Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 23 G eorge W. Bush Banda- ríkjaforseti viðurkenndi í gær, að hann teldi ekki að sigur gæti unnist í stríðinu gegn hryðju- verkamönnum í heiminum, en sagði jafnframt, að stríðið myndi fæla menn frá því að beita hryðjuverkum sem bardagatæki. Þetta kom fram í viðtali sem sent var út í morgunþætti NBC-sjón- varpsstöðvarinnar, þar sem rætt var um hvaða markmið hann hefði sett sér fyrir komandi kjörtímabil. Bush hefur sagt að hann búist við að hryðjuverkastríðið verði langvinnt, og var spurður hvort hann teldi að sigur gæti hafst í því. „Ég held að við getum ekki sigrað í því,“ svaraði Bush. „En ég held að hægt sé að skapa þannig aðstæður að þeir sem nota hryðjuverk sem bar- áttutæki njóti minni vinsælda sums- staðar í heiminum.“ Landsfundur Repúblíkanaflokks- ins hófst í New York í gær, og Bush var í kosningaferðalagi á repúblík- anaslóðum í New Hampshire, þar sem aldrei er á vísan að róa, en mik- ilvægt er að hafa sigur. Þetta var áttunda ferð Bush til New Hampshire á forsetatíð sinni. Fyrir fjórum árum sigraði Bush þar með 7.211 atkvæða mun, eða tæplega einu prósenti. Af skráðum kjósendum í New Hampshire eru fleiri repúblíkanar en demókratar, en þriðjungur skráðra kjósenda er óflokksbundinn. Jennifer Donahue, ráðgjafi hjá New Hampshire-stjórnmálaráðgjafa- miðstöðinni við Saint Anselm-há- skóla, kvaðst telja að Bush stæði bet- ur en John Kerry vegna þess að efnahagur New Hampshire væri að vænkast og margir sem nýlega hefðu flust þangað kæmu frá Massachus- etts, heimaríki Kerrys. Skoðanakann- anir sýna að þeir Bush og Kerry njóta álíka mikilla vinsælda, þótt Bush hafi haft örlítið betur í nýlegri könnun ABC-sjónvarpsstöðvarinnar þegar einungis var gefinn kostur á að velja á milli þeirra tveggja. Miðjusvipurinn Fréttaskýrandi breska blaðsins The Guardian segir í gær, að lands- fundur Repúblíkanaflokksins verði æfing í pólitískum sveigjanleika. Flokkurinn muni „setja upp miðju- svipinn“ á landsfundinum, en um leið verði þar samþykkt stefnuskrá sem í rauninni sé lengra til hægri en stefna ríkisstjórnar Bush. Fyrir fjórum árum hafi flokknum tekist þetta í Fíladelfíu, þar sem Bush var kynntur sem „brjóstgóður íhalds- maður“ og fulltrúar minnihlutahópa voru fjölmennir á landsfundinum. En það verður öllu erfiðara núna að halda því fram að Repúblíkanaflokkurinn sé á miðjunni, segir fréttaskýrandi Guardian. Þótt hvergi verði gefið eftir á lands- fundinum hafa ráðgjafar Bush eigin- lega bannað öllum harðlínumönnum að láta mikið á sér bera. Í staðinn verður helstu stjörnunum á hófsam- ari væng flokksins teflt fram, mönn- um sem margir hverjir eru ósammála Bush í ýmsum efnum. Þeirra á meðal eru Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kali- forníu, Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, og öldunga- deildarþingmaðurinn John McCain, sem er þekktur fyrir að fara oft sínar eigin leiðir. McCain bauð sig fram gegn Bush í forkosning- unum 2000 og getur tryggt flokknum at- kvæði margra óháðra kjósenda. Annað kvöld flytur Zell Miller, íhaldssamur demókrati, aðalræðu fundarins, en á fimmtu- dag flytur Bush ræðu þar sem hann mun formlega taka við útnefningu sem forsetaframbjóðandi. Talið er að í ræðu sinni muni Bush leggja mikið upp úr viðbrögðum sín- um við hryðjuverkunum 11. septem- ber 2001, sem fylktu kjósendum að baki honum, en einnig er þess vænst að forsetinn tali um áform sín næstu fjögur árin, nái hann endurkjöri. Dick Cheney varaforseti kom til New York í gær og hrósaði hann Bush, sagði forsetann „halda ró sinni er í harðbakkann slær“, eiga auðvelt með að axla ábyrgð og vera staðráð- inn í að gera hvað sem þyrfti til að vernda bandarísku þjóðina. Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, sem núna er repúblíkani en var áður demókrati, tók á móti landsfundarfulltrúum í gær. Dennis Hastert, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, ávarpaði fulltrúana einnig. Hann líkti Bush við tvo fyrr- verandi forseta frá Illinois, þá Abrah- am Lincoln og Ronald Reagan og sagði, að Kerry væri ekki hæfur til að gegna forsetaembættinu. Helsta þrætueplið Það sem hvað líklegast er til að draga fram deilur innan Repúblík- anaflokksins er afstaðan til hjóna- banda samkynhneigðra, sem fyrst varð að pólitísku þrætuepli í fyrra. Meira að segja virðist helst sem fram- bjóðendurnir sjálfir, Bush og Cheney, séu ekki á eitt sáttir í þessu efni. Bush hefur lýst sig fylgjandi því að gerð verði stjórnarskrárbreyting sem banni hjónabönd samkynhneigðra, en Cheney er andvígur slíku banni. Cheney á dóttur sem er samkyn- hneigð. „Ég er að reyna að finna aðferð til að kjósa Cheney en ekki Bush,“ sagði Mark Walter, samkynhneigður stuðningsmaður Repúblíkanaflokks- ins, sem var hneykslaður á stuðningi Bush við stjórnarskrárbreytingu er leggi bann við hjónabandi samkyn- hneigðra. Öldungadeild Bandaríkja- þings felldi breytingartillöguna í síð- asta mánuði. „Ég held að trúaðir hægrimenn hafi náð tangarhaldi á forsetanum, og þar með minnkar rýmið fyrir sam- kynhneigða í flokknum,“ sagði Walt- er, sem er 55 ára dýralæknir frá Pennsylvaníu. Bjálkahúsrepúblíkanarnir, sem eru samtök samkynhneigðra repúblíkana, hafa hótað að hætta stuðningi við Bush á þeim forsendum að hann hafi brugð- ist málstað þeirra. Ýmsir eru reyndar á því að samkynhneigðir repúblíkanar geti ekki verið mjög margir, því flokk- urinn leggur ríka áherslu á gildi hinnar hefðbundnu fjölskyldu. En samtökin segja að félagsmenn séu um tíu þús- und, og þau studdu Bush í síðustu kosningum. Forráðamenn samtak- anna sögðu á sunnudag að félagsmenn væru allir sem einn stórhneykslaðir á afstöðu Bush til hjónabanda samkyn- hneigðra. Jeff Bissiri, landsfundarfulltrúi frá Kaliforníu, sagðist ekki hafa í hyggju að segja sig úr Repúblíkanaflokknum, „en ég á bágt með að skilja hægriarm- inn í flokknum, sem vill ekki að stjórn- völd hafi neitt um það að segja hvers konar byssu maður á, en vill setja reglur um kynhneigð“. Fréttaskýrendur segja að kosning- arnar 2. nóvember nk. muni snúast meira um erlend málefni en forseta- kosningar í Bandaríkjunum hafa gert í marga áratugi. Þó sé vart við því að búast að landsfundurinn varpi ljósi á mál sem önnur lönd telja mikilvæg. Hryðjuverkastarfsemi og átökin í Írak eru einn helsti ásteytingar- steinninn, en lítið hefur farið fyrir öðrum erlendum málefnum, svo sem meintri kjarnavopnaeign Norður- Kóreu, umhverfismálum og fríversl- unarsáttmálum við Suður-Ameríku. Stundum hefur verið minnst á Ísrael, en Bush og Kerry eru ekki að ráði ósammála í því efni. AP Þrír landsfundarfulltrúar frá Texas, þeir Josh Flynn, David Barton og Butch Daus, ræða saman í Madison Square Gardens í gær, þegar landsfundurinn var settur. Æfing í pólitísk- um sveigjanleika Landsþing Repúblíkanaflokksins í Banda- ríkjunum hófst í gær, og þótt áhersla verði lögð á að sýna samhentan flokk og sam- henta frambjóðendur krauma deilur undir niðri og jafnvel forsetaefnið og varafor- setaefnið eru ekki á eitt sátt. ’Ég er aðreyna að finna aðferð til að kjósa Cheney en ekki Bush.