Morgunblaðið - 07.12.2003, Qupperneq 22
22 | 7.12.2003
asta ári, heldur væri nær lagi að áætla að fjöldi þeirra væri nær þeim sem fara í and-
litslyftingu, þ.e. ekki fleiri en 100.
Lýtalæknar benda á að Bandaríkjamenn séu nokkuð ýktir á þessu sviði og telja að
ekki sé hægt að draga allar ályktanir af bandarísku tölunum og yfirfæra á Ísland. Það
er ljóst að fegrunaraðgerðir geta oft orðið ýktar í Bandaríkjunum, þ.e. varir og brjóst
verða mjög stór og strekkingar miklar, enda hefur komið í ljós að brjóstapúðarnir
sem notaðir eru í Bandaríkjunum eru miklu stærri en þeir sem notaðir eru í Evrópu.
Hvað varðar fegrunaraðgerðir án skurðar vandast nokkuð samanburðurinn á milli
Bandaríkjanna og Íslands þar sem mismunandi er hvaða efni eru leyfð í hvoru landi
fyrir sig. Í Bandaríkjunum er botox langvinsælasta efnið en því var sprautað í hrukk-
ur Bandaríkjamanna yfir milljón sinnum á síðasta ári, í alls 1.123.510 skipti. Botox er
ekki leyft hér á landi nema í lækningaskyni og þá t.d. til að að draga úr vöðvakrömp-
um. Einhverjir lýtalæknarnir hafa farið formlega fram á að Lyfjastofnun samþykki
skráningu lyfs sem inniheldur efnið Botulinum A, þ.e. sama virka efni og Botox, til
fegrunaraðgerða og sú umsókn liggur fyrir Lyfjanefnd. Þar fengust þær upplýsingar
að lyfið verði skráð leyfilegt til nota fyrir húðlækna og lýtalækna á næstu mánuðum.
Hér á landi er hins vegar leyft fylliefnið Restylane/Perlane sem ekki er leyft í
Bandaríkjunum. Þar er enn notað kollagen til að fylla upp í hrukkur en það getur
valdið meiri ofnæmisviðbrögðum. Kollagensprautur eru þó ekki á meðal fimm al-
gengustu aðgerðanna án skurðar í Bandaríkjunum, heldur eru það auk botox, húð-
slípun með efnum (920.340), venjuleg húðslípun (900.912), háreyðing með leysi
(587.540) og eyðing æðahnúta (511.827). Hér á landi eru Restylane-sprautur algeng-
astar af einföldu aðgerðunum. Photoderm-leysimeðferð til að eyða æðasliti er þar á
eftir og svo leysimeðferð til háreyðingar. Líklega er ekki hægt að spegla bandarísku
tölurnar yfir á Ísland hvað varðar einföldu aðgerðirnar.
Hvað varðar Restylane-sprautur er misjafnt hversu oft lýtalæknarnir nota þær,
sumir aðeins einu sinni til tvisvar á ári en aðrir mun oftar. Þrír lýtalæknar af átta gisk-
uðu á hversu oft þeir sprauta Restylane og var það mjög mismunandi. Meðaltal af
þeirra svörum er 22 skipti á ári. Ef gert er ráð fyrir því meðaltali fyrir átta lækna, má
áætla að Restylane-meðferðir séu um 180 á ári hér á landi. Hver Restylane-sprauta er
0,7 ml og oftast er gefin ein eða tvær sprautur en yfirleitt ekki fleiri en þrjár í einu,
samkvæmt upplýsingum eins læknis. Ísmed flytur Restylane inn og þar fengust þær
upplýsingar að ætla mætti að um 330 manns fái eina eða fleiri Restylane-sprautu á ári,
til uppfyllinga í hrukkur eða varir. Innflutningur á efninu hófst í árslok 1998 og hefur
farið vaxandi allar götur síðan, sérstaklega á síðustu tveimur árum. Það ber að hafa í
huga að fleiri en lýtalæknar geta notað Restylane.
Einföldum aðgerðum fer fjölgandi
Varanleikinn af einföldum aðgerðum er ekki sá sami og af skurðaðgerðum en við-
komandi jafnar sig aftur á móti strax. Að sögn Jens eru lagfæringar í kringum augu al-
gengustu skurðaðgerðirnar í fegrunarskyni. „Þessar aðgerðir gefa fólki einna mest og
fólk er fljótt að jafna sig eftir þær,“ segir hann. Leysiaðgerðum fer einnig fjölgandi að
sögn Jens sem og öðrum aðgerðum sem krefjast ekki skurðar, þ.e. fylliefnasprautum og
þ.u.l. Að auki er fitusog á ýmsum hlutum líkamans; kviði, rassi eða lærum, nokkuð al-
gengt.
