NT - 11.09.1985, Blaðsíða 11
fíir p Miðvikudagur 11. september 1985 11
LlI Að utan
Kosningabaráttan í Svíþjóð í hámarki:
Þeir sem enn hafa ekki gert
upp hug sinn ráða úrsiitum
■ Nú er síðasta vika sænsku
kosningabaráttunnar, en þing-
kosningar ásamt bæjar- og sveit-
arstjórnarkosningum munu fara
fram 15. september n.k. Úrslit
kosninganna eru enn með öllu
óljós; þó svo að síðustu skoð-
anakannanir meðal kjósenda
hafi sýnt fram á öflúga stöðu
sósíalista. En sennilega mun
jafnaðarmannastjórn eiga erfitt
með að stjórna einsömul án
þátttöku og stuðnings VPK.
kommúnistaflokksins, sem nýt-
ur stuðnings u.þ.b 5-6% kjós-
enda.
Fylgi flokkanna breytist ört
frá degi til dags. í vor var fylgi
borgaralegu flokkanna mikið,
en fyrir tveimur mánuðum náði
fylgi jafnaðarmanna yfirhönd-
inni með mörgum prósentum,
en síðan hefur fylgi þeirra held-
ur dalað. Kosningabaráttan ein-
kennist nú af meiri háværð,
áreitni, yfirborðsmennsku og
skoðanaágreiningi en áður.
Tveir stærstu flokkarnir, jafnað-
armenn (ca.45%) og móderatar
(ca 28%) eru forystuflokkarnir
í kosningaumræðunum en
minni flokkarnir Folkpartiet
(frjálslyndir), Centerpartiet
(bændaflokkur) og VPK
(kommúnistar) reka lestina. Með
í leiknum eru einnig KDS
(kristilegir demokratar) sem
með útsjónarsömu kosninga-
samstarfi með Centerpartiet
tekst nú í fyrsta skipti að öllum
líkindum að eignast fulltrúa í
Riksdagen.
■ Olof Palme.
Smáflokkunum reynist erfitt
og nánast ókleift að komast að
á þingi þ.e.takmarkanir miðast
við að 4% kjósenda greiði við-
komandi flokki atkvæði. KDS
hefur á síðustu árum fengið
u.þ.b. 1,5% af atkvæðum, sem
hafa því ekki einu sinni koipið
borgaralegu flokkunum að not-
um þó svo að KDS alltaf hafi
tilheyrt hópi borgaralegra.
Annar lítill flokkur, sem segir
sig óháðan flokkapólitíkinni er
Miljöpartiet de Gröna (um-
hverfisflokkur hinna grænu).
Forystumenn flokksins skipta
ört með sér forystunni og mál-
efni flokksins eru fyrst og fremst
umhverfismál og náttúruvernd.
Því reynist þeim erfitt að full-
vissa kjósendur um hæfni sína í
meðhöndlun annarra mála sem
tekin eru fyrir á þingi. Margir
kjósendur sern styðja málefni
flokksins velja þó á síðustu
stundu að veita einhverjum
meirihlutaflokknum sem leggur
ríka áherslu á umhverfis- og
náttúruverndarmál, t.d. Cent-
erpartiet eða VPK atkvæði sitt.
í bæjarstjórnarkosningunum
komast þó fleiri smáflokkar að.
Stockholmspartiet hefurt.d. átt-
fulltrúa í borgarstjórn í fleiri ár.
Sá flokkur hefur m.a. á stefnu-
skrá sinni að koma á vega-
greiðslum á vissum stöðum í
borginni til að minnka umferð-
ina í miðborginni. Á Skáni er
Skánepartiet sem vill afnema
einokunarsölu á áfengi og gera
Svíþjóð að Natolandi.
Kosningaumræðurnar hafa
einkennst af efnahagspólitík-
inni. Jafnaðarmenn halda því
fram að Svíþjóð hafi á síðast-
liðnum þremur árum tekist að
endurreisa sig úr efnahags-
kreppunni sem borgaralegu
flokkarnir létu eftir sig við
stjórnarhvörf. Olof Palme segir
að Svíþjóð sé eina iðnaðarland-
ið sem tekist hafi að minnka
atvinnuleysið og samtímis hald-
ið verðbólgunni í skefjum.
Palme hreykir sér einnig af
auknum gróða sænska iðnaðar-
ins sem veitir fleiri möguleika til
hlutdeildar á heimsmarkaðn-
um. Sænska ríkisskuldin óx
undir forystu borgaralegu flokk-
anna úr 0 til 90 milljarða S.kr.
(450 milljarðar ísl. kr.) en hefur
á stjórnarárum jafnaðarmanna
minnkað í u.þ.b. 60 milljarða
S.kr. Sem slagorð hafa jafnaðar-
menn að þeim hafi tekist að
stemma stigu við efnahagshall-
anum og komið Svíþjóð aftur á
fætur án þess að ögra velferð-
inni: „Svíþjóð er á réttri leið."
. Andstæðingarnir í fyrsta lagi
móderatarnir halda því fram að
Svíþjóð sé að villast. Ef hinir
borgaralegu vinna kosningarnar
hafa þeir lofað umsvifalausu
afnámi launþegasjóðanna,
skattalækkunum og ennfremur
vilja þeir gefa einkaaðilum laus-
an tauminn við rekstur skóla og
dagheimila. Ulf Adelhson, for-
maður móderatanna segir að
uppleið sænska efnahagslífsins
að undanförnu eigi sínar orsakir
■ Frá Stokkhólmi.
