Morgunblaðið - 20.07.2004, Page 33

Morgunblaðið - 20.07.2004, Page 33
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 33 Skotskólinn er tekinn til starfa og býðurhaglabyssuskyttum einkakennslu.Kennslan er jafnt fyrir skyttur semleggja stund á íþróttaskotfimi og skot- veiðar. Aðalkennari skólans er Ellert Að- alsteinsson, en erlendir og innlendir gestakenn- arar munu einnig starfa við skólann. Fyrir hverja er Skotskólinn? „Hann er fyrir alla sem hafa áhuga á íþrótta- skotfimi og skotveiðum. Ekkert síður konur en karla. Við reynum að mæta þörfum og kröfum hvers og eins nemanda. Byrjendum kennum við undirstöðuatriðin og leggjum mat á stöðu þeirra sem lengra eru komnir. Við kennum almennar öryggisreglur og umgengni við skotvopn, að taka upp byssu, fótstöðu og að hitta leirdúfur á flugi. Svo er kennslan útfærð eftir því hvort nemendur leggja áherslu á veiðar eða íþróttaskotfimi. Við bjóðum einnig upp á byssumátun, sem Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður annast. Til að ná ár- angri þarf haglabyssa að passa skyttunni.“ Þurfa skotveiðimenn á kennslu að halda? „Margir fara aðeins nokkrum sinnum á veiðar á hverju ári en æfa sig lítið þess á milli. Aukin þjálfun og leiðsögn hjálpar þeim að fá meira út úr sportinu og ná betri árangri. Það er nauðsyn- legt fyrir veiðimenn að vera í toppformi strax á fyrsta veiðidegi. Það dregur úr hættu á að þeir hitti ekki eða særi bráðina, sem er enn verra.“ Þurfa nemendur að eiga haglabyssu? „Við hvetjum nemendur til að nota sína byssu, en ef þeir eiga ekki skotvopn þá getum við lánað það. Það er góður kostur fyrir þá sem vilja prófa þetta án þess að leggja í byssukaup.“ Hvað er þetta langt nám? „Það er einstaklingsbundið. Ég bóka hvern tíma í senn og menn geta komið aftur ef þeir vilja. Þessu lýkur ekki með prófi eða próf- skírteini, en nemendur eiga að ná betri tökum á skotfimi.“ Hvar er skólinn staðsettur? „Við höfum aðstöðu hjá Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar á Iðavöllum. Þar er frábær skot- völlur. Eins er ég reiðubúinn að fara út um land og kenna, til dæmis í samvinnu við skotfélög.“ Er fleira á döfinni hjá Skotskólanum? „Í vetur er ætlunin að vera með fyrirlestra og námskeið. Veiðiskóli Skotskólans verður með sérstök námskeið um skotveiðar og mun Róbert Schmidt annast þau. Þar verða kennd ýmis hag- nýt atriði, auk þess að vinna að bættu veiðisið- ferði skotveiðimanna. Farið er yfir ýmislegt varðandi skotvopn og meðferð þeirra, veiðitækni og val á veiðistöðum. Útbúnað til margs konar veiða, skotveiðar erlendis og síðast en ekki síst meðhöndlun á villibráð og matreiðslu villibráð- ar.“ Skotfimi |Skotskólinn.is tekur til starfa Kennsla í haglabyssuskotfimi  Ellert Aðalsteinsson er fæddur á Húsavík 25. júní 1970. Hann hóf keppni í leirdúfu- skotfimi 1993 og flutt- ist ári síðar til Bret- lands til að mennta sig og æfa leirdúfuskot- fimi. Hann varð Ís- lands- og bikarmeistari 1995 ásamt því að vera valinn skotmaður árs- ins af Skotsambandi Íslands. Ellert hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari og tvisvar bik- armeistari í leirdúfuskotfimi. Kona Ellerts og meðeigandi Skotskólans er Þórdís Björk Sig- urbjörnsdóttir og eiga þau samtals þrjú börn. TENGLAR ..................................................... www.skotskolinn.is