Jens segir að enginn noti óbeislað sílikon í fegrunaraðgerðir á Íslandi, þó það sé
stundum gert t.d. í Bandaríkjunum. „Það er stórhættulegt og mjög varasamt.“ Af-
leiðingarnar eru t.d. að sílikonið getur hlaupið í kekki og ofnæmisviðbrögð komið
fram. Sílikon sem notað er til að stækka brjóst er í sérstökum púðum sem komið er
fyrir í brjóstinu, oftar undir vöðva en stundum yfir vöðva, þ.e. undir kirtli.
Fylliefnið sem notað er á Íslandi og sprautað er beint undir húð heitir Restylane/
Perlane og að sögn Jens verður hugsanlega farið að nota svokallað Cosmoderm sem er
framleitt á tilraunastofum úr frumum úr fósturvef. Cosmoderm og Restylane er svipað
en hið síðarnefnda endist lengur. Jens segir að þegar efnin eru komin í notkun, komi
stundum enn meira í ljós um eiginleika þeirra. Í fyrstu var Restylane talið án allra auka-
verkana en með aukinni notkun hafa komið fram ofnæmisviðbrögð í einstaka tilfellum.
Cosmoderm er sagt án áhættu í skýringarmynd í nýlegu tölublaði tískuritsins Vogue en
Jens telur það mjög svipað efni og Restylane, bara með styttri endingartíma.
Jens telur það einnig möguleika að farið verði að nota Artecoll hér á landi en það
eru örlitlar perlur sem er þjappað saman. „Það gæti hugsanlega náð mikilli út-
breiðslu þegar það hefur verið rannsakað og prófað að fullu.“
Botox er óvirkt eitur sem lamar taugar. Jens segir að það hafi ekki enn verið sam-
þykkt til fegrunaraðgerða hér á landi. Efnið er þó notað um allan heim, að hans sögn.
Afleiðingar þess eru að hrukkur sem oft myndast vegna ofvirkni í ákveðnum vöðvum
hverfa. Ekki fæst staðfest að botox sé notað til hrukkumeðferðar hér á landi en marg-
ir hafa þó heyrt af því.
Í nýju fréttabréfi Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO) kemur fram að
bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) sé þeirrar skoðunar að auglýsingar á
botoxi séu misvísandi þar sem ekki komi fram að notkun efnisins hafi áhættu í för
með sér. Þ.e. þá áhættu að fjórir af hverjum tíu sem sprautaðir eru með botoxi upplifi
einhverjar aukaverkanir eins og höfuðverk og ógleði.
Sílikonfyllingar hér á landi eru á bilinu 200–400 ml í hvort brjóst en algengast er að notaðar séu
fyllingar á bilinu 260–300 ml. Í Bandaríkjunum er algengara að nota fyllingar allt upp í 500 ml.
F yrir 350 þúsund krónur hefur brosmild 56 ára kona fengið sléttara andlit ogháls. Hún fór í andlitslyftingu á neðri hluta andlitsins þar sem tveir sentí-metrar voru teknir hvorum megin, við eyrun þar sem skorið er.
Hún er enn marin fram á kinnar, dofin og aðeins bólgin nú þremur vikum eftir að-
gerðina. „Læknirinn útskýrði mjög vel fyrir mér hvað yrði gert og ég var hræddust við
að verða of strekkt en hann fullvissaði mig um að svo yrði ekki. Hann sagði markmið
sitt vera að sagt yrði við konuna: „Mikið líturðu vel út“ en ekki „Varstu að koma úr
andlitslyftingu?“ Það er mjög mikill munur þar á milli. Þegar maður er kominn á minn
aldur minnkar teygjanleikinn í húðinni og vöðvar slakna. En þetta er auðvitað bara
pjatt í mér,“ segir hún hugsandi.
Viðmælandi okkar lenti í veikindum um fimmtugt og aukaverkanir urðu m.a. slakari
húð. „Mér fannst húðin á mér vera orðin allt of stór.“ Hún segir að hluta þess megi
rekja til veikindanna og hluta til aldurs hennar. Hún segist þá hafa orðið ákveðin í að
fara einu sinni á ævinni í smáandlitslyftingu. „En mér finnst nóg að gera svona einu
sinni, ég vil ekki láta kippa í skinnið á mér aftur. Þetta var eitt af því sem ég var búin að
ákveða að gera í lífinu og nú er það afgreitt mál.“
Andlitslyfting er alvöru aðgerð sem fylgir áhætta. „Þetta er í raun heilmikið inngrip
í líkamann og aðgerðin tók um þrjár klukkustundir.“ Hún var síðan send heim strax eft-
ir aðgerðina og var þá með bómullarvafninga um höfuðið til að halda öllu á sínum stað.
