NT - 13.12.1984, Blaðsíða 27
UBKskorti
úthaldið
Fimmtudagur 13. desember 1984 27
«n,.' lil fþarottir
Handknattleikur 1. deild:
■ íslandsmeistarar FH fóru
með einn sigurinn enn af hólmi
í 1. deildinni í handknattleik í
gærkvöidi.
Þeir sigruöu nýliða UBK
með 25 mörkum gegn 23 í
Hafnarfirði eftir að staðan
hafði verið 11-11 í leikhléi.
Lengst af var leikurinn hníf-
jafn en Breiðablik skorti ein-
beitinguí lokin og meistararnir
létu ekki segja sér það tvisvar.
FH-ingar voru yfir í byrjun
2-3 mörkum en á 22. mínútu
jafnar Breiðablik 8-8.
Guðjón til ÍK
■ Guðjón Guðinundí-
son, leikmaður með Þó.
Akureyri og áður með FH,
hefur verið ráðinn þjálfari
3. deildar liðs ÍK í knatt-
spyrnu í Kópavogi. Guðjón
mun að sjálfsögðu spila
með liðinu líka. Guðjón
verður liðinu eflaust mikill
styrkur. Hann er 24 ára og
var með markahærri leik-
mönnum íslandsmótsins
1983.
Breiðablik var svo fyrra til
að skora fram að hléi en jafnt
var á öllum tölum.
í seinni hálfleik endurtók
sagan sig, liðin voru til skiptis
yfir. FH komst í 15-13 en
Breiðablik jafnaði óðara 15-15
og komst svo yfir 16-15. FH
komst í 17-16 og UBK næst í
18-17.
A þessu tímabili var allt í
járnum og ómögulegt að segja
til um hvort liðið myndi sigra.
En þá brást úthald UBK og
FH náði þriggja marka forystu
22-19 og síðan fjögurra marka,
24- 20.
Breiðablik minnkaði mun-
inn svo í lokin í tvö mörk
25- 23.
Hjá FH skar sig enginn úr,
allir léku af svipaðri getu nema
Haraldur í markinu sem átti
ekki góðan dag. Sverrir var
skárri þann tíma sem hann lék.
Hjá UBK voru þeir Kristján
Halldórsson og Björn Jónsson
bestir.
Mörkin skoruðu, fyrir UBK: Kristján
H 8, Björn 6, Aðalsteinn 4, Kristján G og
Magnús 2 hvor og Brynjar 1. FH: Hans
6, Kristján 5, Þorgils 5, Guðjón Árnason
4, Pálmi 4 og Jón Erling 1.
Heimsbikarkeppnin:
■ Þróttur varð í gærkvöld Reykjavíkurmeistari í blaki í 9. sinn. Þróttur sigraði ÍS 3-0 í úrslitaleik, 15-7, 15-9,15-7. ÍS sigraði hins vegar
í kvennaflokki 3-0,15-13,15-11 og 15-9. Á myndinni eru Reykjavíkurmeistarar Þróttar í kariaflokki, efri röð frá vinstri: Guðmundur E.
Pálsson þjálfari og leikmaður, Einar Hilmarsson, Sveinn Hreinsson, Baldur Tumi Baldursson, Jason ívarsson. Fremri röð: Skúli Unnar
Sveinsson, Gunnar Árnason, Lárentsínus Ágústsson, Jón Árnason og Leifur Harðarson fyrirliði.
NT-mynd Samúcl Örn
Kópavogshlaup
■ Kópavogshlaupið
verður háð klukkan 11.00
á laugardag. Hlaupið
verður frá Kópavogsvelli.
Skráð verður á staðnum
og þátttökugjöld kr. 50,-
innheimt. Keppt verður í
þremur flokkum, karla
(7 km), kvenna (3 km) og
drengja (4 km). Þeir sem
ætla að vera með athugi
breytta tímasetningu.
1. deild karla í handknattleik:
Stjarnan sterkari
sigraði Þór í Eyjum 24-19 í gærkvöld
maðurinn í liði Stjörnunnar í
þessum leik, og skoraði
Snjóleysið
til trafala
■ Snjóleysi hefur gert skipu-
leggjendum heimsbikarkeppn-
innar í Alpagreinum skíða-
íþrótta gramt í geði það sem af
er vetrar. Lítið hefur snjóað á
lykistöðum í dagskrá keppn-
innar, og nú er hver keppnin
af annarri færð til bæði í tíma
og rúmi.
Þannig hefur mót í Kranjska
Gora í Júgóslavíu 15. des.
verið fært fram um einn dag og
til Madonna di Campiglio á
Ítalíu, og keppni í Santa Cater-
ina á Ítalíu 13. des. verið færð
aftur um eina viku. Að sögn
talsmanna Alþjóðaskíðasamb-
andsins mun verða tekin
ákvörðun síðar um tilfærslu á
keppnum á milli jóla og nýárs,
ef með þarf.
Frá Sigfúsi G. Guðmundssyni frétta-
manni NT í Vestmannaeyjum:
■ Stjarnan var sterkari í
viðureign sinni við Þór hér í
Vestmanneyjum í gærkvöld.
