók ætíð virkan þátt í lífi og
starfi, meðan þrek og heilsa
entust.
En Einar hefur ekki staðið
einn. Ung gafst Halla honum og
. hefur staðið við hlið hans síðan
á hverju sem hefur gengið, í
blíðu og stríðu, uns yfir lauk.
Þau eignuðust fimm mannvæn-
leg börn sem eru á lífi og tveir
synir þeirra hafa tekið við búi á
Hæli. Til Einats og Höllu var
gott að koma, á heimili þeirra
ríkit glaðværð og frjálslegt við-
mót og þó jafnframt festa og
öryggi.
En skin og skúrir hafa skipst
á hjá Einari og Höllu og mörg-
um mun minnistæður 19. janúar ■
1959 er íbúðarhúsið á Hæli
brann á örskammri stund. Einar
var við endurskoðunarstörf hjá
Búnaðarbankanum í Reykja-
vík, þegar bruninn varð, en
Halla var heima. Bæði tóku þau
þessu áfalli með miklu jafnaðar-
geði og styrk og þökkuðu for-
sjóninni að ekki skildi verða
slys á fólki. Það atvikaðist svo
að við Halla urðum samferða
frá brunarústum ásamt syni
þeirra ungum sem að vonum
barst lítt af. Dökk af sóti úr
þessum válega eldsvoða svaraði
hún syni þeirra á þessa leið:
„Við skulum ekki gráta, það
verður byggður nýr bær! Og
aftur var byggður nýr bær á Hæli
og saman hjálpuðust þau að
Einar og Halla að byggja upp
heimilið að nýju, þakklát hvort
fyrir annað.
Ég þakka Einari langa og
trausta vináttu í minn garð og
fjölskyldu minnar, Höllu, börn-
um þeirra og öllum, sem stóðu
Einari nær óska ég friðar og
farsældar.
Haraldur Bjarnason
af Alla ríka
Ásgeir Jakobsson: Lífið er lottcrí.
Saga af Aðalsteini Jónssyni og'
Alla ríka.
Setberg 1984.
192 bls.
■ Austur á Eskifirði á maður
heima og heitir Aðalsteinn
Jónsson, oft nefndur Alli ríki af
þeini, sem vaxa í augum eignir
'hans í skipum.'frystihúsi, mjöl-
verksmiðju og fleiru. Sjálfur virðist
hann vilja gera fremur lítið úr
ríkidæmi sínu, enda mun það
mála sannast, að fáir verða bein-
línis auðugir af sjávarútvegi á
þessu landi, þótt margir hafi að
sönnu mikið umleikis, á stundum
a.m.k.
Saga Aðalsteins Jónssonar
minnir um margt á gömul ævintýri.
hann ólst upp í sárustu fátækt,
tókst með mikilli vinnu að verða
vel bjargálna og lenti svo í síldar-
ævintýrinu. Þar veðjaði hann oft-
ast á réttan hest, fékk góða menn
til samstarfs og varð á skömmum
tíma umsvifamikill útgerðarmaður
og fiskverkandi. Margt í sögu hans
getur að sönnu bent til heppni og
sumir eru sagðir tala um glópalán.
Víst fylgir áhætta allri útgerð, ekki
síst á Islandi, en það mun þó
sönnu nær, að þótt menn geti
verið heppnir stöku sinum þá
endist heppnin fáum áratugum
saman og víst hefur söguhetja
þessarar bókar orðið að fást við
margt, sem erfitt er að flokka
undir heppni. Það gat til að mynda
alls ekki talist heppni fyrir útgerð-
ina á Austfjörðum, eða síldarverk-
endur yfirleitt, þegar síldin hvarf
og byggja varð allt að nýju, en
hverfa á braut ella. Þá dugði ekki
annað en úrræðasemi. Og það
kemur víða fram í sögunni, að
Aðalsteinn hefur verið flestum
öllum úrræðabetri, þótt því verði
ekki neitað, að hann hafi jafnframt
verið lánsamari en margir aðrir.
Hitt er svo annað mál, að þeir,
sem róa ekki fiska ekki.
Um þessa bók má margt segja.
Hún ber glögg höfundareinkenni
beggja, útgerðarmannsins og
söguritarans, að því leyti að hún er
bráðskemmtileg aflestrar. Skal
því þó ekki neitað, að undir lokin
fannst mér sem söguritarinn væri
farinn að teygja lopann helst til
um of.
í annan stað olli bókin mér þó
vonbrigðum. Frásögnin af útgerð-
arsögu Aðalsteins Jónssonar er
harla snubbótt og á köflum nánast
upptalning á skipum, fyrirtækjum,
afla- og útflutningstölum. Allt á
þetta sannanlega heima í sögunni,
en stendur illa eitt sér og hefði
þurft stuðning af ýtarlegri urtv
fjöllun um atvinnulífið þar eystra í
heild, samskipti við fólkið, sem
þátt tók í uppbyggingunni og um-
fram allt þær aðstæður, sem gerðu
ævintýrið mögulegt. Frásögn af
vinnubrögðum og verksháttum við
■ A ðalsteinn Jónsson i ríki sínu.
síldina hefði einnig verið vel
þegin, en þótt ótrúlegt kunni að
viðrast fækkar þeim óðum, sem
vita nokkuð um það hvernig síld
var veidd og verkuð fyrir svo sem
tveim áratugum. Og fólk, sem alið
er upp við það í Reykjavik að
aulýsingastarfsemi og sníkjulíf séu
undirstöðuatvinnuvegur lands-
manna mun seint skynja síldar-
stemmningu, eins og hún gerðist
best norðanlands og austan.
Ásgeir Jakobsson hefur áður
skrifað tvær af bestu ævisögum,
sem lengi hafa veirð ritaðar á
þessu landi, Einars sögu Guðfinns-
sonar og Tryggva sögu Ófeigsson-
ar. Það er stórhættulegt að skrifa
góðar bækur því þá heimta lesend-
ur altlaf aðrar jafn góðar og helst
betri. Kannski er einmitt þetta
ástæðan fyrir því að þessi bók olli
undirrituðum vonbrigðum. Tökin
á söguefninu eru ekki jafnsterk í
þessari bók sem í hinum tveim, og
söguefnið sjálft virðist einnig rýr-
ara, ef til vill er söguhetjan ekki
orðin nógu öldruð til að sjá ævina
í blámóðu minninganna.
Allur frágangur bókarinnar er
með ágætum og hún er prýdd
allmörgum og vel völdum
myndum.
Jón Þ. Þór.