NT - 18.01.1985, Síða 9

NT - 18.01.1985, Síða 9
Annar hver ölvaður öku- maður hátt yfir mörkunum ■ Umþaðbilhelmingurallra þeirra sem teknir voru, grun- aðir um ölvun við akstur reyndust vera himinhátt yfir leyfilegum mörkum. Tíundi hver slapp með skrekkinn, þar eð áfengismagn í blóðinu var undir 0,5%o. Þessar upplýsingar er m.a. að finna í nýútkominni bók eftir dr. Þorkel Jóhannesson um vímugjafa o.fl. sem ber heitið Lyfjafræði miðtauga- kerfisins. Þess eru jafnvel þó nokkur dæmi að menn hafi verið teknir akandi með yrir 3%o í blóðinu en þá er komið upp undir þau mörk að menn fara að geta átt von á banvænni áfengiseitrun. Hætta á banvænni eitrun er talin vera fyrir hendi þegar áfengisinnihald blóðsins er komið yfir 3,5%o og ef áfengis- magnið fer yfir 5%o er sjaldgæft að menn lifi af. Samkvæmt skilgreiningu umferðalaga, telst sá ekki fær um að stjórna ökutæki af fullu öryggi sem hefur meira en 0,5%o af alkóhóli í blóðinu. Dr, ix«k<'!l jóHannossort LYFJAFRÆÐI tlÐTAUGAKERFISlNÍ NOKKRIR HÖFUÐDRÆTTIR HELSTU VÍMUG)AFAR MmnunwUráVmi’vli'' 'hblvt' Þegar áfengismagnið er komið upp í 1,2%o telst maðurinn hins vegar alls kostar ófær um að stjórna ökutæki. Áfengi sem lyf Dr. Þorkell telur í bók sinni að áfengi sé í sjálfu sér nothæft sem róandi, svefn-, og verkja- deyfandi lyf. Sé miðað við 70 kg líkamsþyngd og fastandi maga, telur hann mega áætla að 2-4 barskammta þurfi til að ná fram róandi verkun og 3-6 barskammta til að ná svefn- verkun. Séu þessar tölur yfirfærðar í prómill, næst róandi verkun við 0,4-0,7%o en svefnverkun við 0,7-1,2%o. Auk þess bendir dr. Þorkell á að þegar áfengis- magn í blóðinu sé komið í ca l%o hafi það í för með sér umtalsverð verkjadeyfandi áhrif. Sé áfengi notað sem lyf eiga skammtarnir sem sagt ekki að fara yfir l,2%o. Sá galli er þó á notkun áfengis sem lyts, að sögn dr. Þorkels, að mönnum er í sjálfsvald sett hve stóra skammta þeir nota og hversu oft. þar eð lyfseðils er ekki krafist þegar þetta lyf er keypt. svo sem gildir um lyf sem hafa hliðstæðar verkanir. Bókin, Lyfjafræði mið- taugakerfisins, er nær 200 bls. að lengd og á bókarkápu segir að hún sé í senn grunntexti handa háskólastúdentum og uppsláttarrit handa framhalds- skólanemendum og öðrum. í bókinni er fyrst og fremst lýst verkunum ýmissa lyfja og efna á miðtaugakerfið en einnig er verulegu rúmi varið í að fjalla um misnotkun lyfja og annarra ávana- og fíkni- efna. ■ Ökuskírteinið í lagi. - Þá er það blaðran, Ijúfurinn! Afgreiðslutími lyfjabúða utan Reykjavíkur Seltjarnarnes Afgreiðslutími Kl. Nesapótek Mánudaga-föstudaga 9-19 Mosfellssveit Laugardaga 10-12 Mosfells Apótek Mánudaga-föstudaga 9-18:30 Kópavogur Laugardaga 9-12 Apótek Kópavogs Mánudaga-föstudaga 9-19 Hafnarfjörður Hafnarfjarðar Apótek og Laugardaga 9-12 Apótek Norðurbæjar Auk framangreinds almenns afgreiðslutíma skulu 1 yfjabúðirnar vera opnar til skiptis eina viku ísennumhelgarogá almennum frídögum sem Mánudaga-föstudaga 9-18:30 hérsegir: Laugardaga 10-13 Keflavík Helgid. og alm. frídaga 10-12 Apótek Keflavíkur Mánudaga-föstudaga 9-19 Grindavík Laugard., helgid. og alm. frídaga 10-12 Apótek Grindavíkur Akranes Mánudaga-föstudaga 9-12:30 og 14-18 Akraness Apótek Mánudaga-föstudaga 9-18:30 Laugardaga 10-13 Borgarnes Sunnudaga og aðra helgid. 