NT - 16.11.1984, Qupperneq 13
Föstudagur 16. nóvember 1984 13
LlL Útvarp — — Sjónvavp
—
Útvarp sunnudag kl. 13.20:
„Brúðkaup furst-
ans af Fernara"
Sjónvarp laugardag kl. 20.40:
■ Á undanförnum árum hefur Karl Ingalls oft orðið að þerra tár
af vöngum dætra sinna.
Sjónvarp sunnudag ki. 16.10:
Húsið á slétt-
unni er byrjað
■ Á sunnudag kl. 16.10
koma gamlir og góðir húsvinir
okkar á skjáinn, en þá hefjast
sýningar að nýju eftir sumarfrí
á Húsinu á sléttunni.
Skammdegið hcfur sínar
góðu hliöar, ckkert síður en
þær vondu. Eit gott, sem hefur
fylgt skammdcginu sl. 6-7 ár í
hugum margra, cru sunnu-
dagssýningar sjónvarpsins á
þessum fjölskylduþáttum. Sjá
margir sjónvarpsáhorfendur
oftar vini sína í Hnetulundi en
nánustu fjölskyldu sína!
Utvarp sunnudag kl. 22.35:
■ Á sunnudaginn kl. 13.20
verður flutt í útvarpi leikritið
„Brúðkaup furstans af Fern-
ara" eftir Odd Björnsson.
Leikritið er hið fyrsta í
flokki endurfluttra lcikrita eft-
ir Odd Björnsson. Sex lcikrit
hans verða flutt að þessu sinni
og er áætlað að flytja þau
annan hvern sunnudag á sama
tíma. Flutt verða eftirtalin
leikrit: „Brúðkaup furstans at'
Fernara" (fyrst flutt í útv.
1970), „Einkennilegur maður"
(1963) á dagskrá 2. des.
„Hvernig heiðvirður kaup-
sýslumaður fær sig til að nef-
hrjóta yndislega eiginkonu
sína í viðurvist annarra"
(1975). á dagskrá 16. des.
„Krabbinn og sporðdrekinn"
(1982). á dagskrá 6. jan. og
„Sarma og söngur nætur-
drottningarinnar", tveir ein-
þáttungar sem frumfluttir voru
iyrr á þessu ári. Þeir verða á
dagskrá sunnudaginn 20. jan.
1 Brúðkaupi furstans af
Fernaraerfjallað á gamansam-
an hátt um ólifnað og glæpi
smákónga og hefðarfólks á
Ítalíu endurreisnartímans. Um
það efni sarndi höfundur raun-
ar tvö önnur leikrit, sviðsverk-
in Köngurlóna, sem flutt var af
Grímu 1962, og Dansleik sem
fluttur var í Þjóðleikhúsinu
1974. Tónlistin í Brúðkaupi
furstans er eftir Leif Þórarins-
son og leikstjóri er Sveinn
Einarsson.
Leikendur eru: Þorsteinn Ö.
Stephensen, Erlingur Gísla-
son, Kristín Anna Þórarins-
dóttir, Sigrún Björnsdóttir,
Jón Sigurbjörnsson, Harald G.
Haraldsson, Pétur Einarsson,
Sigríður Þorvaldsdóttir,
Guðmundur Magnússon,
Bríet Héðinsdóttir og Róbert
Arnfinnsson.
Áður en leikritið hefst flytur
Jón Viðar Jónsson stutt for-
málsorð um útvarpsleikrit
Odds Björnssonar.
■ Signý Pálsdóttir byrjar nú
aftur meö Kotru-þætti sína.
NT-mynd: Árni Sæberj>
■ Það er mörg búmannsraunin. Ekki hafa þau Barbara og Tom
Good fyrr leyst einn vanda en annar skýtur upp kollinum.
Hafa þau fundið
sinn sælureit?
■ Á laugardaginn var hóf
göngu sína nýr breskur fram-
haldsflokkur í sjónvarpinu,
sem kallast á íslensku „I sælu-
reit". Apalpersónurnar eru
hjónin Tom og Barbara Good,
sem ætla að finna sér sinn
sælureit heima fyrir og hætta
kapphlaupinu úti í stóra vonda
heiminum. Fyrsta skrefið var
fyrir Tom að segja upp í
vinnunni, kaupa sér traktor og
plægja upp garðinn sinn til að
undirbúa grænmetisrækt.