Stríðsminjar í Öskjuhlíð ÉG er hjartanlega sammála Ragn- ari Inga sem benti á skammarlegt ástand stríðsminja í Öskjuhlíð. Einnig hversu óaðgengilegar þessar minjar eru. Auk Íslendinga sjálfra sem vilja geta skoðað minj- arnar koma hingað margir breskir ferðamenn sem hugsanlega hefðu áhuga á að skoða þær. Þeim Bret- um fer sennilega fækkandi sem hér dvöldu á stríðsárunum, en vitað er að afkomendur þeirra hafa gert sér ferð til Íslands til að skoða landið og ekki síst þá staði sem tengjast stríðinu. Kannski vaknar einhver upp eft- ir svona 25 ár sem sér þarna nýja möguleika í ferðaþjónustu og drífur í að láta endurgera minjarnar. Þ.e.a.s. ef ekki verður þá búið að sprengja þær upp vegna gatna- gerðar eða hótelbyggingar í Öskju- hlíðinni. En hversu mikið myndi viðgerð kosta eftir 25 ár miðað við að gera það strax? Eru þá höfð í huga lista- verk vestfirska bóndans sem hafa fengið að grotna niður í nokkra áratugi. Nú á víst loksins að reyna viðgerð og fá til þess erlendan sér- fræðing. Bogi Karl. Langar til útlanda ÉG er 26 ára gömul og er í hjóla- stól eftir líkamsárás sem ég varð fyrir 1993. Nóg um það. Eins og flesta aðra langar mig til útlanda. En til þess að það geti orðið þarf ég tvo aðstoðarmenn. En ég þarf sjálf að borga fyrir þá og hef ekki efni á því, því eins og aðrir öryrkjar veð ég ekki í peningum. Mér finnst eins og það sé alltaf verið að hegna manni fyrir að vera óvinnufær þegn því ekki bað ég um að verða fyrir árás og verða rænd framtíð minni og frelsi. Ég skora á flugfélögin, fé- lagsþjónustuna, ríkið – eða guð má vita hvern – að bæta úr þessu. Guðrún Jóna Jónsdóttir. Vinnuskólinn í Breiðholti YFIRLEITT er ánægjulegt að sjá nemendur Vinnuskólans við vinnu á sumrin. Unglingarnir eru yfirleitt glaðlegir og vinnusamir og skila góðu verki. Nýlega birtust hér pistlar um góð vinnubrögð ungling- anna í Efra-Breiðholti sem voru sagðir hafa sýnt snyrtimennsku í grasslætti. Því miður á það ekki við nokkra staði í Neðra-Breiðholti þar sem aðeins hefur verið slegin miðja grassvæðanna, en ekkert slegið úti við kantana, hvorki við gangstétt- arkanta né við trjábeðin. Þar er grasið víða óslegið enn og er farið að ná nokkuð upp eftir trjábol- unum. Vinnubrögðin hljóta að fara mikið eftir verkstjórunum. Eru þeir verkstjórar sem stjórna vinnu- hópum í Neðra-Breiðholti vinsam- lega beðnir að kíkja á þetta og lag- færa. Bakkabúi. Köttur fannst RÚMLEGA 6 mánaða gamall fress fannst við Melabúðina aðfaranótt 19. júlí sl. Kötturinn er hvítur með gráar skellur og ber rauða ól. Upp- lýsingar í síma 562 5064 eða 663 3451. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6 4. O-O Bd7 5. He1 Rf6 6. c3 a6 7. Ba4 b5 8. Bc2 Hc8 9. a4 g6 10. axb5 axb5 11. d4 cxd4 12. cxd4 Bg4 13. Rc3 b4 14. Re2 Bg7 15. d5 Bxf3 16. gxf3 Re5 17. Ba4+ Rfd7 18. Rd4 O-O 19. f4 Rc4 20. Rc6 Hxc6 21. dxc6 Rc5 22. De2 Rb6 23. Bb5 Rb3 24. Ha6 Rd4 25. Dd3 Ra8 26. Ha4 Rc7 27. Hxb4 Db8 28. Hxd4 Bxd4 29. Dxd4 Dxb5 30. f5 Hc8 31. Bh6 Re8 32. e5 Hxc6 33. exd6 Hxd6 34. De5 Dxe5 35. Hxe5 Hd7 36. Hc5 f6 37. fxg6 hxg6 38. Be3 Hb7 39. Bd4 Kf7 40. Kg2 Rd6 41. Bc3 e5 42. Ha5 Rc4 43. Ha1 Hb6 44. b4 Rd6 45. Hb1 Ke6 46. Bd2 f5 47. Be3 Hb7 48. Bc5 Re4 49. Hd1 Hc7 50. Bb6 Hc6 51. Ba7 Ha6 52. Be3 f4 53. Bc1 Ha4 54. He1 Kf5 55. Bb2 Hxb4 56. Bxe5 Heimsmeistaramóti FIDE lauk fyrir skömmu í Trípólí í Líbýu með sigri Úsbekans Rustam Kasimzha- nov (2651). Staðan kom upp í fyrri bráðabanaskákinni í úrslitaeinvíginu þar sem upprennandi heimsmeistar- inn hafði svart gegn Michael Adams (2731). 