Morgunblaðið - 20.07.2004, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.07.2004, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Eggert Hildur Harðardóttir, yfirlæknir á kvennadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss, og Reynir Tómas Geirsson, prófessor við sömu deild, ásamt nýbökuðum foreldrum tvíburasystranna Maríu og Söru, þeim Gunnari W. Reginssyni og Lilju Dögg Schram Magnúsdóttur. Stúlkurnar tvær, dætur Lilju Daggar SchramMagnúsdóttur og Gunnars W. Reginssonar, fæddust eftir 35 vikna meðgöngu. Mjög vandasöm aðgerð Þetta sjúkdómsástand eða heil- kenni nefnist á ensku „Twin-to-twin Transfusion Syndrome“ (TTTS), sem þýða mætti sem blóðtilfærslu milli tvíbura. Meginhluti blóðflæðis í æðakerfum tvíburanna fer í annað barnið. Það fær meiri næringu og verður að skila af sér mun meiri vökva en hitt. Legvatn er fyrst og fremst myndað úr blóðvökva barns- ins gegnum þvagútskilnað. Við það þenst legið út og hætta er á að sam- drættir hefjist og konan fari fljótt í fæðingu. Álagið eykst á hjarta barnsins sem fær meira blóð til sín og það getur leitt til hjartabilunar og dauða. Tvíburinn sem útundan verður stækkar hægar og skilar litlum sem engum vökva frá sér. Hann getur dáið úr næringarskorti. „Efnaskipti þess tvíbura sem tek- ur blóðmagn frá hinum verða hrað- ari og hann framleiðir mun meira þvag. Legvatnið er að miklu leyti þvag frá fóstrunum,“ segir Reynir Tómas Geirsson, prófessor við kvennadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss. Reynir segir mikla hættu á því í tvíburameðgöngu af þessu tagi að annað barnið deyi úr næringarskorti tiltölulega snemma á meðgöngunni en vatnsbelgurinn hjá hinu þenjist út og komi fóst- urláti eða fæðingu af stað. Ef þetta gerist síðar, til dæmis nálægt 28. eða 30. viku meðgöngu, sé frekar hægt að tappa með endurteknum legvatnsástungum af vatnsbelgnum hjá þeim tvíburanum sem tekur frá hinum. Við það má minnka legvatnið tímabundið og vinna tíma, en börnin fæðast samt oftar en ekki alllöngu fyrir tímann. Ef þetta ástand hefst snemma verða ástungurnar svo margar að sjaldnast tekst að lengja meðgönguna verulega og rof á Þ au gleðilegu tíðindi urðu nú á sunnudaginn, 18. júlí, að María og Sara, eineggja tvíburar, komu í heiminn, báðar heil- brigðar, þótt í upphafi hefði getað farið mun verr. Systurnar voru með samteng- ingar á æðakerfum í gegnum fylgj- una, þannig að blóðflæði úr annarri gekk yfir í hina. Við það skapast misvægi milli barnanna og mikið legvatn myndast hjá öðru þeirra sem kemur fæðingu af stað. Þetta fannst í 20. viku meðgöngu. Þá var móðirin send með hraði til Belgíu í aðgerð þar sem tengingar í fylgj- unni milli æðakerfa systranna voru brenndar með leysigeislatækni. María og Sara eru fyrstu íslensku tvíburarnir sem gengist hafa undir slíkan aðskilnað æðakerfa, þar sem nýrri háþróaðri aðferð er beitt. Líkur eru litlar á því að bæði börnin lifi þegar þetta afbrigðilega ástand upphefst snemma, sem stundum verður fyrir 20. viku með- göngu. Ef það er ómeðhöndlað get- ur meðgangan endað með fósturláti eða fæðingu löngu fyrir tímann. Því geta fylgt margvísleg og stundum alvarleg vandkvæði fyrir börnin og foreldrana. Ef aðgerðin lánast, sem er í 60–80% tilvika, er meðgangan hins vegar mun líklegri til að líkjast venjulegri tvíeggja tvíbura- meðgöngu þar sem fæðingin verður að meðaltali mánuði fyrir tímann. vatnsbelgnum getur leitt til