Morgunblaðið - 20.07.2004, Page 26
MINNINGAR
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Snorri Rögn-valdsson fæddist
í Reykjavík 4. júlí
1942. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 9.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Rögnvaldur Sigurðs-
son, f. 20.8. 1914, d.
29.10. 1992, og
Guðný Guðmunds-
dóttir, f. 17.12. 1918,
d. 31.5. 1984. Systur
Snorra sammæðra
eru Guðrún Ása, f.
13.10. 1948, og Ólöf
Hulda, f. 12.3. 1951. Systir sam-
feðra er Sigríður Svava, f. 17.3.
1949. Stjúpsystir er Þórdís Sig-
urðardóttir, f. 19.4. 1946. Uppeld-
issystkini eru Guðmundur Ólafs, f.
26.12. 1934, Þorsteinn Erlings, f.
23.9. 1936, d. 8.5. 1999, Sigurlaug
Ingibjörg, f. 23.3. 1938, Lilja Huld,
f. 9.6. 1939 og Ólafur Sigurbjörn,
f. 10.12. 1945 og eru þau börn
seinni manns Guðnýjar, Ásgríms
Kristinssonar, f. 29.12. 1911, d.
20.8. 1988, þau Guðný og Ásgrím-
ur voru ábúendur á Ásbrekku í
Vatnsdal og ólst
Snorri þar upp.
Snorri gekk 24.7.
1971 að eiga Svan-
fríði Kristínu Guð-
mundsdóttur, f. 24.7.
1949, þau slitu sam-
vistum. Sonur þeirra
er Guðni Þrúðmar, f.
20.9. 1973, unnusta
hans er Inga Dröfn
Jónsdóttir, f. 12.07.
1978. Stjúpdóttir
Snorra (dóttir Svan-
fríðar) er Guðný
Heiðbjört Jakobs-
dóttir, f. 3.1. 1970,
maki Guðjón Jóhannesson, f. 9.12.
1969. Börn þeirra eru Gunnhild-
ur, f. 27.3. 1984, Brynjar Gauti, f.
27.2. 1992, Kolbrún Halla, f. 14.9.
1993 og Jóhanna Magnea, f. 4.6.
2002.
Snorri starfaði mest allan
starfsferil sinn sem bifreiðastjóri,
en síðustu 16 ár starfaði hann á
þvottastöð SVR.
Útför Snorra fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 10.30. Jarðsett verður í
Gufuneskirkjugarði.
Elsku pabbi, þá hefur þú fengið
hina hinstu hvíld. Minningarnar
um þig eru svo margar, allt frá því
að vera lítill strákur sem gekk illa
að sofna því að hann hlakkaði svo
mikið til af því að við mamma ætl-
uðum með þér á stóra fóðurbílnum
austur í Hvamm, eða eftir að hafa
svifið um gólfið á leikskólanum af
stolti því þú hafðir keyrt mig á
stóra bílnum í leikskólann og ég
skipaði krökkunum út í glugga til
að sjá hann keyra burt.
Þegar ég sem unglingur var
fluttur til þín og eins og unglinga
er háttur, gerandi ýmis glappa-
skot, er það umburðarlyndi þitt,
sem ég er í dag þér svo þakklátur
fyrir. Það voru aldrei nein boð eða
bönn hjá þér, þú hafðir einstakt
lag sem erfitt er að útskýra til að
koma þínum sjónarmiðum á fram-
færi, um hvað væri rétt og rangt.
Trúlega er það ein af ástæðum
þess að æskuvinir mínir litu alltaf
á þig sem mjög góðan vin, þú varst
bara einn af hópnum. Þeir sýndu
það og sönnuðu þegar þú varst
orðinn svona mikið veikur með tíð-
um heimsóknum og ræktarsemi
við þig sem þú mast svo mikils.