í alþjóðlegri efnahagsvelferð og
ekki í aðgerðum jafnaðar-
manna. Adelhson styður allt
einkaframtak og vill minnka
■ Ulf Adelhson.
fjárhagsútlát ríkisins.
Palme telur þetta eingöngu
munu leiða til niðurrifs samfé-
lagslegra umbóta og því stafar
samfélaginu hætta af slíkum
hugmyndum. Slagorð móderat-
anna er: „Maður á að geta lifað
á sínum launum," og eiga við að
lækka beri skatta og samtímis
minnki styrkþarfir sem þjóðfé-
lagið fullnægir og að með því
móti verði hægt að minnka um-
svif hins opinbera. En margt
hefur gleymst í kosninga-
umræðunum eða lítið komið til
tals eins og t.d. er hljótt um
umræðu varnarmála þrátt fyrir
alla „mögulega" kafbáta.
Einnig hafa menningarmál og
aðstoð til vanþróaðra landa lítið
komið við sögu. Orkumál og
smám saman umsamið afnám
kjarnorkunnar ber einnig sjald-
an á góma. Öllum til undrunar
hefur umræðan um launþega-
sjóðina verið harla lágvær og
tillaga um afnám ríkiseinokun-
ar á sjónvarpi ásamt auglýsing-
um í útvarpi og sjónvarpi hefur
einnig haft hljótt um sig.
í staðinn stendur slagurinn
um hvort að jafnaðarmenn hafi
hugsað betur um cfnahagsmálin
á kjörtímabilinu en hinir borg-
aralegu gerðu á sínum sex árum
í stjórn. Flestir virðast vilja
greiða Palme atkvæði í þeim
efnum og hafa tilhneigingu til
þess að gleyma ýmsum „óþæg-
indurn" á s.l. árum. Kosninga-
umræðurnar fjalla einnig um
tvær andstæðar leiðir sent hægt
er að fara, þá sósíalisku eða
frjálsa markaðarins.
Palme telur að móderat-
arnir vilji fá umturnað stjórn-
kerfi í landinu en því vísar
Adelhson á bug með varfærni.
Og skipti á stjórnkerfi er tæp-
lega mögulegt því Svíþjóð er
land öflugra hreyfinga og verka-
lýðsfélaga sem hindra slíkar
breytingar auðveldlega.
Hingað til hefur lítill hiti
verið í kosningabaráttunni.
Sænskir blaðamenn skrifa það
sem stjórnmálaleiðtogarnir geta
hugsað sér að segja sjálfir.
Stjórnmálamennirnir misskilja
viljandi hverjir aðra og umræð-
urnar fara oftast út í bláinn.
Kjósendur fá þ.a.l. engar gagn-
legar upplýsingar. Sú slaka
meðferð sem kosningarnar fá í
fjölmiðlum hótar lýðræðinu
miklu meir en nokkurt prógram
pólitísku flokkanna inniheldur.
í dag virðist allt benda til þess
að Olof Palme verði forsætis-
ráðherra hinn 16. september.
En margt getur gerst í næstu
viku og fjöldi óvissra kjósenda
er óvenju stór í ár skv. niður-
stöðum skoðanakannanana.
Hinir óvissu kjósendur munu
greiða þeim flokki, sem gerir
bestan endasprettinn, atkvæði
sitt.
Guðrún Garðarsdóttir
Tilkynning til
launaskatts-
greiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á
því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina
júní og júlí er 15. september n.k. Sé launa-
skattur greiddur eftir eindaga skal greiða
dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er,
talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
(tffórfompAjúkraliíiAix)
.yieikflujulab
Sjúkraþjálfarar,
hjúkrunar-
fræðingar
Sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræðinga vantar
að Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað.
Húsnæði fyrir hendi. Góð vinnuskilyrði. Upp-
lýsingar gefa forstöðumaður í símum 97-
7402 og 97-7565 og hjúkrunarforstjóri í síma
97-7403.
Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað
Þingeyingar
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og
Guömundur Bjarnason, halda almenna stjórnmálafundi sem
hér segir:
Föstudaginn 20. sept. kl. 21.00 Kópasker.
Laugardaginn 21. sept. kl. 16.00 Þórshöfn.
Sunnudaginn 22. sept. kl. 16.00 Raufarhöfn.
Mánudaginn 23. sept. kl. 21.00 Félagsheimilinu Húsavík.
Þriöjudaginn 24. sept. kl. 21.00 Skjólbrekku Mývatnssveit.
Framsóknarflokkurinn
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
Sigríður Emilía Bergsteinsdóttir
Hvassaleiti 30, Reykjavik
verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. sept-
ember kl. 15.00.
ÞórirSigurðsson
ÞuríðurSigurðardóttir Sigurjón Kristinsson
Katrin Sigurðardóttir Ingi Viðar Árnason
Jóna Sigrún Sigurðardóttir Eiríkur Hreiðarsson.
barnabörn og barnabarnabörn.
Konan mín og móöir okkar
Ragnhildur Kristófersdóttir
sem andaöist 4. september veröur jarösungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 13. september kl. 13.30. Jarðsett verður í
Gufuneskirkjugarði.
Jón Ágústsson og börn.
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför
Halldórs Sigurðssonar
Fagurhólsmýri
Guðrún Sigurðardóttir
Ari Sigurðsson
Tryggvi Sigurðsson
Nanna Sigurðardóttir
Páll Björnsson.