NT


NT - 11.09.1985, Síða 24

NT - 11.09.1985, Síða 24
LÚRIR ÞÚ Á FRÉ I I ? HRINGDU ÞA f SÍIWIA 68-65-62 Vid tökum vid ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 Flateyri: Giftingarhringur finnst eftir 27 ár Margar tilviljanir spiluðu saman sagði finnandinn ■ „Ég sá glitta í eitthvað gyllt í grasinu. Þegar ég tók það upp reyndist það vera giftingar- hringur. En að hann hefði legið þarna í 27 ár, það grunaði mig ekki,“ sagði Páll Halldórsson í samtali við NT í gær. Páll er stýrimaður á togaran- um Gylli, og búsettur á Flateyri. Hann var að tyrfa hjá sér blettinn, nú fyrr í mánuðinum þegar hann fann hringinn. „Við vorum hérna utan við bæinn að taka torf, á stað þar sem fjárhús voru fyrir nokkrum árum. Menn frá bænum voru að rista þökur, og ég var að tína þær saman, þegar ég sá glitta í eitthvað gyllt. Petta reyndist vera hringur. Ég hélt að þeir sem voru að rista hefðu týnt honum, en þeir könnuðust ekki við hann. Hingurinn lá ofan á gras- inu rétt eins og einhver hefði tapað honum í gær,“ sagði Páll. Hann leitaði nú upplýsinga hjá nágrönnum um hvort þeir könnuðust við hringinn. Éina sporið sem Páll hafi var að innan í hringinn vargrafið nafn- ið Þóra, og einnig voru upphafs- stafirnir Þ.B. grafnir í hann. „Það var Ingimundur bóndi á Tannanesi sem kom mér á sporið. Hann kannaðist við nafnið Þóra, og vissi að hún hafði gifst manni að nafni Þor- lákur. Ég fór að leita að karlin- um, og þá vildi svo einkennilega til að hann var staddur hér á Flateyri á ferðlagi. Ég boðaði hann á minn fund og afhenti honum hringinn. Hann brást óhemju glaður við,“ sagði Páll. Þorlákur Bernharðsson tjáði Páli að 27 ár væru liðin frá því að hann hefði týnt hringnum, þegar hann var að bera út moð úr jötu. Þá hafði Þorlákur átt hringinn í rúma viku. Hann hefur aldrei keypt annan hring þrátt fyrir að hann sé enn giftur Þóru. Páll sagði að hann hefði haft óhemju gaman af þessu og þarna hefðu margar tilviljanir verið að verki í einu. „Það vakti furðu mína að ekki sá á hringnum, eftir 27 ár sem hann hefur legið í grasinu. Hann var heldur dekkri en sá sem ég ber sjálfur,“ sagði hann að lokum. Fiskeldi Grindavíkur: Fær inni hjá hitaveitunni ■ Fiskeldi Grindavíkur hefur fengið aðstöðu hjá Hitaveitu Suðurnesja fyrir tilraunastöð með klak og eldi á laxaseiðum, í grennd við Svartsengi. Jónas Matthíasson fram- kvæmdastjóri Fiskeldis Grindavíkur sagði í samtali við NT í gær að fyrst og fremst væri hugsað um bráðabirgðatilraun nú í vetur. Hann sagði að ef til- raunin gengi vel kæmi til greina að hugsa frekar um þennan stað í framtíðinni. Sú fiskisaga hefur flogið í Grindavík, að með þessum tilraunum hjá fiskeldisfyrir- tækinu, væri hætta á mengun á vatnsbóli Grindvíkinga. Þessu svaraði Jónas á þann hátt að vatnið frá tilrauna- stöðinni yrði hreinsað, og síðan veitt með frárennsl- isvatninu frá Svartsengi, sem fer þar niður, þ.e. borholu- vatnið. „Það er verið að gera því skóna að koma þarna upp stöð fyrir 50-100 þúsund seiði,“ sagði Jónas þegar hann var spurður um stærð- argráðuna. „Þetta er bara tilraun, og því ekki kostað til hennar nema í lágmarki, þannig að hún skili eftir því sem er leitað. Það verður svo að sjá til hvort einhver fram- tíð er í þessu og hvort við fáum þarna aðstöðu og samninga til frambúðar. Um það er ekkert farið að ræða, enda ekki