NT - 16.11.1984, Blaðsíða 12
Rás 2
föstudagur
kl. 23.15-03.
Næturvakt
með Skúla og
Snorra Má
■ Á Næturvaktinni í kvöld
koma þeir Skúli Helgason og
Snorri Már Skúlason með úr-
slitin úr vinsældakönnun á
íslcnskum dægurlögum, sem
fórframsl.sunnudagá Rás2.
Þetta er í fyrsta sinn sem
þeir Skúli og Snorri eru með
Næturvakt. Þeir voru við sím-
ann á Rás 2 sl. sunnudag
meðan stóð yfir tónlistarþátt-
ur, sem nefndist S-2 og var í
umsjón þeirra Páls Þorsteins-
sonar og Ásgeirs Tómassonar.
Þá gafst hlustendum tækifæri
til að hringja og segja til um,
hvaöa íslensk dægurlög hafi -
að þeirra mati -skarað fram úr
á sl. 20 árum.
Skúli sagði að þátttakan hafi
verið niikil og fjöldi fólks hafi
hringt og nefnt þau lög sem
þeim voru minnistæðust frá
þessum árum.
- Nú fáum við að heyra
stöðuna á Næturvaktinni í
kvöld, sagði liann. Þá spilum
við þau lög, sem hafa komið
best út, og svo reynum við að
fá gott fólk, sem var áberandi
á þessu tímabili, til að koma til
okkar á Næturvaktina í smá-
viðtöl, -en við gefurn ekki upp
nein nöfn. Bæði úrslitalögin og
viðmælendur okkar eru cnn
leyndarmál, - cn hlustendur
geta þá spreytt sig á að giska á
hver niöurstaðan úr vinsælda-
könnuninni verður og skrifa
hjá sér þau lög, sem þeir halda
að vinni og sjá svo hversu
getspakir þeir eru.
Sjónvarpiöstudag
kl.21.50:
Hláturtaugarn-
ar kitlaðar
■ Hláturinn lengir lífið kall-
ast breskur myndaflokkur í 13
þáttum um gamansemi og
gamanleikara í fjölmiðlum fyrr
og síðar. í kvöld verður þriðji
þáttur sýndur.
í þeim þætti verður tekinn
til athugunar sá munur, sem er
á bandarískum og breskum
grínþáttum, og vöngum velt
yfir því, hvort finnanleg sé
sameiginleg formúla fyrir bæði
löndin, sem sé áreiðanleg til að
skemmta áhorfendum.
Finnist sú formúla, er eftir
að vita, hvort hún á við fleiri
lönd, þ.á m. ísland. Þýðandi
þáttanna er Guðni Kolbeinss.
■ Það er fjölbreytt mannlíf í kringum Buster. Hér virðast herra
og frú Olscn eitthvað hafa að leggja til málanna við hann.
Sjónvarp föstudag kl. 19.25:
Buster og veröld hans
- 2. þáttur í kvöld
■ Sl. föstudag hóf sjónvarpið
sýningar á nýjurn dönskum
framhaldsmyndaflokki, Ver-
öld Busters, og verður annar
þáttursýnduríkvöldkl. 19.25.
í Veröld Busters fáum við
að kynnast skuggahliðum
lífsins, stritinu viö að vinna
sem sendisveinn á hjóli og
alsælunni við að bera allt í einu
þrjá handleggi undir fullu
tungli. í umhverfi Busters
kynnumst við litlu systur hans
Ingeborg, gamalli og veikri
nágrannakonu, frú Larsen,
kennslukonunni hans Ásu,
sem er svo yndisleg, og reikn-
ingskennaranum hans Mar-
tinsen, sem er alltaf fúll og
leiðinlegur - ásamt mörgu
öðru fólki af öðru sauðahúsi.
