Morgunblaðið - 31.08.2004, Side 33

Morgunblaðið - 31.08.2004, Side 33
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 33 Dansíþróttin er meðal þess fjölbreyttatómstundastarfs sem margir leggjafyrir sig á veturna. Hjá DansskólaSigurðar Hákonarsonar hafa orðið þær breytingar að Edgar K. Gapunay hefur tekið við rekstri skólans, en hann hefur stundað þar nám frá fimm ára aldri. Sigurður sjálfur mun þó enn vera í hópi kennara skólans. Edgar er spurður út í tengsl sín við skólann. „Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar er gamalt og gott fyrirtæki sem hefur verið starfandi í hátt í þrjá áratugi. Sjálfur hef ég verið hér í tæpan aldarfjórðung og hef verið viðloðandi kennsluna í ein þrettán ár – allt frá 16 ára aldri. Allan þenn- an tíma er ég þá líka búinn að vera hér í dans- námi sama hvort ég hef verið að kenna eða ekki.“ Er dansinn eilífðarnám? Ég held að það sé engin spurning, dansinn er eilífðarnám og maður getur stöðugt verið að bæta við sig og læra eitthvað nýtt. Það sýnir sig líka að margir sem koma á dansnámskeið ílengj- ast í dansinum og halda jafnvel áfram árum sam- an og það sýnir kannski einna best hvað fólk hef- ur gaman af þessu. Svo er þetta líka góð íþrótt fyrir pör og í raun ein fárra íþróttagreina sem pör geta stundað saman. Ef við berum þetta t.d. saman við golfið þá er auðvelt að stunda þá íþrótt saman en vera samt sem áður hvort í sínu horn- inu að slá kúluna. Þegar kemur að dansinum hef- ur fólk hins vegar ekkert val, þar verður það að vera saman.“ Er algengt að fólk byrji ungt í dansinum? „Já, það er mjög algengt að krakkar byrji í dansinum um 4–6 ára gömul. Þegar þau eldast þróast dansinn svo oft meira út í keppnisíþrótt og okkar nemendur hafa hlotið mörg verðlaun í ald- ursflokkum 7–12 ára barna.“ Er einhverjar nýjungar að finna á haust- dagskránni? Þetta haustið munum við bjóða upp á „free- style“-dans sem er nokkuð sem við höfum ekki kennt áður, og verða þar kenndir „fame“- og „grease“-dansar, sem og aðrir tískudansar sem njóta vinsælda meðal krakka í dag. Dagskrá eldri nemenda er hins vegar með hefðbundnu sniði og þar verða í boði samkvæmisdansar á borð við vals, foxtrott og quickstep og svo suður- amerískir dansar eins og samba, rúmba og jive.“ Geta allir lært að dansa? Já, það geta allir lært að dansa. Það er hægt að æfa allt og aðalatriðið er að fólk hafi gaman af því sem það er að gera, þó svo að það dansi í sínu horni og eftir eigin takti. Við leggjum þó að sjálf- sögðu áherslu á að kenna fólki að gera hlutina rétt, enda er dans með tæknilegustu íþróttum sem til eru og því skiptir grunnurinn miklu máli.“ Dans | Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar „Það geta allir lært að dansa“  Edgar K. Gapunay er fæddur 1975 og hefur lengst af verið búsettur í Kópavoginum. Hann öðlaðist danskenn- araréttindi frá Dans- skóla Sigurðar Há- konarsonar á árunum 1997–98. Edgar hefur kennt við Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar frá 16 ára aldri, en hefur þess utan einnig kennt dans í Bretlandi, Bandaríkjunum og Hong Kong. Hann er vara- formaður Dansíþróttafélags Kópavogs. Eig- inkona Edgars er Ellen Dröfn