Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 35
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 35
Þriðjudagstónleikar
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
31. ágúst kl. 20:30
Gruppo Atlantico ásamt
Signýju Sæmundsdóttur sópran.
Píanótríó í G dúr eftir Haydn,
Vocalise eftir Hjálmar H.
Ragnarsson, Impressions for
Cello eftir Zaretsky og Píanótríó
nr. 1 í H dúr eftir Brahms.
Síðustu tónleikar
sumarsins
Kórar landsins eru hver aföðrum að hefja vetr-arstarf sitt um þessarmundir. Vel á þriðja
hundrað kóra og sönghópa starfa í
landinu, og má gera ráð fyrir að um
átta til tíu þúsund manns syngi í kór-
um. Hjá mörgum kórum hefur skap-
ast hefð fyrir því að flytja stærri kór-
verk í tengslum við stórhátíðir, aðrir
velja sér þema að starfa eftir, og enn
aðrir syngja jafnvel mörg prógrömm
smærri verka á bæði á eigin tón-
leikum og tónlistarhátíðum. Í vetr-
arstarfi kóranna nú eru áherslur afar
fjölbreyttar; djass og blús, íslensk
verk, franskar sálumessur, kvik-
myndatónlist og svo auðvitað mik-
ilfengleg verk barrokkmeistarans Jó-
hanns Sebastians Bachs, sem reikna
má með að hægt sé að heyra – eða
syngja, á hverju ári.
Kórferðir eru jafnan vinsæll fylgi-
fiskur kórstarfsins, og íslenskir kórar
hafa átt góðu gengi að fagna á kóra-
mótum, í keppni og á tónleikaferðum
erlendis. Hér starfa reyndar margir
afbragðskórar, sem íslensk tónskáld
hafa sinnt vel.
Íslenskir kórar eru reyndar líka
ötulir við að hvetja til nýsköpunar í
tónlist, panta sjálfir verk til flutnings
og íslensk tónskáld virðast enn sem
áður hafa ærinn starfa af því að semja
kórum ný verk. Þessi hefð einkennir
kórastarf íslenskra kóra í vetur.
Dómkórinn efnir að vanda til Tón-
listardaga síðla hausts, og að þessu
sinni verður frumflutt nýtt verk eftir
enska tónskáldið Bob Chilcott, sem
stjórnar kórnum á tónleikunum. Mar-
teinn H. Friðriksson kórstjóri og
dómorganisti segir að mikill fengur
sé að því fyrir kórinn að fá tónskáldið
til að stjórna hér eigin verki. „Strax
morguninn eftir ætlum við að syngja
messu eftir Knut Nystedt við afmæl-
ismessu í kirkjunni,“ segir Marteinn,
en á Tónlistardögunum verða jafn-
framt tónleikar með nýju kórverk-
unum úr samkeppni kórsins um verk
til flutnings við hjónavígslur auk tón-
leika Barnakórs Dómkirkjunnar og
annarra tónlistarmanna. Á loka-
tónleikum Tónlistardaganna, syngur
Dómkórinn Te deum eftir Arvo Pärt.
Þetta kann að virðast í mikið ráðist
svo snemma á starfsárinu, en Mar-
teinn segir að kórinn hafi byrjað að
æfa verkefni þessa vetrar strax í vor.
Hann gerir því ekki ráð fyrir að nýtt
kórfólk verði tekið í kórinn nú í haust.
Dómkórinn stefnir svo á tónleikaferð
til útlanda í vor þar sem flutt verður
stórt verk fyrir kór og hljómsveit.
Söngsveitin Fílharmónía er að
hefja sitt 45. starfsár um þessar
mundir, og af því tilefni ætlar kórinn
að bregða út af hefð sinni á aðventu.
Að þessu sinni mun hún flytja tón-
leika í þremur dómkirkjum landsins í
nóvemberlok.
