NT - 16.11.1984, Síða 11
Heimsfrægur bandarískur píanisti með Islensku hljómsveitinni:
„Hugmyndin að íslensku
hljómsveitinni er góð“
- segir
Stephanie
Brown í
samtali
viðNT
■ Þegar að loknu meistaraprófi vakti hún athygli t'yrir öryggi í
tækni og túlkun og síðan hefur hróður hennar vaxið jafnt og þétt
með hverjum tónleikunum víða um heiminn. Og nú er hún komin
hingað til íslands á vegum íslensku hljómsveitarinnar og ætlar að
gleðja íslenska tónlistarunnendur með píanóleik sínum um helgina.
Kemur hún tvisvar fram, í fyrra skiptið á Selfossi á morgun og í
seinna skiptið í Reykjavík á sunnudag. Þá mun hún leiðbeina í
opinni kennslustund á þriðjudaginn kemur áður en hún hverfur á
ný af landi brott. Á efnisskrá tónleika íslensku hljómsveitarínnar
eru m.a. verk eftir Chopin og Mozart, þar sem Stephanie leikur
einleik, en um frammistöðu hennar við flutning píanókonserts
Mozarts hafa stórblöð erlendis m.a. skrifað: „Stephanie Brown er
sannarlega undursamlegur píanóleikari, með eigin tón og ákveðinn
listrænan persónuleika," segir gagnrýnandi N.Y. Times og kollegi
hans á Washington Post tekur í sama strenginn: „Stephanie Brown
er ungur píanisti með stórar hugmyndir og tækni sem hæfir þeim.
Blæbrigðin voru í fögru jafnvægi og styrkleikabreytingarnar virtust
hlíta innra afli hennar.“
Þegar tíðindamaður NT hitti
Stephanie að máli var hún
nýkomin til landsins og kvaðst
lítið geta tjáð sig um land og
þjóð, þó væri ekki hægt annað
en veita veðrinu eftirtekt, en
auðvitað rigndi þann daginn í
Reykjavík, eftir margra daga
froststillur og fagurt veður.
Síðan barst talið að erindi
hennar hingað og var hún beð-
in um að gera í fyrstu stuttlega
grein fyrir sjálfri sér.
Lauk meistaraprófi 22 ára!
„Ég er fædd og uppalin í
Colorado, en fluttist 14 ára
gömul með foreldrum mínum
til New York og byrjaði í
Juilliant tónlistarháskólanum,
þar sem ég öðlaðist tónlistar-
menntun mína. Ég byrjaði að
ferðast um og halda tónleika
begar ég var 19 ára gömul...“
- Svo þú laukst meistara-
prófi aðeins 19 ára.
„Nei, nei, ég var að ljúka
BA prófi og samtímis þvffékk
ég tilboð um að leika á hljóm-
leikum sem ég gat ekki annað
en tekið, en síðan lauk ég
meistaraprófi 3 árum seinna 22
ára gömul.“
- Svo þér hefur strax á unga
aldri gefist tækifæri til að spila
með þekktum hljómsveitum
og öðlast mikilvæga reynslu?
„Já, það er rétt. Ég hef
ferðast vítt og breytt um
Bandaríkin og einnig komið
víða við í Evrópu. Nýlega lék
ég með svissnesku hljómsveit-
inni undir stjórn Peter Mack
og stuttu áður en ég kom
hingað flutti ég einmitt Píanó-
konsert nr. 9 í Es-dúr eftir
Mozart með St. Paul Chamber
Orchestra undir stjórn Pinkas
Zukerman, en það verk ætla
ég einnig að flytja hér með
íslensku hljómsveitinni. Af
öðrum þekktum stjórnendum
sem ég hef unnið með má t.d.
nefna Henry Schneider."
Málamiðlun nauðsynleg
- Hvernig er að vinna með
þessum mönnum?
„Það er alltaf athyglisvert
því að hver tónlistarmaður hef-
ur sínar sérskoðanir og þegar
maður vinnur sem einleikari
með stjórnanda verður að vera
hægt að ná einhvers konar
samkomulagi á milli þessara
tveggja, milli sinna eigin hug-
sýna með túlkanda og þeirra
hugmynda sem stjórnandinn
hefur. Þannig getur vel átt sér
stað, ef maður leikur sama
verkið með tveim ólíkum
stjórnendum, að það verði
töluverður blæbrigðamunur á
túlkuninni hverju sinni eftir
persónuleika þess sem unnið
er með. Samtímis er það mjög
þroskandi að vinna með ólík-
um tónlistarmönnum sem
standa í fremstu röð og maður
lærir heil ósköp af því.“
- Nú ert þú aðeins 29 ára
gömul en þegar orðin listamað-
ur á heimsmælikvarða. Hvern-
ig tilfinning er það?
