NT - 13.12.1984, Side 12
Fimmtudagur 13. desember 1984 12
Ekki er öll vitleysan eins!
■ Kínverjar eru í þann mund aö liefja Iranilciðslu á
vélmennum sem lcika borötennis. Nefnd skipuö sér-
fræöinguin hefur tekiö þá ákvöröun og kínverskir
boröennisleikarar, sem þykja standa sig allhærilega nú
þegar, eigi aö geta bætt leik sinn svo uin munar meö
hjálp vélmennanna.
Vélmennin slá 25-90 liögg á míniítu.
<2>~ C?
■ Frakkar hafa fundiö upp og setl í framleiöslu
handhægt rafcindatæki, sem ætlaö er l'ólki í leit aö
ástarævintýrum. Á máli hcimantanna er tækiö kallaö
„Le Flashing" og það er á stærð viö sígarcttupakka.
I'egar áhugi vaknar hjá einhverjuni eiganda tækisins
á einhverjum nánari kynmiin, sendir hann einfaldlega
frá tækinu sínu tón, sem óöara er inóttckinn hjá öðrum
eigendum tækisins. Og þá færist væntanlega líf í
tuskurnar!
■ Nýlega komst upp í Boston aö níræöur niaöur haföi
gcymt lík konu sinnar í S ár í riími þeirra lijóna.
■ Bréf', stílaö til látinnar konu í Florida, barst nýlega
á hcimilisfang hennar frá félagsmálastofnun þar á
staönum. Erindi bréfsins var eftirfarandi: Okkur hefur |
borist skýrsla um aö þú kunnir aö vera látin. Gerðu svo
vel að færa okkur sönnur á aö svo sé með því að sýna
nafnskírteini.
■ „Ég sagöi þér að drekka ekki svona mikið kampavín", gæti Mary Chipperfíeld í Drummond Safari Park í Tayside
verið aö segja við King litla.
Api með timburmenn
■ Apinn á myndinni heitir Fyrst í staö var Kingsi litli líkaði það vel. Líklega hélt Daginn eftir leið honuin
KING og hann átti afmæli í sjimpansi hálf leiður í af- apagreyið að þetta væri gos, ekki eins vel, eins og þið
gær (þ.e. að segja daginn mælisveislunni. en svo fékk og hann drakk meira og sjáið á myndinni, því aðapar
áður en myndin var tekin). hann kampavín í glas og meira og skemmti fólkinu. getalíkafengiðtimburmenn!
Shirley Temple er ánægð með líf sitt
■ Aldrei hefur nein önnur harnastjarna náð
viðlíka frægð og vinsældum og Shirley Temple.
þó hún ætti kost á því. Samt
ber öllum saman um að hún hafi'
að mörgu leyti átt heldur
ömurlcga æsku. Hún var keyrð
til og frá vinnu í skotheldum
bíl. og þegar hcim var komið
mátti hún ekki um frjálst höfuð
strjúka fyrir alls konar vernd-
araðgerðum. Hún varð að
halda sig innan dyra, og gat
aðeins gægst út um glugga með
rimlum fyrir. En það var svo
sem lítið spcnnandi útsýni sern
hún hafði. vopnaðir verðir
sprangandi um á lóðinni, sem
var umgirt háum steinvegg.
Og hún var snenrma rænd
barnatrúnni á jólasveininn.
Hún hafði scst í kjöltu eins
þeirra og var í óða önn að
hvísla aö honum óskum sínum
fyrir jólin. En henni brá illilega
við, þegar hann bað hana um
eiginhandaráritun!
Og ekki fékk hún tækifæri til
að leika sér við önnur börn,
Kfverðirnir sáu til þess. Það
var því ekki að furða að hún
skyldi nota fyrsta tækifæri sem
gafst til að gifta sig. Hún var
ekki nema 17 ára, þcgar hún
giftist ungum og upprennandi
leikara, Joltn Agar, scm í raun-
inni vissi ekki hvaðanásigstóð
veðrið. þegar hann vogaöi sér
að láta sjá sig með hinni frægu
konu sinni. Hjónabandið stóð
ekki nenra í 4 ár og fyrir
skilnaðardómstólnum bar
Shirley það. að hún hcfði einu
sinni verið orðin svo örvingluð.
að hún hefði verið komin á
frcmsta hlunn með að fremja
sjálfsmorð.
Núverandi eiginniaður
Shirlcy er Charles Black, vel
stæður kaupsýsiumaður, sem
hlaut margvísleg heiðursmerki
fyrir vasklega framgöngu í
heimsstyrjöldinni síðari. Shirl-
ey á 3 uppkomin börn og eitt
barnabarn.
-þóætlaðihúneinu
sinni að farga sér
■ 17 ára og nokkurra niánaða giftist Shirley
John Agar. Fjórum árum seinna voru þau skilin
og vildi John meina aö hann hafí aldrei náö
tökum á því aö vera giltur svo frægri konu.
■ Hún var orðin heimsfræg-
aðeins 8 ára að aldri. Allir
þckktu Shirley Ternple og
Ijósu slöngulokkana hennar og
þegar kostur gafst á að sjá
kvikmynd, þar sem hún söng
og dansaöi af hjartans lyst.
flykktist fólk í bíó í stríðum
straumum.
Aðeins 10 ára að aldri var
hún orðin milljónamæringur
og hafði hærri laun > cn for-
stjóri General Motors bíla-
verksmiðjanna. En kvik-
myndaferill hcnnar varð enda-
slcppur þegar hún var komin á
fullorðinsár og þá bara sneri
hún sér aö öðru.
Þaö vaktí mikla athygli, þeg-
ar Nixon Bandaríkjaforseti
skipaði hana scndihcrra hjá
Sameinuöu þjóðunum og ekki
voru allir á eitt sáttir, þegar
hún var skipuð sendiherra í
Ghana. Pcssar vegtyllur báöar
hlaut hún fyrir íhaldssamar
skoðanir sfnar, sem hún hefur
aldrei látiö liggja í láginni.
Það var t.d. haft eftir henni,
þegar Ameríkanar voru í óða
önn að flækja sér inn í stríðið í
Víetnam, aö það væri ekki
nema sjálfsagt að leggja ttind-
urdufl í höfn Haiphongborgar,
það myndi stytta stríðið all-
verulega! Og innlegg hennar í
umræðu um kynþáttaóeirðir var
það eitt aö þær væru iíkastar
óþekktarköstum krakka. - Við
gefum óþekkum krökkum sælg-
æti, og þau hætta óþekktinni.
En þau muna eftir því seinna,
þegar þau langar í sælgæti og
nota þá sömu aðferðina aftur,
sagði hún. Og þá hefur hún
ekki reynt að koma sér t mjúk-
inn hjá kvenfrelsiskonum. Um
þær segir hún: - Ég vil lieldur
vcra í sterkum örmum manns-
ins míns en að ciga eitthvað
saman við þær að sælda.
Shirley er nú orðin 55 ára og
heldur því fram, aö hún myndi
ekki kæra sig um að breyta
einum einasta degi í lífi sínu,
■ Shirley kann
vel að meta
sterka arma manns
síns, Charles B l«ck.