Garðbæingarnir náðu fimm
marka forskoti um miðjan fyrri
hálfleik og héldu því að mestu
til loka.
Stjarnan byrjaði strax betur,
hafði 3-1 yfir eftir 5 mínútna
leik, um miðjan hálfleik var
staðan 6-3. Staðan 12-7 í hálf-
leik. Þórarar byrjuðu síðari
hálfleikinn vel og staðan 10-12
eftir fimm mínútur. Þannig var
bilið fram í miðjan hálfleik, þá
14-16, en Stjörnumenn tóku
þá mikinn kipp um leið og
ekkert gekk upp hjá Þórurum.
Staðan breyttist á átta mínút-
um úr 14-16 í 14-21, og eftir
það var ekki að sökum að
spyrja. Þórarar klóruðu aðeins
í bakkann í lokin og úrslitin
19-24.
Hannes Leifsson var aðal-
grimmt. Hann skoraði alls 7
mörk, Magnús Teitsson var
einnig atkvæðamikill, skoraði
5 mörk. Eyjólfur Bragason
skoraði 4, Hermundur Sig-
mundsson 3, Sigurjón Guð-
mundsson 2, Gunnlaugur,
Ingimar og Guðmundur Þórð-
ar 1 hver.
Sigurbjörn Óskarsson var
duglegastur Þórara í leiknum
og markahæstur með 7 mörk.
Herbert Þorleifsson skoraði 4,
Gylfi Birgisson 3, Óskar Freyr
Brynjarsson 2, Steinar Tómas-
son 2 og Elías Bjarnhéðinsson
1.
Brynjar Kvaran var all sterk-
ur í marki Stjörnunnar og
varði 14 skot alls, Sigmar
Þröstur í marki Þórs varði 9
skot.
Austurríki:
Nýr landsliðsþjálfari
■ Branko Elsner, 55 ára
Júgóslavi, hefur veriö ráð-
inn þjálfari austurríska
landsliösins í knattspyrnu.
Hann tekur við af Erich
Hof, sem sagði af sér í
síðasta mánuði.
Elsner er skólastjóri
íþróttaháskóla í Ljubljana
í Júgóslavíu. Hann hefur
þegar ráðið Gustav Starek,
39 ' ára Austurríkismann,
fyrrum leikmann með Ba-
yern Múnchen, sem að-
stoðarmann sinn.
UEFA-keppnin í gær:
Músíkalska
Fækkun hjá
austanliðum
■ Eitthvað fækkaði „Járntjaldsliðun- Mihajlovic og Nikic. Þessi stórsigur
um“ eftir leikina í UEFA-keppninni í Zeljeznicar dugar þeim til að komast í
gær. Mest var þetta vegna innbyrðis 8 liða úrslitin þrátt fyrir að hafa tapað
leikja. Þannig spiluðu Dynamo Minsk fyrri leiknum 2-0. Samanlagður sigur
frá Sovét og Widzew Lodz frá Póllandi þeirra er 4-2.
í Tíbilisi í Sovét. Leiknum lauk með Videoton frá Ungverjalandi sló Par-
sigri Lodz sem gerði eina mark leiksins. tizan Belgrad frá Júgóslavíu samanlagt
Það var Darius Dzekanowski sem skor- 5-2. Partizan vann 2-0 í Belgrad í gær,
aði þetta mark úr vítaspyrnu strax á 10. en það dugði ekki gegn 5-0 heimasigri
mínútu. Ungverjanna.
Ekki nægði þetta Lodz þó til að Þá rúlluðu Bohemians frá Prag í
komast áfram þar sem Minsk vann fyrri Tékkó út úr keppninni eftir að hafa
leik liðanna 2-0 og því samanlagt 2-1. aðeins náð jöfnu við Tottenham á heima-
í Sarajevo í Júgóslavíu spiluðu Zelj- velli sínum, 1-1. Tottenham vann fyrri
eznicar og Universitatea Craiova frá leik liðanna 2-0 í London.
Rúmeníu og lauk þeim leik með stór- Loks varleikurKölnfrá V-Þýskalandi
sigri heimamannna 4-0. Á skotskónum og Spartak frá Moskvu. en um hann er
í þessum leik voru Skoror. Samardzija, fjallað á baksíðu.
NÝ ÍSLENSK BARNABÓK
Þóranna Gröndal
músin
Músíkalska músin eftir Þórönnu Gröndal fékk viður-
kenningu samtaka móðurmálskennara í samkeppni
um smásögur fyrir börn í fyrra.
Skemmtileg saga um litla mús sem settist aö í píanói og
spaugileg atvik sem af því hlutust.
Letur sem hæfir vel þeim sem eru aö byrja aö lesa.
Margrét Magnúsdóttir myndlistarnemi myndskreytti bók-
ina.
Stórar litríkar myndir í hverri opnu.
Verð kr. 370.50.-
Þessa bók er gaman að gefa í jólagjöf
og fá í jólagjöf.
(jdgofál
Unuhúsi við Veghúsastíg 5, sími 16837