NT - 16.11.1984, Síða 23
Hafa sovéskir
húsasmiðir 10
þumalfingur?
Útlönd
Moskva-Reufer
■ Fimm hæða íbúðablokk
í Sovétríkjunum hrundi, rétt
áður en fyrstu íbúarnir áttu
að flytja inn í hana, vegna
þess að blokkin var svo hroð-
virknislega byggð.
Að sögn sovéska blaðsins
Daily Trud var það hrein
mildi að ekki urðu slys á fólki
því byggingin hrundi klukk-
an sex að morgni, rétt áður
en verkamenn' komu til að
leggja síðustu hönd á húsið.
Blokkin var í borginni
Sverdlovsk í Úral. Daily Trud
sagði að húsið hefði hrunið
vegna trassaskapar við bygg-
ingu þess, styrktarstöplar
voru illa festir og múrstein-
arnir voru lélegir. Blaðið
sagði að tugir húsa í nágrenn-
inu hefði verið reist á sama
hátt.
Fimm verkfræðingar sem
unnu að byggingunni hafa
verið ákværðir fyrir van-
rækslu og sektaðir.
Fóstudagur 16. nóvember 1684 23
Grænfriðungar mótmæla
■ Dýraverndunarmenn og grænfriðungar víða um heim hafa
mótmælt áframhaldandi hvalveiðum Japana. Þeir telja sam-
komulag Bandaríkjamanna og Japana um að Japanir skuli hætta
hvalveiðum eftir nokkur ár ekki fullnægjandi. Grænfriðungar í
Vestur-Þýskalandi mótmæltu hvalveiðum Japana í gær með því að
hengja þennan borða á ræðisskrifstofu Japana í Múnchen. Á
borðanum stendur: „Japan, hættu hvalamorðunum."
Símamynd-POLFOTO
Reaganfyndni:
Keppt í gerfi-
tunglalyftingum
á Ólympíuleikum?
Canaveralhöfði-Reuter
■ Ronald Reagan, forseti
Bandaríkjanna, hringdi í gær
geimsímtal til bandarísku
geimfaranna sem nú eru um
borð í geimferjunni Dis-
covery. Hann sagðist vera
stoltur vegna þess árangurs
sem geimfararnir hafa náð í
ferðinni en þeim hefur tekist
að ná aftur tveimur gerfi-
hnöttum sem voru á rangri
braut. Við það þurftu þeir að
beita handafli til að færa
hnettina sem eru næstum því
eitt tonn hvor.
Reagan sagði m.a. í sím-
talinu: „Við höfum lítinn
æfingasal í Hvíta húsinu og
ég fæst þar stundum smáveg-
is við lyftingar þegar ég hef
tíma, en ég veit ekki með
gerfihnattalyftingar“...
Kannski það verði ný há-
tækni Ólympíuíþrótt.“
Geimfararnir viður-
kenndu að þeir hefðu verið
nokkuð þreyttir þegar þeir
unnu við að ná gerfihnött-
unum en þeir hefðu hins
vegar sýnt að geimfarar gætu
hæglega höndlað mjög þunga
hluti úti í geimnum.
Bretar
draga úr
þróunar-
aðstoð
London-Rcutcr
■ Utanríkisráðherra
Breta, GeofTrey Howe lá-
varður, hefur viðurkennt
að breska stjórnin hafi í
hyggju að draga úr er-
lendri aðstoð sinni. En
hann fullyrti að aðstoð við
lönd í þriðja heiminum
yrði aðeins minnkuð mjög
óverulega.
Utanríkisráðherrann
lofaði því að niður-
skurðurinn myndi ekki
koma niður á neyðarað-
stoð Breta við Eþíópíu-
menn eða önnur svæði þar
svipað ástand myndaðist.
Nú er hafin mikil undir-
skriftaherferð í Bretlandi
fyrir því að stjórnvöld
hefji samvinnu við önnur
ríki til að koma í veg fyrir
hungursneyð í Afríku í
framtíðinni. Skipuleggj-
endurherferðarinnarsegj-
ast ætla að safna milljón
undirskriftum. í bæna-
skjali sem fylgir undir-
skriftalistunum er hvatt til
þess að neyðaraðstoð
verði send áfram næstu 12
mánuði til hungursvæð-
anna í Eþíópíu og annars
staðar þar sem neyðin er
mikil. Þá eru stjórnvöld
einnig hvött til að tryggja
að aðstoðin komist til allra
svæða án tillits til stjórn-
máladeilna.
Prestastefna á Bretlandi:
Samþykkja kvenpresta
fyrir breskar kirkjur
- og mótmæla örbirgð og óstjórn
■ Yfirleitt þegja höfðingjar
biskupakirkjunnar um það sem
þeim finnst miður fara í stjórn
landsins. Robert Runcie, erki-
biskup af Kantaraborg, braut
þessa meginreglu í síðasta mán-
uði. Þá sagði hann að efnahags-
stefna íhaldsstjórnarinar hefði
kostað „atvinnuleysi af áður
óþekktri stærðargráðu, örbirgð,
skrifræði, vonleysi um framtíð
ýmissa byggðarlaga og óréttláta
skiptingu þeirra fórna sem hafa
verið færar.“
London-Reutcr
■ Prestastefna biskupakirkj-
unnar í Bretlandi samþykkti í
gær að semja reglur um vígslu
kvenna til prestsembættis eftir
400 ára karlaveldi í ensku
biskupakirkjunni. Ekki er samt
búist við því að konur hljóti
vígslu fyrr en eftir mörg ár þar
sem mörg formsatriði eru enn
ófrágengin.
