Morgunblaðið - 20.07.2004, Side 44

Morgunblaðið - 20.07.2004, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. ÞÖRUNGAR eða lífverur sem minna á þörunga stífla veiðarfæri humarbáta að sögn Guðjóns Einarssonar, skipstjóra í Grindavík. Svo virð- ist sem hlýindi valdi því að meira verði af þörungum í sjón- um. „Þetta er ógeðs- legt, vægast sagt,“ segir Guðjón og bætir við að þetta sé að finna um allar buktir. Hann nefnir m.a. að þörungarnir séu um allt Breiða- merkur- og Skeiðar- árdýpi, Skaftárós og Háadýpi. Þörungarnir festast við botn veiðarfæranna að sögn Guðjóns og mætti setja niður kartöflur í botninn sem væri eins og eðja. Einnig sagði hann þungt að hífa humartrollið. Hann segist hafa rætt við aðra skip- stjóra sem hafi sagt honum að þetta hafi einnig komið upp í fyrra og varað í þrjár vikur. Þetta sé hins vegar fyrr á ferðinni í ár. Hann segist þó vera að lenda í þessu í fyrsta sinn. Hann hefur ekki trú á að þetta trufli annan veiðskap. „Þetta truflar okkur trúlega. Við vorum reyndar að fá einhvern humar. En veiðarfærin eru allavega mjög ógeðsleg,“ segir Guðjón og bætir við að það sé ferlegt að þrífa þau. Þörungar stífla hum- artroll VERKTAKAR, sem unnu við uppbyggingu aðstöðu á æf- ingasvæði Golfklúbbs Reykjavík- ur í Grafarholti, lentu í vor í erf- iðleikum við vinnu sína, sem raktir voru til þess að þeir hefðu ónáðað álfabyggð við vinnusvæð- ið. Hafði vinnuvél rekist í stóran stein á svæðinu og velt honum og upp frá því hófust vandræði verktakans sem á eftir kom. Gunnar Sch. Thorsteinsson verkfræðingur, einn af þeim sem komu að hönnun verksins, segir verktímann hafa verið knappan, svo lítið hafi mátt fara úrskeiðis. Gunnar segir verktakafyrirtækið Alefli, sem fengið var til verks- ins, einmitt þekkt fyrir vönduð vinnubrögð og vandræðalausa vinnu. „Svo gerist það að Þorsteinn Kröyer hjá Alefli kemur til mín einn daginn og segir ekkert ganga uppi í Grafarholti. Kraninn sé bilaður á hverjum morgni þeg- ar komið er til vinnu, alltaf eitt- hvað að rafmagnstöflunni úti í skúr, starfsmenn að reka sig í timbur og detta í gjótur. Hann sagði allt ganga á afturfótunum og verkefninu yrði aldrei lokið fyrir vor með þessu áframhaldi.“ Settist á stein og rabbaði Gunnar segir Þorstein hafa sagt sér að jarðvinnuverktaki hafi rekið sig í stein sem að öll- um líkindum væri hluti af álfa- byggð. „Þá sagði ég að það væri ekkert mál, við myndum bara hringja í Erlu álfakonu, en hún var ekki heima,“ segir Gunnar sem ákvað þá að láta sjálfur á það reyna hvort hann gæti talað við vættina. „Ég er nú efasemda- maður, verkfræðingurinn, það er ekki alveg mitt hlutverk að tala við álfa, en maður verður að styðja við bakið á góðum verk- tökum. Svo brunaði ég upp eftir, gekk hingað að steininum og settist á hann og talaði upphátt ingur á þessu sviði, en ef einhver spyr mig núna um álfa, þá segi ég: Bíddu nú við, við skulum fara varlega. Ég ætla ekki að fullyrða neitt, af eða á. Þetta sýnir það að maður getur lent í ýmsu á sínum starfsvettvangi.“ aftur afsökunar.“ Eftir þetta gekk allt eins og smurt að sögn Gunnars. „Álfarnir tóku þessum friðmælum vel og það hefur ekkert komið upp á,“ segir Gunnar. „Ég er bara verk- fræðingur og enginn sérfræð- út í loftið. Ég bað álfana innilega afsökunar á þessum klaufaskap sem olli því að heimili þeirra valt um koll. Svo spurði ég þá hvort þeir vildu vera svo elskulegir að þjappa sér saman eða flytja á þægilegri stað og baðst enn og Bað álfana afsökunar á spjöllum Morgunblaðið/Árni Torfason Gunnar Sch. Thorsteinsson við steininn þar sem hann settist og rabbaði við álfana. Á bak við hann eru ný- byggðir sjötíu manna æfingapallar á þremur hæðum við golfvöll GR í Grafarholti. DALBRAUTARSKÓLI verður lagður niður í núverandi mynd, og mun starfsemi hans að mestum hluta sameinast starfi Brúarskóla við Vesturhlíð nú í haust. Skólinn, sem sinnt hefur börnum og ung- mennum á barna- og unglingageð- deild Landspítala (BUGL), sem og öðrum börnum með geðvanda, hef- ur verið undir forsjá Fræðslumið- stöðvar Reykjavíkur frá flutningi grunnskóla til sveitarfélaganna. Fréttir þess efnis