„Ég hugsa ekki um það á
þann veg. Ég lít einungis á það
sem framhald <3 tónlistar-
menntun minni. Ég er músík-
ant og reyni að tileinka mér
nýjungar jöfnum höndum og
það er dásamlegt þegar maður
fær tækifæri til að spila á
góðum tónleikum. Þannig lít
ég á málin og stjörnulífið hefur
ekkert aðdráttarafl á mig.“
Líf og list haldast í hendur
- Hver er skoðun þín á því
hvenær tónlistarmaður sé á
toppnum, jafnt tæknilega og
andlega?
„Ég held að það haldist í
hendur við lífsferil listamanns-
ins, hvernig hann lifir og hvað
hann lærir og vonandi verður
hann betri eftir því sem aldur-
inn færist yfir. Því listamaður
um fertugt, fimmtugt að hafa
náð þroska sem hann hefur
ekki um tvítugt og þannig eru
t.d. þeir listamenn sem ég dái
mest, Rubinstein og Brendan.
Þeir hafa náð þessu stigi eftir
margra ára þjálfun og hefur
þeim tekist að sameina tónlist-
arferil og stöðuga endurnýj-
un.“
- Hvaða píanóleikari er í
mestu uppáhaldi hjá þér?
„Ég gæti hæglega nefnt yfir
20 manns, ég á svo marga
uppáhalds píanóleikara, en ef
■ „Þroskandi að vinna með
ólíkum tónlistarmönnum“
NT-mynd: Sverrir
. ég verð að nefna eitt einasta
nafn verður það að vera
Brendan. Eins og ég sagði
áðan þá dáist ég mjög að hon-
um en get þó varla sagt að ég
dái hann meira en hina. Ég hef
hlustað mikið á hann í New
York og það er alltaf upplifun
en það væri að taka of djúpt í
árinni að segja að hann væri í
mestu uppáhaldi hjá mér.“
íslenska hljómsveitin
góð hugmynd
- Að lokum. Hvernig líst
þér á að leika með íslensku
hljómsveitinni?
„Ég hlakka ntikið til þess og
tel hugmyndina um að hafa
unga tónlistarmenn, unga ein-
leikara og unga stjórnendur
vera mjög góða. Svo í mínum
augum er þetta verulega
spennandi."
- Og hvert liggur leiðin þeg-
ar þú hefur leikið hér?
„Næstu tónleikar sem ég á
að koma fram á eru. .eru. .ó, ég
get ómögulega munað þetta
allt saman...," sagði Stephanie
og fórnaði höndum og hló. Þar
með vorum við ekki að tefja
hana lengur, þökkuðum fyrir
og óskuðum henni gæfu og
gengis á tónlistarbrautinni í
framtíðinni“.
Andstæður
Fyrstu tónleikarnir verða í
íþróttahúsi Gagnfræðaskólans
á Selfossi á morgun og hefjast
kl. 14.30 og verða þeir síðan
endurteknir í Bústaðakirkju á
sunnudagkl. 17. Yfirskrifttón-
leikanna er Andstæður, enda
annarsvegar teflt fram hermi-
tónlist í fyrri hluta þeirra og
síðan tekur við ómblíð tónlist
Chopins og Mozarts.
Litli Kláus og
Stóri Kláus
í Bæjarbíói í Hafnarfirði
Úr leikrítinu Litli Kláus og Stórí Kláus.
■ Um síðustu helgi frum-
sýndi Revíuleikhúsið í
Bæjarbíói í Hafnarfirði
barnaleikritið Litli Kláusog
Stóri Kláus eftir H.C.
Andersen. Leikgerð ereftir
Lisu Tetzner. Jón Ólafsson
samdi tónlistina í sýning-
unni og Karl Ágúst Úlfsson
samdi söngtexta. Leikmynd
gerði Baldvin Björnsson og
leikstjóri er Saga Jónsdótt-
ir.
Um tuttugu manns taka
þátt í sýningunni og í helstu
hlutverkum eru Júlíus
Brjánsson og Þórir Stein-
grímsson,sem leika Litla og
Stóra Kláus. Aðrir leikarar
eru: Guðrún Alfreðsdóttir,
Margrét Ákadóttir, Bjarni
Ingvarsson, Sólveig Páls-
dóttir, Ólafur Örn Thor-
oddsen og Guðrún Þórðar-
dóttir.
Revíuleikhúsið hefur
starfað í fjögur ár og alltaf
verið á hrakhólum með
húsnæði eins og aðrir
leikhópar á höfuðborgar-
svæðinu. Það er því mikið
átak að æfa svo stóra sýn-
ingu sem þessa og hafa ekki
fast húsnæði. Má þess geta
að æft var á fimm stöðum
og sýnt á þeim sjötta. Næstu
sýningar verða laugardag
og sunnudag kl. 14 í Bæjar-
bíói í Hafnarfirði.