NT - 09.01.1985, Síða 5
Fulltrúar Suðurfjarða á Austurlandi:
Eyðing vargfugls og
meindýra í ólestri
- aðeins einn maður má fara með svæfingalyf og til hans næst sjaldan
■ Mikillar óánægju gætti hjá
fulltrúum sveitarfélaga á Suður-
fjörðum á Austurlandi um eyð-
ingu vargfugls og meindýra á
svæðinu, á samstarfsfundi sem
haldinn var að Staðarborg í
Breiðdal nokkru fyrir áramót.
Það voru fulltrúar Búða-,
Fáskrúðsfjarðar-, Stöðvarfjarð-
ar-, Breiðdals-, Berunes- og
Búlandshrepps sem þarna komu
saman og lýsti Hafþór Guð-
mundsson, sem hafði framsögu,
því yfir að ástand þessara mála
væri engan veginn nægilega
gott. Benti hann á að aðeins
einn maður á Austurlandi, Páll
Leifsson, hefði leyfi til að fara
með svæfingarlyf fyrir vargfugl,
en oft er erfitt að ná í hann enda
einnig atvinnuskytta landsins og
því á þeysingi út um allt.
Höfðu fundarmenn áhyggjur
af uppgangi vargfugls og töldu
nauðsyn að fjölga þeim mönn-
um sem hafa leyfi til að svæfa
vargfugl. Ennfremurhvetja þeir
til þess að settar verði strangar
reglur um meðferð úrgangs, en
víða á fuglinn auðvelt með að
komast í æti, fiskúrgang, og
sorp.
Einnig var fjallað um sam-
■göngumál þessara byggðarlaga
og er skorað á hlutaðeigandi
aðila að gera ítarlega áætlun hið
fyrsta um vetrarsamgöngur á
landi milli Hafnar í Hornafirði
og Neskaupstaðar. Skuli stefnt
að því frá og með næsta vetri að
halda uppi reglubundnum áætl-
unarferðunt a.nt.k. einu sinni í
viku, á þessari leið og tengja þar
öðrum áætlunarferðum beggja
megin frá.
Pá er undirstrikað að vöru-
flutningar Skipaútgerðar ríkis-
ins séu mikilvæg og ómissandi
þjónusta fyrir byggðarlögin og
skorað á umboðsaðila að koma
sem fyrst upp viðunandi geymsl-
um og afgreiðsluhúsnæði fyrir
þessa starfsemi.
Fundurinn var sammála um
að móta þyrfti heildaráætlun
um flugsamgöngur, sern þjóni
svæðinu með einum stórum
tlugvelli ásamt öðrum ntinni
völlum vel búnum.
Tungl
spillir
veiði
■ Loðnuflotinn þokast
nú á miðin eftir jólafrí en
margir sem lítið eiga eftir
af kvóta sjá ekki ástæðu til
að flýta sér. Fyrir síöustu
helgi höfðu aðeins 4 skip
landað og í fyrrinótt til-
kynntu fjögur um full-
fermi og héldu í átt til
lands. Slæm skilyrði hafa
verið til að veiða því bjart
er af tungli um nætur.
Pegar þannig stendur á
heldur loðnan sig dýpra
og torveldar það veiði.
Andrés Finnbogason
hjá Loðnunefnd kvaðst í
samtali við NT ætla að
langt innan við helmingur
flotans væri kominn á
miðin. Margir eru á leið-
inni en sumir þeir sem
ekki eiga nema einn til tvo
túra eftir bíða átekta.
Ný handbók
í stærðfræði
■ Út er komin ný stærð-
fræðihandbók hjá Erni og
Örlygi.
Bókin er ætluð kennur-
um og nemendum, og ekki
síst foreldrum sem vilja
hjálpa börnum sínum við
heimadæmin en hafa veigr-
að sér við því vegna breyt-
inga á framsetningu og inni-
haldi á námsnefni grunn-
skólanna.
Efni bókarinnar skiptist í þrjá
meginþætti: 1) Breytingatíma-
bil - orsakir og afleiðing, 2)
Stærðfræðinám - fyrstu bekkir
grunnskólans, 3) Stærðfræði-
hugtök.
Bókin er unnin í prentsmiðj-
unni Odda hf.
Skipað í
bankaráð
■ Viðskiptaráðherra
hefur Iokið við að skipa
formenn bankaráðanna.
Formaður bankaráðs
Landsbankans er Pétur
Sigurðsson alþingismað-
ur, og Kristinn Finnboga-
son framkvæmdastjóri
varaformaður.
Valdimar Indriðason,
alþingismaður, er formað-
ur bankaráðs Útvegsbank-
ans og Jóhann Einvarðs-
son varaformaður.
Stefán Valgeirsson, al-
þingismaður, er skipaður
formaður bankaráðs Bún-
aðarbankans og Friðjón
Þórðarson, alþingismaður
varaformaður.
