Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ég skil ekki hvað þessar framsóknarkerlingar sjá við þig. Kannt ekki einu sinni línudans. Húsafriðunarnefndhefur ekki lokiðumfjöllun um hvernig best verður staðið að varðveislu friðaðra inn- réttinga í Eimskipafélags- húsinu, en fyrirhugað er að hefja rekstur hótels í húsinu á næsta ári undir nafninu Hótel 1919. Tvær leiðir eru einkum taldar koma til greina, annars vegar að varðveita innrétt- ingarnar áfram í húsinu og hins vegar að taka þær niður og setja þær upp á öðrum stað. Eimskipafélagshúsið þykir merkilegt í bygging- arsögu landsins. Það var byggt skömmu eftir að Eimskipa- félagið hóf starfsemi og ber metn- að og stórhug stofnendanna glöggt merki. Afgreiðslusalurinn var þiljaður að innan með eikar- þiljum og í húsinu var lyfta. Í bók- inni Kvosin, byggingarsaga mið- bæjar Reykjavíkur, segir að hvort tveggja hafi verið nýmæli í ís- lenskum húsum á þeim tíma. Húsafriðunarnefnd hefur frið- lýst viðarinnréttingarnar á efstu hæð hússins í svokölluðum Kaup- þingssal, en þær skar út Stefán Eiríksson myndskeri. Ennfremur hefur nefndin friðlýst ytra útlit hússins. Tvær leiðir til skoðunar Magnús Skúlason, formaður Húsafriðunarnefndar, segir að ákvörðun um hvernig farið verður með friðlýstar innréttingar húss- ins hafi ekki verið tekin. Nefndin bíði eftir formlegri tillögu eigenda hússins. „Við erum að skoða ann- ars vegar tillögu Eimskipafélags- ins og nýrra eigenda um hvort gerlegt er að taka þessar innrétt- ingar niður og setja þær í annars konar sal sem líkist þessum sal. Hins vegar er sá möguleiki að skilja innréttingarnar eftir og klæða þær af og geyma þær í hús- inu til seinni tíma.“ Magnús sagði að Húsafriðunar- nefnd hefði útilokað hvorugan kostinn. „Húsafriðunarnefnd á eftir að funda um málið þegar fyrir liggja hugmyndir um hvernig er hægt að standa að málum. Það liggur ekki endanlega fyrir á þess- ari stundu.“ Magnús sagði að Húsafriðunar- nefnd væri búin að fylgjast vel með málinu og ræða ítarlega við eigendur hússins um hugsanlega lausn á því. Neikvæðar minningar tengdar merkinu Upphaflega hugmynd nýrra eigenda hússins var að láta inn- réttingarnar njóta sín, en skipta salnum upp í herbergi. Þórsham- arsmerkið, sem um áratugi var einkennismerki Eimskip, er áber- andi hluti tréskurðarins í innrétt- ingunum. Þetta veldur eigendum hússins nokkrum áhyggjum en þeir óttast að gestir hótelsins eigi erfitt með að greina á milli þess og hakakross þýska nasistaflokksins. „Það hefur komið fram að það er fjöldi erlendra ferðamanna sem kunna ekkert að greina á milli hakakrossins og Þórshamars. Það fylgja því neikvæðar minningar fyrir marga sem ella myndu kjósa að gista þarna,“ sagði Andri Már Ingólfsson, forstjóri Heimsferða, sem keypti húsið af Eimskip og ætar að breyta því í hótel. Þórshamarsmerkið er áberandi utan á húsinu og er fyrirhugað að mála yfir það svo að það verði ekki eins áberandi og það er í dag. Andri Már sagðist ekki hafa trú á öðru en að Húsafriðunarnefnd og eigendur hússins ættu eftir að finna góða lausn á því hvernig best væri að varðveita innréttingarnar. Andri sagði að upphaflega hefði Húsafriðunarnefnd verið búin að samþykkja að innréttingarnar yrðu varðveittar í húsinu. Það væri alls ekki útilokað að það yrði niðurstaðan í málinu. „Síðar meir kom fram ný hugmynd frá okkur. Eimskipafélagið var tilbúið að kosta það að taka þessar innrétt- ingar niður og setja þær upp í öðru húsnæði þar sem þær fengju að njóta sín. Þegar sá möguleiki kom upp þótti okkur það mjög fýsilegt því varðveislugildi innréttinganna væri betur komið með þeim hætti heldur en að verða hluti af hóteli.