Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 16
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Sumri hallar og senn fer að hausta þó erfitt
sé að greina þessi árstíðaskipti í veðurfars-
legu tilliti. Það sem segir manni þessi tíðindi
er sú staðreynd að náttmyrkrið verður mátt-
ugra með hverjum degi, grösin missa æsku-
ljómann og gangnamenn eru lagðir af stað í
leitir. Með þó nokkurri vissu má fullyrða að
velflestir Húnvetningar hafa ekki lifað
hlýrra sumar þó einn og einn sem lifað hefur
lengi og hefur að geyma gott veðurminni
nefni sumarið 1939 í sömu andrá. Sem dæmi
um þá mildu tíðarfarshönd sem skaparinn
hefur rétt okkur þá hefur heyfengur verið
með allra mesta móti og ein magnaðasta af-
sökun fyrir því að leggja ljáinn á hilluna
þrátt fyrir nægt gras í túni er sú að tíma ekki
að leggja meira land undir heyrúllurnar.
Fyrstu réttir í A-Húnavatnssýslu verða í
Auðkúlurétt um helgina. Síðan tekur hver
réttin við af annarri. Bændur heimta fé og
stóð úr afrétti, korn er skorið, og kartöflur
koma í hús, haustið er tími uppskerunnar.
Húnvetningar eru sáttir við tilveruna þó svo
hjón úr Reykjavík eftir vikudvöl í París,
borg smekkleikans, hafi orðið fyrir menn-
ingarsjokki við að fylgjast með „jogg-
ingklæddum þéttvöxnum konum í kaup-
félagi úti á landi.“
Grunnskóli Blönduóss hefur fengið and-
litslyftingu í sumar því gamli skólinn sem er
syðsta álma skólahússins hefur verið end-
urgerður í sinni upprunalegu mynd, þeirri
mynd sem Guðjón Samúelsson gaf skólanum
á sínum tíma. Má með sanni segja að líkt sé
farið með París og Blönduósbæ, þetta eru
bæir smekkleikans. Verið er að byggja lyftu-
hús utan á skrifstofu sýslumanns og ull-
arþvottastöð er að rísa.
Danskir dagar eru í Stykkishólmi, franskir
dagar á Stöðvarfirði svo eitthvað sé nefnt en
mörgum kom á óvart að Blönduóslöggan
heldur ítalska daga í ágústmánuði. Skýr-
ingin er sú að flestir Ítalir taka sumarfrí í
ágúst og þeir sem ferðast hingað til lands
virða ekki allir þær hraðatakmaranir sem í
landinu gilda og þar sem ekki eru nær dag-
lega fréttir af afrekum Blönduóslögregl-
unnar í umferðarhraðaeftirliti í ítölskum
fjölmiðlum þá vara Ítalirnir sig ekki á þess-
ari vösku sveit. Gjaldmiðill Ítala var á sínum
tíma lírur og gálausir gárungar hafa kallað
lögregluna á Blönduósi „löggan með líru-
kassann“ því útlendingar verða að stað-
greiða sekt við umfrerðalagabrotum. En eitt
er víst að þetta landsfræga aðhald Blönduós-
löggunnar við ökumenn er mikilvægt því
takmark lögreglunar er ekki ítalskir dagar
heldur glaðir dagar fyrir þá sem um veginn
fara.
Úr
bæjarlífinu
BLÖNDUÓS
EFTIR JÓN SIGURÐSSON
Tæplega 160 börneru skráð í Frí-stundaskóla
Reykjanesbæjar á haust-
önn. Er það liðlega 20%
fjölgun frá síðasta hausti
og er búist við frekari
fjölgun, að því er fram
kemur á upplýsingavef
Reykjanesbæjar,
www.rnb.is. Frístunda-
skólinn er fyrir börn í 1.–
4. bekk og er rekinn í öll-
um fjórum grunnskólum
bæjarins. Flest börnin
koma úr yngri bekkj-
unum. Frístundaskólinn
er fjölmennastur í Heið-
arskóla en þar eru skráð
rúmlega 50 börn, í Myllu-
bakkaskóla um 40 en ör-
lítið færri í Holtaskóla og
Njarðvíkurskóla. Frí-
stundaskólinn er opinn
frá 13 til 17 virka daga
Frístundaskóli
Húsavík | Tónlist-
arveislan 2004 var haldin
fyrir skömmu í Íþrótta-
höllinni og var dagskráin
helguð dægurperlum
Magnúsar Eiríkssonar.
Tónlistarveislan hefur
verið haldin undanfarin ár
til auðgunar menningar-
lífi. Ungir tónlistarmenn
og söngvarar koma fram á
sviðið í bland við þá eldri.
Þar á meðal voru nú söng-
konan Ína Valgerður Pét-
ursdóttir sem hér sést og
bassaleikarinn Bjarni Sig-
uróli, en þau eru aðeins 16
ára gömul.
Morgunblaðið/Hafþór
Veisla með dægurperlum
Hagyrðingakvöldverður haldið íStapa í Reykja-
nesbæ fimmtudags-
kvöldið 2. september og
tónninn sleginn fyrir
Ljósanótt. Fluttir verða
inn landskunnir hagyrð-
ingar.
Friðrik Steingrímsson
yrkir um Ljósanótt og
sér lífið í Reykjanesbæ
sínum augum:
Eyðslu rafmagns ei ég
skil
en þó fer að gruna
að líklega þá langi til
að lýsa upp rigninguna.
Pétur Pétursson á Ak-
ureyri yrkir hringhendu:
Víst á þrætur verum
spör,
vonglöð mætum saman.
Látum bæta lund og kjör
Ljósanæturgaman.