Björnsdóttir við- skiptafræðinemi og eiga þau soninn Elvar Kristin þriggja ára. Hver þekkir kvæðið? Oft var hermanns örðug ganga, eitt sinn hlaut ég reyna það. Með sollið brjóstið, sveittan vanga, síðla fjarri næturstað. Eftir mæðu eg komst langa, eitt sitt litlum kotbæ að. Er einhver sem þekkir þetta kvæði í heild sinni eða veit eftir hvern það er – eða hver hefur þýtt það? Þeir sem gætu liðsinnt mér eru beðnir að hafa samband við Mar- gréti Halldórsdóttur í síma 553 1309. Hver þekkir vísuna? MIG langar til þess að vita hvort eft- irfarandi vísa er rétt með farin og eftir hvern hún er. Stígur hún litla stuttfóta með stutta sokka og hælótta Hringa dokka hugprúða hárs með lokka fallega. Þeir sem gætu liðsinnt mér eru beðnir að hafa samband við Guðrúnu L. Magnúsdóttur í síma 424 6543. Óskilakettlingur 5-6 mánaða bröndóttur fress með bláa glitrandi ól en merki týnt er í óskilum á Öldugötu 4 í Rvk síðan á föstudag. Eigandi er beðinn um að vitja hans. Frekari uppl. í símum 551 0854 og 824 5432. Týndist í Fossvogi KISAN okkar hún Lukka hefur ekki sést síðan á föstudaginn 20.8., þá í ná- munda við heimili sitt í Giljalandi í Fosvogi. Lukka er þriggja ára læða, eyrnamerkt 01G250, hvít að lit, með bröndótt skott og bröndótta bletti á höfði. Hún er í frekar góðum holdum og með þykkan feld. Ef einhver get- ur gefið upplýsingar um Lukku þá vinsamlegast hafið samband við Bjarna og Annettu í síma 588 0120 eða 660 2038. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Rf3 Rgf6 6. Rxf6+ Rxf6 7. c3 c5 8. Re5 a6 9. Bg5 Dd5 10. Bxf6 gxf6 11. Rc4 cxd4 12. Rb6 De4+ 13. Be2 Hb8 14. O-O dxc3 15. bxc3 Bc5 16. Hb1 Dc6 17. Bf3 Dc7 18. Da4+ Ke7 19. Da5 Bd6 20. Hfe1 Bxh2+ 21. Kh1 Be5 Staðan kom upp á atskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Sao Paulo í Bras- ilíu. Stigahæsti heimamaðurinn, Giov- anni Vescovi (2648) hafði hvítt gegn fyrrverandi heimsmeistara Anatoly Karpov (2682). 22. Rd5+! og svartur gafst upp enda fellur drottningin út- byrðis eftir 22... exd5 23. Dxc7+. Karp- ov skrifaði fyrir margt löngu bók um hvernig menn gætu lært af ósigrum sínum og var þar m.a. skák sem hann tapaði í franskri vörn fyrir Geller og af þessu stutta tapi að dæma virðist hann ekki hafa lært nóg um byrjunina. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Viswanathan Anand (2782) 8½ vinning af 10 mögulegum. 2. Ivan Morovic (2573) 5½ v. 3. Rafael Leitao (2573) 4½ v. 4.-5. Anatoly Karpov (2682) og Giovanni Vescovi (2648) 4 v. 6. Gilberto Milos 3½ v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Suzette Kaper, sjúkraþjálfari hefur hafið störf hjá Sjúkraþjálfun Styrk, Stangarhyl 7, 110 Reykjavík. Tímapantanir í síma 587 7750. Nýir heilsugæslulæknar Nýir læknar koma til starfa á Heilsugæslunni Salahverfi sem hér segir: Rannveig Pálsdóttir - 1. september Skúli Gunnarsson - 15. október Þeir sem óska að njóta þjónustu þessara lækna og annarra lækna Heilsugæslunnar geta skráð sig á Heilsugæslunni Salahverfi, Salavegi 2, Kópavogi, alla virka daga kl. 8–17. Sími 590 3900. Með kveðju starfsfólk Heilsugæslunnar Salahverfi Haustönn Kvennakórs Reykjavíkur 2004 Kórskóli: Kórskóli er ætlaður konum sem hafa litla