NT - 13.12.1984, Blaðsíða 13

NT - 13.12.1984, Blaðsíða 13
■ Maserati Biturbo er sá sem mesta áherslan er á hjá De Tomaso veldinu í dag, hér er nýjasta útgáfan, Biturbo S með 2,5 lítra vél. M-mvnd: a,\ DeTomasoveldið Italinn Alessandro De Tomaso á sjálfur og rekur þrjár blómlegar bílaverksmiðjur ■ De Tomaso Pantera hefur alltaf verið sá sem helst heldur nafni Alessandros sjálfs á lofti og hér sést nýjasta útgáfa hans, Pantera GTS.M-mvnd: aa ■ Innoccnti Mini hefur alltaf verið geysivinsæll á Ítalíu og þessir nýju með þriggja strokka Daihatsu vélinni selj- así eins og heitar lummur. ■ Alessandro De Tomaso heitir maður ítalskur. Hann er einn síðustu manna í heimi til að eiga sjálfur og persónulega bílaverksmiðju, og það fleiri en eina. Öfugt við svo marga mæta kollega hans ítalska hef- ur veldi De Tomaso vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og stendur nú með meiri blóma en nokkru sinni frá upphafi. Fyrsti bíll til að bera nafn De Tomaso ættarinnar út um heimsbyggðina var Pantera sem varð til í samvinnu við þær amerísku Ford-verksmiðjur í Dearborn, Michigan. Formúl- an var þekkt, ítölsk hönnun og amerískir hestar, um þrjú- hundruð talsins á stalli bak við ökumann og farþega. De Tom- aso Pantera var svar Ford við Chevrolet Corvette og sem sportbíll gat hann skilið Cor- vettuna eftir standandi ráða- lausa. Annað mál var að slá henni við í sölu og sannfæra Norður-Ameríkubúa um að silkibossum þeirra væri betur fyrir komið í hreinræktaðri ítalskri Gran Turismo keyrslu- græju en gömlu góðu Corvett- unni. Það létu Kanar ekki segja sér og Ford bakkaði hið snarasta út úr öllum stóru áætl- unum með brennda fingur. De Tomaso gafst þó ekki upp og hélt framleiðslunni áfram og gerir enn, fær Cleveland 351 V8una skipaða yfir pollinn og smíðar sínar Panterur þótt liðnir séu hátt í tveir áratugir frá hönnun hennar. Aðalmaðurinn að baki ítal- ska ævintýrinu hjá Ford var Lee nokkur lacocca (já, reynið bara að bera eftirnafnið fram!) sem varð frægur fyrst fyrir að vera rekinn af efstu hæðum Ford Motor Co. þegar hann var þar kominn á toppinn. Hann tók þá að sér leifar Chrysler Motor Co sem var minnsta og skuldugasta sam- steypan af „The Big 3“, (hinar eru General Motors og Ford). Lee tókst hið ómögulega að endurreisa Chrysler á fáum árum upp í hið grQðamesta og blómlegasta af þeim fjórum fyrirtækjum sem fjöldafram- leiða bíla í Bandaríkjunum. En Lee Iacocca hefur ekki gleymt vini sínum Alessandro. Innan skamms er væntanlegur á markað nýr bíll sem bera á De Tomaso Pantera nafnið með Chrysler vél í miðjunni. Til marks um breytta tíma mun gamla góða Mopar áttan ekki snúa afturhjólum Pantera árgerð ’86 heldur fjögurra strokka 2,2 lítra vélin sem knýr nær alla Chrysler nútím- ans, með forþjöppun að auki. Þá opnast mikill markaður fyr- ir De Tomaso þar sem nýja Panteran á að passa inn í Chryslerlínuna og verða seld í gegn unr sölukerfi Chrysler í Bandaríkjunum alveg eins og sú gamla í gegn um Ford á sínum tíma. Enginn á þó von á sömu hrakförum og Panteran varð fyrir '68-’70 nema aðstæð- ur á Bandaríkjamarkaði breyt- ist mikið á skömmum tíma, og það hefur svo sem gerst áður. Þetta eru alls ekki einu nýju fréttirnar af hinum duglega De Tomaso og bílum hans. Fyrir nokkrum árum eignaðist hann hinar virtu gömlu smiðjur Maserati sem í gegnum árin hafa smíðað eina bestu og sérstæðustu sportbíla Ítalíu. Fjárhagurinn hefur oft