Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ FYRSTU fjárréttir haustsins voru um síðustu helgi, meðal annars Bald- ursheims- og Hlíðarréttir í Mývatnssveit. Réttað verður víða um land um næstu helgi og síðan taka hverjar réttirnar við af öðrum, fram eftir septembermánuði. Ólafur R. Dýrmundsson, landnýtingarráðu- nautur Bændasamtaka Íslands, hefur tekið sam- an lista yfir helstu fjárréttir, allar stóðréttir og sérstakan lista yfir réttir í Landnámi Ingólfs. Fjöldi fólks hefur áhuga á að komast í réttir og nýtir sér þessar upplýsingar til þess. Auðkúlurétt í Svínavatnshreppi, A-Hún. laugardag 4. sept. Áfangagilsrétt á Landmannaafrétti, Rang. fimmtudag 24. sept. Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. sunnudag 19. sept. Dalsrétt í Mosfellsdal, Kjós. sunnudag 19. sept. Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. laugardag 18. sept. Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. þriðjudag 14. sept. og sunnudag 19. sept. Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr. laugardag 11. sept. Fossrétt á Síðu, V-Skaft. föstudag 10. sept. Fossvallarétt v/Lækjarbotna (Rvk./Kóp.) sunnudag 19. sept. Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sunnudag 19. sept. Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. þriðjudag 21. sept. Grófargilsrétt í Skagafirði, Skag. föstudag 3. sept. Hamarsrétt á Vatnsnesi, V-Hún. laugardag 11. sept. Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. laugardag 18. sept. Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. mánudag 20. sept. Hlíðarrétt í Bólstaðarhlíðarhreppi, A-Hún. sunnudag 15. sept. Hraunsrétt í Aðaldal, S-Þing. sunnudag 5. sept. Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn. föstudag 10. sept. Hrútatungurétt í Hrútafirði, V-Hún. laugardag 4. sept. Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn. laugardag 18. sept. Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós. sunnudag 19. sept. Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. sunnudag 19. sept. Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn. miðvikudag 15. sept. Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði laugardag 11. sept. Ljárskógarétt í Laxárdal, Dal. laugardag 4. sept. Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V-Hún. laugardag 4. sept. Mælifellsrétt í Skagafirði, Skag. sunnudag 5. sept. Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Borg. laugardag 4. sept. Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudag 15. sept. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. sunnudag 19. sept. Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum, Rang. laugardag 18. sept. Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. laugardag 11. sept. Reynistaðarrétt í Skagafirði, Skag. laugardag 4. sept. Selflatarrétt í Grafningi, Árn. mánudag 20. sept. Selvogsrétt í Selvogi, Árn. mánudag 20. sept. Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. mánudag 20. sept. Skaftárrétt í Skaftárhreppi, V-Skaft. laugardag 11. sept. Skaftártungurétt í Skaftártungu, V-Skaft. laugardag 11. sept. Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. föstudag 10. sept. Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardag 4. sept. Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. laugardag 18. sept. Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mánudag 20. sept. Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. sunnudag 19. sept. Skrapatungurétt í Vindhælishreppi, A-Hún. sunnudag 12. sept. Stafnsrétt í Svartárdal, A-Hún. laugardag 4. sept. Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn. laugardag 11. sept. Undirfellsrétt í Vatnsdal, A-Hún. föstudag 10. sept. Valdarásrétt í Víðidal, V-Hún. föstudag 10. sept. Víðidalstungurétt í Víðidal, V-Hún. laugardag 11. sept. Þórkötlustaðarétt í Grindavík, Gullbr. sunnudag 12. sept. Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit, Eyjaf. sunnudag 15. sept. Þverárrétt í Vesturhópi, V-Hún. laugardag 11. sept. Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mánudag 20. sept. Ölfusréttir í Ölfusi, Árn. þriðjudag 21. sept. Fjöldi fjárrétta á næstunni Helstu réttir í landnámi Ingólfs Arnarsonar Þórkötlustaðarétt í Grindavík sunnudag 12. sept. kl. 10 Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit laugardag 18. sept. e/hádegi Húsmúlarétt við Kolviðarhól laugardag 18. sept. e/hádegi Dalsrétt í Mosfellsdal sunnudag 19. sept. e/hádegi Fossvallarétt við Lækjarbotna sunnudag 19. sept. kl. 10 Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós sunnudag 19. sept. kl. 16 Selvogsrétt í Selvogi mánudag 20. sept. Selflatarrétt í Grafningi mánudag 20. sept. Ölfusréttir í Ölfusi þriðjudag 21. sept. Seinni réttir verða þremur vikum síðar á sömu vikudögum, þ.e. dagana 9.– 12. október. Til að auðvelda hreinsun afrétta og draga úr hættu á ákeyrslum á fé á þjóðvegum í haustmyrkrinu er lögð áhersla á að fé verði haft sem mest í haldi eftir réttir. Stóðréttir haustið 2004 Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugard. 18. sept. e/hádegi Reynistaðarrétt í Skagafirði, Skag. laugard. 18. sept. kl. 16 Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. sunnud. 19. sept. kl. 16 Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A-Hún. sunnud. 19. sept. e/hádegi Skrapatungurétt í A-Hún. sunnud. 19. sept. kl. 10 Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugard. 25. sept. kl. 13 Þverárrétt í Vesturhópi, V-Hún. laugard. 25. sept. um kl. 13 Víðidalstungurétt í Víðidal, V-Hún. laugard. 2. okt. kl. 10 Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugard. 2. okt. kl. 11 Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit, Eyjaf. sunnud. 3. okt. kl. 10 STJÓRN Strætó bs. hefur ekki sam- þykkt nýtt leiðakerfi. Það var lagt fram til kynningar á síðasta fundi í stjórn byggðasamlagsins, en hefur ekki verið afgreitt þar, og var síðan sent sveitarstjórnunum sem eiga að- ild að byggðasamlaginu til umsagnar, að sögn Ármanns Kr. Ólafssonar, sem eru fulltrúi Kópavogs í stjórn Strætó bs. Ármann sagði að stjórn Strætó bs. ætti eftir að fara endanlega yfir leiða- kerfið og samþykkja það. Fyrirliggj- andi áætlanir um nýtt leiðakerfi sýni að það hafi aukinn kostnað í för með sér og það hafi ekki verið lagt upp með það. Þvert á móti hafi verið reiknað með að hægt yrði að ná fram hagræðingu í kerfinu með þessum breytingum og kostnaður yrði ekki umfram það sem sveitarfélögin væru nú þegar að leggja til almennings- samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Ármann sagði að hann og fulltrúar fleiri sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu hefðu tekið það fram á stjórnarfundinum að þeir sæju ekki að það væru forsendur fyrir útgjalda- aukningu í þessum efnum. „Ég sé það ekki fyrir mér að Kópa- vogur samþykki leiðakerfi miðað við þessa 150–200 milljóna króna út- gjaldaaukningu. Krafan þar er lækk- un framlagsins,“ sagði Ármann. Hann sagði að það verkefni sem þeir í stjórn Strætó hefðu fengið væri að bæta leiðakerfið og auka skilvirkni þess. Verkefnið hefði verið að sam- eina SVR og AV og menn hefðu talið að áhrif þeirrar sameiningar ætti að geta orðið betri þjónusta við lægra verði. „Það er það sem við lögðum af stað með og við höfum ekkert umboð til að samþykkja annað,“ sagði Ármann ennfremur. Fulltrúi Kópavogs