Morgunblaðið - 20.07.2004, Síða 16
Akureyri | „Ég gleymdi gula
litnum heima á gistiheimili en
það kemur ekki að sök,“ sagði
Charles Bezzina ferðalangur,
sem var að mála landslags-
myndir á byggjupolla við Torfu-
nefsbryggju á Akureyri í hádeg-
inu í gær. Hann var að mála með
vatnslitum og því gerði ekkert
til þótt nokkrir rigningardropar
féllu á verkin, að hans sögn.
Bezzina er frá Möltu en býr í
Englandi, þar sem hann kennir
börnum jafnt sem fullorðnum
myndlist. Hann hefur ferðast
víða um heim og tekið ljós-
myndir og málað landslags-
myndir. Hann sagði íslenskt
landslag mjög fallegt og gaman
að mála það. Bezzina, sem er í
vikuheimsókn á Íslandi ásamt
konu sinni, hafði lesið um Ísland
á Netinu og var hinn ánægðasti
með dvölina.
Morgunblaðið/Kristján
Málar fallegt landslag
Myndlist
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Skandinavíu og í Ölpunum.
Hér á landi finnst hún yf-
irleitt ekki á láglendi en
vex í allt að 1.600 m hæð.
Hana er helst að finna í
melum og skriðum í blá-
grýtisfjöllum á vestan-,
Jöklasóley er með til-tölulega stór blóm,sérstaklega ef litið er
til þess að hún er há-
fjallategund. Blómin eru
oftast stök á hverjum
stöngli, fimmdeild, en oft
eru krónublöðin fleiri. Þau
eru hvít í fyrstu en verða
síðan dumbrauð. Blöðin
eru handskipt og áberandi
gljáandi. Jöklasóley er há-
norræn tegund, mjög harð-
gerð og telst til þeirra teg-
unda sem vaxa hvað hæst á
fjöllum. Hún finnst á norð-
austurströnd Grænlands, í
Færeyjum og í fjalllendi
norðan- og austanverðu
landinu en sjaldgæfari á
móbergssvæðum landsins.
Heimild: Hörður Kristinsson
1986. Plöntuhandbókin. Blóm-
plöntur og byrkningar. Íslensk
náttúra II. Örn og Örlygur,
Reykjavík. 306 bls.
Jóhann Óli Hilmarsson
Jökla-
sóley
(Ranunculus glaci-
alis) af sóleyjaætt
Bologna á Ítalíu erfrægust fyrirpylsur, komm-
únistaflokkinn og að hafa
farið í stríð við nágranna-
borgina Modena út af fötu
sem stolið var frá Bol-
ogna-búum og geymd í
kirkjuturninum Ghirand-
ina í Modena. Undirrit-
aður átti erfitt um svefn í
Bologna út af rifrildi pars
úti á götu um miðja nótt:
Ítalskt parið úti á götu
er að kýta um miðja nótt;
fyrst upphófst styrjöld út af fötu
enginn sofið getur rótt.
Birni Ingólfssyni fannst
blasa við að parið væri að
rífast út af fötunni. Hann
bætti um betur og orti
hringhendu:
Parið ítalskt úti á götu
er að kýta af miklum þrótt;
er að bítast út af fötu
enginn hrýtur þar í nótt.
Frá Bologna
pebl@mbl.is
TIL umræðu er í bæjarráði Vestmanna-
eyja að slétta svæði á austurhluta
Helgafells og gera að útivistarsvæði.
Jafnframt verði gígbotn Helgafells slétt-
aður og lagfærður.
Guðjón Hjörleifsson lagði þetta til í
bæjarráði og var samþykkt að fela fram-
kvæmdastjóra umhverfis- og tæknisviðs
athugun á málinu, varðandi framkvæmd-
ir og kostnað.
Sorpgryfja var áður í austurhluta
Helgafells. Guðjón vill koma þar upp úti-
vistarsvæði og gera göngustíg upp á
Helgafell. Jafnframt verði gígbotninn
lagfærður. Miðar hann við aðstaðan mið-
ist við kröfur sem gerðar eru í fólkvöng-
um. „Hér er um tvo fallega staði að
ræða og hægt að gera mjög falleg fjöl-
skyldu- og ferðamannavæn útivistar-
svæði. Gamla veginn má gera að göngu-
stíg en mikilvægt er jafnframt að gera
bílastæði austan hans, ásamt því að
svæðið verði grætt upp,“ segir í grein-
argerð Guðjóns.
Tillaga um
nýtt útivist-
arsvæði
FYRSTA skóflustungan að nýju stöðv-
arhúsi fyrir Reykjanesvirkjun verður tek-
in á morgun, miðvikudag, og munu fram-
kvæmdir hefjast í
kjölfarið við að
reisa stöðvarhús
og aðrar bygging-
ar.
Júlíus Jónsson,
forstjóri Hitaveitu
Suðurnesja, segir
að til standi að
verktakafyrirtæk-
ið Eykt hefji
framkvæmdir við
stöðvarhús, tvö
spennumannvirki
og skiljustöð alveg á næstunni, um leið og
búið er að flytja tæki og tól á staðinn. Bú-
ið er að bora sjö af tólf borholum sem
virkjaðar verða, en reiknað er með að
Jarðboranir haldi áfram að bora eftir ára-
mót.
