Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 19
Vinkonurnar: Guðný Erla og Stef-
anía eins og þær eiga að sér að vera.
Aftur er lagt af stað í
leiðangur undir yfir-
skriftinni „Svona vil ég
sjá þig“ en fyrir skömmu
voru það tveir herra-
menn sem riðu á vað-
ið. Anna Pála
Sverrisdóttir fylgd-
ist með vinkon-
unum Stefaníu og
Guðnýju Erlu
gera róttækar
breytingar hvor
á annarri.
Það sést að Stef-anía Ragn-arsdóttir ogGuðný Erla
Guðnadóttir eru góðar
vinkonur. Þær eru samt
alls ekki eitt af þessum
vinkonu- eða vinapörum
sem hafa tilhneigingu til að
klæða sig nákvæmlega eins.
Þær eru eiginlega mjög ólík-
ar hvað persónulegan stíl snert-
ir. Helst datt mér í hug „Stormur
og lognið í auga hans“ eftir að hafa
eytt tíma með stelpunum. Þær eru
nú að hefja skólaárið, Guðný Erla í
Menntaskólanum við Sund og Stef-
anía í Borgarholtsskóla en unnu
saman í sumar. Það var lítið mál
fyrir þær að hitta mig í Kringlunni
eftir vinnu og leyfa ljósmynd-
aranum að festa á filmu hvernig
þær breyttu hvor annarri sam-
kvæmt forskriftinni „Svona vil ég
sjá þig!“
Úr einfaldleika í
eitthvað allt annað
Það er talsvert um að vera þegar
klæða skal Stefaníu upp á nýtt.
Undir vaskri stjórn Guðnýjar Erlu
geysumst við á hraðspólunarhraða
milli búða og mátunarklefa en
Guðný veltir ýmsum hlutum fyrir
sér og vill alls
ekki láta duga að
vera bara nokkurn
veginn ánægð. Áfram
skal haldið þar til rétta
útlitið er fundið. Á endanum
finnur hún flest það sem til þarf í
Spútnik.
Í Spútnik kennir ýmissa grasa en
það sem helst einkennir verslunina
er m.a. mikil litadýrð og mismun-
andi samsetningar. Stefaníu líður
hins vegar venjulega best í mjög
einföldum og þægilegum fötum og
er bara ánægð með sinn stíl eins og
hann er: Engar flækjur. Guðný
Erla vill meina að hún sé „bara
eitthvað klikkuð; svartar buxur og
svartur bolur uppáhaldsfötin!“ Þeg-
ar Stefanía er komin í hvítan leð-
urjakka, skærgrænan íþróttahlýra-
bol og skræpótt, mynstrað pils, er
Guðný enn ekki ánægð: „Þú bara
gerir allt venjulegt!“
En það kemur að því að Stefanía
lítur síður en svo út fyrir að vera
það sem flestir myndu kalla venju-
legt. Á myndinni klæðist hún
tveimur pilsum; svörtu blúndupilsi
undir og rauðu pilsi úr siffoni yfir.
Hún er í tvenns konar blúndu-
hlýrabolum, svörtum og hvítum og
með hálsfesti í stíl. Hvítur leð-
urjakki er góðfúslega fenginn að
láni í versluninni Retro. Rauður
hálsklútur og svart sólder eru með-
al stóru smáatriðanna sem Guðný
Erla veltir mikið fyrir sér, auk belt-
anna þriggja sem eitt er af Guðnýju
sjálfri. Mál fólksins í kring er að
þetta klæði Stefaníu vel. Sjálf bros-
ir hún bara út í annað að látunum.
Hún er aldrei fín!
Guðný Erla er augljóslega ein af-
þeim sem nenna að spá í smáat-
riðin; hún ber mismunandi belti og
keðjur um mittið og hálsinn og rað-
ar saman nokkrum flíkum. Þrátt
fyrir það segist Stefanía ætla að
gera hana fína „... Af því hún er
aldrei fín!“ og ákveður að klæða
Guðnýju í kjól. Svo Guðný Erla er
dregin nauðug viljug inn í verslun
Karen Millen í Kringlunni þar sem
ekki þarf að leita lengi til að finna
nokkra fallega kjóla. Stefnan er
tekin á mátunarklefana með eina
þrjá kjóla í farteskinu og sam-
kvæmt ákvörðun Stefaníu byrjar
Guðný á að sýna sig í einum þeirra.
Og að hætti Stefaníu verður þetta
einföld aðgerð; það þarf ekki að
leita lengra.
Kjóllinn sem verður fyrir valinu
til að gera Guðnýju Erlu loksins
„fína“ er lónblár kínakjóll með
„trópísku“ blómamynstri. Frískleg-
ur en um leið glæsilegur sum-
arkjóll. Gæti sómt sér vel í hvaða
veislu eða hanastélsboði sem væri
(þótt mögulega séu einhver ár í að
Guðný fari að stunda slíka við-
burði). Sérlega hressilegt er að
fylgjast með þegar Guðný Erla tek-
ur af sér derhúfuna og taglið og
klæðir sig í kjólinn. Á tímabili telur
hún sig alls ekki hæfa í myndatöku
þar sem hún sé svo „heit og rauð!“
eftir hamaganginn og hlaupin milli
verslana. En eftir eitt vatnsglas
tekur hún sig orðið vel út og tökur
geta hafist. Hvenær ætli hún fari
næst í kjól?
TÍSKA|Guðný Erla Guðnadóttir og Stefanía Ragnarsdóttir
Guðný Erla: Glæsileg í kjól sem nýt-
ur sín vel einn og sér. Stefanía
flækti ekki málin við valið.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Stefanía: Tekur sig vel út eftir aðgerðir storm-
sveipsins Guðnýjar Erlu.
Svona vil ég
sjá þig
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 19
MIRALE
Grensásvegi 8
sími: 517 1020
Opið:
mán.- föstud.11-18
laugard. 11-15
Í tilefni af því að MIRALE hefur tekið við Cassina
umboðinu á Íslandi veitum við 15% afslátt
af öllum sérpöntuðum húsgögnum til 31. ágúst.
580 80 80
Vilt þú auglýsa!
Þetta svæði er laust núna
hringdu í síma
midlun@midlun.is
Vilt þú komast frá amstri hversdagsleikans?
Sumarbústaðir með heitum potti, aðeins
klukkustundarakstur frá Reykjavík.
Stærra hús sem hentar fyrir
hópa og starfsmannafélög.
Stórbrotið umhverfi, hestaleiga á
Löngufjöru
s. 435 6628, 863 6628
Ferðaþjónusta Snorrastaða
s. 435 5627, 899 6627
Við höfum
svarið.
Stutt í
berjamó.Reykjavík v/ Ægisgarð • S. 555 3565 • www.elding.is
Hvalaskoðun
Þrjár ferðir daglega – fróðleg skemmtun
fyrir alla fjölskylduna!
Ferðir alla þriðjudaga kl. 18:00 og
laugardaga kl. 13:30. Einnig sérferðir
fyrir hópa, tímar eftir samkomulagi.
Sjóstangaveiði á sjó
Ævintýri
FERÐALÖG