Vorverkefni Söngsveitarinnar
verður Carmina burana eftir Carl
Orff, en verkið flutti Söngsveitin ein-
mitt á sínu fyrsta starfsári. Það var
vorið 1960 og voru tvennir tónleikar
haldnir í Þjóðleikhúsinu.
Stjórnandi Söngsveitarinnar,
Bernharður Wilkinson, var í leyfi síð-
asta ár og mun verða það einnig í vet-
ur. Óliver Kentish mun áfram stjórna
kórnum í hans fjarveru. Fyrsta æfing
haustsins verður 6. september kl. 20.
Æft er á mánudags- og miðvikudags-
kvöldum í Melaskóla og laus pláss eru
í öllum röddum. Áhugasamir geta
haft samband við formann kórsins,
Lilju Árnadóttur.
Kór Langholtskirkju syngur
með Mezzoforte í nýju verki
Kórstarfið í Langholtskirkju hófst
um helgina, þegar Graduale Nobili
hóf undirbúning ferðar sinnar á nor-
ræna kirkjutónlistarmótið í Dan-
mörku um miðjan september. Þar
verður kórinn fulltrúi íslenskra kóra
og kynnir þar það nýjasta í íslenskri
kórtónlist fyrir samkynja raddir. Þar
verður frumflutt stórt nýtt verk,
Vesper, eftir Tryggva M. Baldvins-
son. Kórinn syngur þrenna tónleika
ytra auk þátttökunnar í mótinu.
Kór Langholtskirkju æfir í vetur
nýtt stórt verk sem Árni Egilsson
tónskáld skenkti kórstjóranum Jóni
Stefánssyni í tilefni af 40 ára starfs-
afmæli Jóns. „Það er samið fyrir stór-
an kór og hljómsveitina Mezzoforte,“
segir Jón, en verkið verður frumflutt
í nóvember. Í tilefni af starfsafmæl-
inu fékk Jón einnig nýtt verk frá
Hreiðari Inga Þorsteinssyni, sem
verður æft og frumflutt í vetur.
„Þetta er sálumessa fyrir blandaðan
kór, englaraddir, drengsrödd, gítar,
hörpu og orgel. Það er hugsanlegt að
við frumflytjum það í dymbilviku,“
segir Jón. Lokahnykkur starfsárs
Kórs Langholtskirkju verður flutn-
ingur á Sacred Concert eftir Duke
Ellington á Djasshátíð Austurlands á
næsta ári.
Gradualekórinn, sem er barnakór
kirkjunnar, hyggur á tónleikaferð til
Spánar næsta sumar, og verkefni
Kammerkórs kirkjunnar er ekki
ákveðið að svo stöddu. Nýja kór-
söngvara vantar bæði í Kór Lang-
holtskirkju og í Gradualekórinn, en
valið er inn í hina kóra kirkjunnar.
Bach í öndvegi
í Hallgrímskirkju
Hrafnagaldur, Listahátíðarverk-
efni Sigur Rósar og Hilmars Arnar
Hilmarssonar, verður flutt á íslensk-
um menningardögum í Frakklandi í
byrjun október, en þar er kamm-
erkór Hallgrímskirkju, Schola cant-
orum, meðal flytjenda. Í sömu ferð
syngur kórinn jafnframt tvenna tón-
leika, hvora með sinni efnisskrá með
stjórnanda sínum Herði Áskelssyni.
Á öðrum þessara tónleika verða flutt-
ir Óttusöngvar á vori eftir Jón Nor-
dal. Á aðventu syngur Schola cantor-
um Jólaóratoríu Bachs ásamt
hollenskri barrokksveit. Í febrúar
flytur kórinn nýja tónlist ásamt
Rascher-saxófónkvartettinum, þar á
meðal verk eftir Huga Guðmundsson.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur
sína fyrstu vetrartónleika á allraheil-
agramessu í byrjun nóvember, þar
sem sungnar verða sálumessur eftir
Duruflé og Fauré. Mótettukórinn
syngur á jólatónleikahátíð kirkjunnar
á aðventu, en gestir kórsins verða
Sigurður Flosason saxófónleikari og
Ísak Ríkharðsson sópran, en á efnis-
skránni verða íslensk og erlend að-
ventu- og jólalög. Eftir áramót hefur
Mótettukórinn æfingar á Mattheus-
arpassíu Bachs, sem verður flutt á
Kirkjulistahátíð sem þá verður í
fyrsta sinn haldin í ágúst.