Ljósanótt
TENGLAR
.................................
pebl@mbl.is
Mývatnssveit | Réttað var á
Hlíðarrétt við Reykjahlíð á
sunnudag og Baldursheimsrétt
en göngur hófust bæði á Suð-
ur- og Austurafrétt á föstudag.
Í Mývatnssveit eru ríflega
5.000 vetrarfóðraðar kindur en
margir bændur eru komnir
með sitt fé í lokuð hólf og
þurfa ekki að leggja til menn í
göngur. Á Hlíðarrétt voru um
2.000 kindur og gekk greiðlega
að draga féð sundur. Mikið
fjölmenni var á réttinni og fer
fjölgandi ár frá ári, ekki síst
erlendum ferðamönnum. Fjár-
tala er nú svipuð síðustu ár.
Lömbin eru misvæn og mun
þurrkatíð í sumar valda frem-
ur litlum vexti þeirra.
Jafnvel þóttust menn sjá
frekar lítinn ullarvöxt á fénu
og kenna þurrkinum einnig
um það.
Morgunblaðið/BFH
Féð dregið á Hlíðarrétt
Réttir
Húsavík | Fyrri áfangi glúkósamínverk-
smiðju á Húsavík verður boðinn út í haust
ef áætlanir eigenda Glucomed ehf. ganga
eftir. Fram kemur á vef Atvinnuþróunar-
félags Þingeyinga að í þessum áfanga verð-
ur reist hráefnisverksmiðja sem framleiðir
kítín úr rækjuskel. Kítínið er síðan notað í
glúkósamínframleiðsluna en glúkósamín
er m.a. talið styrkja bandvefi líkamans.
Undirbúningur hefur staðið yfir í nokk-
uð langan tíma en nú hillir loksins undir að
framkvæmdir hefjist á lóð fyrirtækisins
sem er sunnan við rækjuverksmiðju Íshafs
ehf. Að þessu verkefni standa ýmsir aðilar,
meðal annars norskir og þýskir fjárfestar,
ásamt fagaðilum auk heimamanna á Húsa-
vík. Um tuttugu ný störf munu skapast á
Húsavík með tilkomu þessarar verksmiðju.
Undirbúa útflutning á
tækni til raforkuframleiðslu
Þá segir ennfremur á vefnum að fyrir-
tækið X-Orka ehf. sé þessa dagana að setja
upp bækistöðvar sínar á Húsavík og hefur
Magnús Gehringer viðskiptafræðingur
verið ráðinn framkvæmdarstjóri þess.
Orkuveita Húsavíkur hefur undanfarin ár
framleitt rafmagn í Orkustöð sinni með
sérstakri tækni sem kennd er við Kalina og
felst í því að framleiða rafmagn úr yfirheitu
vatni. Við þróun og prófanir á þessari
tækni hefur orðið til mikil þekking og
reynsla, tilgangur X-Orku er markaðssetn-
ing og sala á þessari þekkingu ásamt bún-
aði sem byggir á Kalina-tækni til fram-
leiðslu á raforkuverum og rafstöðvum.
Markaðssvæðið er Evrópa og Suður-Am-
eríka en þar hefur fyrirtækið tryggt sér
leyfi og rétt til sölu á tækninni. Stærsti
hluthafi X-Orku er verkfræðistofan VGK
en meðal annarra hluthafa eru Orkuveita
Húsavíkur og Tækniþing. Aðstandendur
X-Orku telja orkumarkaðinn í heiminum
vera opnast, aukin áhersla sé á umhverf-
issjónarmið og stöðugt hækkandi olíuverð
skapi gríðarlega markaðsmöguleika fyrir
búnað sem X-Orka hannar og selur.
Eins og áður segir er aðsetur X-Orku á
Húsavík og þar mun fyrirtækið í samstarfi
við starfandi Kalina-rafstöð Orkuveitu
Húsavíkur, háskóla, fyrirtæki og fleiri að-
ila starfrækja menntunar- og þjálfunar-
miðstöð. Gríðarleg þekking og reynsla á
sviði raforkuframleiðslu leynast í bakhjörl-
um X-Orku, hæfu starfsfólki, samstarfi við
heimsþekkta orku- og búnaðar-framleið-
endur auk leyfa á sölu Kalina-tækninnar.
Tuttugu ný
störf skapast
á Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hvammstangi | Fjarnámsstofa hef-
ur verið opnuð að Höfðabraut 6 á
Hvammstanga. Húnaþing vestra
leigir þar til þriggja ára aðstöðu af
Forsvar ehf, sem hefur búið stofuna
góðum hús- og tækjabúnaði.
Tvær fastar starfsstöðvar eru í
stofunni, fjarfundarbúnaður, mynd-
varpi og sjónvarp. Gert er ráð fyrir
að nemendur noti þráðlausan búnað
við fartölvur sínar. Stofan er tengd
ADSL símalínum. Gott rými er fyrir
12-15 manns og er stofan hin vistleg-
asta. Gunnar Sveinsson, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi er umsjónarmaður
stofunnar.
Gestir komu vítt að við opnunina,
stjórnendur skóla, alþingismenn og
fleiri. Ólafur Proppé, rektor Kenn-
araháskóla Íslands, lýsti mikilli
ánægju með framkvæmdina og
Bryndís Þráinsdóttir færði stofunni
bókargjöf frá Farskóla Norðurlands
vestra.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Opnun: Ólafur Proppé flytur hvatningarorð og árnaðaróskir. Hjá standa
Þóra Sverrisdóttir Blönduósi og Valgeir Bjarnason Hólum.
Vel búin fjarnámsstofa opnuð