Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ER ÉG AÐ FARA Í
TAUGARNAR Á ÞÉR?
ER ÞAÐ? ... HA?...
ER ÞAÐ? ...
VEGNA ÞESS AÐ ÉG ER
FARINN AÐ FARA Í
TAUGARNAR Á SJÁLFUM MÉR
EF ÉG VÆRI HRIFIN AF
EINHVERJUM SEM ER EKKI
HRIFINN AF MÉR, FINNST
ÞÉR AÐ ÉG ÆTTI AÐ HÆTTA
AÐ REYNA AÐ LÁTA HONUM
LÍKA VIÐ MIG?
AUÐVITAÐ! ÞÚ VEIST
SVONA MIKIÐ!
ÉG SKIL EKKI AF
HVERJU ÞÚ ÞARFT
AÐ FARA ÚR
FÖTUNUM TIL
ÞESS AÐ VERA Í
BÍLALEIK. SKRÍTIÐ
KOMDU BARA
MEÐ ÞAU
Svínið mitt
JÚ HÚ! ÉG SEGI SATT!
HANN KANN AÐ TELJA!
© DARGAUD
SJÁIÐ ÞIÐ!
RÚNAR
HVAÐ ER
2X2
JÆJA!! ÉG SÉ BARA AÐ
HANN RÝTIR EINS
OG ÖLL SVÍN ...
NEI, NEI
HANN KANN VÍST AÐ
TELJA! HANN KANN
VÍST AÐ TELJA!
AF HVERJU FENGUM
VIÐ OKKUR EKKI
GULLFISK EINS OG
ALLIR
VILTU LÁTA
HANN ÞEGJA!!!
RUNAR
HVAÐ ERU
500X1000?
ÉG GET EKKI
STOPPAÐ HANN. HANN
HÆTTIR EKKI FYRR EN
HANN ER BÚINN AÐ
TELJA
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 31. ágúst, 244. dagur ársins 2004
Víkverji er einnþeirra þúsunda
landsmanna sem feng-
ið hafa áhuga á því að
stunda skotveiðar í ís-
lenskri náttúru. Þetta
er skemmtilegt
áhugamál og mjög
gefandi, jafnframt
krefjandi og líkamlega
erfitt stundum og oft
hefur það gerst að af-
raksturinn er lítill.
Það gerir ekkert til og
staðfestir máltækið að
veiðin er oft sýnd en
ekki gefin.
Þá sjaldan það hef-
ur gerst að veiðin hefur orðið góð þá
hefur Víkverji stundum hugsað að
nú væri komið nóg, ekki þyrfti að
veiða meira, því enginn situr svelt-
andi heima og ekki byggir Víkverji
afkomu sína á skotveiðum. Þetta er
eins og áður sagði eingöngu áhuga-
mál.
Gæsaveiðitíminn hófst hinn 20.
ágúst og frá og með 1. september má
veiða aðrar þær fuglategundir sem
ekki eru friðaðar allt árið um kring.
Stofnar þeirra fuglategunda sem
veitt er úr hérlendis eru mjög mis-
stórir og þola misjafnlega aukið
veiðiálag. Sérstaklega hefur heiða-
gæsastofninn stækkað og ætti að
beina veiðum meira að
honum á meðan grá-
gæsastofninn stendur
höllum fæti og fugla-
fræðingar hafa einnig
mælst til þess að veiði-
menn hlífi blesgæsinni
sem er umferðarfugl
hérlendis og stofninn
lítill. Aðaláhugamál
Víkverja varðandi
skotveiðar er að komið
verði traustum bönd-
um á það magn sem
veitt er úr fuglastofn-
unum. Allar veiðar í
okkar nútímasam-
félagi, hvort sem eru
stangveiði eða skotveiði, skyldi
flokka sem sportveiðar og af því leið-
ir að engum á að líðast að reyna að
hafa af því tekjur að skjóta fugla. Ís-
land er eitt örfárra landa þar sem
enn hefur ekki verið settur kvóti á
fuglaveiðimenn, alls staðar annars
staðar eru skotveiðar stundaðar
undir eftirliti og þótt landinn meti
frelsið umfram flest annað þá er
sjálfsagt að setja reglur um þetta.
Eins og Skotvís hefur margsinnis
bent á þá er það mikill minnihluti
veiðimanna sem veiðir mesta magn-
ið og er hér með skorað á þá að stilla
magninu í hóf og hafa í huga að eng-
inn sveltur þótt minna sé veitt.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Sumartónleikar | Á síðustu tónleikum sumarsins í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar, kl. 20.30, leikur Gruppo Atlantico; Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleik-
ari, Robert La Rue sellóleikari, Adrienne Kim píanóleikari ásamt Signýju
Sæmundsdóttur sópran. Þau flytja Píanótríó í G-dúr eftir Joseph Haydn, Pí-
anótríó nr. 1 op. 8 í H-dúr eftir Johannes Brahms, Impressions for Cello eftir
Inessa Zaretsky og Vocalise eftir Hjálmar Helga Ragnarsson.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Tríó eftir Haydn
og Brahms
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í söl-
urnar fyrir vini sína. (Jh. 15, 13.)