eða enga reynslu af söng eða nótnalestri. Kennt er á miðvikudögum frá klukkan 18.00 til 19.30 í Sjómannaskólanum við Háteigsveg. Kennsla hefst miðvikudaginn 8. september. Áhugasamar hafi samband í síma 896 6468 eftir klukkan 16.00. Kvennakór: Æfingar hefjast miðvikudaginn 1. september kl. 20.00 í Sjómannaskólanum. FÉLAGSÞJÓNUSTAN í Reykja- vík hefur undanfarin fjögur ár veitt styrki til náms í félagsráð- gjöf við Háskóla Íslands. Styrk- irnir eru eingöngu ætlaðir karl- mönnum sem stefna að starfsréttindanámi í félagsráðgjöf og hafa lokið a.m.k. eins árs námi á háskólastigi. 27. ágúst sl. var þessi námsstyrkur fyrir karla veittur í fimmta sinn og hlutu tveir styrkinn að þessu sinni, þeir Hallgrímur Þór Gunnþórsson og Þorsteinn Sveinsson. Styrkveitingin er liður í jafn- réttisáætlun Félagsþjónustunnar og markmiðið með henni er að stuðla að því að auka hlut karla í ráðgjafarstörfum hjá stofnuninni. Það skilyrði fylgir úthlutun styrksins að styrkþegi skuldbind- ur sig til að starfa hjá Fé- lagsþjónustunni í Reykjavík í a.m.k. eitt ár eftir að starfsrétt- indanámi lýkur. Jafnframt er styrkurinn hluti af viðameira samstarfi Félagsþjón- ustunnar og námsbrautar í fé- lagsráðgjöf við Háskóla Íslands, en þar má nefna starfsþjálfun nema í félagsráðgjöf, rannsókn- arsamstarf og kostun tímabund- innar lektorsstöðu í félagsráðgjöf. Styrkurinn er kenndur við Þóri Kr. Þórðarson, prófessor og fyrr- um borgarfulltrúa, en hann var brautryðjandi nútíma félagsþjón- ustu í Reykjavík. Sussana Gunnþórsson, Hallgrímur Þór Gunnþórsson, Lára Björnsdóttir fé- lagsmálastjóri, Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við HÍ, og Þorsteinn Sveinsson. Námsstyrkur Félagsþjónustunnar EKIÐ var á bifreiðina YF-119, sem er grár Volkswagen Golf, á bifreiða- stæðinu vestan við slysadeildina í Fossvogi. Tjónvaldur, ökumaður á dökkblárri fólksbifreið, fór af vett- vangi án þess að tilkynna um óhapp- ið. Þeir sem geta gefið upplýsingar um atvikið eru beðnir að hafa sam- band við umferðardeild lögreglunn- ar í Reykjavík í s. 444-1130. Lýst eftir vitnum SAMBAND ungra framsóknar- manna (SUF) fagnar því að banka- kerfið bæti þjónustu sína við al- menning í landinu með því að bjóða húsnæðislán fyrir allt að 80% af kaupverði og á vöxtum sem eru sam- bærilegir við lánskjör Íbúðalána- sjóðs. SUF telur löngu tímabært að bankakerfið taki á þennan hátt þátt í fjármögnun íbúðahúsnæðis lands- manna, segir í ályktun félagsins. „Það er enginn vafi á því að meg- inskýringin á þessari bættu þjón- ustu bankakerfisins er sú þróun sem orðið hefur frá því að Framsókn- arflokkurinn hóf baráttu sína fyrir 90% almennum húsnæðislánum í landinu. Frá myndun núverandi rík- isstjórnar hefur verið unnið ötullega að framkvæmd ákvæðis stjórnar- sáttmálans um 90% húsnæðislán. Ljóst er að ríkisstjórnin stefnir að því að leggja fram frumvarp um 90% lán strax á haustþingi. Sú umræða sem kosningaloforð Framsóknar- flokksins skapaði um húsnæðismál í landinu er forsenda þeirra bættu kjara sem bankarnir eru nú að bjóða almenningi í landinu,“ segir í álykt- uninni. Fagna húsnæðis- lánum banka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.