Enginn er smiður í fyrsta
sinn er haft fyrir satt, og það
sama hlýtur að gilda um aðrar
atvinnugreinar. Það er þess
vegna ekki hægt að lá þeim
hjónum, þó að þeim gangi
heldur brösuglega í fyrstu að
koma sínu lífi í þann farveg,
að þau geta lifað af landinu og
nytjum þess. Þau eiga t.d. eftir
að komast að raun um það, að
það er lítið gagn af hænsna-
Tengsl Hávamála og nútímans
- í Kotruþáttum
■ í fyrravetur flutti Signý
Pálsdóttir, leikhússtjóri á Ak-
ureyri, reglulega þætti í
útvarp, sem hún nefndi Kotru.
Leitaði hún þá gjarna fanga í
Spámanninum eftir Kahil
Gibran. Nú á sunnudagskvöld
hefur hún aftur flutning þátta
meðsama nafni. Viðspurðum,
hvaða viðfangsefni hún hefði
valið sér að fjalla um í vetur.
- Núna ætla ég að byggja á
Hávamálum, segir hún. Ekki
vill hún þó meina, að hér verði
um neina fræðilega úttekt að
ræða - „að sjálfsögðu ekki, ég
læt aðra um það“ - segir hún.
Hins vegar ætlar hún að reyna
að finna hvaða tengingu Háva-
mál hafa við nútímann. „Þetta
verður bara mín persónulega
upplifun á Hávamálum og
hvað þau segja mér í dag,“
segir Signý Pálsdóttir.
rækt, ef hænsnin láta það ógert
að verpa. Og hvað er þá til
ráða?
Við það vandamál slást þau
hjón í þættinum í kvöld.
■ Nú ætlar útvarpið að
endurflytja flokk leikrita eftir
Odd Björnsson.
Laugardagur
17. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Tón-
leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð - Halla Kjart-
ansdóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.) Óskalög
sjúklinga, frh.
11.20 Eitthvað fyrir alla Sigurður
Helgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Her-
mann Gunnarsson.
14.00 Hérog nú Fréttaskýringaþáttur
í vikulokin.
15.15 Úr blöndukútnum - Sverrir
Páll Erlendsson. (RÚVAK).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 íslenskt mál Guðrún Kvaran
sér um þáttinn.
16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður
P. Njarövík.
17.00 „Let the People Sing“ 1984
Hátíðartónleikar EBU í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Formað-
ur alþjóðlegu dómnefndarinnar,
Sverre Lind, afhendir Hamrahlíð-
arkórnum verðlaunin í samkeppni
æskukóra 1984 (Beint útvarp).
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Heims um ból á páskum“
Stefán Jónsson flytur siðari frá-
söguþátt sinn.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón
Sveinsson Gunnar Stefánsson
les þýðingu Freysteins Gunnars-
sonar (4).
20.20 „Carmen“, stuttur útdráttur
Maria Callas, Nicolai Gedda o.fl.
syngja með kór og hljómsveit
frönsku óperunnar í Paris; Georg-
es Prétre stj.
20.40 Austfjarðarútan með viðkomu
á Reyðarfirði. Umsjón: HildaTorfa-
dóttir.
21.15 Harmonikuþáttur Umsjón:
Sigurður Alfonsson.
21.45 Hawali - fimmtugasta ríkið.
Umsjón: Harpa Jósefsdóttir Amin.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Heima eða heiman Þáttur um
hjartaaðgerðir. Umsjón: Önundur
Bjömsson.
23.15 Óperettutónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
Laugardagur
17. nóvember.
24.00-03.00 Næturvaktin. Stjórn-
andi: Bertram Möller.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá i Rás 2 um allt land.)
Sunnudagur
18. nóvember
13.30-18.00 S-2 (sunnudags
þáttur) Tónlist, getraun, gestir og
létt spjall. Þá eru einnig 20 vinsæl-
ustu lög vikunnar leikin frá kl.
16.00-18.00. Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson og Ásgeir Tómas-
son.
