Morgunblaðið - 31.08.2004, Side 1
Fé kemur
af fjalli
Réttað verður víða um land
næstu helgar | 10
Nýtt útlit
vinkvenna
Íþróttir í dag
KA skorar eftir 610 mínútur án marks
Lyftingar teknar af dagskrá ÓL?
Eftirsjá að sir Bobby Robson
STOFNAÐ 1913 236. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
SAUTJÁN ára kanadískur piltur
var í eina og hálfa klukkustund í
sjónum eftir að skúta sem hann var á
ásamt 49 ára föðurbróður sínum,
sökk um 25 sjómílur suðvestur af
Malarrifi á Snæfellsnesi á fimmta
tímanum í gær.
Eldri maðurinn lést og hélt dreng-
urinn honum á floti þar til að áhöfn
þyrlu Landhelgisgæslunnar kom á
staðinn og hífði þá um borð. Menn-
irnir eru báðir frá Toronto í Kanada.
Drengnum varð ekki meint af og bar
sig ótrúlega vel á leiðinni heim, að
sögn Jakobs Ólafssonar, flugstjóra.
Talið er að leki hafi komið að skút-
unni og hún því sokkið en dælur
hennar voru bilaðar og réðu ekki við
sjóinn sem flæddi inn. Mjög hvasst
var og aðstæður til leitar ekki góðar.
Skútan sökk á skömmum tíma og
höfðu mennirnir lítinn tíma til að
koma sér frá borði. Yngri maðurinn
náði að komast í flotgalla en sá eldri
ekki og er talið að það hafi ráðið úr-
slitum. Mennirnir voru á leiðinni frá
Kanada til Noregs.
Er leki kom að skútunni kom
drengurinn boðum til föður síns í
Kanada. Það símtal barst um klukk-
an 16.10 og kom faðirinn skilaboð-
unum áleiðis. Skútan sökk um hálf-
tíma síðar. Landhelgisgæslan fékk
símhringingu frá Björgunarstjórn-
stöðinni í Halifax í Kanada klukkan
17. Jakob segir það mikla heppni að
mennirnir hafi fundist í sjónum. Þeir
voru ekki á þeim stað sem var Gæsl-
unni var gefinn upp fyrst enda nokk-
uð um liðið frá því að neyðarkallið
barst. Önnur staðsetning var fundin
út frá síma sem mennirnir hringdu
úr og var hún í um 35 kílómetra fjar-
lægð frá fyrstu staðsetningunni.
Jakob segir að þeir hafi hins vegar
ákveðið að kanna radarmerki sem
þeir sáu áður en þeir lögðu af stað á
seinni staðinn.
„Einhver tilviljun réð því að okkur
fannst við sjá einhver merki á rad-
ar,“ segir Jakob. Þegar þeir komu að
staðnum sáu þeir brak úr bátnum
fljótandi á sjónum og svo mennina
tvo. „Þetta var eins og að finna nál í
heystakki. Báturinn var löngu farinn
niður þannig að það var ekki hann
sem við sáum á radar. Þetta var leið-
beining einhvers staðar annars stað-
ar frá,“ segir Jakob. Mennirnir fund-
ust klukkan 18.13 og búið var að hífa
þá um borð klukkan 18.20. Þyrlan
lenti á Reykjavíkurflugvelli klukkan
19.06 og var drengurinn fluttur í
LHS í Fossvogi til aðhlynningar og
síðan á Barnaspítala Hringsins.
Einn maður lést og annar komst lífs af þegar kanadísk skúta sökk í Faxaflóa
Bjargaðist eftir einn og
hálfan tíma í sjónum
Morgunblaðið/Þorkell
Áhöfn TF-LIF bjargaði drengnum úr sjónum í gær. F.v.: Einar Valsson stýrimaður, Auðunn F. Kristinsson stýri-
maður, Jakob Ólafsson flugstjóri, Jón Magnús Kristjánsson læknir og Reynir Garðar Brynjarsson flugvirki.
SJÍA-klerkurinn Moqtada Sadr fyr-
irskipaði í gær stuðningsmönnum
sínum í Írak að virða vopnahlé í öllu
landinu. Hann tilkynnti að vopnuð
hreyfing sín myndi taka þátt í stjórn-
málum landsins og hætta margra
mánaða uppreisn gegn bandarískum
hersveitum og írösku bráðabirgða-
stjórninni.
Þessi tíðindi urðu til þess að verð á
hráolíu lækkaði um 90 cent í 42,28
dollara á fatið í New York og um
tíma fór það niður fyrir 42 dollara í
fyrsta skipti frá því í lok júlí.