Með þessar umbúðir var hún í fimm daga og tók sýklalyf, verkjalyf og bólgueyðandi lyf.
Hún tók ekki veikindaleyfi heldur notaði orlofsdaga á meðan hún var að jafna sig
heima. Hún svaf mest í Lazyboy-stól þann tíma þar sem henni hafði verið ráðlagt að
sofa með hátt undir höfðinu til að forðast of mikinn þrýsting þar.
Í aðgerðinni var skorið í kringum eyrun, farið undir skinnið og það dregið til og
aukahúð skorin af. Í hennar tilviki voru það 2 cm hvorum megin. „Þetta er miklu meiri
aðgerð en maður heldur. Ég hef farið í ýmsar aðgerðir og veit að allar svona aðgerðir
hafa vissa áhættu í för með sér. Aukaverkanir geta komið upp og mistök átt sér stað, en
ég held að ef vel er að öllu staðið þá sé ekki meiri hætta við þetta en margt annað sem
maður gerir í lífinu.
Læknirinn útskýrði allt fyrir mér og fór vel í gegnum allt ferlið. Ég skildi það allt
saman en samt fannst mér þetta svolítið mikið þar sem ég fór í þessa aðgerð út af
pjatti. „Hvað er ég búin að koma mér í bara út af pjatti?“ hugsaði ég.“ Og komst hún
að niðurstöðu? „Ja, þetta hvarflaði nú bara að mér svona fyrstu dagana.“ En var þetta
þess virði? „Já, já, ég sé gífurlegan mun og er mjög ánægð með útkomuna.“
Hún telur sig ekki undir áhrifum frá hugsanlegri æsku- eða útlitsdýrkun í samfélag-
inu. „Þetta er bara spurning um að líta svolítið betur út, vera frísklegri.“ Hún þekkir
engan sem hefur farið í fegrunaraðgerð en segist líklega ekki verða sú síðasta í sínum
vinahópi sem fer í svona aðgerð. „Ég er á móti svona aðgerðum hjá ungu fólki. Allt of
margar ungar stúlkur eru farnar að hafa áhyggjur af útliti sínu mun fyrr en áður var.“
Hún hefur talað opinskátt um aðgerðina við vini og ættingja og bauð þeim að koma
heim og fylgjast með sér og sjá umbúðirnar, marið, skurðina og hvað þessi aðgerð hefði
í för með sér. „Mjög margir í kringum mig tala um að þá langi til að fara í svona að-
gerð. Ég vildi sýna þeim að maður væri veikur í viku, þetta væri ekkert smámál og
maður þyrfti að hugsa sig vel um áður en lagst er undir hnífinn.“ Hún segir að áhugi
viðkomandi á að fara í svona aðgerð virðist ekki hafa minnkað.
Vinkonur hennar hafa fylgst með öllu ferlinu og vita nú aðeins betur hvað andlitslyft-
ing er. Nú þremur vikum eftir aðgerð er hún enn nokkuð marin og dofin. Marið kemur
fyrst fram í kinnunum og sígur svo niður á hálsinn. Aðgerðin tókst vel og svona ferli er
eðlilegt að hennar sögn. Búast má við þessum dofa í nokkurn tíma og einhverjir mán-
uðir líða þar til allt er orðið eðlilegt. Hún fór í vinnu eftir eina viku og huldi marið með
farða. Sumir vinnufélagar hennar vissu af aðgerðinni, aðrir ekki, og einn þeirra spurði
af hverju hún væri svo marin. „„Ég var aðeins að láta kippa í skinnið á mér,“ sagði ég
og hann varð alveg miður sín að hafa verið að hnýsast en sagði mér svo að hann hefði
kannski haldið að ég hefði verið barin.“
Hún segist ekki ætla að fara í aðrar fegrunaraðgerðir. „Ég hef engan áhuga á að
laga augun því mér finnst augnhrukkur bara sjarmerandi og ég myndi alls ekki vilja
breyta augnsvipnum. Það sem er best fyrir mína húð er góður svefn og að borða þann
mat sem mér hentar. Þetta er margfalt áhrifaríkara en öll fínu kremin sem ég hef keypt
og prófað,“ segir þessi frísklega kona sem fór í pjattaðgerð, eins og hún kallar það.
ANDLITSLYFTING
Pjattaðgerð í kjölfar veikinda