Í vikunni verður svo auglýst eftir til-
boðum í vinnu við gufulagnir, járnavinnu
og rafmagnsvinnu við virkjunina. Bygg-
ing virkjunarinnar á að taka samtals um
tvö ár, en samkvæmt samningi stendur til
að hefja afhendingu á rafmagni til Norð-
uráls 1. maí 2006, segir Júlíus.
Hefja fram-
kvæmdir við
virkjunina
♦♦♦
„JÖKLASÓLEY er í eftirlæti hjá
mér. Hún sést gjarnan hátt í kletta-
beltum og fjallakömbum við hrjóstr-
ug skilyrði, þar
sem lítið eða
ekkert er um
annan gróður.
Þannig nýtur
fegurð þessa
blóms sín mun betur en ella væri,“
segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, út-
varpsmaður og höfundur Hálend-
ishandbókarinnar.
Á hálendisflakki sínu í áranna rás
segist Páll hafa séð jöklasóley meðal
annars á hálendi Vestfjarða, Horn-
ströndum og víða á fjalllendi Aust-
fjarða en kjörlendi blómsins er í hin-
um fornu blágrýtisfjöllum. Það er
sjaldséðara á móbergssvæðinu en
vex í allt að 1.600 metra hæð.
„Á þessum stöðum, það er uppi á
efstu fjöllum, kann ég ákaflega vel
við mig og það virðist jöklasóley
einnig gera. Ég finn því til ákveð-
innar samkenndar þar sem ég sé
þetta lífseiga hvíta blóm, sem er mis-
mikið rautt í krónunni; það er hvítt
fyrst en roðnar með aldrinum. Oft
get ég ekki annað en dáðst að tilvist-
arhörku þess.“
Meðal fjallamanna segir Páll Ás-
geir það vera bannað að stinga upp
hnaus af harðgerðu blómi til að eiga
í garðinum heima. „Slíkt má maður
aldrei gera. Af fjöllunum tekur mað-
ur ekkert með sér, nema minningar
og myndir, sem geta meðal annars
verið af fallegum blómum.“
Hef samkennd með jöklasóley
Harðgerð jöklasóley. „Dáist
að tilvistarhörkunni,“ segir
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Páll Ásgeir Ásgeirsson
útvarpsmaður.
Enn er hásumarblíða í Skagafirði, og
menn rétt búnir að ná andanum eftir vel
heppnað landsmót ungmennafélaganna, en
ekki er lát á stórviðburðum því að í vikunni
hefst Norðurlandakeppni í knattspyrnu
kvenna tuttugu og eins árs og yngri, U 21,
og verður keppt í tveimur riðlum og hefur
A-riðillinn aðstöðu á Sauðárkróki, þar sem
keppa Ísland, Danmörk, Svíþjóð og Eng-
land, en B-riðillinn, þar sem takast á
Bandaríkin, Þýskaland, Noregur og Finn-
land, á Akureyri. Fara flestir leikirnir í riðl-
unum fram á þessum stöðum, en einnig
verður keppt á Blönduósi, Ólafsfirði, Dalvík
og ef til vill víðar. Úrslitin, þar sem leikið er
um sæti, fara síðan fram á Akureyri hinn
29. þ.m. Í framhaldi af þessu tekur svo við
Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer um
verslunarmannahelgi.
En fleira er, sem vekur ánægju Skagfirð-
inga um þessar mundir, því fyrir versl-
unarmannahelgi er áformað að opna tvö ný
fyrirtæki við Aðalgötuna á Sauðárkróki, en
mörgum hefur fundist gamli bærinn vera á
nokkru undanhaldi, enda litlum verslunum
þar fækkað eins og víða gerist. Þá er áform-
að að þriðja fyrirtækið taki til starfa í þess-
um bæjarhluta fyrrihluta vetrar. Hér er um
að ræða saumastofu og verslun með föt,
sem heitir Gallery Rós á Aðalgötu 20, en
það er Ragna Rós Bjarkadóttir sem mun
opna verslun með fatnað ýmiskonar. Einnig
verður boðið upp á merkingar á fatnaði,
handklæðum, sængurverum og ýmsu öðru,
en Ragna hefur um nokkur ár unnið að tau-
merkingum, en aðeins í heimahúsi.
Þá munu Páll Friðriksson kjötiðn-
aðarmeistari og Karen Steindórsdóttir
kjötiðnaðarmaður opna kjötgalleríið Kjöt-
krók á Aðalgötu 8, en það er kjötvinnsla og
kjötverslun með framleiðsluvörur fyrirtæk-
isins. Gera þau Páll og Karen ráð fyrir að
allt hráefni fyrirtækisins sé skagfirskt
gæðakjöt. Sagði Páll að í kjötiðnaðarfyr-
irtækinu Kjötkróki yrði lögð áhersla á úr-
valsframleiðslu á góðu verði.
Þá hafa tvenn hjón, Kristín Jóhannesdóttir
og Sigurður Baldursson og Ásmundur
Pálmason og Rita Didriksen, keypt gamalt
húsnæði prentsmiðjunnar Myndprents við
Sjávargötu og munu fljótlega hefjast handa
við að breyta húsinu en áformað er að full-
komin heilsuræktarstöð verði þar opnuð
síðla á haustdögum. Þar er gert ráð fyrir að
starfandi verði íþróttaþjálfarar auk sjúkra-
þjálfara, sem hafa mun þar stofu.
Úr
bæjarlífinu
EFTIR BJÖRN BJÖRNSSON FRÉTTARITARA
SAUÐÁRKRÓKUR