Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 40
LESENDUR Morgunblaðsins hafa máski rekið augun í auglýsingu á síðum blaðsins undanfarna daga þar sem lýst er eftir hug- mynd að handriti fyrir víkingamynd og er verðlaunum heitið fyrir bestu hugmynd- irnar. Maðurinn á bakvið þetta framtak heitir Leif Bristow og er kanadískur kvikmynda- leikstjóri og framleiðandi. Leif er stoltur af íslenskum uppruna sínum, faðir hans var ís- lenskur en ólst upp í Gimli í Manitoba. Langafi Leif hét Jóhannes Magnússon og fluttist hann frá Fellaströnd í Dalasýslu 1874 til Kanada. Leif segist mikill aðdáandi Íslend- ingasagnanna og er svo heillaður af þjóð- veldisöld okkar Íslendinga að hann ætlar að gera um hana kvikmynd. Leif er nú staddur hér á landi í fyrsta sinn vegna tilefni handritasamkeppninnar og seg- ist vongóður um að Íslendingar búi yfir góð- um efniviði í framúrskarandi sögur. „Mér er alveg sama hvort viðkomandi er 18 ára nemi eða verðlaunaður handritshöf- undur, það breytir engu fyrir mig ef sagan er góð,“ segir Leif. „Vitur maður sagði mér eitt sinn að allir hefðu allavega eina sögu að segja. Hver veit nema þetta gæti verið saga einhvers.“ Leif útilokar ekki að fleiri en eitt handrit verði notuð til úrvinnslu. Hann segir jafn- framt að handritshöfundar fái jafnvel tæki- færi til að starfa nánar að þróun handritsins fram að gerð myndarinnar. „Ég vil fá sögur sem gerast á tímum vík- inganna en ég vil alls ekki fá endursagnir úr Íslendingasögunum. Þær get ég lesið sjálf- ur. Ég vil að fólk skrifi sögu byggða á sögu landsins með alþjóðlegan markað í huga,“ segir Leif. Að mati Leif hefur ekki verið gerð almennileg víkingamynd síðan kvik- myndin The Vikings var gerð árið 1958, með þeim Tony Curtis og Kirk Douglas í aðal- hlutverkum. Honum finnst kominn tími til að gera víkingunum góð skil. „Þegar ég fór að lesa Íslendingasögurnar rann upp fyrir mér hversu auðugur efnivið- ur þetta er og hversu glæsilegar sögur er hægt að búa til uppúr efni þessa tíma,“ segir Leif. Hann segir að þó hann vilji ekki gera heimildarmynd um víkingana sé honum mik- ið í mun að hafa allar sögulegar staðreyndir á hreinu. Honum er jafnframt mikið í mun að sýna víkingana í sínu rétta ljósi. „Fólk hefur svo miklar ranghugmyndir um víkingana,“ segir Leif. „Það er þessi staðlaða ímynd af vel hífuðum víkingi með sítt ljóst hár sveiflandi exi og með hjálm með hornum á hausnum. Þessir hjálmar voru ekki einu sinni til.“ Leif segir það mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir mikilvægi íslenskrar sögu, og þá sérstaklega stofnun Alþingis. „Stofnun Alþingis hér á landi er ekki kennd í neinum sögubókum og fæstir vita hversu merkilegur þessi atburður var,“ seg- ir Leif og segist vona að fyrirhuguð mynd hans eigi eftir að vekja áhuga hjá fólki á norrænni sögu. Tolkien undir áhrifum íslenskra sagna „Þið sjáið hversu mikla athygli Hringa- dróttinssaga hefur dregið að Nýja-Sjálandi eingöngu vegna þess að hún var tekin upp þar. Hugsaðu þér ef það yrði gerð stórmynd um íslenska sögu sem tekin væri að hluta til eða að öllu leyti hér á landi.