Bíladelluna hef ég frá þér, um
það efast enginn. Bílar voru þitt
helsta áhugamál og þar var snyrti-
mennskan þitt aðalsmerki. Það
komast fáir með tærnar þar sem
þú hafðir hælana í því að halda bíl-
um sínum jafnhreinum og stífbón-
uðum og þú. Kærastur var þér
Chervoletteinn, enda var það fyrsti
bíllinn. Þú varst óþreytandi að
segja mér sögur af honum. Mér er
það mjög til efs að það hafi verið
til í honum sú skrúfa sem þú ekki
áttir við og trúlega er það mikið til
þér að þakka að bíllinn er til enn í
dag, þó að ástand hans hafi nú ekki
verið þér að skapi. Svo var það
Farmal Cub-inn á Ásbrekku, hann
var þér kær og ófáar sögurnar til
af honum, enda varst þú bara
stráklingur er þú varst farinn að
vinna á honum úti um allan Vatns-
dal. Því er ekki skrítið að mest-
allan þinn starfsferil hafir þú starf-
að sem bílstjóri, fyrst hjá H.Ben.
heildverslun, Fóðurblöndunni h/f
og verktakafyrirtækinu Miðfell h/f,
en lengstan starfsaldur hafðir þú
hjá þvottastöð SVR.
Ekki get ég lýst með orðum
þeirri gleði sem það veitti mér á
erfiðum tímum í veikindum þínum
að það skyldi vera vídeómyndin úr
jeppaferðum sem ég hef farið á
liðnum árum sem alltaf gat veitt
þér gleði. Það sluppu fáir sem
komu í heimsókn við að horfa á
hana með þér.
Eftir áramót kynnti ég þig fyrir
Ingu, og mikið var frábært hvað
þið tókuð hvort öðru vel. Þá voru
veikindin mjög farin að taka á þig
og þér fannst mikið gott að eiga
orðið hauk í horni sem var öllum
hnútum kunn á sjúkrastofnunum
og gat útskýrt fyrir þér svo margt
sem þú þurftir svör við. Ég mun
aldrei gleyma þegar þú af mikilli
einlægni sagðir mér hvað þér fynd-
ist mikið til hennar koma og að nú
hefði ég dottið í lukkupottinn.
Það var í byrjun árs 2001 að við
fengum staðfest að þú hefðir feng-
ið krabbamein sem ekki yrði við
ráðið. Fréttunum tókst þú af miklu
æðruleysi, þráðir það eitt að geta
haldið áfram að vinna, sem þú og
gerðir eins lengi og þú gast. Vinn-
an var þér alltaf svo mikilvæg sem
og vinnufélagarnir.
28. maí síðastliðinn var svo kom-
ið í þínum veikindum að þú lagðist
inn á líknardeildina í Kópavogi,
þar sem þú hlaust þá bestu
umönnun sem hægt var að fá. Þeg-
ar þú áttir þína góðu daga þar fór-
um við gjarnan í bíltúra. Þeim á ég
aldrei eftir að gleyma því svo
margar sögur sagðir þú mér frá
fyrri tíð og vildir forvitnast um
hver framtíðaráform mín væru
sem og að reyna að stappa í mig
stálinu.
Elsku pabbi, ég held að styrkur
okkar beggja hafi verið og sé að
hvorugur efaðist um líf eftir dauð-
ann. Hafðu þakkir fyrir allt sem þú
gerðir fyrir mig.
Guð geymi þig.
Þinn
Guðni.
Elsku Snorri, mikið var notalegt
og gaman að fá að kynnast þér. Þú
tókst mér alltaf svo vel er ég kom í
heimsókn. Þér fannst gaman er við
Guðni komum úr jeppaferðunum
okkar og sýndum þér myndir og
þú sást líka til þess að við færum
nú ekki svöng af stað, það var ekk-
ert annað tekið í mál en að fá sér
að borða áður en lagt var í hann.
