NT - 13.12.1984, Side 25
Fólk flýr Bhop-
al unnvörpum
Bhopal-Reuter
■ Fólk streymdi í þúsundatali
frá Bhopal á Indlandi í gær,
vegna ótta um að eitthvað kunni
að fara úrskeiðis þegar banda-
rískir og indverskir vísinda- og
tæknimenn reyna að gera eitrið
Methyl Isocyanate skaðlaust.
Eitrið varð meira en 2500 manns
að bana þegar banvænt gas lak
út úr verksmiðju auðhringsins
Union Carbide í Bhopal.
Yfirvöld hafa reynt að sann-
færa borgarana um að engin
hætta sé hér á ferðum. Að sögn
indversku fréttastofunnar lét
um þriðjungur hinna 50 þúsund
íbúa gamla hverfisins í Bhopal
sér ekki segjast og hélt upp í
hæðirnar í grennd við bæinn.
Aðgerðirnar munu að sögn
hefjast á sunnudagsmorgun og
taka fjóra til fimm daga.
Arjun Singh, fylkisstjóri í
Madhya Pradesh-fylki, ætlar að
vera í verksmiðjunni meðan á
aðgerðunum stendur til að
reyna að fullvissa íbúana um að
engin hætta sé á ferðum. I sama
streng tekur talsmaður Union
Carbide og segir að hundrað
prósent öryggis verði gætt.
Ýmis vandkvæði ltafa þó
verið á því að koma fólki frá
Bhopal, því stór hluti starfs-
manna járnbrautarinnar þar lést
í slysinu, veiktist ellegar flúði.
Einn stöðvarstjóranna sagði að
hann hefði ekki fundið einn
einasta mann á lífi þegar hann
kom til vinnu um morguninn.
„Hvarvetna voru lík," sagði
hann.
Lestirnar eru nú loks farnar
að ganga eðlilega með bráða-
birgðastarfsliði, sem flutt hefur
verið til borgarinnar. Lestirnar
fara yfirfullar frá Bhopal, en
snúa nær tómar aftur, segja
járnbrautarstarfsmennirnir.
Fimmtudagur 13. desember 1984 25
Hermenn á sandólum
■ Skæruliðar, sem berjast gegn stjórninni í El Salvador, létu í gær lausa 44 stríðsfanga úr herliði
stjórnarinnar. Hér sést hvar þeir klifra upp í bíl Rauða krossins. Skæruliðarnir höfðu tekið bæði vopn
og búninga af hermönnunum, en sendu þá í staðinn burt í æfingagöllum og sandolum. símamynd-Poifoto
Þrjú ár síðan
herlög voru
sett í Póllandi
Strítt gegn almennu sinnuleysi
Varsjá-Reuter
■ í dag eru liðin þrjú ár frá
því að herlög voru sett í
Póliandi. Það var snemma
morguns 13. desember 1981
að Jaruselski, forsætisráð-
herra og leiðtogi, lýsti því
yfir að Pólland rambaði á
barmi hyidýpisins og herinn
lét til skarar skríða gegn
Samstöðu, samtökum
frjálsra verkalýðfélaga.
Þá voru helstu leiðtoear
Samstöðu hnepptir í
varðhald, þar á meðal Lech
Walesa, og ýmis borgaraleg
réttindi afnumin.
Herlögunum var síðan af-
létt í júlí 1983 og í ár hafa
stjórnvöld talið sig nógu ör-
ugg í sessi til að láta lausa
meira en 600 stjórnmála-
fanga. Þau telja að efnahag-
urinn sér á hægum batavegi,
sem og samskipti við vest-
ræn ríki, en þau voru mjög
stirð eftir að herlögin voru
sett. Kommúnistastjórnin
segir líka að þátttaka í
verkalýðsfélögum, sem
njóta viðurkenningar stjórn-
valda, sá að aukast þótt
Jaruselski viðurkenni að
einn helsti vandinn, sem
Pólverjar eiga við að glíma,
sé almennt sinnuleysi um
stjórn landsins.
Víst er að margir stuðn-
ingsmanna Samstöðu hafa
lítinn áhuga á því að frið-
mælast við stjórnina og
kjósa að þegja fyrst ekki er
hægt að brýna raustina. Það
er einnig staðreynd að lífs-
kjörin eru víða bág. Mikill
vöruskortur er í verslunum
og almenningur þarf að bíða
árum saman eftir að fá íbúð
eða síma. Það er enda stað-
reynd að Póiverjar flýja land
í stórum stíl.
Samstöðumenn hafa ekki
látið uppi neinar fyrirætlanir
um að minnast dagsins sér-
staklega. Hins vegar hafa
þeir, líkt og í fyrra, hvatt
fólk til að minnast á friðsam-
legan hátt verkamanna, sem
löggæslumenn skutu tii bana
í hafnarborgunum Gdansk
og Szczecin 16. desember
1970.
