Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 14
Reuters Alu Alkhanov ætlar að taka hart á herskáum aðskilnaðarsinnum. ANDSTÆÐINGAR Alu Alkhanovs, sem sigraði í forsetakosningum í Tétsníu um helgina, segjast efast um lögmæti úrslitanna en hann er sagð- ur hafa fengið rúmlega 78% at- kvæða. Sumir eftirlitsmenn í kosn- ingunum hafa einnig látið í ljós efasemdir, segja erfitt að trúa því að kosningaþátttaka hafi verið meiri en 85%, eins og gefið hefur verið upp, þar sem kjörstaðir hafi verið nánast mannlausir. Osam Baysayev, eftirlitsmaður og fulltrúi mannréttindasamtakanna Memorial, sagði að kosningarnar „ætti að ógilda vegna lítillar þátt- töku“. Skipuleggjendur segja hins vegar að allt hafi farið vel fram og eftirlitsmaður frá Arababandalaginu sagði í sjónvarpsviðtali að kosning- arnar hefðu farið vel fram og skipu- lag verið gott. Alkhanov er innanríkisráðherra Tétsníu sem er eitt af lýðveldum Rússlands. Þar hafa aðskilnaðar- sinnar barist fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis á undanliðnum árum. Alkhanov naut stuðnings stjórnvalda í Moskvu og er almennt litið á hann sem full- trúa Vladímírs Pútíns Rússlandsfor- seta. Skrifað undir dánarvottorð Fjórir af fimm leiðtogum Tétsena hafa verið myrtir. Sagt er að starf forseta þar sé hið hættulegasta í Rússlandi en herskáir aðskilnaðar- sinnar hafa þegar sagt að Alkhanov muni hljóta sömu örlög og forverar hans. „Eins og síðast, munu yfirvöld skrifa undir dánarvottorð þess sem þau velja. Hvorki kosningar né stefna Rússa í Tétsníu munu verða til þess að viðunandi niðurstaða fá- ist,“ sagði í yfirlýsingu herskárra að- skilnaðarsinna. Alkhanov segist hins vegar ætla að taka hart á uppreisnarmönnum og halda þar með stefnu forvera síns Akhmad Kadyrov, fyrrverandi for- seta, sem myrtur var í maí. Sagðist hann ætla að leggja áherslu á örygg- ismál en einnig að treysta efnahag landsins. Efast um lögmæti kosninganna Grosní. AFP. ERLENT 14 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 5171020 Opið: mán. - föstud.11-18 laugard.11-15 Spennandi gjafavörur og húsgögn LEIÐSÖGUNÁM Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd- um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland. Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám. Helstu námsgreinar:  Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.  Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. Mannleg samskipti. Skyndihjálp og skipulag.  Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum. Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir. Umsögn: „Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands. Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds- nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00. Heimasíða: www.menntun.is Martha Jensdóttir kennari. TYRKNESKIR sérsveitarmenn sýndu listir sínar í höfuðborginni Ank- ara í gær þegar þess var minnst að 82 ár voru liðin síðan Tyrkir unnu sigur á herjum Grikkja, Frakka og Ítala. Ári síðar stofnaði Mustafa Kemal, öðru nafni Atatürk eða Tyrkjafaðir, lýðveldi og batt enda á margra alda valdaskeið soldánanna. Stóra veggspjaldið sýnir andlits- drætti Atatürks. Reuters Atatürk hylltur Spenna í Kabúl Talíbanar hóta fleiri tilræðum Kabúl. AP, AFP. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hvöttu í gær bandaríska borgara í Kabúl, höfuðborg Afganistans, til að láta lítið á sér bera vegna aukinnar hættu á árásum hryðjuverkamanna. Ellefu manns, þar af þrír Banda- ríkjamenn, létu lífið í bílsprengju í borginni á sunnudag og lýstu talíb- anar ábyrgð á hendur sér. Nokkrum stundum fyrr dóu níu manns, þar af átta börn, í tilræði í suðaustanverðu Afganistan. Bandarískum borgurum var sagt að reyna eftir mætti að forðast staði sem gætu verið líkleg skotmörk tal- íbana og liðsmenn Sameinuðu þjóð- anna í borginni hafa fengið fyrirmæli um að vera sem minnst á ferli á göt- unum. Ljóst er að hryðjuverkamenn reyna nú ákaft að trufla aðdraganda forsetakosninganna sem eiga að fara fram 9. október. Bandaríkjamennirnir sem féllu voru öryggisverðir og unnu fyrir fyr- irtækið DynCorp sem meðal annars hefur gætt öryggis Hamids Karzais forseta. Múllann Hakim Latifi, sem segist vera talsmaður talíbana, hringdi í fréttamenn í gær og sagði að fleiri sprengjutilræði væru fyrir- huguð. Hann sagði að Afganar