Þá má ekki gleyma einkaóvin-
uni Busters, Stig-Ole og Stóra-
Lars. Þeir gera sitt ýtrasta til
að gera Buster lífið leitt, en
hans einkunnarorð eru: „Fólk
með báða fætur á jörðinni,
hangir ekki á trjánum". Til
allrar hamingju á Buster kær-
ustu, Joanna, fíngerða undra-
barnið með mjóu hnén og
stóru augun og tónlistargáfuna
miklu.
■ Árni Óla rithöfundur
Útvarp kl. 10.45:
Föstudagur 16. nóvember 1984 12
Útvarp — Sjónvarp
■ Er til áreiðanleg formúla fyrir grín, sem skemmtir öllum
jafnt? Hláturinn lengir lífíð nefnast föstudagsþættir sjónvarpsins
og hafa vissulega vakið hlátur hjá íslenskum áhorfendum og er
ekki ólíklegt að þeir hafí nú þegar lengt líf einhverra aðdáenda
sinna!
Árni Óla las Ijóð á hestbaki og
skáldin teymdu undir honum!
■ í dag kl. 10.45 er Einar
Kristjánsson frá Hermundar-
felli með þátt sinn í útvarpinu
(RÚVAK): Mér eru fornu
minnin kær. Þessi þáttur er
mjög vinsæll hjá hlustendum
og því vildum við forvitnast
um það hjá Einari livað hann
hefði nú að segja okkur. Hann
brást vel við og upplýsti okkur
unt, að honum hefði verið
send frásögn eða ritgerð eftir
Árna Óla, sem þekktur er af
ritstörfum á langri ævi, bæði
sem blaðamaður og rithöfund-
ur. Þessi ritgerð hefur hvergi
birst á prenti, svo þess vegna
er hún enn forvitnilegri fyrir
hlustendur. Einari sagðist svo
frá:
„Þetta er ritgerð sern Árni
Óla skrifaði, og hefur hún
hvergi verið prentuð. Það ligg-
ur rnikið eftir hann í bókum,
en hann hefur aldrei látið
verða af því að koma þessari
frásögn frá unglingsárum sín-
um á prent.
Árni var liðlega á fermingar-
sveit í kaupavinnu. I ferðinni
var 35 hesta lest, því að flutt
hafði verið ull í kaupstaðinn
og síðan fluttur heim varningur
í staðinn á hestunum.
Þarna eru með í ferðinni Jón
Þorsteinsson, skáld á Arnar-
vatni og Þorgils gjallandi (Jón
Stefánsson) rithöfundur. Lest-
in silast hægt áfram í góðu
veðri, og þegar komið er inn
fyrir Laxamýri, þá stansa þeir
þar og eru þá búnir að dreypa
eitthvað í ferðapela sína, og
þá fara þeir að fara með kveð-
skap sinn skáldin Jónarnir
báðir.
Svo var nú haldið áfram, en
það var mikið eftir ólesið, af
skáldskap. Þorgils gjallandi
var að lesa, en átti í erfið-
leikum með gleraugu sín, og
þá settu þeir strákinn Árna
Óla upp á hest, létu hann fá
bók að lesa úr. Líklega hefur
það verið „Upp við fossa“ eftir
Þorgils. Svo las Árni og þeir
teymdu undir honum skáldin
bæði lengi dags!“
■ Einar Kristjánssun, frá
Hermundarfelli
aldri (fæddur 1888) þegar þetta
gerist, og hann er þá að fara
frá Húsavík upp í Mývatans-
Föstudagur
16. nóvember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25. Leikfimi. 7.55.
Daglegt mál. Endurtekinn þattur
Sigurðar G. Tómassonar frá kvöld-
inu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð Jón Ól.
Bjarnason talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Breiðholtsstrákur fer í sveit"
eftir Dóru Stefánsdóttur. Jóna Þ.
Vernharðsdóttir les (13).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Mér eru fornu minnin kær“
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli sér um þáttinn.
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón Gunn-
vör Braga.