56... f3+! Hvítur hefði frekað getað haldið jafntefli eftir 56... Kxe5 57. f3. 57. Kxf3 Kxe5 58. Kg4 Kf6 59. f4 Rf2+ 60. Kg3 Rd3 og hvítur gafst upp Svartur á leik SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is VEGNA mistaka birtist í Tímariti Morg- unblaðsins síðasta sunnudag lausn kross- gátunnar 18.07. 04 og því vantaði lausn krossgátunnar frá sunnudeginum áður sem birtist hér. Engu að síður verður dregið úr inn- sendum lausnum fyrir krossgátuna um síðustu helgi. Skilafrestur rennur út á föstudaginn og fær heppinn þátttakandi bók í vinning. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum. L E T R A Ð I R G L O R N S É R Á K V Æ Ð I F A G G T A O T T I G L A Ð U R V E I M I L T Í T A H Í L E L E K R E L S K A N D I S A U Ð A R G Æ R A M K N N S L A F I G E L D N A U T A K B R A U T L U E B U L Í K Þ R Á I R E L L I Ó R A R R F Þ E A M Ý G R Ú T U R I F S U Ú F Ð A Á F A R G R E I P A R N A R É V A N A F E S T A S R D L T R Ó N K O L L V A R P A E E K D I A A G M Á S A N D I F L U G Í K O R N I A K Í A Ð A M Lausn krossgátunnar 11.07. 04 Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 Rómantískur rúmfatnaður MAGNÚS Th. Magnússon, Teddi, opnaði sína sjöttu stórsýningu á höggmyndum úr viði og málmi í Perl- unni hinn 1. júlí. Þetta er sjötta sýning Tedda í Perl- unni og jafnframt 16. stórsýning hans. Á sýningunni eru rúmlega 80 verk. Að sögn Tedda er Perlan góður sýningarstaður og þar kann hann vel við sig. „Sýningin hefur fengið góðar viðtökur og þetta er góð staðsetning fyrir mín verk en þau þurfa mikið rými. Þá fæ ég ávallt að velja mér tíma en mér finnst best að sýna í júlí. Ein- hverra hluta vegna er júlí mjög sérstakur í ár en það virðist vera einhver órói í loftinu,“ segir Teddi. Musterisriddarar og skipsskrúfa Eitt verkið á sýningunni er sérstakt fyrir þær sak- ir að blandað er saman járnviði og íslensku líparíti. „Ég er með eitt verk á sýningunni úr járnviði og ís- lensku líparíti. Í járnviðnum er mikið grjót, leir og sandur en hann er þyngsti viður sem til er og sekkur. Járnviður hefur verið notaður í stefni á skipum og hluti sem mikið álag er á. Þess vegna læt ég íslenska líparítið og grjótið sem er í járnviðnum mætast í þessu verki,“ segir Teddi en tvö verk á sýningunni eru unnin með þessum hætti og heita „Musterisverð- irnir“. Önnur verk sem Tedda þykja mjög athygl- isverð eru unnin úr skrúfu skips sem strandaði árið 1940 í Skerjafirði rétt hjá Bessastöðum. „Þetta var sykurskip sem kom frá Finnlandi og það var mikið bruggað úr sykrinum sem kom úr þessu skipi. Kafari náði í part úr skrúfunni árið 1975 og fyrir nokkrum árum gaf hann mér skrúfuna. Ég tók til við að búa til verk úr skrúfunni og hef unnið fjögur verk úr henni sem öll eru á sýningunni,“ segir Teddi. Sýning Tedda er opin alla daga vikunnar frá klukkan 10 til 10 og stendur til 1. ágúst. Þess ber að geta að það má snerta öll verkin á sýningunni. Höggmyndir úr viði og málmi í Perlunni Morgunblaðið/Eggert „Vann fjögur verk úr skipsskrúfu,“ segir Teddi sem sýnir höggmyndir í Perlunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.