‘ Fyrsta hópinn mætti á íslensku nefna nautna- seggi (easy-living, pleasure seeking). Sam- kvæmt rannsókninni eru tólf af 28 þátttak- endum í þessum hópi. Það sem helst einkennir skuldasamsetningu hópsins eru kreditkorta- skuldir og yfirdráttur. Einstaklingar innan hópsins verja því fé sem þeir komast yfir í eig- in neyslu, t.d. til fatakaupa, kaupa á raftækj- um og í ýmsa skemmtun. Anna-Riitta segir neyslu þessa hóps vera kæruleysislega. Annar hópur er í niðurstöðum rannsókn- arinnar kenndur við áhættufjárfestingu (risk- investing). Í þann hóp flokkast átta af þeim sem rannsakendur ræddu við. Einstaklingar innan hans taka bankalán, víxla og yfirdrætti. Peningunum verja þeir ekki til einkaneyslu heldur miklu frekar í fjárfestingar, í von um framtíðargróða. Þessi hópur hefur ágæta stjórn á afborgunum þrátt fyrir að skulda mikið. Þriðja hópinn mætti nefna villuráfandi (rambling). Skuldahali þeirra átta einstak- linga sem í hann falla er samsettur af ógreidd- um reikningum, skuldum vegna símasölu og pöntunarlista og vangoldnum greiðslum vegna húsnæðis. Ólíkt öðrum hópnum, sem sagður er hafa skýr markmið með skuldsetn- ingunni, virðast þeir sem sagðir eru villuráf- andi í fjármálum misreikna sig hvað eftir ann- að. Þá er fyrirkomulag afborgana í ólestri hjá þriðja hópnum. Fræðsla einungis hjá lánveitanda Svör þátttakenda við þeim spurningum sem lagðar voru fyrir segir Anna-Riitta benda til þess að ungt fólk á Norðurlöndum fái ekki næga fræðslu um fjármál. „Niðurstöður okkar sýna glöggt að þetta unga fólk átti í erfiðleik- um með að skilja hvað í því fólst að gera lána- samning.“ Hún segir greinilegt að í flestum tilvikum hafi þátttakendur þurft að reiða sig algerlega á upplýsingar og fræðslu frá þeim sem veitti þeim lánin, en ekki átt kost á henni annars staðar. Þátttakendum hafi í fæstum til- vikum verið kunnugt um hvar þeir gætu feng- ið fræðslu um fjármál. Hún segir svör þátttakenda hafa verið á þá leið að þeir kenndu sjálfum sér um hvernig komið væri fyrir þeim. „En þeim fannst líka að aðrir aðilar, einkum lánveitendur, ættu hlut að máli. Skuldir þeirra voru ekki öðrum að kenna jafnvel þótt auðvelt hefði verið að stofna til þeirra,“ sagði Anna-Riitta í erindi sínu í gær. Þátttakendur sagði hún flesta hafa nefnt aug- lýsingar og markaðssetningu í fjölmiðlum sem fjármálakosti sem höfðuðu til þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar telur Anna- Riitta benda til þess að neytenda- og fjármála- fræðslu þurfi að koma betur inn í mennta- kerfið. Þá sé nauðsynlegt að umræða fari fram um það í samfélaginu hvað sé hæfileg skuld- setning og hvernig ungt fólk geti hegðað sér af ábyrgð á frjálsum fjármálamarkaði. orðurlönd- r skuldum Morgunblaðið/Ásdís gs fólks á Norðurlöndum, þ.