í stjórn Strætó bs. Nýja leiðakerfið hefur ekki verið samþykkt VEGFARENDUM, sem áttu leið um Sölvhólsgötu í vik- unni sem leið, gæti vel hafa fundist þeir vera komnir í annan heim. Jafnvel gætu einhverjir haldið að þeir væru komnir til stríðshrjáðra landa eða á vettvang nátt- úruhamfara, en svo var ekki. Verið var að rífa gamalt húsnæði Landssímans til að rýma fyrir nýbyggingum. Björgunarsveitin Ársæll nýtti sér tækifærið sem þarna skapaðist til að æfa rústabjörgun og voru liðs- menn rústahópsins önnum kafnir við að brjótast í gegn- um veggi og grjóthrun ýmiss konar. „Aðstæður sem þessar minna mjög á hrunin hús, líkt og gerist í jarð- skjálftum,“ segir Daníel Gunnlaugsson, annar tveggja hópstjóra rústahóps Ársæls, sem er önnur af tveimur sveitum sem mynda alþjóða-rústabjörgunarsveit Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. „Þetta gefur okkur því raunhæfa mynd af þeim verkefnum sem er þjálfað fyr- ir, og er því þarna um að ræða kjörið tækifæri til að efla þekkingu hópsins.“ Ljósmynd/Þórdís Jóhannesdóttir Rústabjörgun æfð í hálfrifnu húsi HJÁLPARSTARF kirkjunnar hef- ur sent eina milljón króna til neyðaraðstoðar í Darfur í Súdan. Þangað hefur ACT, Alþjóðaneyð- arhjálp kirkna sem Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að, flutt 200 tonn af hjálpargögnum á síðustu mánuðum og ráðið 39 starfsmenn til hjálparstarfa. Neyðarbeiðni ACT til aðild- arfélaga hljóðar upp á 1,3 millj- arða króna til að dreifa mat, plast- dúkum, hreinlætis- og eldunarvörum, útvega vatn og sjá um frárennsli og hreinlæt- isaðstöðu fyrir 500.000 manns. Markhópurinn er ýmist í flótta- mannabúðum, býr ennþá í nið- urbrenndum þorpum sínum eða er fólk sem býr heima og hefur tekið að sér flóttamenn. Meðal þeirra eru 50.000 börn yngri en 5 ára sem ACT ætlar að sjá fyrir við- bótarnæringu. ACT ætlar einnig að sjá börnum í þessum hópi sem eru á skólaaldri, fyrir kennslu en áætlað er að þetta verkefni spanni tímann til ársloka 2005. Í síðustu viku dreifði ACT plastdúkum og eldunaráhöldum í El Muhajeria utan við Nyala þar sem fáar hjálparstofnanir eru að störfum. Þeim sem vilja hjálpa þeim sem líða þessar miklu hörmungar í Darfur er bent á hlaupareikning nr. 27 í SPRON (1150 26 27) og merkja greiðsluna DARFUR. Neyðaraðstoð til Darfur í Súdan NÝ gjaldskrá VISA tekur gildi 1. september nk. og hækka þá þjónustugjöld á söluaðila sem hafa verið óbreytt síðustu þrjú ár. Meðal breytinga er að lágmarksgjald á hverja debetkortafærslu hækkar úr í 5 í 7 kr. hjá að- ilum sem aðeins taka við deb- etkortum. Hjá flestum sölu- aðilum, sem bæði taka debet- og kreditkort, verður lág- marksgjaldið 6,50 og hámarks- gjald verður 180 kr. á hverja færslu. Þá hækkar útskriftargjald úr 150 kr. í 220 kr. auk þess sem finna má ýmsar nýjungar í gjaldskránni, t.d. vikulegt uppgjör. Þær upplýsingar fengust hjá Kreditkortum hf. umboðs- aðila MasterCard og Maestro á Íslandi, að gjaldskrá fyrir söluaðila hefði tekið breyting- um í byrjun sumars, þegar bil- ið milli hæstu og lægstu þjón- ustugjalda var breikkað en það hafi þá staðið óbreytt frá 1994. Engin ákvörðun hafi verið tekin um frekari breyt- ingar á gjaldskrá. VISA hækkar þjónustu- gjöld á söluaðila KARLMAÐUR var sleginn í andlitið með bjórglasi á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í fyrrinótt og hlaut hann við það talsverða áverka. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Keflavík þurfti að sauma 40 spor til að loka sárunum. Maðurinn missti talsvert blóð en fékk þó að fara heim af sjúkrahúsi fljót- lega. Árásarmaðurinn var handtekinn. Sauma þurfti 40 spor í andlit

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.