Ég man er þú hringdir í Guðna
eitt fimmtudagskvöld í maí og til-
kynntir honum að þú hefðir komist
inn á líknardeildina í Kópavoginum
og það var eins og þú hefðir dottið
í lukkupottinn. Á föstudeginum fór
ég með þér á líknardeildina og það
kom okkur báðum á óvart hvað
þetta var nú óspítalalegt umhverfi
og bara heimilislegt. Þér leið mjög
vel þann tíma sem þú varst þar og
það var notalegt að vita af því.
Þér fannst alltaf gaman að fara í
bíltúr um bæinn þegar heilsan
leyfði. Það var líka svo stutt í húm-
orinn hjá þér og því skal ég aldrei
gleyma er þú skammaðir Guðna
fyrir að skamma mig, það fannst
þér bara ekki hægt að líða.
En nú hefur þú fengið hina lang-
þráðu hvíld og engin spurning um
að þér líður vel.
Megi Guð geyma þig.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Inga Dröfn.
SNORRI
RÖGNVALDSSON
Fleiri minningargreinar
um Snorra Rögnvaldsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Birna,
Kolbrún, Íris og Þröstur, Kristján
Erlendsson, Guðný Heiðbjört.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
www.englasteinar.is
Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, amma
og systir,
KRISTNÝ HULDA GUÐLAUGSDÓTTIR,
Skólavegi 6,
Vestmannaeyjum,
andaðist á Heilbirgðisstofnun Vestmannaeyja
sunnudaginn 18. júlí 2004.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rúnar Helgi Bogason,
Lilja Kristín Ólafsdóttir,
Guðlaugur Þórarinn Rúnarsson,
Bogi Ágúst Rúnarsson,
Lilja Sigríður Jensdóttir,
Benedikt Októ Bjarnason
og systkini hinnar látnu.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RANNVEIG KRISTJANA BJARNADÓTTIR,
Jönköping,
Svíþjóð,
lést á Rosengorden, Jönköping, sunnudaginn 11. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Slottskapellet í Jönköping föstudaginn 23. júlí
kl. 12.30.
Ingibjörg Jóna Gunnlaugsdóttir,
Rannveig Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Jónasson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Okkar ástkæra
KRISTBORG KRISTINSDÓTTIR,
Borgarbraut 12,
Stykkishólmi,
lést á kvennadeild Landspítalans við Hring-
braut miðvikudaginn 14. júlí.
Útöfr hennar fer fram frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 24. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta kvennadeild Land-
spítalans njóta þess.
Egill Egilsson,
Kristinn Ólafur Smárason, Egill Egilsson,
Þórhildur Magnúsdóttir, Kristinn Ólafur Jónsson,
systkini og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæra,
RAGNHILDUR KRISTÍN PÁLSDÓTTIR,
Teigaseli 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnu-
daginn 18. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðbjartur Ágústsson,
Stefanía Arnheiður Truelsen, Esben Truelsen,
Bryndís Edda Snorradóttir, Elís Björgvin Hreiðarsson,
Snorri Þór Snorrason, Hildur Fríða Þórhallsdóttir,
Albert Snorrason, Þórdís Guðjónsdóttir,
Kristín Snorradóttir, Baldvin Viggósson,
Ágúst Guðbjartsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MARGEIR JÓNSSON
fyrrv. útgerðarmaður,
Keflavík,
lést sunnudaginn 18. júlí sl.
Útför verður auglýst síðar.
Jóna I. Margeirsdóttir,
Margrét Margeirsdóttir,
Ásta Ragnheiður Margeirsdóttir, Guðjón Stefánsson,
Margeir Margeirsson, Ingibjörg K. Reykdal,
Valur Margeirsson, Birna Sigurðardóttir,
Haukur Margeirsson, Halldóra Ingimarsdóttir,
Guðmundur Margeirsson, Ingibjörg A. Frederiksen,
Arnþór Margeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.