NT - 13.12.1984, Page 10
Fimmtudagur 13. desember 1984 10
■ Fyrir röskri viku síðan Iauk í Saloniki
í Grikklandi 26. Olympíumótinu í skák.
Mót þetta verður um margt minnisstætt í
íslenskri skáksögu ekki síst fyrir þær sakir
að þarna náði íslensk sveit einum besta
árangri á Olympíumóti frá upphafi og
munaði þó sáralitlu að enn betri og í raun
stórkostlegur árangur hefði náðst. Þó
hygg ég að a.m.k. þeir sem í förinni til
Grikklands voru minnist mótsins mest
vegna umferðarinnar þegar það gleymdist
að íslendingar geta unnið Sovétmenn í
skák.
í sérlega vönduöu mótsblaði
sem gefiö var út eftir hverja
umferð, eintaki nr. 11 er vikið
að viðurcign íslendinga og So-
vétmanna alveg sérstaklcga.
Eftir hverja umferð voru ritað-
ar tvær greinar um hverja um-
ferð og þær báðar taka til
þessarar viðureignar. Hans
Böhm, einn sterkasti skákm-
ur Hollendinga, er höfundur
hinnar fyrri og Svend Novrup,
þekktur skákdálkahöfundur,
skrifar hina síðari. Böhm byrj-
ar á eftirfarandi hátt:
„Við hefðum átt að tapa í
dag," sagði stórmeistarinn
Romanishin brosandi þegar
úrslit 11. umferðar lágu fyrir.
„3 'fi: */4?“ spurði ég alvarlegur í
bragði. „Það er nú kannski
fulldjúpt í árinni tekið," skaut
Ljubojevic inn í. „Raunsætt
mat á skákunum fjórum gaf til
kynna að úrslitin hefðu átt að
vcrða 3:1.“
Við vorum að tala um viður-
eign Sovétmanna og Islend-
inga. Fyrir þetta mót voru þeir
margir sem veltu því fyrir sér
hvcrnig íslenska liðinu myndi
lega allt sem þeir báðu um.
Þeir mættu harðvítugri mót-
spyrnu íslendinga. Kannski
stóöu íslendingar til vinnings.
En (blindaðir af guðunum?)
tveir Víkingar sættust á jafn-
tefli í betri stöðum, annar með
sannkallaða yfirburði og síðan
tapaði Helgi Ólafsson jafntefl-
isstöðu á efsta borði. Allt í
einu stóðu Sovétmenn uppi
sem sigurvegarar, 2'A:\'£.“
M 1. borðs maður Sovétmanna Alexander Beljavskí stóð sig frábærlega vel á
i Olympíumótinu. Kunnugir segja að hann stefni leynt og Ijóst að því að verða
heimsmeistari í skák og er satt að segja margt í fari hans sem bendir til þess að hann
líti á sig sem næsta heimsmeistara.
og sú varð raunin.)
15. Be4!
(Leikið eftir skamma umhugs-
un)
15. .. Hb8
16. a3 Ra6
17. Rxg5 hxg5
18. Rb5 Bd7
19. Rd6
(Vitaskuld ekki 20. Rxa7 Ha8
og riddarinn sleppur ekki svo
glatt út.)
19. .. b5
(Sterkara en 19. - b6 20.Hifcl
með hótuninni 21. Bd3 Rc7
22. b4 o.s.frv.)
20. f4 gxf4
21. Hxf4 Be6
22. Hafl Rc7;
(Freistandi var hér 22. - c4 en
eftir 23. Hh4! g6 24. Hf6 Rc5
.25. Bxg6! Rd7 26. Bxf7t vinn-
ur hvítur. Það er hreint ótrú-
legt hversu mikill þungi er í
sókn hvíts þó sakleysisleg sé.)
23. HID
(Beljavskí hefur stórskemmti-
lega sóknaráætlun á prjónun-
um.)
23. .. b4
24. Hh4 g6
25. g4!
(Með hótuninni 26. Hfh3.
Svartur á ekki nema eitt svar.)
25... Kg7
(Og hér bjóst ég einungis við
26. Hfh3 Hh8 27. Hxh8 Hxh8
28. Hxh8 Hxh8 29. g5 a5! 30.
Rb7 c4! 31. Rxa5 c3! og hvítur
verður að berjast fyrir jafn-
tefli.)
26. Rf5t!
(Þessi stórskemmtilegi leikur
er ekki eins hættulegur eins og
hann lítur út fyrir í fyrstu.)
Var það vilji guðanna?
