NT - 16.11.1984, Síða 24
t B Föstudagur 16. nóvember 1984 24
Útlönd
Vestur þýskir læknar:
Telja AIDS*
faraldur ekki
yfirvofandi
Munchen-Kcuter
■ Sérfræðingar í Vestur-
Þýskalandi hafa varað við of
miklu fjaðrafoki vegna áunn-
innar ónæmisbæklunar, AIDS,
þar sem ólíklegt sé að sjúkdóm-
urinn breiðist hratt út og verði
að faraldri.
Á ráðstefnu scm lauk í gær
voru vestur-þýskir smitsjúk-
dómafræðingar sammála um að
AIDS gæti aðeins smitast við
kynmök og blóðgjafir. Vírusinn
sem veldur sjúkdómnum berist
ekki á milli fólks við aimenna
snertingu.
Engar sannanir liggja fyrir
um að sjúkdómurinn gcti borist
milli fólks á almenningssalcrn-
um, strætisvögnum eða í
lestum. Vírusinn er mjög við-
kvæmur og hægt er að eyða
honum með sótthreinsiefnum.
Heilbrigðisyfirvöld í Þýska-
landi vita af um 100 manns sem
sýnt hafa örugg merki um að
hafafengið sjúkdóminn. Þegar
hafa 50 manns látist í Vestur-
Þýskalandi af völdum AIDS.
En virtur vestur-þýskur veiru-
fræðingur hefur sagt að yfir
10.000 manns gætu orðið AIDS
að bráð í Þýskalandi á næstu sex
árum ef ekkert yrði að gert.
Börn í móðurkviði
geta fengið AIDS
■ í Boston í Bandaríkjunum
var síðan í gær tilkynnt að
sannanir hefðu fengist fyrir að
kvenfólk sem fengið hefur
AIDS án þess að sýna sjúk-
dómseinkcnni, geti smitað
ófædd börn sín af sjúkdómnum.
Dr. Jeffrey Laurcnce og fé-
lagar hans á Cornell sjúkrahús-
inu í New York, skýrðu frá því
í gær að þrjár mæður, sem allar
væru eiturlyfjasjúklingar, hefðu
fengið veikina, án þess að sjúk-
dómseinkenni kæmu í Ijós.
Ófædd börn þeirra fengu hins-
vegar AIDS meðan þau voru
enn í móðurkviði og eitt þeirra
hefur látist.
Þetta kann að sýna, að sögn
læknanna, að mótefni sem ættu
að eyða AIDS veirunni, virki
ekki sem skyldi.
Kanada sparar:
Lokar fimm sendiráðum
Otlawa-Keuter
■ Kanada er að loka
einu scndiráði og fjórum
ræðismannsskrifstofum
vegna sparnaðaráðstafana
sem miða að því að spara
2,5 milljónir Bandaríkja-
dala.
Sendiráðinu í Ougado-
ugou, höfuðborg Burkia
Faso, vcröur lokað ásamt
ræðismannsskrifstofum í
Rio de Janiero, New Orle-
ans, Birmingham og Bord-
eaux.
Joe Clark, utanríkisráð-
herra Kanada, sagði
fréttamönnum að þetta
þýddi alls ekki neinar
breytingar á samskiptum
Kanada við þessi lönd.
Þarna væri aðeins um
sparnaðarráðstafanir að
ræða og hægt væri að sinna
samskiptum við löndin
með öðrum hætti.
■ Það var mikið um dýrðir í höfnum í Norður-Kóreu í septemberlok þegar norður-kóresk skip lögðu af stað með aðstoð handa
fórnarlömbum mikilla flóða í Suður-Kóreu. I framhaldi af þessari aðstoð hófust verslunarviðræður milli Norður- og Suður-Kóreu sem
menn vonast til að muni draga úr spennu á Kóreuskaganum.
Vinsamlegar viðræður
- verslunarfulltrúa frá Norður- og Suður-Kóreu
Punmunjom, Kóreu-Keuter
■ Verslunarfulltrúar frá
Norður- og Suður-Kóreu hittust
í gær í fyrsta skipti í landamæra-
þorpinu Panmunjom og ræddu
viðskipti milli ríkja sinna.
Umræðurnar voru mjög vin-
samlegar og ræddu fulltrúarnir
veðrið í smátíma áður en form-
lcgar viðræður hófust. Rætt var
um hugsanlegt fyrirkomulag
verslunar og annars samstarfs.
Suður-Kóreumenn sögðust t.d.
hafa áhuga á að kaupa kol,
járngrýti, blý, zink, brotajárn
og fleiri málma og námuefni frá
Noröur-Kóreu þar sem er að
finna mjög auðugar námur.
Suður-Kóreumenn vilja einnig
kaupa ýmiss konar matvæli t.d.
fisk, rauðar baunir, mais og
grasalyf.
í staðinn bjóða þeir Norður-
Kóreumönnum að kaupa af sér
stál, vélar til iðnaðar- og heim-
ilisnota, bíla, reiðhjól, vefnað-
arvörur, píanó, lyf og rafeinda-
tæki. Verslunin yrði að miklu
leyti byggð á vöruskiptum en
einnig yrði hægt að ganga frá
greiðslum í gegnum banka í
öðrum löndum.
