Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 15 T ilb o ð in g ild a ti l 1 4. 9. 2 00 4 G O T T F Ó LK M cC A N N · 2 6 8 4 5 Mig langar að hressa mig aðeins við. PTP Nú fylgir næring með hverjum keyptum PTP sjampóbrúsa. VIELLE Nýjung sem sló í gegn í Bretlandi. Unaðsbjörgin er dásamlega einföld og frábær lausn á fullnægingarvanda kvenna. Venjulegt verð: 1.990 kr. 1.490 ONE TOUCH BRÚNKUÚÐI OG COLOUR OFF Nú verðið þið brún og sæt með One Touch brúnkuúða. Colour Off klútarnir fjarlægja óæskilegan húð- og háralit. Ef þú kaupir PTP sjampó færðu næringu með. 20% w w w .c lin iq ue .c om www.lyfja.is 100% ilmefnalaust GÓÐ GJÖF Lyfju Lágmúla í dag kl. 13-17 Lyfju Smáratorgi á morgun kl. 13-17 Lyfju Laugavegi Fimmtudag kl. 13-17 Lyfju Garðatorgi Föstudag kl. 13-17 Lyfju Smáralind Laugardag kl. 13-17 Lyfju Spöng Þriðjudag kl. 13-17 Lyfju Setbergi Miðvikudag kl. 13-17 Kaupauki 5 hlutir! Ef þú kaupir tvo hluti eða fleiri frá CLINIQUE er þessi gjöf til þín. Ráðgjafi frá CLINIQUE verður í Lyfju: • Rinse-Off augnfarðahreinsir 30 ml • Repairwear Intensive Night Cream 7 ml • High Impact Eye Shadow Foxy 8 g • Glosswear For Lips 2.4 g • Clinique Simply Fragrance Spray 4 ml *Meðan birgðir endast VÍSINDAMENN hafa uppgötvað, að með genabreytingu má breyta venjulegum músum í maraþon- hlaupara, en ekki eru líkur á að hægt verði að gera þessa breyt- ingu á mönnum fyrir Ólympíu- leikana 2008, að því er fram kem- ur í rannsókn sem birt var á mánudaginn. Úthald genabreyttu músanna reyndist meira en óbreyttra músa og ofurmýsnar fitnuðu ekki óhóf- lega þótt þær hreyfðu sig lítið og nærðust á fitandi mat, því að genabreytingin virkaði eins og lík- amsæfingar. Kom þetta fram í til- ynningu frá Public Library of Science Biology, sem er vísindarit gefið út á Netinu. Sumar genabreytingarnar „auka ekki aðeins líkamlega getu heldur veita að öllum líkindum vernd gegn offitu“, sagði Ronald Evans, vísindamaður við Salk-rannsókn- arstofnunina í San Diego í Kali- forníu, en hann stjórnaði tilraun- unum með genabreytingarnar á músunum. „Sú niðurstaða, að hægt sé að hafa áhrif á úthald og hlaupagetu með genabreytingum, bendir til að aðlögunarhæfni vöðva sé mun meiri en talið hefur verið. Ef til vill verður hægt að búa til Ólymp- íukeppendur – en þó er líklega óráðlegt að hætta strax að æfa,“ sagði Evans. Hann sagði að genabreyttu mýsnar hefðu hlaupið tvisvar sinn- um hraðar og tvisvar sinnum lengra en óbreyttar mýs, eða hátt í 1,8 km, en þær óbreyttu hlupu 900 metra. Breyttu mýsnar hlupu klukkustund lengur en þær óbreyttu. Genið sem breytt var er ein- ungis virkt þegar mýsnar eru und- ir líkamlegu álagi. Þegar genið er orðið virkt eykur það getu músa, sem venjulega taka því rólega, til líkamlegrar áreynslu og eykur einnig fitubrennslu hjá þeim, jafn- vel þótt þær reyni ekkert á sig. Ekki er vitað til að genabreyt- ingin hafi neinar aukaverkanir, en vísindamennirnir vilja halda rann- sóknum sínum áfram, ekki síst til að komast að því hvort breytingin hafi einhver áhrif á ævilengd mús- anna. Genabreytingar í músum eru talsvert frábrugðnar genabreyt- ingum í mönnum, en stór lyfjafyr- irtæki hafa þegar sýnt áhuga á til- raunum Evans með að auka framleiðslu svonefnds góðs kólest- eróls í fólki. Vísindamenn í Kaliforníu búa til „maraþonmýs“ Washington. AFP. AP Erfðabreytt mús þreytir maraþonhlaup á hlaupabretti í Salk-rannsókn- armiðstöðinni í Kaliforníu. Maraþonhlaup er um 42 kílómetrar. ’Ef til vill verður hægtað búa til Ólympíu- keppendur – en þó er líklega óráðlegt að hætta strax að æfa.‘

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.