Drengjakór Reykjavíkur hefur
flutt sig um set og verður í vetur
starfræktur við Hallgrímskirkju und-
ir stjórn Friðriks S. Kristinssonar.
Drengjakórinn, sem hefur starfað
undanfarin þrjú ár í Neskirkju og þar
áður í Laugarneskirkju, færir um leið
út kvíarnar, því áformað er að stofna
undirbúningsdeild þar sem 6 til 8 ára
gamlir drengir njóta leiðsagnar og
kennslu sem á að búa þá undir að
syngja í drengjakórnum. Nýir kór-
félagar verða teknir inn í kórinn í
haust. Allar nánari upplýsingar veitir
Friðrik kórstjóri í síma 896 4914.
Kammerkór Suðurlands hefur
starfsárið með því að endurtaka tón-
leika sína með verkum enska tón-
skáldsins sir Johns Taveners frá ný-
liðnum Sumartónleikum í Skálholti.
Þá tekur sérstakt verkefni við hjá
kórnum, að sögn kórstjórans, Hilm-
ars Arnar Agnarssonar. „Við ætlum
að æfa og hljóðrita lög eftir eldri
mann hér í sveitinni, Guðmund Gott-
skálksson, sem bjó lengi í Hvera-
gerði. En það er þó ýmislegt fleira í
undirbúningi hjá kórnum, þótt ekki
sé alveg tímabært að segja frá því.“
Þeir Sunnlendingar sem hafa áhuga á
að syngja með Kammerkórnum geta
haft samband við Hilmar Örn.
Djass og blús í Hafnarfirði
og bíómúsík hjá Hljómeyki
Kammerkór Hafnarfjarðar verður
með árlega jólatónleika sem farið er
að undirbúa að hausti, en í febrúar
syngur kórinn Sacred Concerto eftir
Ellington ásamt djassbandi. Kórinn
stefnir einnig að því að æfa ameríska
negrasálma í vetur, sem ætlunin er að
syngja á Blúshátíð í Reykjavík á
föstudaginn langa. Kórinn er fullskip-
aður og nýju kórfólki því ekki bætt
við að sinni.
Hildigunnur Rúnarsdóttir tón-
skáld hefur sungið með Hljómeyki
árum saman, en fyrsta verkefni kórs-
ins verður að hljóðrita verk hennar
sem flutt voru á Sumartónleikum í
Skálholti í sumar. „Við syngjum verk
eftir Richard Einhof með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á kvikmynda-
tónleikum hljómsveitarinnar 11. nóv-
ember, undir sýningu myndar
Vantar alltaf góða tenóra
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sönghópurinn Hljómeyki saman kominn í Skálholti.
PRESTAR landsins
lenda af og til í
vanda þegar brúð-
hjón standa frammi
fyrir því að velja sér
lag til flutnings við
hjónavígsluna.
Þannig hefur prest-
ur einn frá því sagt
að hjónaefni hafi
viljað láta flytja
„Please release me, let me go“
sem er þó augljóslega ekki í takti
við tilefnið.
Dómkórinn í Reykjavík hefur
ákveðið að efna til verðlauna-
samkeppni um tónlist til flutnings
við hjónavígslur. Er leitað eftir
sönglögum, sem höfða til ungs
fólks. Tónmenntasjóður þjóð-
kirkjunnar veitti nýlega styrki til
nýsköpunar og ákvað Dómkórinn
að nota það fé sem hann fékk út-
hlutað til að auðga úrval kirkju-
legrar, íslenskrar brúðkaups-
tónlistar.