13-14 Borgarness Apótek Stykkishólmur Mánudaga-föstudaga 9:30-18 Stykkishólms Apótek Patreksfjörður Mánudaga-föstudaga 9-12:15 og 13:15-18 Patreks Apótek Isafjörður Mánudaga-föstudaga 10-12 og 13:15-18 ísafjarðar Apótek Mánudaga-föstudaga 9-18 Blönduós Laugardaga 11-12 Blönduóss Apótek Mánudaga-föstudaga 9-12 og 13:30-18 Sauðárkróks Apótek Sigluljörður Mánudaga-föstudaga 9-12 og 13-18 Siglufjarðar Apótek Mánudaga-föstudaga 9-12 og 13:30-18 Afgreiðslutími Kl. Dalvík Dalvíkur Apótek Mánudaga-föstudaga 9-12 og 13:15-18 Akureyri Akureyrar Apótek og Mánudaga-fimmtudaga 9-18 Stjörnu Apótek Föstudaga 9-19 Auk framangreinds almenns afgreiðslutíma skulu lyfjabúðirnar vera opnar til skiptis eina viku ísenn,sem hérsegir: Mánudaga-föstudaga 18-19 Laugard.,helgid.og 11-12 og alm.frídaga 20-21 Húsavík Húsavíkur Apótek Mánudaga-föstudaga 9-12 og 13-18 Laugardaga 9-12 Egilsstaðir Egilsstaða Apótek Mánudaga-föstudaga 10-12 og 13:30-18 Laugardaga 10-12 Seyðisfjörður Apótek Austurlands Mánudaga-föstudaga 10-12 og 14-18 Laugardaga 10-12 Neskaupstaður Nes Apótek Mánudaga-fimmtudaga 9-12 og 13-18 föstudaga 9-12 og 13-18:45 Höfn, Hornafirði Hafnar Apótek Mánudaga-föstudaga 9-12 og 13:30-18 Vestmannaeyjar Apótek Vestmannaeyja Mánudaga-föstudaga 8:45-12:30 og 14-18 Hella Rangár Apótek Mánudaga-föstudaga 9:15-12:15 ogl4-17:30 Selfoss Selfoss Apótek Mánudaga-föstudaga 9-18:30 Laugardaga, sunnudaga 10-12 Hveragerði Ölfus Apótek Mánudaga-fimmtudaga 9-12og 13-18 Föstudaga 9-12 og 13-18:30 Laugardaga 10-12 25 ■ Á þessu súluriti, sem tekið er úr bók dr. Þorkels Jóhannesson- ar, Lyfjafræði miðtaugakerfisins, sést að um helmingur þeirra sem teknir voru vegna ölvunar við akstur á árunum 1973-1982, höfðu yfir l,5%o af alkóhóli í blóðinu. Þetta er vel yfir þeim mörkum, sem samkvæmt umferðalögum gera menn með öllu ófæra um að aka bíl. Alls voru á þessu tíu ára tímabili tekin 24.000 blóðsýni sem jafngildir því að meira en eitt og hálft prósent allra íslendinga á bílprófsaldri hafi verið grunaður um ölvunarakstur á ári hverju á þessu tímabili. Eins og fremsta súlan sýnir reyndust þó um 10% hinna grunuðu vera undir leyfilegum mörkum. Þú verður fyllri á fastandi maga! ■ Það er eins gott að fá sér vel að borða, áður en farið er á barinn. Þ.e.a.s. ef ekki er stefnt að því að verða ósjálf- bjarga af völdum ölvunar á tiltölulega skömmum tíma. Súluritið sýnir niðurstöður tilraunar sem gerð var á fjórum mönnum. Svörtu súlurnarsýna áfengismagn í blóði þeirra sem höfðu borðað staðgóðan mat einni og hálfri klst. áður en tilraunin hófst en hvítu súlurn- ar sýna hins vegar hversu mikið áfengismagn mældist í blóði hínna, sem svolgruðu í sig veigarnar á fastandi maga. Til þess að ekkert færi á rriiili mála, var tilraunin gerð tvisvar með viku millibili og í síðara sinnið var skipt um hlutverk, þannig að þeir sem drukkið höfðu á fastandi maga í fyrra skiptið voru nú saddir og öfugt. Varla þarf að taka fram að þeir fjórir menn sem tilraunin var gerð á, drukku allir sama magn og á jafnlöngum tíma. Eins og sjá má á súluritinu, sem tekið er úr nýútkominni bók dr. Þorkels Jóhannesson- ar, Lyfjafræði miðtaugakerfis- ins, er munurinn talsvert mikill og í vissum tilfellum allt að því tvöfalt rneira magn sem mælist í blóði þess sem drekkur á fastandi maga og því vissara að næra sig vel áður en sest er að sumbli - nema náttúrlega að þú sért að spara...

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.