“ Fyrirtæki Leif í Toronto sérhæfir sig í kvikmyndum fyrir alla fjölskylduna og telur hann líklegt að víkingamyndin verði með svipuðu sniði. „Þó að blóðugar deilur hafi að sjálfsögðu verið hluti af víkingatímanum finnst mér ekki mikilvægt að sýna þá með svo mikilli nákvæmni. Heldur vil ég gera mynd sem öll fjölskyldan getur horft á saman,“ segir Leif en hann er einn eiganda fyrirtækisins Knightscove sem sérhæfir sig í sögulegum fjölskyldukvikmyndum „Ævintýramyndir eru mjög vinsælar þessa dagana, sjáðu bara Hringadrótt- inssögu og Sjóræningja Karíbahafsins. Ég er sannfærður um að fólk hefði gaman af að sjá svipaða mynd um ævintýri víkinganna,“ segir Leif. „Ég tala nú ekki um fyrst ævintýri Tolk- iens eru skrifuð undir svo miklum áhrifum frá íslenskum sögum. Tolkien var með ís- lenska barnfóstru sem sagði honum íslensk- ar sagnir þegar hann var að alast upp. Hann sagði alla tíð að hinn íslenski sagnabrunnur hefði verið honum innblástur í öllum skrifum sínum og það er sjálfsagt að við teygum sjálf af þeim brunni.“ Kvikmyndir | Leif Bristow ætlar að gera kvikmynd um íslenska víkinga Lýsir eftir handriti Morgunblaðið/Árni Torfason Leif Bristow er sannfærður um að Íslend- ingar lumi á góðri víkingasögu. birta@mbl.is TENGLAR ................................................................. www.knightscove.com Skilafrestur handrita er til 30. september nk. Fyrstu verðlaun eru 1.000 bandaríkja- dalir. Einnig verða veitt önnur verðlaun, 500 dalir, og þriðju verðlaun, 250 dalir. Handrit sendist til: 1971 Queen Street East, Toronto, Canada M4L 1H9 eða með tölvu- pósti á netfangið info@knightscove.com. Sögurnar mega ekki vera styttri en 1.000 orð og ekki lengri en 8.000 orð.’Mér er alveg sama hvortviðkomandi er 18 ára nemi eða verðlaunaður handritshöfundur, það breytir engu fyrir mig ef sagan er góð.‘ 40 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hin þokkafulla Keira Knightley,sem undanfarið hefur verið rísandi stjarna í kvikmyndaheim- inum, hefur hafnað tækifæri til að vera næsta Bondstúlka, þar sem henni finnst að hún myndi ekki líta nógu vel út í bikiníi. Hin nítján ára gamla Lundúna- stúlka hefur komið fram á Evu- klæðunum í fjölda hlutverka, en er smeyk um að hún geti ekki keppt við barmmeiri Bondstúlkur eins og Ursulu And- ers og Halle Berry. Það var sjálfur Bondleik- arinn Pierce Brosnan sem mælti með Keiru í hlut- verkið, en hún sagði í viðtali við tímaritið Empire að hún teldi sig ekki hafa „kostina“ til að vera Bond stúlka. „Ég er ómöguleg í bikiníum. Þær þurfa alltaf að vera í bikiníi, þessar bondstelpur, er það ekki?“ Síðast sást til Keiru allfáklæddr- ar í myndinni um Artúr konung. Fólk folk@mbl.is ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50, 8, og 10.20. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. Þeir hefðu átt að láta hann í friði. Sló rækilega í gegn í USA Jason Bourne er kominn aftur og leitar hefnda í frábærum hasartrylli. Meiri hraði, meiri spenna og ofsafengin átakaatriði. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 3.50, 5.40, 8 OG 10.20. Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. S.K., Skonrokk  G.E. Ísland í bítið/Stöð 2  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.40. „Skemmtilegasta og besta mynd sem ég hef séð lengi!“ Ó.H.T. Rás 2 HL MBL S.K., Skonrokk SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINNÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA. Sló rækilega í gegn í USA Jason Bourne er kominn aftur og leitar hefnda í frábærum hasartrylli. Meiri hraði, meiri spenna og ofsafengin átakaatriði. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. S.V. Mbl. S.V. Mbl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.