Pessar skipanir gilda all-
ar til fjögurra næstu ára.
Sumarvinna á
Norðurlöndum
Mikill áhugi fyrir íslandi í norrænum vinnuskiptum
■ Langar þig í sumarvinnu á Norðuriöndunum? Ef þú
ert á bilinu 18 til 25 ára og átt fyrir farinu, gæti þessi
draumur sem best orðið að veruleika. í sumar lítur
nefnilega dagsins ljós nýr angi norrænnar samvinnu sem
felst í því að ungu fólki gefst kostur á að vinna
sumarvinnuna utan heimalandsins.
Pessi vinnuskipti eru árangur-
inn af starfi samnorrænnar
nefndar sem forsætisráðherrar
Norðurlandanna komu á fót í
fyrra. Alls er gert ráð fyrir að
hátt í 2000 manns muni fá
sumarvinnu utan heimalandsins
með þessu móti. Að sögn Agn-
etu Björklund, hjá sænska ráð-
gjafafyrirtækinu Samhállsrádet,
sem nú er stödd hérlendis til að
vinna að framgangi málsins, er
stefnt að því að 200 ungir íslend-
ingar fari utan í sumar og jafn-
margir Norðurlandabúar komi
hingað í staðinn. Agneta sagði
ástæðuna fyrir þessu háa hlut-
falli íslands vera aðíkönnun-
um sem gerðar hefðu verið úti.
hefði komið í Ijós mikill áhugi
fyrir íslandi og væri mjög al-
gengt að ungmenni nefndu ís-
land sem fyrsta valkost.
Agneta kvað vafasamt að
hægt yrði að ná þessu marki, en
það færi þó eftir undirtektum
íslenskra fyrirtækja. Hún sagð-
ist þó vonast til að 100-150 væri
raunhæf tala í þessu sambandi.
Nokkur íslensk fyrirtæki hafa
þegar boðið fram störf handa
norrænum ungmennum. M.a
munu SÍS og kaupfélögin taka
við 35-40 ungmennum í sumar-
vinnu.
Agneta Björkiund sagði
ferðakostnaðinn vera nokkurt
vandamál þegar um ferðir til og
frá Islandi væri að ræða cn um
þessar mundir væri verið að
athuga hversu mikið væri hægt
að lækka hann. Ekki væri þó
unnt að greiða niöur ferða-
kostnaðinn þar eð ekki hefði
verið veitt neinu fjármagni til
þessara aðgerða.
Flest þau störf sem í boði eru
á Norðurlöndunum standa frá
því í byrjun júní og út ágúst.
Vissar undantekningar eru þó á
þessu og í sumurn tilvikum verð-
ur unnið fram í september.
Pau störf sem íslendingum
bjóðast ytra í sumar eru af
ýmsum toga. Töluvert verður
um vinnu við ýmiss konar iðnað
en einnig verður hægt að velja
um störf við verslun og þjón-
ustustörf.
Launin fara eftir samningum
í hverju landi. Upplýsingabækl-
ingi og umsóknareyðublöðum
verður dreift í skólum á mennta-
skóla- og háskólastigi og á ís-
landi munu þau liggja frammi á
fleiri stöðum, m.a. í Norræna
húsinu í Reykjavík.
■ Janúar í Hljómskálanum.
NT-mynd: Anii Bjarna
■ Agneta Björklund meö bæklinginn, „Nordjobb 85“ sem dreift
erður í 50.000 eintökum um öll Noröurlönd.
Nýtt fyrirtæki á Akranesi:
Framleiðir lása
á lyfjaskápa
■ Nýtt fyrirtæki, Akropolis
á Akranesi, mun brátt hefja
framleidslu á öryggislæsing-
um Jóhannesar Pálssonar,
uppfínningamanns, sem ætl-
aðar eru á skápa undir lyf og
hættuleg efni.
Slysatíðni ungbarna vegna
eitrana er óeðlilega há, eða
um 11% allra heimaslysa
barna á aldrinum 0-4 ára
(skv. skýrslum slysadeildar
Borgarspítalans.)
Uppfinning Jóhannesar
hefur vakið mikla athygli er-
lendis og hefur hann aflað
sér einkaleyfa á henni í
mörgum löndum.
Helstu hluthafar í Akro-
polis hf. eru: Akraneskaup-
staður, Samtök sveitarfélaga
á Vesturlandi, Stefán Thor-
arensen hf., Reykjavík,
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á
Akranesi og nágrenni,
S.I.B.S. deildin Akranesi,
Akranesdeild Rauða kross
íslands, ásamt nokkrum ein-
staklingum.
Akropolis hf. hefur gert
samning við verndaðan
vinnustað á Vesturlandi, sem
áætlað er að hefji framleiðslu
læsinganna um mitt ár.