NT - 16.11.1984, Side 14
■ Sóley og Anna opnuðu hárgreiðslu- og snyrtistofu.
Hárhöll S.H.S.
og Snyrtistofa
Önnu Bergmann
■ Sóley Herborg Skúladóttir
og Anna Bergmann Reynis-
dóttir opnuðu nýlega hár-
greiðslu- og snyrtistofu á
Laugavegi 82, Barónsstígs-
megin. Sóley vann áður á
hárgreiðslustofunni Salon
VEH en síðastliðin tvö ár
bjó hún í Danmörku og vann
þar m.a. hjá STUHR í Kaup-
mannahöfn.
Anna vann áður á Snyrti-
stofunni Maj u og hefur séð um
andlitsförðun fyrir sýningar.
Hún er með hinar þekktu
snyrtivörur Orlane og Jean
d’avezi frá París. Þær stöllur
bjóða upp á allt það nýjasta í
hárgreiðslu og snyrtingu
hverju sinni, jafnt fyrir dömur
og herra.
Beisk tár Petru von Kant
■ Alþýðuleikhúsið sýnir um
þessar mundir leikritð Beisk tár
Petru von Kant eftir Fassbinder.
Sýnt er að Kjarvalsstöðum,
föstudagskvöld kl. 20.30, laugar-
dag og sunnudag kl. 16.00 og
mánudag kl. 20.30.
Húsfyllir hcfur verið á hverja
sýningu. LeikstjórierSigrún Val-
bergsdóttir, þýðandi er Böðvar
Guðmundsson og leikarar eru:
María Sigurðardóttir, Kristín
Anna Þórarinsdóttir, Vilborg
Halldórsdóttir, Edda V. Guð-
mundsdóttir, Erla B. Skúladóttir
og Guðbjörg Thoroddsen.
■ Atríði úr leikritinu Beisk
tár Petru von Kant.
■ Sigríður Ella Magnúsdóttir sem Carmen.
Gífurieg
aðsókn að Carmen
■ íslenska óperan sýnir Carmen eftir Bizet á föstudag og sunnudag kl. 20.00. Uppselt er á
báðar sýningar föstudaginn 23. nóvember og sur.nuduginn 25. nóv. og eru það 7. og 8.
sýning. í aðalhlutverkum eru Sigríður Ella Magnúsdóttir, Garðar Cortes, Simon Vaughan
og Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Fræðslufundur
Hjartaverndar
á 20 ára afmæli
■ Hjartavernd, landssamtök
hjarta- og æðaverndarfélaga, er 20
ára um þessar mundir (stofnuð 25.
okt. 1964) í tilefni afmælisins held-
ur Hjartavernd fræðslufund fyrir
almenning um hjarta- og æðasjúk-
dóma, rannsóknir, lækningar og
nýjungar, laugardaginn 17. nóv-
ember næstk. kl. 14.30 í Domus
Medica.
Sjö fyrirlesarar flytja erindi á
fundinum og á eftir verða um-
ræður og fyrirspumum svarað.
Dagskráin verður þessi: Dr. Sig-
urður Samúelsson prófessor: I’átt-
ur Hjartaverndar í heilbrigðis-
þjónustunni, Ottó J. Björnsson
tölfræðingur: Rannsóknarferill
Hjartaverndar og næstu verkefni,
Nikulás Sigfússon yfirlæknir:
Hvernig gengur í barátturnni við
hækkaðan blóðþrýsting?, dr.
Guðmundur Þorgeirsson læknir:
Dánarorsakir í hóprannsókn
Hjartavemdar, Gestur Þorgeirsson
læknir: Nýjungar í lyfjameðferð
kransæðasjúklinga, dr. Þórður
Harðarson prófessor: Ný tækni
við hjartarannsóknir, dr. Árni
Kristinsson læknir: Um hjarta-
skurðlækningar hér á landi.
Snorri Páll Snorrason yfirlæknir
stýrir hringborðsumræðum og
tekur við spurningum fundar-
manna. Öllum er frjáls aðgangur
meðan húsrúm leyfir.
■ Snorri Páll Snorrason yfir-
læknir stýrir hríngborðsum-
ræðum.
§unnudagsferð
Utivistar
■ Sunnudaginn 18. nóvember fer
Útivist í eina dagsgöngu sem hefst kl.
13.00. Farið verður á Músarnes og
gengið eftir skemmtilegri strönd að
Saurbæ á Kjalarnesi.
Brottför er frá BSÍ - bensínsölu.
Dagsferð F.Í.
ásunnudag:
■ Ferðafélag íslands fer dagsferð
sunnudaginn 18. nóv. Ekið verður í
Kjósarskarð að Stóra-Sauðafelli,
gengið með Laxá að Þórufossi og
Pokafossi, þar sem bíllinn bíður.
Þetta er auðveld gönguleið og foss-
ar í klakaböndum. Brottför frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bíl.
Þjóðleikhúsið:
Frumsýning
á Litla sviðinu
■ Á sunnudagkvöldið frumsýnir
Þjóðleikhúsið á Litla sviðinu nýtt
bandarískt verðlaunaleikrit, Góða
nótt, mamma, eftir Marsha Norman.