ættu að forðast kjörstaði og staði þar sem Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra í gæsluliði Atlantshafsbanda- lagsins í landinu hefðust við. Rúmlega tíu milljónir manna hafa þegar látið skrá sig á kjörstöðum en alls er talið um 25 milljónir manna búi í Afganistan. Mestu votviðri í hálfa öld ÞETTA sumar hefur verið það votviðrasamasta í Bretlandi í næstum hálfa öld. Í Englandi og Wales hefur úrkoman í júní, júlí og ágúst verið ríflega helm- ingi meiri en í meðalári og þarf að fara aftur til ársins 1956 til að finna hana meiri. Úrkoman í fyrrnefndum þremur var 274 mm til jafnaðar og er þetta ár það 12. votviðra- samasta frá því reglulegar mælingar hófust í Bretlandi ár- ið 1786. Bliknar það raunar í samanburði við sumarið 1912 en þá var meðalúrkoma þessa þrjá sumarmánuði 410 mm. Kom þetta fram í blaðinu Gu- ardian í gær. Rigningarnar hafa haft veru- leg áhrif á daglegt líf Breta. Flóð og skriðuföll hafa valdið tjóni, mörgum samkomu og íþróttaviðburðum hefur verið aflýst, t.d. Wimbledon-tennis- keppninni. Á ökrunum liggur kornið flatt og hráblautt og víða svarar ekki kostnaði að reyna að hirða það. Óttast er, að fyrir bændur sé skaðinn jafnvel meiri en af gin- og klaufaveik- inni á sínum tíma. Gyðingahatur ekki orsök íkveikju París. AFP. hvað maðurinn sem handtekinn var héti en samkvæmt heimildarmönn- um í herbúðum hennar var leitað að fimmtugum gyðingi, sem kom oft í félagsmiðstöðina. Maðurinn er sagð- ur „svo að segja heimilislaus“ og mun eiga við geðsjúkdóma að stríða, samkvæmt heimildum lögreglunnar. FRANSKA lögreglan hefur hand- tekið mann í tengslum við íkveikju á félagsmiðstöð gyðinga í París nýver- ið. Greint hefur verið frá því í frétt- um að ekki sé hægt að rekja árásina til gyðingahaturs en upphaflega var talið að sú væri ástæðan fyrir henni. Lögregla vildi ekki greina frá því FRÖNSK stjórnvöld hétu því í gær að þau myndu ekki láta undan kröfum mannræningja í Írak og af- nema bann við notkun ísl- amskra höfuðklúta í frönsk- um ríkisskólum. Mannræn- ingjanir hafa tvo franska fréttamenn í haldi og er óttast, að þeir verði líflátn- ir, verði banninu ekki af- létt. „Lögunum verður beitt,“ sagði Jean-Francois Cope, talsmaður Frakklands- stjórnar, í sjónvarpsviðtali og bætti við að franska þjóðin myndi ekki fórna gildum sínum vegna hótana mann- ræningja. Arababandalagið fór í gær fram á að gíslunum yrði sleppt eins fljótt og mögulegt væri. „Ég hvet alla til að leysa þetta mál eins hratt og hægt er og láta gíslana lausa eins fljótt og auðið er,“ sagði Amr Mussa, framkvæmdastjóri banda- lagsins, eftir að hafa átt fund með Michel Barnier, utanríkisráðherra Frakklands. Barnier er í Kaíró í Egyptalandi en þangað fór hann til að freista þess að fá gíslana lausa. Fréttamannanna tveggja, Christian Chesnot og Georges Malbrunot, hefur verið saknað síð- an 20. ágúst. Á laugardagskvöld barst yfirlýsing þar sem hópur, sem kallar sig Íslamska herinn í Írak, sagðist hafa mennina í haldi og að frönsk stjórnvöld fengju 48 tíma til að fella slæðubannið úr gildi. Sögðu þeir að bannið væri árás á íslamstrú og persónufrelsi. Fresturinn sem þeir gáfu rann út í gærkvöldi. Svo virðist sem mikil samstaða sé í Frakklandi um að láta ekki undan kröfum mannræningjanna. Jafnvel leiðtogar franskra múslima, sem voru andvígir höfuðklútabanninu, hvöttu stjórnvöld til að láta ekki undan og fordæmdu mannránið. Slæðubann ekki afnumið Arababandalagið hvetur mannræn- ingja til að sleppa frönskum gíslum París, Kaíró. AFP. Christian Chesnot, fréttaritari franska rík- isútvarpsins, og Georges Malbrunot sem hefur starfað fyrir dagblaðið Le Figaro. Reuters HOLLENSKIR bjórsvelgir, sem geta ekki beðið með að kasta af sér vatni þar til þeir komast heim, eiga ekki von á góðu í Tilburg í Hollandi. Eigandi veitingahúss nálægt vin- sælum krám í bænum hefur fengið sig fullsaddan á bjórþjórurum, sem pissa í sundi við húsið. Hefur hann því komið þar fyrir sturtu til að koma þeim á óvart. Sturtan er búin nemum og þegar einhver nálgast hana að næturlagi fær hann kalt steypibað. „Það kostaði rúmar 900 evrur [um 80.000 krónur] að setja hana upp en ef þetta verður til þess að veitinga- húsið mitt losnar við óþefinn verður það þess virði,“ sagði eigandinn. Þvagsóðarnir fá kalda sturtu Haag. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.