Saudi-Arabar vara
við olíuverðstríði
- og skella skuldinni á Breta og Norðmenn
Kyadh-Kcutcr
■ FyrrívikunnivöruðuSaudi-
Arabar Breta og Norðmenn
sterklega við því að hringla með
olíuverð í harðorðri yfirlýsingu.
Þar sagði að breytingar á verði
Norðursjávarolíunnar bjóði
heim hættunni á meiriháttar
olíuverðstríði. Skoðun Saudi-
Araba er sú að verðlag á olíu sé
of mikilvægt til að hægt sá að
láta hinn frjálsa markað og
lögmál framboðs og eftirspurn-
ar ákvarða það.
Bresku og norsku ríkisolíu-
fyrirtækin, BNOC og Statoil
hafa gefið í skyn að þau gætu
slitið öll tengls við OPEC, sam-
tök olíuframleiðsluríkja og fylgt
frjálsu verðlagi á olíu.
OPEC heldur nú heimsverði
á olíu uppi með því að takmarka
framleiðslu sína og erþað nú 29
dollarar á tunnuna. Ýmis olíu-
framleiðsluríki, þar á meðal
Noregur og Bretland, hafa átt í
erfiðleikum með að selja olíuna
á því verði.
Sérfræðingar telja þó að
olíuverð haldist nokkuð stöð-
ugt í vetur, en með sumrinu er
ekki ólíklegt að rót komist á
markaðinn á nýjan leik og þá
gætu Bretar og Norðmenn
freistast til þess að lækka verðið.
Það er mögulegt að einhver
OPEC-ríki, til að mynda Niger-
ía, fylgi í kjölfarið. Og þá yrði
verðstríðið sem Yamani, olíu-
málaráðherra Saudi-Arabíu,
óttast svo mjög orðið að veru-
leika.
Það er talsverður þungi sem
fylgir viðvörunum Saudi-Arab-
íu. Þeir hafa minnkað fram-
leiðslu sína mikið til að halda
verðinu uppi, en ef þeir
ákveddu að skrúfa frá öllum
brunnum sínum er víst að
olíuverðið myndi hrapa niður í
tíu dollara eða kannski enn
neðar. Þrátt fyrir það myndu
Saudi-Arabar enn græða á
olíuframleiðslu sinni, en sú væri
aldreilis ekki raunin með
Norðursjávarríkin.
Yamani segir að olíuverðs-
lækkunin geti haft alvarlegar
afleiðingar fyrir heimsbyggðina.
Fátæk olíuframleiðsluríki gætu
ekki lengur greitt skuldir sínar,
sem þýddi mikla kreppu fyrir
vestræna banka sem eiga úti-
standandi stórfé í þriðja heimin-
um. Ekki er síður hætta á mikilli
ólgu í ríkjunum þar sem þjóðar-
tekjur hrapa snögglega.
Berjast ekki á
jólum og nýári
Vinstrisinnaðir skær-
uliðar í E1 Salvador hafa
lofað að gera hlé á vopn-
aðri baráttu gegn stjórn-
völdum yfir jólin og ára-
mótin.
Skæruliðarnir lýstu
þessu yfir í tilkynningu,
sem þeir lásu upp þegar
þeir slepptu 43 stjórnar-
hermönnum úr haldi í La
Joya fyrr í þessari viku. La
Joya er í um 55 km fjar-
lægð frá höfuðborginni
San Salvador.
Þetta er fyrsta vopna-
hléð, sem lýst hefur verið
yfir á þeim fimm árum
sem skæruliðar hafa barist
gegn stjórninni. Talið er
að um 50.000 manns hafi
fallið á þessum tíma.
Leiðtogar varnarbandalags varðir
■ Utanríkisráðherrar NATÓ-ríkja funda nú í Brussel. Þar er staddur meðal annarra
George Shulz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. í gær átti hann fund með Wilfried
Martens, forsætisráðherra Belgíu, en stjórn hans hefur undanfarið tvístigið við að
framfylgja áætlunum um að staðsetja meðaldrægar kjarnaflaugar í Belgíu. Shulz hvatti
Martens til að standa við gefin heit, en Martens forðaðist það að gefa ákveðin svör.
Ströng öryggisgæsla var utan við bandaríska sendiráðið í Brussel þar sem fundur
ráðherranna fór fram, enda sprungu sex sprengjur í Belgíu í fyrradag og ollu spjöllum
á mannvirkjum NATÓ. símamynd-POLFOTO
SAGNAKVER
Skula Gíslasonar
Útgáfa Sigurðar Nordal
Myndskreytt af Halldóri Péturssyni
Hundrað þjóðsögur og sagnaþættir
Skemmtileg og þjóðleg lesning í
skammdeginu
(fdgofell
Unuhúsi Veghúsastíg 5, sími 16837