NT - 13.12.1984, Page 1
Nýtt fisk-
verð í dag
■ Nýtt verð á
loðnu, skelfisk og
rækju verður kynnt í
dag. En nýtt Golfisk-
verð hefur ekki ver-
ið ákveðið og má bú-
ast við að til þurfi
úrskurð yfirnefndar
sjávarútvegsins.
Samþykkt voru á
Alþingi í gær lög sem
heimila nýja fisk-
verðsákvörðun, þrátt
fyrir að verðtímabilið
sé ekki yfirstaðið.
Hið nýja verð mun
gilda frá 21. nóvem-
ber til 1. janúar.
Verðlagsráð sjávar-
útvegsins hefur
fjallað um nýtt fisk-
verð á síðustu
dögum, og mun vænt-
anlega kynna verð á
loðnu, rækju og skel-
fisk í dag, en mun
erfiðara gengur að
ákvarða þorskverð
og verð á öðrum bol-
fiski.
Alþingi kost-
ar kvikmynd
um netið
- en hönnuðurinn nýlátinn
■ Björgunarnet Markúsar
B. Þorgeirssonar, skip-
stjóra, hefur hlotið viður-
kenningu Alþingis, nú hálf-
um múnuði eftir lút Markús-
ar.
1 breytingatillögum fjúr-
veitingarnefndar við fjárlög,
er gerð tillaga um 50.000
króna framlag til gerðar
fræðslumyndar um björgun-
arnetið Markús.
Markús B. Þorgeirsson,
sem lést nú fyrir skömmu,
ötuli barúttumaður ör-
yggismúla sjómanna, og
barðist m.a. fyrir vöku-
lögunum ú sínum tíma, og
fyrir því að skylt væri að
hafa Ijóskastara um borð í
skipum og bútum, til lcitar
að sjómönnum er kynnu að
falla útbyrðis að næturlagi.
Nú síðustu ár barðist
Markús nijög fyrir að fú
björgunarnet sitt viður-
kennt, og er það nú um borð
í fjölmörgum bútum og
skipum.
Atvinnuleysi blasir við hjá f iskvi nnsluf ólki:
Á annað hundrað starfsmenn
BÚR f ær uppsagnarbréf í dag
Alvarlegt atvinnuleysi
blasir við hjá fiskvinnslufólki
víða um land á næstunni og
er útlitið einna svartast á
suðvestur horni landsins, þar
sem Ijóst er að fleiri hundruð
manns missa atvinnu sína
upp úr miðri næstu viku.
Ástæðurnar eru fjölþættar
en mestu um veldur yfirvof-
andi hráefnaskortur vegna
samningsbundinna frídaga
sjómanna á minni togurun-
um, stór hluti flotans er bú-
inn að flska uppí kvótann og
einnig kemur til mikil óvissa
útaf sjómannasamningunum
og nýju fiskverði.
Hátt á annað hundrað starfs-
menn Bæjarútgerðar Reykja-
víkur fær afhent uppsagnarbréf
í dag og vinnslu verður hætt frá
og með föstudeginum 21. des-
ember, en að sögn Svavars
Svavarssonar hjá BÚR er ekki
ljóst hvenær farið verður af stað
með vinnsiuna á nýjan leik. Til
viðbótar fyrrtöldum ástæðum
nefndi Svavar einnig að nú færi
í hönd sá tími sem viðsjárverð-
astur væri hvað sjósókn snerti
og væri allra veðra von á miðun-
um en afli oft og tíðum stopull.
Fiskvinnslustöð Meitilsins í
Þorlákshöfn verður lokað í dag
og missa um 100 manns atvinnu
sína við það. Einnig er ljóst að
vinnslustöðvar í Keflavík og
Grindavfk stöðvast fyrir jól og
hefst vinnsla ekki á þessum
stöðum fyrr en um miðjan jan-
sem
úarmánuð, svo frenti
óbreytt ástand helst og ekki
komi til sjómannaverkfalls. Hjá
Hraðfrystihúsi Keflavíkur eru
skipin í síðasta túrnum og þegar
vinnslu lýkur þar 21. desember
missa 120 manns þar atvinnu
sína.
Atvinnuhorfur hjá
fiskvinnslufólki annars staðar á
landinu á næstu vikum eru held-
ur skárri þegar á heildina er
litið, en þó er ástandið mjög
misjafnt eftir einstökum
stöðum.
Ástandið á Austur- og
Norðurlandi er misjafnt eftir
byggðarlögum en staðan virðist
vera heldur betri á Vestfjörð-
um. Ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun um hvort
stöðvað verður í öðrum vinnslu-
stöðvum í Reykjavík, en líkur
eru taldar á því að þær muni
einnig loka um jól.
■ Forsætisráðherrar Norðurlandanna snæddu kvöldverð á heimili íslensku forsætisráðherrahjónanna í gærkvöldi að loknum
viðræðufundi sínum. F.v. frú Edda Guðmundsdóttir, Kalevi Sorsa, Olof Palme, Poul Schluter, Steingrímur Hermannsson, frú Lisbet
Palme Og Káre Villoch. NT-mynd: Ámi Bjarna
Forsætisráðherrar Norður
landa þinga í Reykjavík
- með samstarfsráðherrum og forsætisnefnd
■ Forsætisráðherrar Norður-
landanna, samstarfsráðherrar
Norðurlanda og forsætisnefnd
Norðurlanda funduðu í Reykja-
vík í gær, og halda fundarhaldi
áfram í dag. Þessir aðilar hittast
árlega í því landi, sem hýsa skal
næsta þing Norðurlandaráðs, en
það verður haldið í Reykjavík í
byrjun næsta árs. Tilgangurinn
er að ræða þá mála-
flokka, sem búist er við að setji
svip sinn á komandi þing og
undirbúa það.
Hver ríkisstjórn Norðurlanda
útnefnir svonefndan samstarfs-
ráðherra, en það er ráðherra
sem fer með mál er varða norræna
samvinnu. Samstarfsráðherra í
íslensku ríkisstjórninni er Matt-
hías Á. Mathiesen. Formaður
forsætisnefndar Norðurlanda-
ráðs er Páll Pétursson alþingis-
maður.
Bíldudalur:
Sjómenn
sviknir
- og kvóta stolið?
■ Sjávarútvegsráðuneytið
hefur nú til athugunar hvort
skelfiskvinnslufyrirtæki á
Bíldudal hefur hlunnfarið sjó-
menn stórlega í verkfallinu,
meðan engir matsmenn voru
starfandi, jafnframt því að
stela kvóta.
Sjá frétt og viðtal bls. 3.
Ísland-Sovét
í skák:
Var það
vilji
guðanna?
■ Var það vilji guðanna
að fslendingar töpuðu fyr-
ir Sovétríkjunum á Ólym-
píumótinu í Saloniki á
Grikklandi? Það er heims-
viðburður ef sovésk sveit
tapar keppni við landslið
annars lands, það gerðist
þó einu sinni á nýliðnu
Ólympíumóti er banda-
ríska sveitin sigraði þá so-
vésku og það ntunaði litlu
að það gerðist aftur, þegar
íslenska sveitin var aðeins
hársbreidd frá sigri.
Sjá skákþátt Helga Ólafs-
sonar bls.10 og 11