“ Teikningar af hóteli í húsinu gera ráð fyrir að Kaupþingssaln- um verði skipt upp í herbergi. Það er mikið af öðrum sölum í húsinu og sagði Andri Már að það væri lít- il þörf fyrir hann óbreyttan í hót- elinu. Andri Már sagði að allt ytra úti- lit hússins og skreytingar innan- dyra yrðu látnar halda sér. Andri Már sagði að stefnt væri að því að hefja framkvæmdir í september. „Það er mikill akkur fyrir miðbæ Reykjavíkur að hafa hótel á þessum stað í rekstri næsta sumar.“ Magnús Sædal, bygginga- fulltrúi í Reykjavík, sagði að ekki væri búið að gefa út leyfi til fram- kvæmdanna. Ástæðan væri ekki síst sú að Húsafriðunarnefnd, sem hefði tekið ákvörðun um friðun innréttinganna, hefði ekki tekið ákvörðun um hvernig ætti að tryggja varðveislu þeirra. Magnús útilokaði ekki að eigendum húss- ins yrði heimilað að hefja fram- kvæmdir við einhverja verkþætti á næstunni. Fréttaskýring | Breytingar á húsi Eimskipafélags Íslands Merkið veldur heilabrotum Þórshamarsmerkið er nokkuð áberandi í friðlýstum innréttingum hússins Eimskipafélagshúsið við Pósthússtræti 2. Bæjarstjórnarfundir haldn- ir í Kaupþingssalnum  Eimskipafélagshúsið var reist árið 1919, en arkitekt hússins er Guðjón Samúelsson, húsameist- ari ríkisins. Í rishæðinni er svo- kallaður Kaupþingssalur sem Verslunarráð Íslands rak. Í hon- um voru m.a. haldnir bæjar- stjórnarfundir á árunum 1932– 1958. Í salnum eru viðarinnrétt- ingar sem eru skornar af Stefáni Eiríkssyni myndskera. Stefán var kallaður hinn oddhagi og rak um tíma myndlistarskóla í borginni. egol@mbl.is ÞÓRARINN Guðlaugsson mat- reiðslumeistari ætlar á föstudags- kvöld að efna loforð sem hann gaf sjálfum sér á ögurstundu og efna til veislu til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra. Þórarinn hefur barist við Park- inson-sjúkdóminn undanfarin ár, og fór í aðgerð í Sví- þjóð síðasta haust. „Ég hét því að ef ég læknaðist að ég myndi láta gott af mér leiða. Að- gerðin gekk vel, áður var ég hætt- ur að geta gengið og var í hjólastól. Það er því aðgerðinni að þakka að ég get staðið í lappirnar í dag.“ Þórarinn efnir loforð sitt um að láta gott af sér leiða með því að standa að svokölluðu sælkerakvöldi í Broadway nk. föstudagskvöld, 3. september. Þar verður boðið upp á mat og dagskrá fyrir gesti og jafn- framt aflað fjár til stuðnings starf- semi Íþróttasambands fatlaðra. Landslið Íslands í matreiðslu mun taka völdin í eldhúsinu, en Þórarinn er einmitt matreiðslumeistari sjálf- ur og fyrrum landsliðseinvaldur, segir hann kíminn. Hann segist þó ætla að láta eldhúsið vera þetta kvöldið og leyfa núverandi lands- liðsmönnum að spreyta sig á að elda ofan í gestina. Auk þess að bjóða upp á mat og drykk troða upp skemmtikraftar eins og Jón Ólafsson, Steinn Ár- mann Magnússon og Stefán Karl Stefánsson. Að dagskrá lokinni verður dansleikur með hljómsveit- inni Karma fram eftir kvöldi. Miða- pantanir á sælkerakvöldið eru í Broadway, nánari upplýsingar má finna á www.isisport.is/if/. Þórarinn segist ekki ætla að láta við þetta sitja, heldur ætlar hann áfram að leggja sín lóð á vogarskál- arnar hjá samtökum Parkinson- sjúklinga og öðrum slíkum. Morgunblaðið/Jim Smart Landsliðið í matreiðslu ásamt íslensku keppendunum á Ólympíuleikum fatlaðra. F.v. Einar Geirsson, Bjarni G. Kristinsson, Sigurður Gíslason, Kristín Rós Hákonardóttir, Sigurður Helgason, Kristinn Guðmundsson, Jó- hann R. Kristjánsson, Hafliði Ragnarsson, Eggert Jónsson, Jón Oddur Halldórsson, Alfreð Alfreðsson og Ásgeir Sandholt. Efnir loforð með sælkerakvöldi Þórarinn Guðlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.