að skólinn yrði lagður niður í núverandi mynd bár- ust fyrst síðla árs 2000, en að sögn Arthurs Morthens hjá Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur liggja nú fyrir drög að samningi við BUGL um skólaþjónustu, sem nú eru til um- fjöllunar hjá Landspítala – há- skólasjúkrahúsi. Innlögðum börnum enn veitt kennsla á BUGL „Dalbrautarskólinn færist í Brú- arskóla, en deildarstjóri verður yfir Dalbrautardeild skólans. Því til viðbótar verður sjúkrahúskennsla fyrir innlögð börn á BUGL, líkt og boðið er upp á fyrir önnur börn sem liggja á sjúkrahúsi. Meginat- riðið er því, að BUGL tekur við meginhlutverki Dalbrautarskólans, að veita innlögðum börnum kennslu. Þau börn sem útskrifast af deildinni færu síðan í Brúar- skóla,“ útskýrir Arthur. Starfsemi Einholts- og Hlíðar- húsaskóla fluttist í Brúarskóla í fyrra, en þar voru við nám nem- endur sem áttu við geðræna eða fé- lagslega erfiðleika að stríða. Enn- fremur er þjónustunni við meðferð- arheimilið Stuðla stjórnað frá Brúarskóla. Segir Arthur reynsl- una af skólastarfi Brúarskóla góða eftir fyrsta veturinn. „Þarna hefur komið til starfa góður hópur starfs- fólks,“ bætir hann við. Hann segir flesta starfsmenn Dalbrautarskólans flytjast yfir í nýju deildina við Brúarskóla. Hluti starfsemi Dalbrautarskóla í Brúarskóla Breytingar fyrirhugaðar á kennslu fyrir börn og unglinga með geðvanda KNATTSPYRNU- SAMBAND Íslands hefur fyrir tilstuðlan Landsbanka Íslands ákveðið að jafna verðlaunafé í Lands- bankadeildum karla og kvenna. Eggert Magnússon, formað- ur KSÍ, tilkynnti þetta í gær. Liðin sem enda í fyrsta sæti í Lands- bankadeildunum munu fá eina milljón íslenskra króna hvort. „Í dag hefur verið tekið stórt skref í sögu KSÍ og kvennaknattspyrnunnar. Með því að veita liðunum í Lands- bankadeild kvenna jafnmikið verðlaunafé og liðunum í Landsbankadeild karla er KSÍ orðið eina knattspyrnu- sambandið í heiminum þar sem algjört jafnræði ríkir í þessum málum,“ sagði Egg- ert í samtali við Morg- unblaðið í gær. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, er stoltur af því að Lands- bankinn hafi átt aðild að því að jafna verðlaunafé í Lands- bankadeildum karla og kvenna. „Landsbanki Íslands fagnar ákvörðun KSÍ um að jafna verðlaunafé til meist- araflokksliða í Landsbanka- deildum karla og kvenna. Sannast sagna erum við í bankanum stolt af því að hafa átt aðild að ákvörðun þessari þar sem hér er um framfaraspor fyrir íslenska knattspyrnu að ræða,“ sagði Halldór. Morgunblaðið/Þorkell Jafnt verðlaunafé fyr- ir karla- og kvennalið  Jafnt verðlaunafé/B1 Forystugrein/22 TILLAGA formanns Alþjóðahvalveiðiráðsins um að hefja hvalveiðar að nýju með sérstök- um skilyrðum verður rædd á Ítalíu í dag. Andstæðingar hvalveiða virðast enn vera í meirihluta í Alþjóðahvalveiðiráðinu og hafa hvalfriðunarsamtök uppi gagnrýni á þau ríki sem koma til stuðnings ríkjum sem vilja veið- ar. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar, segir þróunina þó hafa verið jákvæða, en nú verði ákveðin úrslitastund þar sem skýrist hvort ráðið ætli að fara þá leið sem stofnsamningur- inn segir til um, að stjórna hvalveiðum, eða hvort það muni halda sig við að banna allar hvalveið- ar. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, segir íslenska vísinda- menn hafa lagt fram áætlun sem miði við að vísindaveiðum á hrefnu ljúki árið 2006. Hann segir jákvætt að rannsóknin dreifist yfir lengra tímabil en tvö ár eins og upprunalega var gert ráð fyrir. Þannig sé m.a. hægt að sjá sveiflur í fæði hrefnunnar milli ára. Segir Gísli íslensku áætlunina hafa fengið tiltölu- lega vinsamlega umfjöllun en bráðabirgða- niðurstöður verði að öllum líkindum lagðar fram á næsta ári. Japanir hugsa sér til hreyfings Japanir hafa sagt ráðið algerlega óstarf- hæft og hótað úrsögn verði hvalveiðar ekki leyfðar að nýju. Þá hafa Japanir imprað á því að koma á fót stofnun sem verði hlynnt hval- veiðum og að auka samstarf við Nammco eða stofna svipuð samtök fyrir sitt svæði. Tillaga um hvalveiðar rædd í dag  Úrslitastund/Miðopna ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.