Rætt var um að gera við
járnbrautalínur sem áður
tengdu norður- og suðurhluta
Kóreuskagans auk þess sem
vörurnar yrðu fluttar með
skipum. Það var ákveðið að
opna sérstakan síma sem aðeins
yrði notaður til að ræða við-
skipti og verslun.
Umræðurnar stóðu í tvær og
hálfa klukkustund og það var
ákveðið að næsti fundur yrði
haldinn 5. desember. Ýmsir
telja að þessir fundir kunni að
boða þáttaskil í samskiptum
Norður- og Suður-Kóreu eftir
meira en þriggja áratuga úlfúðar
og vígvæðingar. Enn sem komið
er hefur þó engin breyting orðið
á vígbúnaðinum við landamærin
þar sem talið er að um 1,5
milljónir hermanna bíði gráir
fyrir járnum.
Erlendum fréttamönnum
þótti það góðs viti að á fundin-
um í gær sátu norðanmenn aust-
anmegin við samningaborðið í
Panmunjom en sunnanmenn
vestanmegin. Borðiðerferkant-
að og staðsett á miðjum landa-
mærunum. Hingað til hafa full-
trúar frá Norður- og Suður-Kór-
eu ávallt gætt þess að sitja
kyrfilega sín megin við landa-
mærin.
Næstu verslunarfundir verða
haldnir til skiptis í Seoul og
Munsan í Suður-Kóreu eða í
Pyongyang og Kaesong í
Norður-Kóreu.
Demantur seldur
á 150 milljónir kr.
Genf-Reuter
■ Perulaga blár demantur
seldist fyrir 11 milljónir sviss-
neskra franka (um 150 milljónir1
ísl.kr.) á uppboði í Genf í
fyrrakvöld. Þetta er hæsta verð
sem fengist hefur fyrir nokkurn
eðalstein til þessa.
Sameinudu þjóðimar-Reuter
■ Javier Perez de Cueller,
aöalritari Sameinuðu þjóðanna
hefur verið gagnrýndur fyrir að
gera of margar undantekningar
á þeirri reglu að ferðalög á
vegum Sameinuðu þjóðanna
skuli ekki farin í fyrsta farrými
flugvéla.
Fulltrúi Breta í fjármálanefnd
Sameinuðu þjóðanna kvartaði
yfir því á fundi nefndarinnar að
allt of margar undanþágur væru
gerðar á reglum Sameinuðu
þjóðanna um ódýran ferða-
máta. Hann lagði til að þeir sem
nú ferðuðust í fyrsta farrými
skyldu framvegis ferðast í við-
skiptafarrými.
Fulltrúi Japana sagðist telja
Demanturinn er 42.92 karöt
sem gerir hann að þriðja stærsta
demanti í heimi. Dýrasti eðal-
steinn sem seldur hafði verið á
uppboði fram til þessa var litlaus
Pólarstjarna sem seldist fyrir
næstum því níu milljónir franka í
að fyrsta farrými ætti aðeins að
nota í sérstökum tilvikum fyrir
fólk sem væri slæmt til heilsunn-
ar og ætti erfitt með ferðalög.
Á meðan fulltrúarnir ræddu
þessi mál var aðalritarinn á
leiðinni til New York með
franskri Concorde-þotu ásamt
lífvörðum sínum, eftir að hafa
nýlokið heimsókn sinni til hung-
urssvæðanna í Eþíópíu. Hver
miði með Concorde á þessari
flugleið kostar 1.394 dollara.
Talsmaður aðalritarans sagði að
hann hefði valið Concorde þrátt
fyrir dýr fargjöld þar sem það
væri mikilvægt fyrir aðalritar-
ann að komast aftur til New
York áður en umræðurnar um
Afganistan þæfust hjá Samein-
uðu þjóðunum.
Genf í nóvember 1980.
Stærsti blái demanturinn sem
vitað er um er hinn svokallaði
„Blái Kaupmannahafnarsteinn"
sem er 45,85 karöt. Það er ekki
vitað hvar hann er niðurkominn
núna.
írskur skæruliði:
Dæmdur í
1762 ára
fangelsi
Belfast-Reuter
■ Leiðtogi mótmæl-
endahersveitar, sem
viðurkenndi að hafa myrt
fjóra kaþólika, var í gær
dæmdur til fangelsisvistar
í alls 1762 ár.
Maðurinn, John Gibson,
játaði sig sekan um 143
ákæruatriði. Hann hafði í
réttarhöldunum gefið
vitnisburð sem varð til
þess að koma upp um
fimmtíu félaga hans í her-
sveitinni.
Lovry lávarður, yfir-
dómari Norður-írlands,
setti ekkert lágmark á hve
mikinn frádrátt frá fang-
elsisdómnum, Gibson
fengi fyrir að vera sam-
vinnuþýður við yfirvöld
við réttarhöldin.
! Sameinuðu þjóðirnar:
Dýr ferðamáti
gagnrýndur