Slæðubannið verði afnumið
Arabíska sjónvarpið Al-Jazeera
sýndi í gær myndbandsupptöku þar
sem tveir franskir fréttamenn, sem
rænt var í Írak, skoruðu á frönsk
stjórnvöld að verða við kröfu mann-
ræningjanna um að afnema bann við
íslömskum höfuðslæðum í frönskum
ríkisskólum. „Verði það ekki gert
getur það kostað okkur lífið,“ sögðu
fréttamennirnir. Þeir hvöttu einnig
frönsku þjóðina til að mótmæla
slæðubanninu.
Sadr fyrir-
skipar
vopnahlé
Bagdad. AFP.
Slæðubann/14
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti viðurkenndi í gær að hann
teldi ekki að sigur gæti unnist í
stríðinu gegn hryðjuverkastarfsemi
í heiminum en hét því að halda stríð-
inu áfram í því skyni að gera heim-
inn öruggari fyrir komandi kyn-
slóðir.
„Ég held ekki að við getum sigrað
í því,“ sagði Bush um stríðið í sjón-
varpsviðtali. „En ég held að hægt sé
að skapa þannig aðstæður að þeir
sem nota hryðjuverk sem bar-
áttutæki njóti minni vinsælda sum-
staðar í heiminum.“
Atburðirnir 11. september 2001
setja mikinn svip á dagskrá flokks-
þings repúblikana sem hófst í New
York í gær. Ræðumenn kvöldsins
ræddu um hryðjuverkaógnina og
lýstu Bush sem öflugum leiðtoga á
stríðstímum en sökuðu forsetaefni
demókrata um linkind í baráttunni
gegn hryðjuverkum.
Bush telur
stríðið ekki
vinnanlegt
New York.
Æfing/23
Repúblikanar á flokksþingi í gær.
SAMKVÆMT heimildum Morgun-
blaðsins hefur bandaríska álfyrir-
tækið Alcoa sýnt því áhuga að
reisa álver á Norðurlandi, til við-
bótar við Fjarðaál sem fyrirtækið
mun reisa á Reyðarfirði.
Bæði Landsvirkjun og stjórn-
völd hafa verið að kynna virkj-
unar- og stóriðjukosti á Norður-
landi fyrir stórum álfyrirtækjum,
líkt og fram kom í Morgunblaðinu
í júlí sl.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra vildi í samtali við Morg-
unblaðið ekki staðfesta hvaða
áhugasömu álfyrirtæki þetta væru
en heimildir blaðsins herma að auk
Alcoa séu þetta BHP-Billiton, Rio
Tinto og Russal. Þau hafa ekki
fjárfest hér á landi áður en sýndu
þó álveri á Austurlandi áhuga á
sínum tíma, einkum BHP-Billiton,
sem er breskt/ástralskt fyrirtæki
eftir samruna BHP og Billiton árið
2001.
Rio Tinto er stærsta
námufyrirtæki heimsins
Rio Tinto, sem er með höfuð-
stöðvar í Ástralíu og á Bretlandi,
er stærsta námufyrirtæki heims
og rekur málmvinnslur, verksmiðj-
ur og orkuver víða um heim. Í
gegnum dótturfyrirtæki sín kemur
Rio Tinto að rekstri ellefu fyr-
irtækja sem tengjast úrvinnslu á
súráli, hrááli og fullunnu áli. Hefur
fyrirtækið, samkvæmt upplýsing-
um blaðsins, verið að leita sér að
ákjósanlegum stað í heiminum til
að reisa stórt álver en Rio Tinto
skoðaði á sínum tíma möguleika á
að reisa kísilmálmverksmiðju í
Reyðarfirði.
BHP-Billiton er sömuleiðis stórt
fyrirtæki á heimsvísu, með höf-
uðstöðvar í Ástralíu, S-Afríku og
London. Um 60 þúsund manns
starfa hjá fyrirtækinu, sem veltir
um 20 milljörðum dollara á ári
hverju.
Kynna virkjunar- og stóriðjukosti á Norðurlandi
Alcoa, BHP-Billiton og
Rio Tinto sýna áhuga
AUÐUNN F. Kristinsson stýrimað-
ur á TF-LÍF seig niður á slysstað í
og hífði mennina upp úr sjónum í
gær.
Auðunn segir drenginn hafa
haldið ró sinni og verið hissa á því
hvað þyrlan fann þá snemma en
þegar þeir fundust hafði dreng-
urinn haldið hinum látna á floti í
um eina og hálfa klukkustund.
„Hann var ótrúlega rólegur og
greinilega feginn,“ segir Auðunn.
„Lukkan var með honum úr því sem
komið var.“
„Ótrúlega
rólegur“
♦♦♦
Vinkonurnar Guðný Erla og Stef-
anía skipta um ham | Daglegt líf