Um hina harðvítugu viðureign Sovétmanna og íslendinga
reiða at' á Olympíumótinu.
Styrkur þeirra hefur aukist gíf-
urlega frá einvígi Fishers og
Spasskí 1972. Sterkur stór-
meistari eins og Guðmundur
Sigurjónsson varö að gera sér
fimmta sætið að góðu á síðasta
íslandsþingi. Það er hæst máta
mögulegt að lokastöðurnar á
borði 2, 3 og 4 hafi allar verið
tapaðar Sovétmönnum, en
hvarvetna var samið um jafn-
tefli. Annað hvort var það
tímahrak eða of mikil virðing
fyrir andstæðingunum að hinir
ungu íslendingar sömdu þann-
ig af sér.Og þeir tapa viður-
eigninni vegna þess að Beljav-
skí hefur ekki sýnt neina virð-
ingu þeirri jafntcflisstöðu sem
Helgi Ólafsson skapaði. Skák-
in hefur farið í bið. í þessum
skrifuðum orðunr, en hróks-
endataflið er unnið. Sögulegur
sigur Sovétmanna sem liafa
aðeins tapað fjórum lands-
keppnum frá því á Olympíu-
mótinu í París 1924.
„Allir þeir sem hafa kynnt
sér verk Hómers," byrjar
Svend Norvrup," vita hvernig
grísku guðirnir blönduðu sér í
mál hinna dauðlegu. í dag
viröist mér sem Sovétmenn
hafi verið í nánu sambandi við
goðin því þeir fengu bókstaf-
Satt að segja er erfitt aö
bæta nokkru við þessar lýsing-
ar Novrups og Böhrn öðru en
því að viðureignin við Sovét-
menn hafði lamandi áhrif á
þrek okkar. Við höfðum allt
mótið barist á efstu borðunun,
teflt nálega hverja einustu skák
í botn, höfðum reyndar komið
okkur saman unr það fyrir
viðureignina við Sovétmenn að
þrátt fyrir allt væri eins vinn-
ings tap ekki svo slæmt, jafnvel
3:1 væri ekkert til að skammast
sín yfir. Það var eins og að það
hvarflaði ekki að neinum að
sigur gæti unnist.
Skákirnar fylgja hér á eftir:
1. borð:
Hvítt: Alexander Beljavskí
Svart: Helgi Ólafsson
Drottningarbragð
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 d5
4. Rc3 Be7
5. Bg5 h6
(Ef undan er skilin skák í
Deildarkeppni S.í. er þetta í
fyrsta sinn sem ég beiti Tarta-
kower-afbrigðinu. Með svörtu
er þetta aðalvopn Beljavskís
svo segja má að maður renni
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur. En það getur líka
verið góð sálfræði að beita
vopnum andstæðingsins.)
6. Bxf6 Bxf6
7. Dd2 dxc4
8. e4 c5
9. d5 exd5
10. e5 Bg5
11. Dxd5 0-0
12. Bxc4 Rc6
13. 0-0 Dxd5
14. Bxd5 Rb4
(Og nú er komin upp sama
staðan og í einni einvígisskák
Karpovs og Kasparovs í
Moskvu. Karpov lék 15. Rxg5
en komst ekkert áfram. Eg
þóttist viss um að Beljavskí
hefði endurbót á takteininum
26... gxf5
27. gxf5 Hg8
(Eini leikurinn. en eftir hann á
svartur að standast allar atlög-
ur hvíts þó hann sé eftir sem
áður í vörn.)
M Kristján Guðmundsson (t.v.) liðsstjóri karlasveitarinnar og Þráinn Guðmundsson
fararstjóri og liðsstjóri kvennasveitarinnar.
28. fxe6 Rxe6
29. Kfl Kf8
30. Bd5 bxa3
(Það kann að vera að aðrar
betri leiðir bjóðist en þessi ætti
að duga til jafnteflis. Svartur
var þegar orðinn aðþrengdur
með tímann.)
31. Hxa3 Hb4!?
(Eftir 31. - Hxb2 32. Bxeófxeó
33. Hf4t Ke8 34. Hxa7 hefur
hvítur enn nokkra vinnings-
möguleika.)
32. Hxb4 cxb4
33. Hxa7 Hg5
34. Bxe6 fxe6
35. Hb7 Hf5t!
36. Kg2 Hxe5
37. Hxb4 He2t
38. Kg3 Ke7
(Kóngurinn kemst á vettvang.
Nú ætti jafnteflið að vera
tryggt.)
39. h4 Kf6
40. Hf4t Kg6
41. b4