Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 17
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 17 SAGA Akureyrar, VI bindi, eftir Jón Hjaltason sagnfræðing kom út á afmælisdegi Akureyrar, 29. ágúst, en tækifærið var gripið á laugardag þegar efnt var til samkomu á Hól- um, húsi Menntaskólans á Akureyri, þar sem tilkynnt var um úrslit í samkeppni um hönnun menningar- húss og fyrstu eintök bókarinnar af- hent Þorgerði Katrínu Gunnarsdótt- ur menntamálaráðherra og Kristjáni Þór Júlíussyni bæjar- stjóra. Bernharð Haraldsson, formaður ritnefndar, gerði grein fyrir ritun sögunnar en samið var við Jón Hjaltason árið 1987 og kom fyrsta bindið úr árið 1990. Sú bók ber tit- ilinn Í landi Eyrarlands og Nausta og fjallar um tímabilið 890 til 1862. Annað bindið, Kaupstaðurinn við Pollinn kom úr 1994 en þar er gerð grein fyrir tímabilinu 1863 til 1905. Þriðja bindið, Fæðing nútíma- mannsins, sem fjallar um tímabilið 1906 til 1918 kom út árið 2000 og nú er fjórða bindið, Vályndir tímar, komið út en í því er fjallað um árin milli stríða, 1919 til 1940. „Þetta er einkennileg stund,“ sagði Jón við útkomu bókarinnar. „Ég er hvorki mjög glaður né sorg- mæddur, miklu heldur viðkvæmur.“ Kvaðst hann taka þá gagnrýni sem þegar hefði komið fram á bókina al- varlega, þ.e. hann væri gagnrýndur fyrir að vera reikull í rásinni og eins hefði verið haft á orði að bókin væri vond í rúmi. Sú gagnrýni hefði kom- ið frá eiginkonunni og hann af fremsta megni reynt að bæta henni það upp með öðrum hætti. Menntamálaráðherra sagði bæk- urnar um Sögu Akureyrar miklar og merkilegar, þær væru mikilvægar Akureyringum, „en líka okkur hin- um sem viljum varðveita menningu okkar,“ sagði Þorgerður Katrín. Jón tileinkar bókina Gísla Jóns- syni menntaskólakennara, en hann lést 26. nóvember árið 2001. „Fram á síðasta dag var hann stoð mín og stytta við ritun Sögu Akureyrar, las yfir fyrir mig, gaf góð ráð um efn- istök og málfar og vann allar nafna- og myndaskrár sem fylgt hafa Sögu Akureyrar. Ómetanlegast fyrir mig var þó að geta ávallt leitað til hans eftir þeim andlega stuðningi sem rit- höfundum er svo nauðsynlegur.“ Saga Akureyrar, VI bindi, er komin út Morgunblaðið/Kristján Jón Hjaltason, höfundur Sögu Akureyrar, t.v., og Bernharð Haraldsson, formaður ritnefndar, t.h., afhentu þeim Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra eintök af bókinni. Fjallað um árin milli stríða INGÓLFUR Árnason, fyrrverandi rafveitu- stjóri á Akureyri, er látinn, áttræður að aldri. Ingólfur fæddist á Akureyri 5. ágúst 1924. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Seli 26. ágúst síðast- liðinn. Ingólfur var sonur hjónanna Jónínu Gunnhildar Friðfinns- dóttur húsmóður, f. 8. september 1885, d. 1969 og Árna Stefáns- sonar smiðs, f. 8. júní 1874, d. 1946. Þau eignuðust 14 börn og komust 12 þeirra á legg. Ingólfur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1945 og hóf nám í skipaverkfræði í Sví- þjóð en sneri heim þegar faðir hans lést. Hann stundaði síðar nám í rafmagnstæknifræði við Oslos tekniske skole og útskrif- aðist þaðan árið 1952. Ingólfur var kennari í Stykkishólmi 1948 til 1949, en starfaði alla tíð eftir það hjá Rafmagnsveitum ríkisins að námsárunum undanskildum. Hann varð rafveitustjóri á Norðurlandi eystra með aðsetur á Akureyri og gegndi því starfi til áramóta 1993–’94 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Ingólfur stundaði einnig kennslu við Iðnskólann á Akur- eyri. Hann var bæj- arfulltrúi á Akureyri og sat í bæjarstjórn í tvo áratugi, frá 1962 til 1982, en hann var lengi virkur á vinstri væng stjórnmálanna. Þá átti hann sæti í ýmsum nefndum á vegum bæjarins. Ing- ólfur átti mikinn þátt í stofnun Hitaveitu Akureyrar og var for- maður hitaveitunefndar og fyrsti formaður stjórnar hennar. Hann sat í stjórn Laxárvirkjunar 1973– ’83 og í stjórn veitustofnana Ak- ureyrar 1986–’90. Einnig átti hann sæti í stjórn Slippstöðvarinnar og Sparisjóðs Akureyrar. Ingólfur lék knattspyrnu á yngri árum og var dyggur stuðningsmaður Íþrótta- félagsins Þórs. Eftirlifandi eiginkona hans er Anna Ingibjörg Hallgrímsdóttir, kennari frá Grafargili í Önundar- firði. Þau eignuðust 5 börn. Andlát INGÓLFUR ÁRNASON ÍSFISKTOGARINN Björgúlfur EA kom með frystitogarann Björg- vin EA í togi til Akureyrar á sunnudag en bilun varð í aðalvél Björgvins á miðunum fyrir austan land. Togararnir eru í eigu Sam- herja og að sögn Kristjáns Vil- helmssonar útgerðarstjóra gekk ferðin til Akureyrar vel en hún tók einn og hálfan sólarhring í góðu veðri. Í gærmorgun hófst löndun úr Björgvini á Akureyri en skipið var með um 150 tonn af frosnum afurð- um. Þá landaði Björgúlfur 50–60 tonnum af þorski á Dalvík í gær. Ekki lá ljóst fyrir í gær hversu lengi Björgvin verður frá veiðum vegna bilunarinnar. Björgvin EA dreginn að landi með bilaða vél AKUREYRI FJÖLMENNI tók þátt í viðamikilli dagskrá, Akureyrarvöku, nú um helgina en hún er haldin í tengslum við afmæli Akureyr- arbæjar, 29. ágúst. Það var svo sannarlega líf og fjör í Kaup- vangsstræti, Listagilinu svonefnda, en þar fengu listamenn af yngri kynslóðinni að spreyta sig hjá Listasmiðju Öllu. Að sjálfsögðu mátti sjá fínustu takta hjá þessum ungu listamönnum. Eins var gest- um og gangandi í tilefni dagsins leyft að mála krítarmyndi í Gilinu og þar mátti sjá listaverk af ýmsu tagi. Fjöldi myndlistarsýninga var opnaður, tónlist leikin jafnt úti sem inni og langt fram á kvöld og þá fengu menn færi á að kynnast skúmaskotum Samkomuhússins og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá á vegum Minjasafnsins svo eitthvað sé nefnt. Fjölmenni á Akureyrarvöku Morgunblaðið/Kristján Morgunblaðið/Kristján Ungir og upprennandi listamenn negla saman listaverk í Listagilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.