NT - 10.07.1985, Síða 1
_
1
—
NEWS SUMMARYINENGLISH SEEP.20
Ólafur Laufdal:
Nýtt hótel og
skemmtistaður
■ Skipulagsnefnd Reykja-
víkurborgar samþykkti á
fundi í gær teikningar að
nýju hóteli og skemmti-
stað við Ármúla í Reykja-
vík.
Það er Ólafur Laufdal
veitingamaður og eigandi
skemmtistaðanna Broad-
way og Hollywood sem
hyggst byggja hið nýja
hótel. Að sögn Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar for-
manns skipulagsnefndar
er þar gert ráð fyrir um
3500 fermetra gólffleti.
Málið á eftir að fara fyrir
bygginganefnd og borgar-
I ráð.
Laxeldi í fersku vatni á Tálknafirði:
Stúdentar ráða
Slátra siö tonnum af sér lö9,ræðins
mB ® íbúar Hjónagarda Félags- ákveöinni leiguupphæö sem er
' ■ stofnunar stúrlenta hafa, aft 4400 kr. fvrir maí no S?W) Irr
3ja ára laxi í haust
■ Fiskeldisstöð á Tálknafirði
muni í haust slátra allt að 7 tonn-
um af laxi, að meðaltali 9 til 10
pund að stærð, sem alinn hefur
verið þrjú ár í fersku vatni.
Þegar hefur tonni verið slátrað
í stöðinni og var það selt til
Bandaríkjanna fyrir rúmlega
300 þúsund krónur.
„Ókkur hérna fyrir vestan
þykir það nokkuð einkennilegt
að verið sé að styrkja stöðvar
fyrir sunnan til þess að gera
tilraunir með laxeldi í ferskvatni
meðan við höfum sýnt og sann-
að að þetta er hægt. Laxinn frá
okkur líkaði mjög vel vestur í
Bandaríkjunúm,“ sagði Björg-
vin Sigurjónsson, einn eigenda
fiskeldisstöðvarinnar, í samtali
við NT í gær.
Björgvin sagði að heimamenn
hefðu þróað aðferðina við eldið
algjörlega sjálfir og ekki leitað
til neinna sérfræðinga. Þeir not-,
uðu 23 gráðu heitt vatn sem
kæmi upp úr volgrum innarlega
í firðinum og blönduðu það
venjulegu vatni og gætu með
því móti haldið 10-13 gráðu
meðalhita á kerjunum allan árs-
ins hring. „Þetta gefur okkur
möguleika á að slátra laxinum
jafnt og þétt allan ársins hring
og senda hann ferskan á markað
meðan Norðmennirnir til
dæmis, sem aðallega stunda sjó-
eldi, þurfa að slátra öllum sínum
á haustin. Ég er sannfærður um
að við getum sinnt markaðnum
mun betur en þeir,“ sagði
Björgvin.
Hann sagði að frá því að farið
var að stað, fyrir um fjórum
árum, hefði fyrirtækið fengið 2
milljónir króna að láni frá
Byggðasjóði og Famkvæmda-
stofnun, en að öðru leyti hefðu
eigendur fyrirtækisins, sem eru
sjö heimamenn á Tálknafirði,
fjármagnað allar framkvæmdir
og rekstur. Hafa eigendurnir
fengið hrogn úr Kollafjarðar-
stöðinni og klakað þeim út
sjálfir.
Björgvin sagði að draumur-
inn væri að framleiða 60 tonn á
ári, sem þýðir á núverði rúmlega
18 milljóna útflutningsverð-
mæti. „Ég held að það sé heppi-
legra að hafa þetta lítið og
viðráðanlegt," sagði Björgvin.
Hann sagði að það ylti mikið á
fyrirgreiðslu hve langt yrði í og
hvort yfirleitt yrði hægt að ná
þeirri stærð.
Loks sagði Björgvin það ekk-
ert vandamál að koma fiskinum
á markað. Hann gæti verið kom-
inn á borð Bandaríkjamanna
innan tveggja sólarhringa frá
því að honum er slátrað.
Stærsti laxinn sem slátrað hef-
ur verið í stöðinni var tæp 13
pund eftir þriggja ára eldi.
Hólmavík:
íbúar Hjónagarða Félags-
stofnunar stúdenta hafa, að
höfðu samráði við Leigjenda-
samtökin, ráðið sér lögfræðing
og veitt honum heimild til að
koma fram fyrir sína hönd í
deilum ibúa garðanna og
stjórnar Félagsstofnunar um
húsaleigu, en stjórn Félags-
stofnunar gaf, í gær, íbúunum
vikufrest til að greiða van-
goldna leigurcikninga, ella yrði
æskt útburðarheimildar.