staðið á völtum fótum og trúlofun Mas- erati og Citroén seinni hluta sjöunda áratugarins og í byrj- un þess áttunda varð báðum til tjóns, fóru báðir á hausinn upp úr því. Síðan þá hefur leiðin legið upp á við undir fimri stjórn Álessandros sem verið hefur einkar laginn við að koma fjárhagnum á réttan kjöl og styrkja hann. Eitt mikilvæg- asta skrefið var að setja á markað bíl sem gerður var fyrir miklu stærri kaupenda- hóp og margfalt meiri fram- leiðslu en nokkur Maserati áður, Maserati Biturbo. Eins og nafniö bendir til er hann búinn tveirn afgasforþjöppum á gömlu góðu V6una og var fyrsti bíll til að koma með 3 ventla á strokk. Þessi undra- fína 200 hestafla vél er í bíl sem líkist BMW 300 línunni alveg ótrúlega nrikið, og fjöðrunin er meira að segja eins uppbyggð aftan og framan. Fyrir stuttu bættust við 2 nýjar útgáfur af Maserati Biturbo, ein fjögurra dyra og önnur með aðeins stærri og kraftmeiri vél sem eiga að stækka enn kaupendahópinn. Þótt framleiðslan hafi marg- faldast eru Biturboarnir búnir handunninni innréttingu úr leðri og kjörviði og halda þeim töfrum sem Maserati nafnið hefur áratugum saman vakið í hugum manna. Enn er ónefnd sú deild De Tomaso ríkisins sem er fætur og rætur undir hinum, smábíla- verksmiðjan Innocenti. Eftir 1960 seldist Austin Mini svo grimmt á Ítalíu að ekki þótti sæma útlendum bíl, svo Dc l’omaso stofnaði Innocenti til að setja þá saman heimafyrir. Innocenti kom fótunum undir bílaveldi De Tomaso og 1976 lét hann hinn fræga sjálfstæða bílahönnuð Bertone teikna ljómandi falleg og ný klæði á gamla góða Miniinn. Sá nýi hclt krami þess gantla en var nýtískulegri, rúmbetri með afturlúgu sem veitti betri að- gang að miklu stærra farang- ursrými. Gúmmífjöðrunin og gamli blývélahlunkurinn var svo Iát- inn fjúka 1980/81 þegar De Tomaso gerði samning um kaup á þriggja strokka vélum frá Daihatsu í Japan, bensín, dísel og turbo sem eru þær sömu og við þekkjum í Dai- hatsu Charade. Þannig útbú- inn magnaðist Miniinn upp um allan helming og til þess að leggja áherslu á sparnaðinn sem hlaust af fækkun strokk- anna um einn var m.a. gerð auglýsing þar sem fjórir skuggalegir olíufurstar standa með olíupístólu í hendi og er feitum krossi slegið yfir þann fjórða. Með fylgdi texti þar sem landslýður er hvattur til að minnka olíugróða arabanna unt fjórðung með því að kaupa þriggja strokka Innocenti Mini. Þetta var á viðkvæmum tímum þegar heimurinn var í einu móðursýkiskastinu af mörgum yfir orkuauölindum og fór þessi útbreidda auglýs- ing svo illilega fyrir brjóstið á ráðamönnum sumra arabaríkj- anna að þeir hótuðu tafarlausri stöðvun allrar olíusölu til ítal- íu. Þeirri eldfimu milliríkja- deilu lauk ekki fyrr en ríkis- stjórn Ítalíu hafði kyngt stolti sínu og borið aröbum auð- mjúkar afsakanir fyrir móðg- unina áður en Ítalía varð olíulaus. Auðvitað vakti allt heila málið meiri athygli á bíln- um en tíu sinnum fleiri auglýs- ingar hefðu gert! En þetta var nú útúrdúr. © © M%Globusa Lágmula 5, Keykjavik, síini 81555. SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 © © Bílasala Garðars BíLVANGURsf. Borgartúni 1 sími: 19615 HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 Viftureimar, platinur, kveikjuhamar og þéttir. bremsuvokvi, varahjólbaröi. tjakkur og nokkur verkfæri Sjúkrakassi og slökkvitæki hafa hjálpaö mörgum a neyðarstundum

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.