á m. num og skorts á fjármálafræðslu. gmenni sýnir að efla þarf fjármálafræðslu eyrun@mbl.is fur verið frá árinu 2001. Vefsvæði ðgjafar er www.totalradgjof.is. Lítið mál að fá neyslulán n var búinn að koma sér upp skulda- p á eina milljón króna sem aðallega yslulán eins og bílalán, tölvu- n og yfirdráttarheimild,“ segir móð- a pilts sem Morgunblaðið ræddi við. gir skuldirnar hafa hlaðist upp hjá nnar frá því hann keypti sinn fyrsta n ára og mánaðarlegar afborganir mnar upp í 70-80 þúsund krónur. egir son sinn ekki hafa notað kred- n það hafi verið lítið mál fyrir hann yslulán í bankanum sínum. Hann gið bílalán gegn veði í bílunum og upalán, til viðbótar við yfirdrátt- ld. Þá hafi hann getað keypt ýmsa uti í bílana á raðgreiðslum. Öll þessi án hafi komið honum í koll og afborg- verið meiri en hann réð við, ekki síst ldirnar lagst þungt á hann andlega. ð leysa málin greip ég til minna kk hagstætt lán í mínum banka upp á ljón og við borguðum upp alla súp- nú þarf hann aðeins að borga rúmar úsund krónur á mánuði,“ segir móð- m kveðst vona að sonurinn, sem nú er a sér fyrir útborgun í íbúð, hafi lært ri reynslu. Hún telur varhugavert að k geti stofnað til slíkra skulda áður kemur undir sig fótunum í lífinu, fi það oft hvorki þroska né getu til st á við afborganirnar. á sálina r þyrftu Lands- áist. Að r bank- nn ann- nningu í ntaskól- er með n, feng- kinn fær jónustu dir eru utaskól- ning við m þó er n fjölda kipti við r upp á ss sem skólann ð kynna nning til V fær að vera með í skólanum í upphafi árs. Hafliði Kristjánsson fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs KB banka segir bankann vera með samning við eitt nemendafélag í framhaldsskóla, Skólafélag Mennta- skólans í Reykjavík. Hann segir stærstan hluta samningsins snúast um styrki bankans til nemenda- félagsins, t.d. í formi auglýsinga í skólablöðum. „Árangurstengdar greiðslur eru minnihluti af þessum samningi. Samningurinn er þannig að það er greidd ákveðin upphæð til nemendafélagsins ef ákveðinn fjöldi af nemendum er í viðskiptum.“ Markmið KB banka að fá helm- ing nemenda MR í viðskipti Hafliði segir að um óverulegar fjárhæðir sé að ræða en vill ekki gefa upp hversu mikið nemendafélagið fær greitt fyrir það ef þessi ákveðni fjöldi nemenda fer í viðskipti hjá KB banka. „Félagið fær greidda ákveðna fasta upphæð ef helmingur nemenda skólans verða virkir við- skiptavinir KB banka. Ef minna en helmingur nemenda verða virkir viðskiptavinir þá er greidd föst krónutala fyrir hvern nýjan við- skiptavin.“ Hafliði segir að þótt samningur- inn segi til um að bankinn fái aðstoð frá félaginu við það t.d. að hengja upp veggspjöld þá séu það einungis starfsmenn KB banka sem selji af- urðir bankans. „Enginn í nemenda- félaginu selur afurðir bankans. Þarna er ekki verið að greiða félag- inu fyrir sölu heldur er þetta árang- urstengd þóknun fyrir aðstöðu til kynninga í skólanum.“ Björn M. Sigurjónsson, sölustjóri einstaklingsviðskipta á útibúasviði Íslandsbanka, segir bankann reyna að halda kynningar í sem flestum framhaldsskólum. Slíkar kynningar hafi verið við lýði í mörg ár og gefist vel. „Við erum ekki með neina fasta samninga við nemendafélög en kaupum auglýsingar í skólablöð og á auglýsingaspjöld eftir því sem ástæða er til,“ segir Björn. semji við banka rkja sitt nemendafélag til ákveðins banka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.