Dómkórinn vill með þessu auka
það úrval kirkjulegrar tónlistar
sem hægt er að benda ungu fólki
á þegar ákveðið hefur verið að
ganga í hjónaband. Í því skyni er
nú auglýst eftir nýrri tónlist, sem
líkleg er til að falla ungu fólki í
geð, en hefur þó það yfirbragð
sem sæmir flutningi í kirkju. Leit-
að er eftir lögum fyrir kóra eða
einsöngvara og hljóðfæri. Prest-
ar Dómkirkjunnar – sr. Jakob
Hjálmarsson og sr. Hjálmar Jóns-
son – geta verið tónskáldum inn-
an handar með að finna hentuga
sálmatexta eða kvæði og einnig
er hægt að leita ráða hjá Marteini
H. Friðrikssyni dómorganista.
Skilafrestur í samkeppninni er
til 15. október nk. en laugardag-
inn 13. nóvember stendur til að
flytja verðlaunaverkin, auk ann-
arrar brúðkaupstónlistar. Verða
tónleikarnir hljóðritaðir og út
gefinn sýnisdiskur með tónlist-
inni, en með því er leitast við að
gera verðandi brúðhjónum auð-
veldara að velja tónlist við hjóna-
vígsluna. Verðlaun verða veitt
fyrir þau verk sem flutt verða á
tónleikunum 13. nóvember.
Leiddu mig í lundinn …
Tónlist | Mikil fjölbreytni, en fastir liðir á sínum stað þegar kórarnir hefja vetrarstarf
Dreyers, Píslarsögu Jóhönnu af Örk.
Á jólatónleikunum okkar ætlum við
að syngja amerísk jólalög með nýja
ameríska stjórnandanum okkar,
Keith Reed, sem er fluttur suður eftir
að hafa starfað lengi á Austfjörðum.“
Hildigunnur segir að á teikniborði
Hljómeykis sé Ameríkuferð næsta
sumar, en þá verði að líkindum flutt
íslensk tónlist. „Við leitum alltaf að
góðum tenórum, en að öðru leyti er
Hljómeyki vel sett,“ segir Hildigunn-
ur.
Eins og sagt var frá í blaðinu fyrir
nokkru syngur Óperukórinn í Carn-
egie Hall í New York í haust ásamt
fleiri kórum og hljómsveit undir
stjórn Garðars Cortes. Jólatónleikar
verða með hefðbundnu sniði, en stóra
verkefni kórsins eftir áramót verður
sviðsuppfærsla á óperu Berlioz, For-
dæmingu Fásts, með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
Þriðji kórinn sem syngur með Sin-
fóníunni í vetur er Hamrahlíðarkór-
inn, sem syngur Magnificat eftir
Bach á tónleikum 2. desember, en
stjórnandi kórsins er Þorgerður Ing-
ólfsdóttir.
Þriðja starfsár Kammerkórs Mos-
fellsbæjar er að hefjast.
Kammerkór Mosfellsbæjar er að
hefja sitt þriðja starfsár nú í byrjun
september, en kórinn getur bætt við
áhugasömu söngfólki í allar raddir. Í
vetur ætlar kórinn meðal annars að
æfa spænsk lög auk íslenskra og fær-
eyskra þjóðlaga og verka eftir Händ-
el og Mozart. Í vetur býður kórinn al-
menningi upp á kennslu í
grunnatriðum tónfræðinnar og létt-
um söng. Stjórnandi kórsins er Sím-
on H. Ívarsson.
Þingeyingakórinn hefur fengið nýj-
an kórstjóra og hefur Arngerður M.
Árnadóttir tekið við af Kára Friðriks-
syni. Í kjölfar breytinganna mun kór-
inn bæta við söngvurum í allar raddir.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu
kórsins www.this.is/kor.
Schola cantorum í Hallgrímskirkju.