Þetta leikrit aflaði höfundinum Pul-
itzer-verðlauna á síðasta ári og er
verkið nú sýnt við mikla athygli víða
um heim. Margir gagnrýnendur álíta
að Marsha Norman sé hugsanlegur
arftaki leikskálda á borð við Eugene
O’Neill og Arthur Miller.
Olga Guðrún Árnadóttir þýddi
verkið, leikstjóri er Lárus Ýmir Ósk-
arsson, leikmynd og búninga gerði
Þorbjörg Höskuldsdóttir, en Kristinn
Daníelsson annast lýsinguna. í þessu
leikriti eru aðeins tvö hlutverk, og
eru þau í höndurn Guðbjargar Þor-
bjarnardóttur og Kristbjargar Kjeld.
Leikfélag Akureyrar
um helgina
■ Á laugardag verður sýning á
bandaríska gamanleiknum Einkalíf
eftir Noel Coward.
Þessi sígildi gamanleikur fjallar um
fráskilin hjón, sem hittast af tilviljun
á nýjan leik, þar sem bæði eru í
brúðkaupsferð með nýjum mökum á
frönsku sumarhóteli árið 1930. Það
kviknar í gömlum glæðum og eftir-
leikurinn verður ævintýralegur. í
aðalhlutverkunum eru þau Sunna
Borg, Gestur E. Jónasson, Guðlaug
María Bjarnadóttir og Theódór Júl-
íusson. Leikmynd og búningar eru
eftir Unu Collins. Leikstjóri er Jill
Brook Árnason. Lýsingu gerði Alfreð
Alferðsson.
Sýningum á Einalífi fer að Ijúka.
Þjóðleikhúsið:
Milli skinns
og hörunds
- uppselt í kvöld -
■ Um helgina verða þrjár sýningar
á Milli skinns og hörunds eftir Ólaf
Hauk Símonarson. í kvöld, föstu-
dagskvöld, er uppselt, síðan verður
sýning á laugardagskvöld og aftur á
sunnudagskvöld. Leikstjóri er Þórhali-
ur Sigurðsson, en með helstu hlutverk
fara Gunnar Eyjólfsson, Þóra Friðr-
iksdóttir, Sigurður Skúlason og Sig-
urður Sigurjónsson.
Tónleikar Musica Nova
í Kristskirkju
■ 3. tónleikar Musica Nova á þessu
starfsári verða haldnir í Kristskirkju
mánudaginn 19. nóv. nk. og hefjast
þeir kl. 20.30. Á þessum tónleikum,
flytur Hörður Áskelsson organisti
verk eftir fjögur tuttugustu-aldar
tónskáld: Frakkana Jean Langlais,
Oliver Messiaen og Jehan Alain,
svo og ungverska tónskáldið György
Ligeti. Þeir Messiaen og Ligeti eru í
hópi þekktustu núlifandi tónskálda,
og teljast orgelverk Messiaen til
mestu stórvirkja orgelbókmennt-
anna. Alain var af mörgum talinn eitt
efnilegasta tónskáld sinnar kynslóðar
í Frakklandi, en hann féll í síðari
heimsstyrjöldinni aðeins tuttugu og
níu ára að aldri. Orgelverk þeirra
Langlais og Alains hafa fyrir löngu
unnið sér fastan sess á verkefnaskrá
organista um víða veröld.
Hátíðatónleikar í MH
■ Eins og fram hefur komið í
fréttum, vann Hamrahlíðarkórinn
undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur
1. verðlaun í flokki æskukóra í 19.
alþjóðlegri keppni Evrópusambands
útvarpsstöðva „Let the People Sing -
1984“, sem haldin var í Köln sl. vor.
Að þessu tilefni mun samstarfsaðili
útvarpsstöðvanna í Evrópu, Ríkisút-
varpið, efna til hátíðatónleika í há-
tíðasal Menntaskólans við Hamrahlíð
laugardaginn 17. nóvember nk. kl.
17, þar sem formaður alþjóðlegu
dómnefndarinnar, Sverre Lind, vara-
tónlistarstjóri norska útvarpsins, mun
afhenda Hamrahlíðarkórnum og
stjórnanda hans sigurverðlaunin.
Með þessum verðlaunum fylgir
einnig boð um að taka þátt í alþjóð-
legri keppni æsku-kóra, sem haldin
verður á vegum Þýska músíkráðsins í
tengslum við þýsku kórakeppnina
dagana 22.-26. maí á næsta ári, ári
tónlistarinnar, í Hannover.
Sýning
á keramikmunum
■ Sunnudaginn 18. nóvember nk.
efnir Keramikhúsið Sigtúni 3, til sölu-
og kynningarsýningar á kermikmun-
um. Hér er um að ræða tvíþætta
sýningu.
Annars vegar verða sýndir fullunn-
ir keramikmunir, málaðir og brenndir
af starfsmönnum Keramikhússins, og
hins vegar kynntir munir sem ætlaðir
eru til lokavinnslu hjá kaupanda. Eru
hinir síðarnefndu tilkomnir vegna
■ Sunna Borg og Gestur E. Jónasson í hlutverkum sínum í Einkalífi eftir Noel
Coward.