að allt vatnið fari og fæðingin fari af stað. „Það sem er nýtt að gerast í þessu, á allra síðustu árum, er að fara inn með svokallaða fóstursjá, tæki sem er svip- að kviðsjá nema það er mun grennra áhald, og brenna æðarnar sem tengja saman tvíburana í yfirborði fylgjunnar með leysibrennslu,“ segir Reynir og seg- ir æðarnar í raun gerðar að örvef. Þá verði blóðflæði til barnanna jafn- ara, legvatnsmagnið eðlilegt og þau nái að dafna eðlilega í móðurkviði. Aðgerðin sé vandaverk og aðeins fá- einir staðir í Evrópu og N-Ameríku þar sem þetta sé gert. Einn þeirra sé Leuven í Belgíu og þangað hafi móðir Maríu og Söru verið send. Áhættan þess virði Aðgerðin fór fram á páskadag og tókst vel. Tvíburarnir jöfnuðu sig, efnaskipti urðu eðlileg svo og vaxt- arfasi. Reynir segir meðalfæðing- artíma tvíbura á Íslandi vera eftir 36 vikur og móðirin, Lilja, hafi verið komin 35 vikur á leið þegar tvíbur- arnir fæddust, sem sé afar gott. „Við höfum net af stofnunum til að hjálpa okkur með ýmis mjög sér- hæfð vandamál. Þetta er bara gert á þremur stöðum í Evrópu. Hér á landi koma svona tilvik upp á nokk- urra ára fresti og því er ekki raun- hæft að ætla að gera aðgerð sem þessa hér. Við munum aldrei hafa tök á því að hafa tæki og æfinguna sem þarf,“ segir Reynir. Því hafi það verið mjög gott að Trygg- ingastofnun tók vel í að greiða fyrir aðgerðina og ferðakostnað foreldr- anna. Reynir og Hildur Harðardóttir yfirlæknir sáu um meðgöngueft- irlitið og fylgdust náið með móð- urinni eftir aðgerðina, vexti barnanna og blóðflæði um nafla- strengsæðar og fylgju, með aðstoð Huldu Hjartardóttur fæðing- arlæknis. Eftir því sem leið á með- gönguna varð allt eðlilegra og stúlk- urnar fæddust heilbrigðar síðasta sunnudag, hvor um tíu merkur. TTTS er óalgengur sjúkdómur og telur Reynir að hann greinist hjá tvíburum á tveggja til þriggja ára fresti hér á landi í þeim mæli að meðferð þurfi. Leysigeislaaðferðin er aðeins um sex ára gömul og ein- ungis um 4–500 konur hafa farið í þessa meðferð í heiminum. Sú sem Lilja gekkst undir var framkvæmd af rannsóknahópi í háskólaborginni Leuven í nágrenni Brussel. Rann- sóknahópurinn er hluti af evrópsku samstarfi á sviði fósturaðgerða, Eurofoetus, sem er styrkt af Evr- ópusambandinu. Í 81% tilfella lifir a.m.k. annað barnið aðgerðina af og í 54% tilfella lifa bæði börnin. „Það er 12% hætta á því að missa bæði fóstrin strax eftir aðgerðina en við tókum áhættuna, því annars hefði hún örugglega misst þau bæði fljótlega,“ segja Reynir og Hildur, sem eru ákaflega ánægð með far- sælan endi á fæðingunni, sem var undir umsjón Elínborgar Jóns- dóttur ljósmóður og Þóru Stein- grímsdóttur fæðingarlæknis. Fylgj- an er á leið til Belgíu þar sem hún verður rannsökuð ýtarlega. Æðakerfi aðskilin í íslenskum tvíburum Fæðing íslensku tví- burasystranna Maríu og Söru er fyrir margt merkileg. Helgi Snær Sigurðsson ræddi við Reyni Tómas Geirs- son, prófessor á kvennadeild Land- spítala – háskóla- sjúkrahúss. Teikningin, sem fengin er af vef Eurofetus Group (www.eurofe- tus.org), sýnir hvernig fóstursjáin er sett inn og stýrt að brennipunkt- inum á fylgjunni. FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ „Sumartilboð í Eldaskálanum“ Eldaskálinn Brautarholti 3 • 105 Reykjavík • Sími: 562 1420 eldaskalinn@simnet.is • www.invita.com Athena Frontline Soft Kirsuber

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.