tímabært," sagði Jónas að lokum. Ljósleiöarastrengir lagðir í jörð í Reykjavík: Símtölin send sem Ijósmerki ■ Byrjað var að leggja nýja gerð símastrengja, ljósleiðara- strengi, í jörð í Reykjavík um helgina og ráðgerir Póst- og síma- málastofnun að taka þá í notkun á næsta ári. Þessir strengir koma í stað koparstrengjanna gömlu, Innbrot eða heimsókn? ■ Farið var inn í íbúð við Langholtsveg, og stolið þaðan myndsegulbandstæki og Ijós- myndavél. Ekki er beinlínis um innbrot að ræða, þar sem flest bendir til þess að húsráðandi hafi skilið dyrnar að íbúðinni eftir ólæstar. Rannsóknarlög- regla ríkisins hefur málið til rannsóknar. eru úr gleri og upplýsingar fara eftir strengjunum sem Ijósmerki. Fyrsta lögnin var á milli sím- stöðvanna við Austurvöll og Múla, um 5 kílómetra leið, en áður hafði verið lagt plaströr milli stöðvanna sem strengurinn var dreginn í. Stefnt er því að streng- urinn milli stöðvanna verði án samsetninga en samtengingu tveggja glerþráða verður að fram- kvæma undir smásjá með mjög nákvæmum verkfærum. Að sögn Berþórs Halldórsson-' ar deildarverkfræðings hjá Pósti og síma, er flutningsgeta þessara strengja mun meiri en þeirra gömlu og f framtíðinni verður mun auðveldara að ná milli þess- ara svæða. Síðar á þessu ári er stefnt að því að leggja ljósleiðara- streng til símstöðvanna í Árbæ, Breiðholti og Kópavogi og á næsta ári verður haldið áfram með lagnir á Ijósleiðurum á Reykjavíkursvæðinu og að auki milli ReykjavíkurogHvolsvallar. ■ Um helgina var nýi Ijósleiðarastrengurinn dreginn í gegnum rör um 5 km leið frá símstöðinni við Austurvöll upp í Múla. Hann verður tekinn í notkun á næsta ári. NT-mynd: Róbert. Borgarminjavörður: 3 umsækjendur mæla með Guðnýju Gerði ■ Staða borgarminjavarð- ar var nýlega auglýst laus til umsóknar og sóttu 9 manns um stöðuna. Á borgarráðs- fundi bar það hins vegar til tíðinda í gær að bréf var lagt fram frá þremur konum þar sem þær drógu umsóknir sín- ar til baka og mæltu þess í stað með einum umsækjend- anna, Guðnýju Gerði Gunn- arsdóttur, sem unnið hefur sem safnvörður í Árbæjar- safni. „Það þótti nokkuð skrítið að þær skyldu ekki mæla með Ragnheiði Þórarins- dóttur sem sett var í embætt- ið fyrir ári síðan,“ sagði Kristján Benediktsson borg- arfulltrúi Framsókarflokks- ins í samtali við NT. „Þær lýstu yfir stuðningi við Guðnýju Gerði en þær lýstu ekki yfir því að þær styddu ekki Ragnheiði. En þess ber líka að geta að Guðný Gerður hefur líka meðmæli frá Nönnu Her- mannsson fyrrverandi borg- arminjaverði,“ sagði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi Kvennafram- boðsins. Reykjanesbraut: Flutninga- bíll valt ■ Vöruflutningabíll frá Kefla- vík valt á Reykjanesbraut í gærmorgun. Bíllinn var á leið til Reykjavíkur eftir vörum. Þegar komið var að afleggjara inn í Ytri-Njarðvík var þar kyrr- stæður fólksbíll sem ökumaður ætlaði að beygja inn til Njarð- víkur. Bílstjóri vöruflutninga- bílsins reyndi að sveigja frá fólksbílnum, en ekki tókst betur en svo að bíllinn valt. Ökumað- ur og kona, sem var farþegi, köstuðust úr bílnum og voru þau flutt á slysadeild. Konan fékk að fara heim að iokinni skoðun en ökumaðurinn þurfti að fara í frekari skoðun, þar sem hann kvartaði um meiðsli í baki. Bíllinn er að sögn lögreglu mikið skemmdur.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.