Laugardagur
17. nóvember
14.45 Enska knattspyrnan Watford
- Sheffield Wednesday Bein út-
sending frá 14.55-16.45. Umsjón-
armaður Bjarni Felixson.
17.15 Hildur Þriðji þáttur Endursýn-
ingDönskunámskeiö í tíu þáttum.
17.40 íþróttir Umsjónarmaöur Ingólf-
ur Hannesson.
19.25 Bróðir minn Ljónshjarta Ann-
ar þáttur. Sænskur framhalds-
myndaflokkur í fimm þáttum, gerð-
ur eftir samnefndri sögu eftir Astrid
Lindgren. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 í sælureit Annar þáttur. Bresk-
ur gamanmyndaflokkur í sjö
þáttum. Aöalhlutverk: Richard Bri-
ers og Felicity Kendall. Þýöandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
21.10 Norma Rae Bandarisk bió-
mynd frá 1979. Leikstjóri Marlin
Ritt. Aðalhlutverk: Sally Field, Ron
Leibman, Beau Bridges og Pat
Hingle. Söguhetjan er einstæð
móöir sem vinnur í spunaverk-
smiðju i smábæ i Suðurrikjum
Bandarikjanna. Þar verður uppi
fótur og fit þegar aðkomumaður
hyggst gangast fyrir stofnun verka-
lýðsfélags. Norma verður ein fárra
til að leggja málstaðnum lið. Þýð-
andi Ragna Ragnars.
23.00 Bófi en besta skinn (Pas si
méchant que ca) Svissnesk-frönsk
biómynd frá 1974. Leikstjóri
Glaude Goretta. Aðalhlutverk:
Marléne Jobert, Gérard Depardieu
og Dominique Labourier. Ungur
maður lifir tvöföldu lífi annars veg-
ar sem Ijúfur fjölskyldufaöir en hins
vegar sem grimuklæddur ræningi.
Þýöandi Ólöf Pétursdóttir.
00.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja Séra
Einar Eyjólfsson, frikirkjuprestur í
Hafnarfirði.
16.10 Húsið á sléttunni Fyrsti þáttur
nýrrar syrpu. Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur, framhald fyrri
þátta um landnemafjölskylduna i
Hnetulundi. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
17.00 Með fiðlu i vesturvegi Norsk
tónlistar- og heimildamynd frá
þjóðlagahátið á Hjaltlandi. Tom
Anderson fiðluleikari segir frá sögu
Hjaltlands og tónlist og tengslum
Hjaltlendinga við Norðurlönd. Is-
lenskur texti Ellert Sigurbjörnsson.
18.00 Stundin okkar
18.50 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.55 Tökum lagið Fimmti þátfur.
Kór Langholtskirkju, ásamt gestum
í Gamla bíói, syngur undir stjórn
Jóns Stefánssonar. Þessi þáttur er
tileinkaðurhaustlögum. Umsjón og
kynning: Jón Stefánsson. Stjórn
upptöku: Tage Ammendrup.
21.40 Dýrasta djásnið (The Jewel in
the Crown) Nýr flokkur - Fyrsti
þáttur Breskur framhaldsmynda-
flokkur í fjórtán þáttum, gerður eftir
sagnabálkinum „The Raj Quartet”
eftir Paul Scott. Leikstjórn: Christ-
opher Morahan og Jim O'Brien:
Leikendur: Peggy Ashcroft, Char-
les Dance, Saeed Jaffrey, Gerald-
ine James, Rachel Kempson, Ros-
emary Leach, Art Malik, Judy
Parfitt, Eric Porter, Susan Woold-
ridge o.fl. Meóan breska heimsveld-
ið var og hét þótti Indland mesta
gersemin í ríki þess. Þar gerist
sagan á árunum 1942 til 1947
þegar Indland öðlaðist sjálfstæði.
Á þessum árum stendur frelsis-
baráttan sem hæst með Gandhi í
broddi fylkingar og heimstyrjöldin
hefur viðtæk áhrif. I mynda-
flokknum er fylgst með örlögum
nokkurra karla og kvenna af
bresku og indversku þjóðerni en
þau mótast mjög af þessum um-
brotatímum. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
23.20 Dagskrárlok