14.00 „Á islandsmiðum". Eftir Pi-
erre Loti. Séra Páll Pálsson á
Bergþórshvoli lýkur lestri þýðingar
Páls Sveinssonar(17).
14.30 A léttu nótunum. Tónlist úr
ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. „Concent-
us Musicus" hljómsveitin í Vínar-
borg leikur Brandenborgarkonsert
nr. 4. i g-dúr eftir Johann Sebasti-
an Bach; Nicolas Harnoncourt
stjórnar. Felicja Blumental og Nýja
kammersveitin i Prag leika Pianó-
konsert i D-dúr eftir Leopold Kozel-
uch; Alberto Zedda stjórnar.
17.10 Síðdegisútvarp. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka. a. Frá Selfossi til
Seyðisfjarðar. Guðmundur Arn-
laugsson flytur ferðafrásögn. b.
Ljóð úr ýmsum áttum. Þorbjörn
Sigurðsson les. c. Þáttur af Axlar-
Birni. Björn Dúason flytur. Umsjón
Helga Ágústsdóttir.
21.30 Korriró. Tónlistarþáttur í-
umsjá Rikharðs H. Firðrikssonar
og Huldu Birnu Guðmundsdóttir.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 A sveitalinunni. Umsjón:
Hilda Torfadóttir (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Föstudagur
16. nóvember
10.00-12.00 Morgunþáttur.Fjörug
danstónlist. Viðtal. Gullaldarlög,
ný lög og vinsaeldarlisti. Stjórnend-
ur: Jón Ólafsson og Sigurður
Sverrisson.
14.00-16.00 Pósthólfið. Lesin bréf
frá hlustendum og spiluð óskalög
þeirra ásamt annarri léttri tónlist.
Stjórnandi: Valdis Gunnarsdóttir.
16.00-17.00 Bylgjur. Framsækin
rokktónlist. Stjórnendur: Ásmund-
ur Jónsson og Árni Daníel Júl-
íusson.
17.00-18.00 í föstudagsskapi.
Þægilegur músikþáttur í lok vik-
unnar. Stjórnandi: Helgi Már
Barðason.
23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2.
Stjórnendur: Skúli Helgason og
Snorri Már Skúlason.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá í Þás 2 um allt land.)
Föstudagur
16. nóvember
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður
Karl Sigtryggsson.
19.25 Veröld Busters Annar þáttur.
Danskur framhaldsmyndaflokkur i
sex þáttum, gerður eftir sam-
nefndri barnabók eftir Bjarne Reut-
er og Bille August. Þýðandi Ólafur
Haukur Símonarson. (Nordvis-
ion-Danska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Guðjón
Einarsson.
21.10 Gestir hjá Bryndísi Fyrsti
þáttur. Bryndis Schram spjallar við
fólk i sjónvarpssal. I þáttum þess-
um er ætlunin að gefa sjónvarps-
áhorfendum þess kost að kynnast
fólki i fréttum nánar en unnt er i
hraðfleygum fréttatíma eða frétta-
klausum dagblaöa. Upptöku
stjórnar Tage Ammendrup.
21.50 Hláturinn lengir lífið Þriðji
þáttur. Breskur myndaflokkur í
þrettán þáttum um gamansemi og
gamanleikara í fjölmiölum fyrr og
síðar Þýðandi Guöni Kolbeinsson.
22.25 Stjömuhrap (Stardust) Bresk
bíómynd frá 1974. Leikstjóri Mic-
hael Apted. Aðalhlutverk: David
Essex, Adam Faith, Larry
Hagman, Marty Wilde og Rosalind
Ayres. Myndin er um breskan
poppsöngvara á bitlaárunum,
höpp hans og glöpp á framabraut-
inni. Hún erframhald myndarinnar
„Æskuglöp" (That 'II Be The Day)
sem sýnd var í Sjónvarpinu 25.
ágúst sl. Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
00.00 Fréttir í dagskrárlok.