Biskupakirkjan samþykkti
árið 1975 að hún væri ekki
mótfallin því að konur gerðust
prestar en nú gengur hún skrefi
lengra með því að undirbúa
vígslureglur fyrir þær. Samt er
talið ólíklegt að fyrsta konan fái
vígslu fyrr en ef til vill árið 1990.
Andstæðingar þessarar ákvörð-
unar héldu því fram að hún gæti
orðið þrándur í götu nánari
samskipta biskupakirkjunnar
og rómversk-kaþólsku kirkj-
unnar sem leyfir ekki kven-
presta. Kvenprestar hafa lengi
starfa við kirkjudeildir biskupa-
kirkjunnar í Kanada,
Hongkong, Nýja Sjálandi, Ken-
ýa og Uganda en alls eru þeir
taldir vera um 700 núna.
A þessari prestastefnu, sem
er haldin á fjögurra ára fresti,
létu biskupar mörg hörð orð
falla um ríkisstjórn Margrétar
Thatcher og stefnu hennar. Þeir
kenna stjórninni um atvinnu-
leysið og ofbeldi í garð námu-
manna.
Erkibiskupinn í Kantara-
borg, Robert Runcie, sem er
andlegur leiðtogi biskupakirkj-
unnar, var á meðal þeirra sem
hvað harðast gagnrýndu stjórn-
ina.
Biskupakirkjan er ríkiskirkja
og hafa yfirmenn hennar yfir-
leitt fylgt stjórnvöldum dyggi-
lega að málum. Gagnrýni kirkj-
unnar manna og hörð orð í garð
stjórnar íhaldsmanna er því
nýlunda. íhaldsmenn eru kirkju-
leiðtogum mjög gramir fyrir
þessa afskiptasemi af verald-
legum málum.
En prestar og biskupar telja
sig ekkki geta horft orðlausir á
kjör fátæklinga, fjölgun atvinnu-
leysingja og aukið ofbeldi í
þjóðfélaginu. Þeir vara mjög
við þeirri þróun að bilið á milli
þeirra sem „eiga“ og hinna sem
„ekki eiga“ sé að breikka í
bresku þjóðfélagi.
Sovéskur hershöfðingi:
Getum eytt þeim öllum
Moskva-Reuter
■ Soveski yfirhershöfðinginn,
Vladimir Vishenkov, sem er
Umsjón: Ragnar Baldursson i og Egill Helgason
Ríki í Suðaustur-Asíu:
Vilja meiri fjár-
festingar frá EBE
Dublin-Rcuter
■ Ráðherrar frá Suðaustur-
Asíubandalaginu ASEAN,
kvörtuðu í gær yfir minnkandi
fjárfestingum Efnahagsbanda-
lags Evrópu í löndum sínum.
Utanríkisráðherra Malaysíu,
Tengku Ahmad Rithauddeen,
sagði að fjárfestingar EBE í
Suðaustur-Asíu væru örugglega
minni en fjárfestingar Japana
þar.
Ráðherrann sagði þetta á
fundi utanríkisráðherra frá
ASEAN og EBE sem nú stend-
ur yfir í Dublin. Hann sagði
m.a.: „Við veltum því stundum
fyrir okkur hvort þið hafið
ennþá áhuga á að hafa samstarf
og samvinnum við okkur."
Fundurinn er m.a. haldinn til
að ræða fimm ára samning EBE
og ASEAN um efnahagssam-
vinnu sem rennur út á næsta ári.
ASEAN-ríkin sjö, Thailand,
Malaysía, Singapore, Filipps-
eyjar, Indónesía og Brunei,
vilja fá EBE til að auka fjárfest-
ingar sínar í Suðaustur-Asíu
jafnframt því sem þau fengju
greiðari aðgang að Evrópu-
mörkuðum.
yfir í þeirri deild sovéska hersins
sem hefur umsjón með lang-
drægum eldflaugum, segir að
Sovétmenn geti skotið lang-
drægum kjarnaflaugum fyrír-
varalaust á öll mikilvæg óvina-
skotmörk og þurrkað þau út.
{ viðtali við Tass-fréttastof-
una sovésku sagði hann m.a. að
sovéskar hersveitir gætu gert
mjög nákvæmar kjarorkuárásir
á skotmörk nánast hvar sem,
væri í heiminum. Eftir slíka
árás gæti herinn hafið hérnaðar-
aðgerðir á öðrum svæðum.
Þetta stangast á við yfirlýsing-
ar sovéskra yfirvalda um að
kjarnastríð hefði óhjákvæmi-
lega í för með sér gagnkvæma
eyðingu.
■ Þessi mynd var tekin þegar fulltrúar frá ísrael, Líbanon og Sameinuðu þjóðunum settust
aftur við samningaborðið í gær til að ræða framtíð Líbanon.
Símamynd-POLFOTO
Ræða framtíð Líbanon
■ Fulltrúar frá ísrael, Líbanon
og Sameinuðu þjóðunum hófu
aftur fundarhöld í gær um
framtíð Líbanon eftir einnar
viku hlé.
Umræðurnar höfðu stöðvast
vegna þess að ísraelsmenn
handtóku fjóra embættismenn
frá Amal-samtökum shita-mú--
hameðstrúarmanna.
Talsmaður ísraelsku stjórn-
arinnar segir að fsraelsmenn
vilji ekki einn þumlung af líb-
önsku landi. Líbanonstjórn hef-
ur krafist þess í umræðunum að
stjórnarherinn taki við þeim
stöðvum, sem ísraelsmenn nú
halda, þegar þeir draga her sinn
til baka.