í ályktun sem fundur leigj-
endanna samþykkti í gær, segir
að deilan snúist um leigugrunn
eingöngu en ekki leiguupphæð
og að íbúarnir séu ekki að fara
fram á að aðrir stúdentar greiði
niður leiguna fyrir þá.
Arsæll Harðarson, fram-
kvæmdastjóri FS, sagði NT í
að ekki yrði vikið frá
gær
ákveðinni leiguupphæð sem er
4400 kr. fyrir maí, og 5280 kr.
fyrir júní-ágúst, en stjórn Stúd-
entaráðs fundaði um málið í
fyrrakvöld og lýsti þar yfir
stuðningi við þá viðlcitni F.S.
að reka Hjónagarðana halla-
lausa og hafa íbúar garðanna
tekið undir það atriði, en ágr-
einingur er um leigugrunn og
reikningsaðferðir leiguupp-
hæða.
Eins og fram hefur komið í
NT telja Leigjendasamtökin
ólöglega staðið að uppsögnun-
um, þar sem þeir sem búið hafa
lengur en ár, fá ekki 6 mánaða
uppsagnarfrest eins og kveðið
er á um í húsaleigulögunum.
Ársæll sagði það rétt vera og
sagði það fólk geta krafist rétt-
ar síns og fengið að vera fram
að næstu fardögum, enda hafi
húsaleiga verið greidd.
Tveir menn kærðir ffyrir
að nauðga 15 ára stúlku
fluttiftil
imidtii
■ Tveir menn, annar fimm-
tugur en hinn á fertugsaldri, eru
nú í yfirheyrslum hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins, ákærðir fyrir
að nauðga fimmtán ára gamalli
stúlku sl. sunnudagskvöld á
Hólmavík.
Sýslumaðurinn í Stranda-
sýslu, Ríkharður Másson, hefur
úrskurðað mennina báða í 7
daga gæsluvaröhald.
Mennirnir munu hafa verið á
heimili annars mannsins við
gleðskap og boðið stúlkunni
með sér. Áfengi mun hafa verið
haft um hönd en málsatvik eru
ekki fyllilega Ijós, nema hvað
stúlkan hefur kært mennina
báða fyrir að hafa nauðgað sér.
Rannsóknarlögreglan fór
norður í fyrrinótt og kom til
Reykjavíkur með þá í gær-
kveldi.
Kæran í málinu er byggð á
194. grein almennra hegningar-
laga sem lýtur að því þegar
konu er þröngvað til holdlegs
samræðis með ofbeldi eða frels-
issviptingu, en rannsókn lög-
reglunnar mun miða við 200.
grein hegningarlaganna, en þar
segir: „Hver, sem tælir stúlku-
barn, sem er á aldursskeiði frá
14-16 ára, til samræðis, skal
sæta fangelsi allt að 4 árum.“
Mennirnir eru aðkomumenn
á Hólmavík og hafa ekki svo
vitað sé komið við sögu lögreglu
áður.
Banaslys
■ Einn maður lést og sex
slösuðust, þar af cinn alvar-
lega, í hörðum árekstri
tveggja bíla á Suðurlands-
vcgi móts við Sandskeið,
seint í gærkveldi.
Slysið varð með þcim
hætti að bíl var ekið í austur-
átt og var hann með Willys
jeppa í togi. Jeppinn fór yfir
á vitlausan vegarlielming og
hafnaði þar á Buick bíl sein
var á vesturleið.
Aftursætisfarþegi í Buick
hifreiðinni lést og ökumaður
hennar slasaðist mikið í and-
liti og á brjósti. Hann var
lagður á gjörgæsludeild.
Aörir farþegar Buick hif-
reiðarinnar 4 að tölu og
ökumaður Willis jeppans
voru einnig iluttir á sjúkra-
hús, en itiinna slasaðir.
Maðurinn sem lést í slys-
inu var 40 ára gamall.
IVT-niynd: Sverrir
Fannst látinn
í Bláa lóninu
■ Sjötíu og sex ára gamall
Norðmaður fannst látinn í
Bláa lóninu laust fyrir hádegi í
gær.
Maðurinn gekk til baðs um
klukkan 10 í gærmorgun og
fannst rúmum hálftíma síðar,
þar sem gengið er í lónið frá
búningsklefunum.
Ekki er vitað hvort maður-
inn drukknaði eða hvort hann
hafi orðið bráðkvaddur.
Maðurinn var hér einn á
ferð og hefur dvalið við Bláa
lónið frá síðustu mánaðamót-
um.